Þjóðviljinn - 29.06.1976, Qupperneq 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 29. júní 1976.
Freystandi
Framhald af bls. 1,-
beðið um aðstoð en enginn hljóm-
grunnur hefur fengist úr þeirri
áttinni. Hér er auk þess unnið
undir miklu álagi með alltof fáa
menn, sem allan daginn eru að
eiga við þúsund stiga heitan
málm við hinar erfiðustu og ófull-
komnustu aðstæður. Það er ekki
hægt að bjóða endalaust upp á
óbreytt ástand i þessum málum,
við verðum að fá tafarlausa úr-
lausn. —gsp
Hinrik sá um •••
Framhald af 12 siðu
stórhættuleg. Oheppni liðsins er
algjör og er svo sannarlega von-
andi að úr fari að rætast innan
tiðar. Mest bar á framlinumönn-
unum að þessu sinni, þeim Baldri
Hannessyni, Leifi Harðarsyni og
Þorvaldi Þorvaldssyni, sem skor-
aði bæði mörkin. Vörnin var veik-
ari hluti liðsins, einkum framan
af en þá opnaðist hún oft illa. Hitt
er svo annað aö vörn sem hefur
markmann eins og Jón Þor-
björnsson á bak við sig getur leyft
sér ýmislegt þó ljótt sé að mis-
nota sér þannig friðindi.
Dómari var Guðmundur Har-
aldsson og stóð hann sig vel. Gula
spjaldið fengu þeir Vignir Bald-
ursson Breiðabliki og Þróttar-
arnir Baldur Hannesson og Jó-
hann Hreiðarsson. —gsp
Á þriðjudegi
Framhald af bls. 7.
uppgjöf islensku rikisstjórnar-
innar við að leysa vandamál
þjóðarinnar að málgögn hennar
skuli lofsyngja i kór þann flokk
sem leitt hefur Italiu á heljar-
þröm. Kannskier það óttinn við
hið volduga endurreisnarafl al-
þýðunnar sem tengir saman á
Islandi og ttalíu þessa þjónustu-
menn við útlenda hagsmuni.
Samanburður á þessum
tveimur löndum birtir ekki
aðeins hinar neikvæðu hliðar.
Þróun siðustu ára hefur bæði á
tsiandi og Italiu opnað augu æ
fleiri fyrir þvi, að efnahagsleg
og þjóðleg endurreisn er
útiiokuð meðan rikjandi öfl
stjórna löndunum. Bandalag
verkalýðs, bænda, æsku og heil-
brigðrar millistéttar sem lýtur
samhæíðri sósiah'skri leiðsöf. n
er eini aðilinn sem getur hett
forystu um alhliða endurreisn.
Aðeins slikt stjórnmálaafl getur
hreinsað þessi lönd af spillingu,
mútum og glæpum, stöðvað
oðaverðbólguna og komið i veg
fyrir áframhaldandi gengis
hrun, sett erlendum
auðhringum stóiinn fyrir dyrnai
og með sterkr stjórn komið á
raunverulegu efnahagsiegu
sjálfstæði. (,
„Faðir minn •••
Framhald af bls. 10.
með nýjum, sterkum og litrik-
um þráðum.
Frelsi og sjálfstæði hverrar
þjóðar er gert úr mörgum
strengjum og það er undir
styrkleika þeirra og samvindu
komið hve fullveldi hennar
stendur föstum fótum.
Meginstyrkur þeirrar sam-
vindu er, að þjóðin meti og virði
land sitt með sérkennum þess,
kostum og göllum.
Við verðum að skilja og
muna, að náttúra landsins og
saga þess, — tunga þjóðarinnar
og menning hennar með sér-
kennum sinum er vöggugjöf
okkar — arfleifð, sem okkur ber
að varðveita, — láta hana auk-
ast og eldast til bóta og skila
henni áfram í hönd komandi
kynslóðar. Og þetta er arfleifð,
sem við verðum að sýna fullan
trúnað i orði og athöfn.
En til þessarar varðveislu
þarf bæði vit, vilja og staðfestu.
Sé islendingurinn þeim kost-
um búinn, getur hann kinnroða-
laust og einarður tekið undir
þessa skýlausu heitstrenging
Jóhannesar úr Kötlum:
Vér stöndum, hver einasti einn
um Isiand hinn skylduga vörð:
Af hjarta vér leggjum nú hönd
á heilaga jörð
og sverjum, aö sameinast besl
þess sál, þegar hættan er mest.
Hver einasti einn.
Lánamál
Framhalrl af bls. 2.
beint inn á þær greinar, sem
hagkvæmastar eru bæði frá
sjónarmiði bænda og þjóð-
félagsins i heild og lánakerfi
landbúnaðarins verði beitt til
þess að stuðla að þvi. Athugað
verði, hvort ekki væri eðlilegt að
Byggðasjóður legði stofnlána-
deildinni til hluta af sinum tekj-
um. Rannsóknarstarfsemi i
landbúnaði verði stóraukin.
Stefnt verði að stórbættri nýt-
ingu innlends fóðurs og hey-
kögglagerð aukin til þess að
spara erlend kjarnfóðurkaup,
enda fái heykögglaverksmiðjur
raforku og jarðvarma á hag-
stæðu verði. Kapp sé lagt á
fiskirækt i ám og vötnum og
sem besta nýtingu annara
hlunninda. Haft sé samráð við
U riVISTARFERÐIH
Sumarleyfis-
ferðir
9.—19. júli Flateyjardalur.
10.—18. — öræfajökull — Skaftafell.
12. —21. — Hornstrandir — Hornvik.
13. —22. — Suðursveit — Hoffellsdalur.
14. —28. — Vopnafjörður — Langanes.
15. —21. — Látrabjarg.
20,—28. — Hornstrandir — Aðalvik.
22.-29. — Alftafjarðaröræfi.
24.-29. — Laki — Eldgjá — Hvanngil.
22.-28. — Grænlandsferð (einnig 29/7 — 5/8).
Ennfremur ódýrar vikudvalir i Þórsmörk,
6.200 kr.
— Geymið auglýsinguna —
— Leitið upplýsinga —
tJTIVIST,
Lækjarg. 6, simi 14606
Stéttarsamband bænda um nið-
urgreiðslu á búvöru. Lánamál
landbúnaðarins verði endur-
skipulögð með það i huga, að
tryggt sé fjármagn til eðlilegs
viðhalds og þróunar landbúnað-
arins. Stóraukin verði lán til
jarðakaupa og heimilt verði að
lána til 2ja ibúða á hverri jörð til
þess að auðvelda kynslóðaskipti
við búreksturinn. Rekstiarlán
til landbúnaðarins verði aukin.
Greiði bændur áfram búvöru-
gjald til stofnlánadeildar sé það
tekið inn i verðlags grundvöll-
inn. Jafnframt verði athugað
hvort ekki sé heppilegt að gera
stofnlánadeild landbúnaðarins
að sjálfstæðri stofnun með sér-
stakri stjórn. Stuðlað sé að auk-
inni gróður- og náttúruvernd.
— nihg
Glímuskjálfti FM
Framhald af 5. siðu.
,,É ora, é ora, potere a chi la-
vora”, ,,Nú er timi til að fá þeim
sem vinna völd i hendur” — þetta
vigorð getur PCI átt sameiginlegt
með ýmsum öðrum vinstrisam-
tökum. Hitt var ,,É ora, é ora di
cambiare, il PCI deve
governare” —en það er höfuðvig-
orð flokksins, „Mál er að breyta,
og PCI verður þá
að stjórna.” Eða eins og
á plakötum: An PCI verður
engu breytt. Varð nú úr öllu
saman allgóð stemmning með
ræðuhöldum m.a, Berlinguers
undir lokin og ýmsum alþýðu-
hátiðafyrirbærum, söng barna-
stússi, gosdrykkju, samtölum,
kunningjafaðmlögum og þar
fram eftir götum. Kannski voru
þarna 60—80 þúsundir manna,
ekki kann ég að telja það.. Og það
voru hafðar uppi heitstrengingar
um að nú skyldi breyta til, byrja
betri tið, skapa ítaliu verðugri
sess meðal þjóða...
Samt vildu kommúnistar ekki
þessar kosningar og ekki kristi-
legir heldur. Það voru sósialistar
sem knúðu þær fram og sfðan fór
svo að þeir sem ekki vildu
kosningar efldust, en þeir sem
helst vildu þær biðu nokkurn
ósigur. En um þessar þverstæður
og fleiri verður fjallað i næstu
greinum. _áb
Fyrsta islenska...
Framhald af bls. 6.
fyrir peninga og sjá þá aðallega
um þá, sem þeir græða mest á.
Umboðsmaðurinn minn er afar
geðugur, mér likar vel við hann,
en hefur hreint ekkert gert fyrir
mig. Það sem ég hef fengið að
gera er i gegnum gömul sam-
bönd, sem ég hef sjálf.
Og David hefur lika komist á ,
eigin spýtur það sem hann hefur
komist. Hann vinnur slna skrif-
stofuvinnu sjálfur.
En umboðsmaðurinn fær tiu
prósentaf öllum tekjum leikara. 1
hvert skipti sem maður gerir eitt-
hvað þarf maður að skrifa til þess
fólks sem sér um ráðningar I leik-
húsum og sjónvarpi og vekja at-
hygli á verkum sinum.
Þessir stóru aðilar auglýsa
aldrei eftir fólki. Framboðið er
alltof mikið.
8 til 9 af hverjum tiu leikurum
er stöðugt atvinnulausir.
En við hjónin höfum verið
heppin, við höfum unnið I at-
vinnuleikhúsunum úti á landi,
leikhúsum i London og I sjónvarpi
smávegis — þá höfum við kennt
dálitið i okkar gamla skóla
„Central.”
En eftir þvi sem maður er leng-
ur i útlöndum kann maður betur
að meta það sem maður á hér
heima. Ég geri mér æ betri grein
fyrir þvi, hvað það er gott að vera
á íslandi. Og mér finnst nauðsyn-
legt aö koma heim alitaf öðru
hvoru.
Ferðakort —
Ferðahandbœkur
Við höfum nú fyrirliggjandi geysifjöl-
breytt úrval af innlendum ferðakortum
svo og erlend ferðakort yfir Bandarikin
og flest lönd og borgir i Evrópu.
Einnig stórar og smáar orðabækur og
samtalsbækur á öllum helstu tungumálum
heimsins.
Skrúðgarðabókin
2. útgáfa, aukin og endurbætt, er nú fáan-
leg hjá okkur
Bókaverslun Snœbjarnar
Hafnarstrœti 4 — Sími 14281
Full búð af fallegum
barnafötum
Vörurnar veröa seldar meö miklum afslætti, þvi vcrslunin
hættir bráölega. Látiö ekki þetta einstæöa tækifæri úr
greipum renna.
Barnafataverslunin Rauðhetta
Iönaöarhúsinu v/HalIveigarstig.
Samvinnu-
skólanemendur
Árgangur 1922, 32, 42, 52, 62, og 72
Þar sem Árbók III er nú að fara i prentun
eru þeir af ofangreindum árgöngum, sem
vilja koma leiðréttingum á framfæri,
beðnir um að hafa samband við Gisla Har-
aldsson i sima 50200 kl. 9—18 eða Guð-
mund R. Jóhannsson i sima 84800 kl. 9—17
fyrir 10. júli nk.
Nemendasamband Samvinnuskólans
Skipstjóra- og
stýrimannaféiagið
Aldan
boðar til félagsfundar að Bárugötu 11
fimmtudaginn 1. júli nk. kl. 17.30. Fundar-
efni:
Uppstilling til stjórnarkjörs
Önnur mál
Stjórnin