Þjóðviljinn - 06.07.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. júli 1976
DWÐVIIJINN
MÁLGAGN SÓSlALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, augiýsingar:
Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
í ÞÁGU KAUPSÝ SLU STÉTTARINNAR
Um mánaðarmótin hækkuðu laun al-
mennt um 8—9% samkvæmt ákvæðum
kjarasamninganna, sem gerðir voru i lok
febrúar. Þrátt fyrir þessa launahækkun
verður kaupmáttur launa verkafólks nú i
júlimánuði engu skárri en hann var fyrir
sjö mánuðum, þegar kjaramálaráðstefna
Alþýðusambandsins var haldin — i byrjun
desember.
Frá 1. nóvember til 1. júni hækkaði
framfærslukostnaðurinn skv. opinberri
visitölu um 18%. Kaupið hækkar hins veg-
ar á sama timabili og til og með 1. júli sl.
um 18-19%.Þetta þýðir að i júnimánuði sl.
hefur kaupmáttur launa verkafólks verið
mun lakari en hann var i nóvember sl. nú i
júli verður hann álika og i nóvember en i
ágúst og september má búast við að hann
verði aftur lakari en fyrir hálfu ári, þar
sem verðlag heldur áfram að hækka, en
engin ný launahækkun kemur fyrr en 1.
október.
Þegar kjaramálaráðstefna ASÍ var
haldin var talið að laun þyrftu að hækka
um 30% til þess að ná aftur þeim kaup-
mætti sem rænt hafði verið á þremur
misserum af völdum hægristjórnarinnar.
Eins og kunnugt er voru forsendur
kaupránsins þær að verðlag á útflutnings-
afurðum okkar og þjóðartekjur okkar
færu siðfellt lækkandi. Nú hefur það hins
vegar gerst siðustu mánuðina að verðlag á
útflutningsvörum okkar hefur hækkað i
sifellu og er ekki enn séð fyrir endann á
þeirri þróun verðlagsins. En hvernig var
það á kaupránsárinu 1975? Lækkuðu út-
flutningsvörur okkar eins mikið i verði og
stjórnarblöðin hafa predikað? Nýjustu
uþplýsingar segja að svo hafi alls ekki ver-
ið. 1 öndverðum júnimánuði birtist i
Morgunblaðinu frétt um að .meðalverð á
afurðum SH i Bandarikjunum hefði
hækkað um nærri 30% mælt i dollurum.
En samkvæmt kenningum stjórnarflokk-
anna átti þessi hækkun engin áhrif að hafa
á kaupið — engir leiðarar hafa birst um
það i stjórnarblöðunum að nú yrði kaupið
fyrir alla muni að hækka i samræmi við
útflutningsverðlag. Slikt hefur ekki sést
vegna þess að núverandi rikisstjórn er
skipuð sendisveinum auðstéttarinnar og
það er hún sem á að hirða aðrinn af bætt-
um viðskiptakjörum.
Skv. nýlega birtu yfirliti þjóðhagsstofn-
unar um ástand og horfur i efnahags-
málum er gert ráð fyrir þvi að kaup-
máttur launa muni enn lækka um 3% á
þessu ári frá meðalt. ársins ’75. 1 sama
yfirl. segir stofnunin að verð á sjávaraf-
urðum héðan muni hækka verul. á þessu
ári og að frá áramótum til mailoka hafi
útflutningsverðið hækkað i dollurum um
18-19% að jafnaði. Þannig birtist stjórnar-
stefnan blygðunarlaust i tölum þjóðhags-
stofnunar. Og ef rikisstjómin og flokkar
hennar hefðu verið einir i ráðum hefði
kjaraskerðingin orðið enn meiri á þessu
ári. Það kostaði tveggja vikna verkfall
35.000 félagsmanna i verkalýðshreyfing-
unni að tryggja þó þau kjör sem fólk býr
við i dag. Eigi kaupmáttur almennra
launa nú enn að lækka frá siðasta ári þrátt
fyrir nær 20% meðaltalshækkun þá mætti
ætla að á hinn bóginn væri sjálfsagt að
krefjast alveg sérstakra kauphækkana
þegar verðfall verður á afurðum okkar er-
lendis. Svo öfugmælakennd er pólitik
rikisstjórnar Geirs Hallgrimssonar. Þá
pólitik skilur enginn nema hann geri sér
grein fyrir þvi að sú rikisstjórn fésýsluafl-
anna sem hér situr við völd er fyrst og sið-
ast hagsmunatæki þeirrar stéttar, sem
verkafólk á i höggi við, þegar það berst
fyrir bættum kjörum. Rikisstjórn Geirs
Hallgrimssonar heildsala hefur litið á það
sem meginverkefni sitt að breyta tekju-
skiptingunni i þjóðfélaginu launamönnum
i óhag, en kaupsýslumönnum og jöfrum
viðskiptalifsins i hag. Þess vegna hefur
hún máð út þær kjarabætur verkafólks
sem áunnust i tið vinstristjórnarinnar.
Þess vegna hefur hún skert kaupmátt
launa um 25-30% og þess vegna er rikis-
stjórninni það keppikefli að gera þessa
kauplækkun varanlega þrátt fyrir sifellt
batnandi viðskiptakjör. —s.
KJÖRDÆMAFUNDIR
FORSÆTISRÁÐHERR A
Geir Hallgrímsson, forsætisráöherra
flytur ræöu og svarar
fyrirspurnum fundargesta_______
Stjórn Póllands skipulegg-
ur fundi til stuðningssér
Meöfylgjandi úrklippur eru úr Morgunblaöinu I slöustu viku. Þeir
Geir og Girek gera vlöreist um lönd sln til þess aö sannfæra fólkiö
um ágætistjórna sinna. Þó skal tekiö fram aö yfirreiö Giereks hófst
alllöngu seinna en yfirreiö Geirs Hallgrimssonar.
Skipting kvenna
i launaflokka
t slöustu Félagstiöindum
rikisstofnanna er birt könnun
sem unnin var af starfshópi
innan félagsins i tengslum viö
ráöstefnu um kjör láglauna-
kvenna. Könnun þessi sýnir
skiptingu kvenna i launaflokka
innan SFR og er fljótséö aö
meirihluti kvenna er I lægstu
flokkunum. 1 grein meö yfirlit-
inu segir, en greinin er byggö á
köflum úr ræöu Ernu Arngrims-
dóttur á ráöstefnunni:
„Þetta eru engar nýjar upp-
lýsingar, né heldur koma þær á
óvart. Viö vitum vel hvaða
störfum konur gegna I þjöö-
félaginu. Viö teljum aö þessi
könnun gefi góöa mynd af þvi á-
standi sem rikir, þvi að félaga-
tala i SFR skiptist nokkurn veg-
1 greininni I Félagstiðindum
segir ennfremur:
inn jafnt eftir kynjum.
Félagarnir eru lika dreiföir viðs
vegar um landiö viö sambærileg
störf. Og þá koma þær
brennandi spurningar, sem viö
verðum aö svara, hver og einn,
hvers vegna eru konur i lægstu
launaflokkunum, og þar á eftir
á þeim launum, sem verkalýös-
forustan hefur lýst yfir aö engin
geti Iifað af við mannsæmandi
kjör?”
örfáar konur
i efstu
flokkunum
Hér er svo könnunin, en hún
náöi til alls 2770 félagsmanna,en
félagar i SFR voru um sl. ára-
mót 3085, þar af helmingurinn
konur.
„Hvaö getum viö gert til þess
aö afstýra þeirri neikvæðu þró-
un aö konur séu almennt ráðnar
upp á þessi kjör? Þvi þær eru
yfirgnæfandi ráönar i byrjun
upp á miklu lægri laun, sem siö-
an eru notuö sem forsenda til
þess aö halda þeim niöri i laun-
um.
Það sem viö getum fyrst og
fremst gert til aö breyta þessu
ástandi aö minum dómi, er aö
afla okkur meiri menntunar. Sú
staöreynd sem blasir viö er, aö
innan viö 1% Islenskra kvenna
hafa háskólapróf. Þar erum viö
langt aftur úr Noröurlöndunum.
Ég veit vel hvaöa ástæöur liggja
þar aö baki. Hin hefðbundna
verkaskipting hefur unniö aö
þvi meö oddi og egg, aö elckert
er sjálfsagöara en aö konan
vinni fyrir manni og börnum
meöan hann stundar háskóla-
nám, en þætti goðgá, ef öfugt
vari fariö aö. Einnig hefur þessi
njörvun hennar á heimili viö
hliö barna sinna (eins og
maðurinn eigi þau ekki aö
jöfnu) gert þaö aö verkum aö
konur fara ógjarnan út I lang-
skólanám, ef þær hafa eignast
börn áöur en námi er lokiö,
nema þær séu svo heppnar aö
hafa aöstoö viö barnagæslu og
þvi um likt. I barna- og gagn-
fræöaskólum taka stúlkur yfir-
leitt betra próf en drengir , þeg-
ar kvmur upp i menntaskóla fer
dæmiö aö snúast viö og tekur
fyrst I hnjúkana, þegar komiö er
I Háskólann, þar sem eins og áö-
ur sagöi miklu fleiri drengir en
stúlkúr ljúka námi.
Við veröum aö axla sömu
byröar og karlmenn, viö verö-
um aö hafa sömu menntun og
þeir til þess aö ekki sé lengur
hægt aö mismuna okkur I laun-
um. Viö veröum að hætta aö
kjósa næstum eintóma karl-
menn á þing, eintóma karl-
menn I stjórnir fyrirtækja, sem
hafa afgerandi áhrif I þjóöfélag-
inu; konur sem bankastjóra er
svo sjálfsögö krafa, aö mér
finnst varla aö þaö þurfi aö
nefna hana. Konur hér á Islandi
hafa margar hverjar sýnt frá-
bært fjármálavit og útsjónar-
semi, þegar þær hafa þurft aö
láta litla peninga endast fyrir
stór heimili.”
Ráðist á Ölaf
Reykjavi'kurbréf Morgun-
blaðsins sl. sunnudag er ein
samfelld lofgjörö um rikis-
stjórnina. Hafi hún fært allt
mjög til betri vegar i landi hér.
Þó sé tvennt enn i miklum
ólestri,en þaö séu annars vegar
dómsmálin og hinsvegar viö-
skiptamálin. Fér ekki á milli
mála aö hverjum bréfritarinn
beinir skeytum sinum. Heitir sá
ólafur Jóhannesson, dóms- og
viðskiptaráðherra. Verður fróð-
legt aö sjá hverju framsóknar-
málgagnið svarar þessum árás-
um á ráðherrann.
Þaö hefur gengið á ýmsu i
stjórnarsamstarfinu undanfarin
tvöár þó aö flokkarnir hafi staö-
ið saman um öll meginmál.
Ihaldið hefur haft þá reglu i
samstarfinu við framsókn að
beita málgögnum sinum fyrst
gegn framsókn, en síöan stjórn-
málamönnunum. Þá er fram-
sóknarráðherrunum sagt að það
sé almenningsálitið sem stend-
ur skrifað i Morgunblaöið og
Visi, og þ'vi trúa framsóknar-
mennirnir yfirleitt. Sú er að
minnsta kosti reynslan úr
vinstristjórninni þegar Morgun-
blaðiö stýrði athöfnum fram-
sóknarráðherranna fremur en
flokkur þeirra.
Könnunin náöi til alls 31 i 10. lfl., þar af 21 kona eöa 67%
Könnunin náöi til alls 93 i 11. lfl. þar af 75 konur eöa 80.6%
Könnunin náöi til alls 120 I 12. lfl., þar af 86 konur eöa 71,7%
Könnunin náöi til alls 226 I 13. lfl., þar af 157 konur eöa 69,4%
Könnunin náöi til alls 399 I 14. lfl., þar af 335 konur eöa 89,0%
Könnunin náöi til alls 268 I 15. lfl., þar af 163 konur eða 60,8%
Könnunin náöi til alls 242 I 16. lfl., þar af 160 konur eöa 66,1%
Könnunin náöi til alls 258 I 17. lfl., þar af 170 konur eöa 65,9%
Könnunin náöi til alls 294 i 18. lfl., þar af 108 konur eöa 36,7%
Könnunin náöi til alls 178 I 19. lfl., þar af 63 konur eöa 35,4%
Könnunin náöi til alls 190 I 20. lfl., þar af 118 konur eöa 62,2%
Könnunin náöi til alls 104 i 21. lfl., þar af 29 konur eöa 27,9%
Könnunin náöi til alls 103 I 22. lfl., þar af 37 konur eöa 35,9%
Könnunin náöi til alls 61 i 23. lfl., þar af 16 konur eöa 26,3%
Könnunin náöi til alls 57 I 24. lfl., þar af 15 konur eöa 26,3%
Könnunin náði til alls 87 I 25. lfl., þar af 12 konur eöa 13,8%
Könnunin náöi til alls 34 i 26. lfl., þar af 2 konur eöa 5,9%
Könnunin náöi til alls 43 i 27. lfl., þar af 4 konur eöa 9,3%
Könnunin náöi til alls 29 I 28. lfl., þar af 1 kona eöa 3,4%
Könnunin náöi til alls 13 i B.II lfl., þar af 2 konur eöa 15,4%
Könnunin náöi til alls 2770 þar af voru 1574 konur eöa 56,8%”
Hvernig er hœgt að afstýra
þessari þróun?