Þjóðviljinn - 06.07.1976, Qupperneq 1
# / T / / J
HOHH
Þriðjudagur 6. júli 1976.— 41. árg. —145. tbl.
RAFMAGNSVERÐ
HÆKKAR VÍÐA
— frá 10 og upp í 20%
Iönaðarráöuneytið hefur nú farið á 15% hækkun á rafmagni I
heimilað verðhækkun á rafmagni heiidsölu. Hækkunin nemur frá
i smásölu frá ýmsum rafveitum 10% og upp I 20% þar sem hún er
víða um land. Kemur hún i kjöi- mest. Búist er við frekari hækk-
------------unum á næstunni.
Eftirtaldar rafveitur hækka
núna:
Reykjavik 11%, Hafnarfjörður
11%, Isafjörður 11%, Patreks-
fjörður 11%, Keflavik 10%,
Gerðahreppur 10% Sandgerði
10%, Vatnsleysuströnd 10%,
Njarðvikur 10%, Grindavík 10%
Borgarnes 12%, Húsavik 15%,
Akureyri 20% og Sauðárkrókur
20%.
1 iðnaðarráðuneytinu fékk
Þjóðviljinn þær upplýsingar að
hin mikla hækkun á Akureyri
væri vegna þess að kaupstaðurinn
hefði dregist aftur úr i hækkunum
að undanförnu en á Sauðárkróki
værihún ma. vegna mikilla fram-
kvæmda. Hækkunin á Húsavik
kemur ekki til framkvæmda fyrr
en 1. ágúst. Rafmagnsveitur
rikisins hafa ekki fengið heimild
til hækkunar á smásöluverði.
Rafveiturnar á Selfossi, Eyrar-
bakka og iHveragerð'i fengu fyrir
stuttu 10% hækkun.
—GFr.
Frá mótmælunum I gærmorgun. Eriendir ferðamenn sem þarna voru staddir tóku mótmælendum vel og skildu vel þversögnina sem þeir
bentu á I framferði Nató annars vegar i þorskastriðinu og hins vegar i þvi að efna til ráðstefnu um náttúruvernd.
Mótmæli vegnaNATO-
ráðstefnunnar
I gærmorgun stóðu
nokkrir félagar úr samtök-
um herstöðvaandstæðinga
framan við fundarstað
NATó-ráðstefnugesta að
Hótel Loftleiðum til þess
að mótmæla hernaðar-
bandalaginu. Báru her-
stöðvaandstæðingar spjöld
með áletrunum um brott-
för hersins og héldu uppi
borðum með vígorðum
gegn NATó á. Þá afhentu
mótmælendur ráðstefnu-
gestum og öðrum gangandi
ávarp, sem samið er i til-
efni af þessu ráðstefnu-
haldi NATÓ, en ráðstefnan
fjallar um umhverfis-
vernd!
Ávarp miðnefndar herstöðva-
andstæðinga hljóðar svo:
„örskammt er siðan að heralfa
NATO var beitt, til þess að
vernda rányrkju á fiskimiðum við
Islandsstrendur, auölindum sem
eru undirstaða efnahagslifs þjóö-
arinnar. Árum saman hefur
NATO stuölað að þessari rán-
yrkju, sem hefur leitt til þess að
þorskstofninn er i stórfelldri
hættu. I ljósi þessa hljóta islend-
ingar aö tortryggja heilindi
NATO i umhverfisverndármálum
og vill Miðnefnd herstöðvaand-
stæðinga þvi fordæma þann tvi-
skinnung er NATO sýnir með þvi
aö efna til ráðstefnu um
umhverfismál.
Tilgangur NATO með þeirri
ráðstefnu um umhverfismál sem
hér er haldin er sá einn að kasta
ryki i augu almennings, hvað
varðar raunverulegt eöli NATO.
Reynt er með slikum ráðstefnum
sem þessari, að sýna fram á að
NATO sé bandalag um visinda-
lega samhjálp, til þess að fela hiö
raunverulega eðli þessa
hernaðarbandalags.
Hlutverk þess er aö halda niðri
frelsis- og hagsmunabaráttu al-
þýðu um viöa veröld. Sú eina
„umhverfisvernd”, sem Nato
stundar, felst i striösrekstri gegn
alþýðu til verndar áframhaldandi
arðráni auövaldsins og heims-
valdastefnu. NATO er sett á stofn
til verndar heimskerfi, sem felur
i sér eyðileggingu náttúruauð-
linda og gereyðingarstyrjaldir,
heimskerfi sem grundvallast á
gróðasókn, sem tekur ekkert tillit
til náttúrulegs umhverfis manns-
ins. Hernaðarbandalag stuðlar
Franjhald á 14. siðu.
Settur 1 starf —
Staðan auglýst
innan tiðar!
Lúðvik Hjálmtýsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Ferðamálaráðs, hefur verið
settur i nýtt starf ferðamála-
stjóra, sem enn hefur þó ekki
verið auglýst laust til umsókn-
ar, en verður auglýst innan
fárra daga!
Að sögn ólafs Steinars
Valdemarssonar i samgöngu-
ráðuneytinu er verið að útbúa
auglýsingu um þessa nýju
stöðu ferðamálastjóra. Starf
framkvæmdastjóra Ferða-
málaráðs, sem Lúövik hefur
gegnt, hefur veriö lagt niður,
en Lúðvik geröur að ferða-
málastjóra á þann hátt, sem
að framan segir.
Þá mun vera nýlokiö við að
skipa i nýtt Ferðamálaráð.
Tilkynning um þá skipan
verður gefin út innan tiðar, en
að sögn Ólafs Steinars hefur
Heimir liannesson verið skip-
aður formaður þess. —úþ
Bráða-
birgðalög
til að
aflétta
eignarskatti
„Þar sem undirbúningi að
álagningu gjaida fyrir skatt-
árið 1975 er um það bil aö Ijúka
hjá skattstjórum, ber brýna
nauösyn til að gera nú þegar
ráðstafanir til þess að unnt sé
að breyta áiagningu eignar-
skatts þannig, að þeir fram-
teljendur, sem ekki hafa átt
meiri eignir en svo að þær
hafa verið eignarskattfrjálsar
verði nú ekki skattlagðir af
þeim eignum.”
Svo segir I greinargerö fyrir
nýjum bráðabirgðalögum,
sem sett voru I gær.
KRÖN í BREIÐHOLTI
OFTAST MEÐAL LÆGSTU
VERSLANANNA
1 verðkönnuninni sem Verðlags-
stjöri hefur nýlega látið gera,
kemur fram að stórmarkaðirnir
eru almennt með lægra vöruverð
en minni verslanir, en þeir hafa
yfirleitt ekki kjötborð, þar sem
selt er nýtt kjöt beint úr verslun-
inni. Kron i Breiðholti, sem selur
allar nýlenduvörur með 8-10% af-
slætti, án þess að menn hafi af-
sláttarkort félaga i KRON, hefur
einnig kjötborð og fullkomna
kjötþjónustu.
KRON i Breiöholti reyndist
vera meðal 5 lægstu verslananna
il4tilfellum af 15 (15 vörutegund-
ir) i könnuninni sem birt var i
april s.l. og i nýju könnuninni er
KRON einnig oftast meðal 5
lægstu verslananna, en vöruteg-
urdirnar eru nú mun fleiri og
sömuleiðis verslanirnar.
— í könriun
verðlagsstjóra
Mikið flóð af eitur-
efnum frá herstöðinni
Undanfarin ár hefur
verið mikið flóð eiturs útúr
herstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli, en síðustu mán-
uði hefur þó keyrt um
þverbakog af tali unglinga
á Suðurnesjum má ráða að
ekki muni vera erfiðara
þessa stundina að komast
yfir eiturlyf frá hermönn-
um en að verða sérúfi um
blávatn.
Eins og kunnugt er fær fslenska
tollgæslan ekki að fylgjast með
pósti, sem kemur til hermanna,
né heldur fær hún aö gera leit i
farangri hermanna, sem til
landsins koma úr minniháttar
ferðum eins og gert er við islend-
inga. Er þvi hægðarleikur einn
fyrir hermennina að flytja til
landsins það eitur, sem þeir geta
komist yfir erlendis eða látið
senda sér það i pósti. Herstöðin er
siðan opin hverjum Sem vill.
Utanrikisráðherra, Einar
Agústsson, sagði blaöamanni i
gær, að eftir þvi sem hann vissi
best væru hernaðaryfirvöld mjög
ströng viö þá hermenn, sem upp-
visir yrðu af innflutningi eiturs.
Sagði ráðherra ennfremur, að til
umræðu hefði verið að islending-
ar hefðu eftirlit með innflutn.
hermanna, pósti og farangri, cg
slikt væri hægt, en það kostaði
peninga. Sagði ráðherra aö ef
mikil brögð væru aö eiturinn-
flutningi hermanna, yröi þó allt
gert sem hægt væri til að koma I
veg fyrir þau.
Þar sem ráðherra hefur látið
slik orð falla væri ekki úr vegi að
hann fengi islenska aðilja til þess
að kynna sér hvert flóð eiturlyfja
berst nú frá herstöðinni, og yrði
honum þá vafalaust ljóst hversu
mikil brögð væru að þessu og
gripi þá væntanlega til alls þess,
sem hægt væri að gera til aö
koma i veg fyrir þau.
-úþ
Við ræddum stuttlega við
verslunarstjórann i KRON i
Breiðholti, Elis Helgason, og
sagði hann að nú væri rúmt hálft
ár siðan settur var 8-10% afslátt-
ur á allar nýlenduvörur og væri
varla hægt að sjá fyrir enn hvort
unnt væri að reka verslunina til
frambúðar með sliku fyrirkomu-
lagi, þótt mikið væri verslað. Eft-
ir aðþetta fyrirkomulag var tekið
upp jukust viðskiptin mjög, en
hafa siðan staðið i stað og taldi
Elis að það væri aðallega vegna
aukins fjölda verslana i Breið-
holti og einnig vegna þess að
erfitt er nú að komast að verslun-
inni vegna skorts á bilastæðum.
,,Við teljum að við komum þó
kannski ekki eins vel út úr þess-
um könnunum eins og við eigum
skilið, vegnaþess að hér er um að
ræða vörutegundir sem fást viða,
en við erum kannski með bestu
kaupin i vörum, sem við flytjum
inn sjálfjsagði Elis. Þess má geta
að vefnaðarvörur, gjafavörur
o.fl., eru ekki með þessum um-
rædda afslætti i versluninni, en
keyptar inn ineð Domus og Liver-
pool á góðum kjörum.
— þs