Þjóðviljinn - 06.07.1976, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.07.1976, Blaðsíða 2
> StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. júli 1976 Skrifið eða hringið. Sími: 17500 Matthísarvísindi Meðal mestu furðufrétta, sem fram hafa komið siöustu daga og jafnframt hinna ískyggileg- ustu er yfirlýsing sjávarútvegs- ráðherrans, Matthiasar Bjarna- sonar um að hann ,,trúi ekki á svörtu skýrsluna” og muni ekki fara eftir þeim ráðleggingum, sem þar eru gefnar. Þessa yfirlýsingu hikar ráð- herrann ekki við að gefa enda þótt upplýsingar, sem birst hafa siöan „svarta skýrslan” leit dagsins ljós bendi eindregiö til þess að hún hafi þrátt fyrir allt, verið byggð á of mikilli bjart- sýni. Hver eru svo rök ráðherrans fyrir þessari afstöðu? Jú. ,,Töiur svörtu skýrslunnar eru ágiskunar tölur og likur. Það liða tvö til þrjú ár þar til fiski- fræðingar geta sagt til um hvort þessar tölur hafi verið réttar eöa ekki”, er haft eftir Matthi- asi Bjarnasyni. Auðvitað má segja, að „svarta skýrslan” og önnur atriði, sem styðja álit fiskifræðinganna séu byggð á „ágiskunum og líkum”. Fram- tiðin er jafnan hulin þeirri þoku, sem við sjáum ógjarnan i gegnum. En á hverju byggir Matthias Bjarnason það, að ó- hætt sé að veiða 320 lestir af þorski á fsiandsmiöum á sama Norðlensk trygging h.f. Aöalfundur Norð- lenskrar tryggingar var haldinn að Hótel Varð- borg laugardaginn 26. júní s.l. Fundarstjóri var Ingi Þór Jóhannsson og fundarntan Sævar Vigfússon. Formaður stjórnarinnar, Valdemar Baid- vinsson, flutti skýrslu stjórnar- innar. Friðrik Þorvaldsson, framkvæmdastjóri, Ias upp og skýrði reikninga félagsins fyrir sl. ár, sem var fjóröa reiknings- ár félagsins. Þar kom fram, aö mikil aukn- ing varð á árinu, bæði á iögjöld- um og tjónum, en eftir aö búiö var að leggja veruiegar uphæöir i iögjalda- og bótasjóð og áhættu- sjóð var hagnaður á rekstrar- reikningi kr. 508.000,5 hefur þvi verið góður hagnaður á rekstrinum s.l. tvö ár. Hluthaf- ar Norölenskrar tryggingar h.f. eru 206. Innborgað hlutafé er kr. 20.000.000.-. Stjórnin var öll endurkosin en hana skipa: Valdemar Bald- vinsson, formaður, Aöalsteinn Jósepsson, Geir G. Zoega jr„ Hreinn Pálsson og Pétur Breið- fjörð. Varamenn: Bergur Lárusson og Othar Ellingsen. Framkvæmdastjóri Norð- lenskrar tryggingar h.f. er Friörik Þorvaldsson. MHG tima og fiskifræðingar telja aö 230 lestir séu hámark? Er það kannski byggt á ein- hverjum óvéfengjanlegum visindum eöa óhrekjandi gögn- um, sem fundist hafa uppi i sjávarútvegsráöuneyti? Eða kannski bara „ágiskunum og likum”? Eða ekki einu sinni á þvi heldur bara einfaldari ósk- hyggju? Um þetta vantar allar upplýsingar. Fólkið i landinu. sjómenn jafnt sem aðrir, biöur eftir þvi að Matthias Bjarnason færi sönnur á, að hans „likur” séu reistar á traustari grunni en „likur” fiskifræðinganna. „Það er ekki hægt að sanna að skoöun fiskifræöinganna sé rétt fyrr en eftir 2-3 ár”, segir Matthias. En hvenær sannast að hans skoðun sé rétt? Við getum hugsað okkur að „svört skýrsla” hefði komið fram 2-3 árum áður en sildarstofninn hrundi i grunn. Viö getum einnig hugsað okkur að þá hefði einhver Matthias komið og sagt, að við yrðum að biða i 2-3 ár til þess að fá úr þvi skorið, hvort skýrslan reyndist á rökum reist eöa ekki og á meöan gætum við veitt eins og ekkert hefði i skor- ist. Og hvað þá? Jú, sjórinn ur- inn af sfld. Spurningin er þá sú: Til hvers höfum við vlsindamenn, ef mis- vitrir stjórnmálaspekúlantar þykjast bærir um að hafa álit þeirra aö engu? Er ekki hægt að spara sér allan kostnað i sam- bandi við þeirra stúss og byggja bara á einhverjum Matthiasar- visindum? Kári. Frá Reyðarfirði Aflabrögð í rýrara lagi — Aflabrögð hafa verið hér i rýrara lagi að undanförnu, sagði Björn Jónsson á Keyðar- firði, er biaðið átti tal við hann á föstudaginn var. — Annar togarinn, sem við eigum hlut- deild I, hefur veriö I slipp en er nú i fyrstu veiöiferöinni eftir þá aðgerö. Hinn togarinn, Hólma- tindur, hefur fiskaö fremur treglega. Bátarnir hafa einnig veriö i klössun. Gunnar er i slipp suöur á Akranesi en Snæfuglinn fer aö verða tilbúinn á veiöar. Ein trilla hefur verið á handfæra- veiðum en aflað fremur treg- lega. Það er þvi ekki sérlega bjart yfir aflabrögðunum hjá okkur, eins og sakir standa. Og af þvi hefur það auðvitað aftur leitt, að vinna i Fiskverkunar- stöðinni hefur aö verulegu legið niðri. Þrátt fyrir þetta hefur þó ekki gætt atvinnuleysis hjá karlmönnum en mjög litið er um vinnu fyrir kvenfólk og unglinga, sem aftur segir fljótt til sin i tekjurýrnun heimilanna. Byggingaframkvæmdir eru hér nokkrar. í fyrra var byrjað á byggingu 5 eða 6 ibúðahúsa. Þau komust ekki upp þá og er áfram unniö aö byggingu þeirra i sumar. Væntanlega tekst að fullgera þau i ár. Svo er i bygg- ingu sundlaug og Iþróttahús, undir einu þaki. Nefna má og, að unnið er að endurbótum á fiskverkun Gunnars og Snægfugls. Og loks er svo i undirbúningi bygging á toll- vörugeymsluhúsi fyrir Austur- land, en i fyrra var stofnað félag um þann rekstur. Úthlutaö hefur verið 8 eða 9 lóðum undir ný ibúöarhús en byggingar á þeim eru ekki hafnar. Við hér hugsum okkur að sjálfsögöu til hreyfings með þaö eins og aðrir að bæta sam- göngukerfin innan bæjarins. I þvi skyni er nú unnið að þvi að skipta um jaröveg i götunum og er hugmyndin að leggja á eitt- hvað af þeim varanlegt slitlag nú i sumar, ef nægilegt fjár- magn fæst tii þeirra fram- kvæmda. Talsvert mikið er að þvi unniö að lagfæra lóðir og mála hús. Framhald á bls. 14. „Hvað er í fX)karnini„? MEÐ VERRA MÓTI Á ÞRIÐJUDÖGUM Það er oröinn nokkuð viss passi, að skapferli mitt sé með verra móti á þriöjudögum, og veldur þvi sú árátta min, að lesa fastaþáttinn ,,A þriöjudegi”, sem eitthvert dularfullt A skrifar i Þjóðviljann. A-iö hóf ritferil sinn á þvi aö segja mönnum að kjósa Alþýðu- bandalagiö, og fannst mér, aö ég hefði séð þá skoöun fyrr i Þjóðviljanum. Skömmu siðar varði A-ið langhundi til að halda þvi rakalaust fram, aö eini rétti grundvöllur baráttu herstöðva- andsæöinga væri þjóöernis- hyggja en „skynvillu alþjóða- hyggjunnar” bæri að varast. Fyrir svona sjónarmiöum vil ég heyra rök. 1 dag var ég búinn að lesa allt annað efni Þjóðviljans áður en ég hófst handa á téðum dálki. Ég læt ósagt um megin efni greinarinnar, en langar að vikja að hinu, hve frjálslega A leyfir sér að umgangast staöreyndir. Vinur vor A gerir umfangs- mikinn samanburð á ftaliu og tslandi og telur þar margt likt. Meöal annars romsar hann upp löngum lista yfir glæpa- og mafiustarfsemi á tslandi, og teiur þar upp tvennt, sem er i meira lagi hæpiö. Annars vegar talar hann um „fjöldamorðin i tengslum við Geirfinnsmálið” en hinsvegar um „starfsemi eiturlyfjahringa”. 1 Ifyrsta lagi er ekkert sannað um að framin hafi veriö mörg, samtengd mofð i tengslum viö Geirfinns- málið, og I öðru lagi hefur aldrei komist upp um starfsemi eitur- lyfjahringa hér á landi, og að þeir, sem starfa að þessum málum, telja mjög óliklegt að hún eigi sér stað, sbr. sjón- varpsviðtal við Asgeir Friöjóns- son, 27. júni, sl. 1 báöum þessum tilvikum fer A með fleipur eitt. Mig brestur þekkingu til aö dæma um aliar staðhæfingar greinarinnar, en óneitanlega dregur það úr trúverðugleika þeirra hve frjálslega A um- gengst staðreyndir um islenska glæpastarfsemi. Það eru þvi tilmæli min, að Þjóðviljinn og A láti Mánudags- blaðið og Vilmund sem mest um gifuryrðin, en vandi eftirleiðis meir til pólitiskra skrifa. 29. júni, 1976 Gestur Guðmundsson. fti r * I 1 ...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.