Þjóðviljinn - 06.07.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.07.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 6. júli 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIOA 3 Kurt Waldheim frkvstj. SÞ um árás Israels á Uganda Skýlaust brot gegn fullveldi þjóðar Einingarsamtök Afríkuríkja fara fram á skyndifund öryggisráðsins Flugstöðvarbyggingin á Entebbe-flugvelli I Uganda þar sem rúmlega 30 manns voru drepnir I árás israela um helgina. Nairobi, Tei Aviv og víöar 5/7 ntb reuter — Arás ísraelskra her- manna á flugvöilinn í Entebbe f Uganda aö- faranótt sunnudagsins þar sem þeir felldu rúmlega 30 manns og höföu á brott með sér rúmlega 100 gyðinga sem haldið hafði verið í gíslingu í rúma viku hefur mælst mjög mis- jafniega fyrir. Leiðtogafundur Einingarsam- taka Afrikurikja sem lauk i dag á Máritiús fordæmdi árásina harö- lega og fór fram á skyndifund i öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að ræða refsiaðgeröir gegn Israel. Sovéska fréttastofan Tass kallaði árásina „sjóræningjaað- gerö” og stjórn íraks tók i sama streng. Egypski utanrikisráð- herrann sagði að hér heföi verið að ræða beina hernaöar-innrás i fullvalda riki, skipulagða og framkvæmda af israelskum stjórnvöldum, og að ekki væri hægt aö bera hana saman viö „aðgerðir sem óábyrgir einstakl- ingar framkvæma.” Kurt Wald- heim framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna sagði að hér væri ótvirætt um að ræða ofbeldi gegn fullveldi Uganda. A hinn bóginn sendi Ford for- seti Bandarikjanna, Vorster for- sætisráðherra Suöur-Afriku og leiðtogar ýmissa Vestur-Evrópu- rikja Israelsku stjórninni heilla- óskir i tilefni árásarinnar. I ísrael rikti mikill fögnuður yfir afrekinu og öll blöðin kepptust um að róma hugrekki og dirfsku vikingasveitarinnar. ísraelsk stjórnvöld hafa litið viljað segja um smáatriði i fram- kvæmd árásarinnar þar sem þau gætu komið að gagni siðar. Talið er að þrjár flugvélar hafi verið sendarsuðureftir Rauðahafi, yfir Eþiópiu til Nairóbi I Kenýa þar sem var millilent. Vélarnar lentu öllum á óvart á Entebbe-flugvelli og út streymdu israelskir her- menn sérþjálfaðir i viðureign við skæruliða. Þeir skipuðu gislunum að leggjast á gólfið eftir að þeir höfðu ruglað hersveitir Uganda i riminu með vélbyssuskothrið á þær. Eftir nokkurn skotbardaga við mannræningjana sjö og her- menn Uganda höfðu þeir gislana á brott með sér i flugvélunum þremur sem hófu sig þegar á loft. Eftir lágu I valnum mann- ræningjarnir sjö — þar af tveir þjóðverjar — 20 hermenn Uganda, þrir gislar og einn af herforingjum israelsmanna. Einn gisl til viðbótar lést I Nairóbi þar sem vélarnar millilentu aftur á heimleiðinni. 32 hermenn Uganda særðust.en ekki er vitað um f jölda særðra meðal gislanna og is- raelsku hermannanna. Idi Amin ásakaði I dag stjórn Kenýa um að hafa aðstoðað Israel við árás á nágrannarfki. Hélt hann þvi fram að samvinna hefði verið milli stjórna Israels og Kenýa um þessa árás. Blöð i Kenýa fögnuðu árásinni mjög og notfærðu sér tækifærið til aö hæð- ast að Amin. 1 yíirlýsingu sem PFLP sendi frá sér i dag um árásina er þvi haldið fram að frönsk stjórnvöld hafi einnig vitaö um hana; þvi til sanninda er nefnt að franskar flugvélar hafi beðið um lendingarleyfi á Entebbe stuttu áður en israelsku flugvélarnar komu þangað til þess að rugla flugvallaratjórnendur og draga athygli þeirra frá árásarvélun- um. Nýi Herjólfur kominn til Eyja Nýi Herjólfur þeirra vest- mannaeyinga kom til heimahafn- ar frá Noregi um miðjan dag á sunnudag og var vel fagnað af heimamönnum. Með þessu nýja skipi gjörbreytast mannflutning- ar milli lands og Eyja þegar gengið hefur verið frá aðstöðu til að aka bilum að og frá borði i Vestmannaeyjum og i Þorláks- höfn. Ferjan getur flutt 20 bila i hverri ferð, sæti eru fyrir 90 far- þega i tveim sölum og klefar fyrir 24 menn. Siglingin milli Eyja og Þorlákshafnar mun taka um 3 klst. Skipiö var smiöaö i Kristjánssundi i Noregi. Myndina tók Torfi Haraldsson er Herjólfur sigldi inn i höfnina i Vestmanna- eyjum i fyrsta sinn. Súdan Kærir Líbýu fyr- ir Öryggisráðinu New York 5/7 reuter — Fulltrúi Súdan hjá Samein- uðu þjóðunum, Mustafa Medani, fór i dag fram á að efntyrði til skyndifund- ar í öryggisráði SÞ til að ræða hlut stjórnar Líbýu í tilraun þeirri til valdaráns sem gerð var í Súdan sl. föstudag. I bréfi sem Medani sendi for- manni ráösins segir ma. að „rikisstjórn Súdan hafi margar sannanir fyrir þvi að stjórn arabalýðveldisins Libýu hafi átt hugmyndina að valdaráninu, undirbúið það og staðið fyrir framkvæmd þess.” Einnig segir þar að enginn súdanskur hermaður hafi tekið þátt i valda- ránstilrauninni. Stjórn Libýu hafi séð valdaræningjunum fyrir þjálfun, skotfærum og flutninga- tækjum. 1 bréfinu segir að valdaránstil- raunin sé „bein erlend ihlutun og ógnun við öryggi Súdan, og þar með við alþjóðlegt öryggi og heimsfrið.” Loks segir að áætlað- ar skemmdir sem unnar voru i valdaránstilrauninni séu um 300 miljónir dollara auk ótalinna mannslifa. Líbanon Friðaryiðræður út um þúfur Ráðherrar segja af sér Beirut 5/7 reuter — Þriggja manna friöargæslunefnd Arababandalagsins boöaði deiluaöila i Libanon á fund i bænum Sofar til aö ræöa hugsanlegar leiöir til aö koma á vopnahléi i landinu. Voru þar mættir fulltrúar sýrlcndinga, palestinumanna og vinstri- og hægriafla I Libanon. Annar fundur var boðaður i dag, en hann fór útum þúfur að þvi er virtist vegna árásar New York 4/7 reuter — I skoðanakönnun sem bandaríska vikuritið Time birti í dag kemur i Ijós að Jimmy Carter myndi bera sigurorð af bæði Ford og Reagan ef kosið væri til forseta í Bandarikjunum núna. Samkvæmt könnuninni hlyti Carter 51% atkvæða gegn 31% Reagans ef valið stæði milli þeirra en 47% gegn 38% ef valið stæði milli Carters og Fords. Ford forseti lét þessi úrslit þó ekki aftra sér frá þátttöku i há- tiðarhöldunum sem fram fóru i Bandarikjunum i tilefni af 200 ára þjóðhátiðar þar i landi. Hann var á þönum milli borga i vinstrimanna og palestinu- manna á iðnaðarborgina Shekka i norðurhluta landsins en hún er á valdi hægriaflanna. Engin opinber skýring var gefin á afboðun fundarins, en útvarps- stöð falangista sagði að formað- ur nefndarinnar hefði fariö til Damaskus. Hægriöflin leyfðu i nótt Rauðakrossinum að fara inn i palestinsku flóttamannabúðirn- ar Tel Al-zaatar i Beirut sem þyrlu, fór fyrst til Valley Forge þar sem hersveitir George Washington biðu mikið afhroð i vetrarkuldum veturinn 1777-78, siðan til Philadelphia og loks tií New York þar sem hann fylgdist með skrautsiglingu rúmlega 200 seglskipa upp Hudson-fljót. Að þessu loknu ýtti hann á hnapp sem setti Frelsisbjölluna af stað en siöan hljómuðu allar tiltækar bjöllur um gervöll Bandarikin i tvær minútur. Hátiðarhöldunum lauk svo með gifurlegum flug- eldasýningum viða um land, þeim stórkostlegustu i Washing- ton og New York. Mikil þátttaka var i hátiðarhöldunum og fylgd- ust td. um fimm miljónir manna með áðurnefndri skraut- siglingu. þeir hafa nú setið um á þriðju viku. Attu liðsmenn Rauða- krossins að flytja á brott særða menn úr búðunum. En þegar bilalest Rauða krossins var á leið til búðanna var hafin eld- flaugaskothrið á veginn fram- undan henni svo hún varð að snúa við. Deiluaðilar kenna hvor öörum um að hafa hafið skothriðina. Útvarpsstöð falangista sagði i dag að vinstrimenn og palestinumenn hefðu ráðist á Shekka úr þremur áttum og beittu þeir skriðdrekum og fall- byssum. Litið er á þessa árás sem augljósa hefndaraðgerð vegna umsáturs hægrimanna um Tel Al-zaatar en i Shekka hafa margir stuðningsmenn Suleiman Franjiehs forseta komið sér fyrir og hafið at- vinnurekstur undanfarin ár. Madrid 5/7 reuter — öllum á óvart var Adolfo Suarez aöal- ritari Þjóöarfylkingar Francos skipaöur eftirmaöur Carlos Ari- as Navarro sem sagöi af sér embætti forsætisráöherra Spán- ar fyrir helgina. Areiðanlegar heimildir hermdu að skipun Suarezar hefði valdið þvi að tveir ráð- herrar sögöu af sér embættum i dag i mótmælaskyni. Þeir eru Jose Maria de Areilza utanrik- isráðherra og Manuel Fraga Iribarne innanrikisráðherra, en þeir teljast báðir til frjáls- lyndari hluta spænskrar ráða- stéttar. Staðhæft er að þeim muni fylgja amk. fjórir ráð- herrar til viðbótar, þám. dóms- málaráðherrann og upplýsinga- ráðherrann (sem ma. fer með mál fjölmiðla). Þeir de Areilza og Fraga eru sagöir finna það helst að Suarezi að hann sé óreyndur — hann er 43 ára og yngsti forsætisráð- herra Spánar á þessari öld — ævilöng tengsl hans við Franco einvald og áætlanir hans um að koma tæknikrötum úr kaþólsk- um leikmannasamtökum sem nefnast Opus Dei aftur til valda. Það voru félagar úr Opus Dei sem áttu mestan heiður aö þeim efnahagslegu uppgangstimum sem spaúverjar bjuggu við á sjötta áratugnum.Þessi hópur er svarinn andstæðingur Fraga. Einnig er sagt hafa áhrif a gerð- ir tvimenninganna mikill áhugi de Areilza á að verða forsætis- ráðherra. Ol-þátttöku kínverja Deilur um Montreal 5/7 reuter — Tals- maöur kanadiska utanrikis- ráöuneytisins sagöist i dag vera mjög bjartsýnn á aö tak- ast mætti aö leysa deilu þá sem risiö hefur vegna þátttöku iþróttamanna frá Kina og Taiwan. Sama máli gegnir um lord KiIIanin formann Alþjóöa ólympiuncfndarinnar, en hann var væntanlegur til Montreal I dag til viöræöna viö kanadiska ráöamenn um lausn á deil- unni. Deilan hófst cftir aö kana- diska utanrikisráöuneytiö lagöi bann viö því aö iþrótta- menn frá Taiwan tækju þátt i ólympiuleikunum sem hefjast eiga 17. þm. undir nafni Lýð- veldisins Kina. Talsmaöur ráðuneytisins sagöi f dag: Ég vil leggja á þaö áherslu að þrátt fyrir þá óhagganlegu af- stööu okkar aö iþróttamenn frá Taiwan fái ekki aö koma hingað, segja aö þeir séu full- trúar lýöveldisins Kina, leika þjóösöng Kina eöa flagga meö kinverska fánanum, erum viö mjög bjartsýnir á aö sam- komulag náist viö Alþjóöa ólympiunefndina. Ford forseti Skin og skúrir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.