Þjóðviljinn - 06.07.1976, Síða 7

Þjóðviljinn - 06.07.1976, Síða 7
Þriðjudagur 6. júli 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Á ÞRIÐJUDEGI Esso (XB) - Shell (XD) A þriðjudegi i siðustu viku var fjallaðum nokkra áþekka þætti efnahagslifs og stjórnmálaþró- unar á íslandi og Italiu. Sá al- menni samanburður gefur til- efni til að beina kastljósinu að afmarkaðri atriðum. Að þessu sinni hefur starfsemi tveggja alþjóðlegra auðhringa, oliufé- laganna Esso og Shell, orðið fyrir valinu. Þessi fyrirtæki eru hlutfallslega umfangsmiklir að- ilar i efnahagslifi tslands og Italiu og bæði hafa margvisleg tengsl við stjórnmálaflokka og ráðamenn. Lögbrot og mútur hafa einnig komið mjög við þeirra sögu. Alþjóðlegir auðhringir Á undanförnum áratugum hafa margir bandariskir og vestur-evrópskir auðhringir eflt starfsemi sina með stofnun um- boðs- og dótturfyrirtækja viða um heim. Þótt mörg þessara fyrirtækja séu formlega séð sjálfstæð (sbr. Oliufélagið h/f, umboðsfyrirtæki Esso á Is- landi)eruþau öll hlekkir i keðju móðurfyrirtækisins. Uppbygg- ing slikrar fyrirtækjakeðju, i þessu tilfelli oliuhringanna Esso og Shell, þjónar margvislegum tilgangi. Hún auðveldar m.a. flutning á gróða milli landa og gerir kleift að komastundan ná- kvæmu eftirliti gjaldeyrisyfir- valda og skattheimtustofnana. Hún skapar hinum alþjóðlega auðhring aðstöðu til að hafa á- hrifá stjórnmálaflokka ográða- menn i mörgum löndum. Nýlega hefur komið fram við opinbera rannsókn að Shell hef- ur mútað stjórnmálamönnum og ráðherrum i a.m.k. sjö lönd- um. Esso hefur beitt slikum að- ferðum enn viðar. Það er eðli slikra fyrirtækja aðhefja sig yf- ir lög og rétt i einstökum lönd- um og láta mátt hins alþjóðiega auðmagns skapa sér gróðaað- stöðu með öllum tiltækum ráð- um. Auðhringirnir lita á stjóm- málaflokka og foringja þeirra i hverju aðseturslandi sem þjón- ustumenn sem keyptir eru fyrir ákveðið verð. Múturnar eru siö- an færðar sem eðlilegur kostn- aðarliður á rekstrarreikning fyrirtækjanna. Mútustarfsemi oliu- félaganna á ítaliu Stærðargráöa mútustarfsemi oliufélaganna á ttaliu séstm.a. af þvi að frá marsmánuði 1971 og til febrúar 1972 lögðu þau sem samsvarar rúmum einum miljarði islenskra króna i leyni- legan sjóð sem notaður var til að dæla út mútufé til stjórn- málaflokka. Kristilegir demó- kratar fengu bróðurpartinn af þessu fé, 825 miljónir króna. Vert er að veita þvi sérstaka at- hygli að þessi gifurlega mikla greiðsla til rikisstjórnarflokks- ins fór fram á mjög stuttu ti'ma- bili, einu ári. A lengri tima hafa múturnar verið enn meiri. Á ár- unum 1963—1972 greiddi Esso eitt sér 9820miljónir i mútur til italskra stjórnmálaflokka og ráöamanna. Séu hin oliufélögin tekin með i dæmið nemur velta þessararmútustarfsemi á Italiu tugum miljarða á undanförnum árum. Og ttalia var aðeins eitt af mörgum iöndum þar sem oliufélögin iðkuðu sh'k iögbrot. (Allar töiur eru úr opinberum rannsóknaskýrslum). Endurgjald ráðamannanna, sérstaklega rikisstjórnarflokks- ins, kristilegra demókrata, fyrir þessar gifurlegu fjárhæðir frá oliufélögunum varfólgiði þvi að setja og framlengja á þingi lög sem voru hagstæð gróðastarf- semi fyrirtækjanna. Þannig fengu þau undanþágur frá toll- um og öðrum innflutningsgjöld- um, margvislega greiðslufresti sem veittu þeim möguleika á ó- dýru rekstrarfé og voru i reynd lán frá hinu opinbera. Ennfrem- ur slfkan velvilja frá stjórnvöld- um að hinum opinberu rann- sóknaraugum var lokaö þegar ýmiss konar lagabrot og brask þessara fyrirtækja átti i hlut. Svo háþróuð var þessi mútu- starfsemioröin aðstofnaður var sérstakur leynilegur banka- reikningur og streymdu inhi hann jafnt og þétt 5% af öllum gróðafriðindum sem löggjöf og undanþágur italskra stjórn- valda höfðu skapað oliufélögun- um. Siðan var greitt úr þessum leynilega sjóöi eftir ákveönum reglum ogsamkvæmt nákvæm- um dulmálsákvæðum. Greiðsl- ur til Giulio Andreotti forsætis- ráðherra voru til dæmis merkt- ar Anderson, greiðslur til ann- ars forsætisráðherra, Mariano Rumor, voru merktar Ray- mond, tveir ráöherrar, Mario Ferrari-Aggradi og Mauro Ferri, höfðu dulnefnin Ferguson og Steel, forstjóri Shell á ttaliu var kallaður Bcnjaminog fyrir- tækihans Genúa.Esso var hins vegar kallað Itóm og flokkur kristilegra demókrata var merktur Section A.þ.e. flokkur eða hluti A. Oliufélögin á íslandi Þótt islenskar lögreglustofn- anir og saksóknaraembætti hafi ekki beitt sér fyrir hliðstæðum rannsóknum á starfsemi oh'ufé- laganna á Islandi — og þvi verði að játa að þrátt fyrir alla spill- inguna kunni Italia að ve'ra Is- landi framar i réttarfari — er ljóst samkvæmt öðrum heimild- um að oliufélögin eru einnig hér i nánum tengslum við rikis- stjörnarflokkana. Þauhafa látið þeim i té fjármuni og aðra að- stoð. Þauhafa reynt eftir króka- leiðum að breyta ákvörðunum rikisstjórnar sér i hag og hafa orðið uppvis að gjjaldeyris- svindli og fjármálabraski i stór- felldum mæli. Helsta svindlmál á Islandi á siðari áratugum var tengt starf- semi Esso á Islandi, Oliumálið svokallaða. Arvökull rannsókn- arlögreglumnöur, Kristján Pétursson, sem mjög hefur ver- iðofsóttur undanfarið af Timan- um og Framsóknarflokknum, uppiýsti að Esso hefði i mörg ár stundað margvislegt svindl, gjaldeyrisbrask og tollsvik. Rannsókn leiddi i ljós að Esso á Islandi hafði látið færa á bakvið islensk gjaldeyrisyfirvöld hundruðir miljóna króna (m.a. 12 miljónir doliara 1959) á reikning fyrirtækisins hjá Esso i Bandarikjunum og London. Sið- an voru þessar upphæðir notað- ar til að styrkja rekstur SIS er- lendis og önnur umsvif hinna is- lensku forráðamanna Esso, en i þeirra hópi var fyrrverandi for- Olíutankar Shell og Esso I örfirisey. stjóri SIS og þáverandi Seðla- bankastjóri, Vilhjálmur Þór. Esso flutti einnig til iandsins margvislegar vörur, svo sem bila, varahluti, mæla, isvarnar- efni, siur og slöngur, og var all- ur þessi innflutningur merktur bandariska herliðinu á Kefla- vikurflugvelli til að komast und- an greiðslum á lögboðnum inn- flutningsgjöldum. Þannig mynduðu Esso og herinn brask- bandalag. Greiðslum frá Bandarikjastjórn til Esso á Is- landi var haldið leyndum og sömuleiðis miklum tekjum af sölu á bensini og olium til er- lendra skipa og flugvéla. Toll- frjálsu bensini var svo hleypt eftir neðanjaröarleiðslum til tanka utan Keflavikurflugvallar og það siöan selt islenskum aðil- um án þess að rikið fengi hin lögboðnu gjöld. Oliumálið reyndist svo um- fangsmikið svindl að margir menn voru i nokkur ár að rann- saka það og urðu þó að láta ýmsa þræði ósnerta. Þegar seðlabankastjórinn og stofnandi Esso á Islandi mætti til yfir- heyrslu i gamla Thor Jensens húsinu i Hallargarðinum þagði hannsamfleytt i marga klukku- tima þrátt fyrir itrekaðar spurningar, en sagði þó að lok- um við rannsóknardómarann: „Hafiö þér talið endurnar á Tjörninni?” Esso og Framsóknar- fiokkurinn Fyrir tæpu ári lýsti Þjóðvilj- inn itarlega hvernig Esso hefur orðið einn af hornsteinum fjár- málakerfis Framsóknarflokks- ins. Oliufélagið hefur staðið straum af hluta launakostnaðar flokksins, styrkt blaðaútgáfu hans með beinum framlögum og á margvislegan annan hátt, m.a. i gegnum kaup á fjölda happdrættismiða, látið flokkn- um i té rekstrarfé. Forstjóri Esso reyndi á máttlausan hátt að neita þessum staðreyndum en sú neitum var álika léttvæg og þegar stjórnarformaður fyrirtækisins sagði við upphaf rannsóknar á hinumikla svindli sem kennt er við Oliumálið að „aðeinseinn brúsihefði misfar- ist”, — svo að ekki sé nú rifjuð upp tveggja ára gömul neitun breska oliuforstjórans sem ný- lega hefur játað að fyrirtæki hans hafi styrkt og mútað stjórnmálaflokkum i sjö lönd- um. Svona neitanir eru ekki upp á marga fiska. Enda hafði hinn islenski forstjóri Esso laglegan fyrirvara á neitun sinni i fyrra. 1 staðinn fyrir peningana frá Esso hefur framsóknarforystan tekið að sér að gæta hagsmuna fyrirtækisins á vettvangi lands- stjórnarinnar. Sem dæmi má nefna að þegar framkvæma átti fyrirheit vinstri stjórnarinnar um brottför hersins fóru stjórn- endur Esso að kippa i spottana. Forystu Framsóknarflokksins var á kaldrifjaðan hátt gert skiljanlegt að brottför hersins jafngilti stórfelldu tekjutapi fyrir Esso og þar með yrði skrúfað fyrir greiðslurnar til flokksins. Ráðherrar Alþýðu- bandalagsins urðu áþreifanlega varir við hvernig framsóknar- forystan kiknaði vegna þessa þrýstings. Forstjóri Esso haföi svo forgöngu um söfnun undir- skrifta 180 þekktra framsóknar- manna undir mótmæli gegn brottför hersins. Var þessi sveit eins konar fimmta herdeild Varins lands. Og hótunum sin- um til enn frekari styrktar lét Essoforstjórinn svo kjósa sig i miðstjórn flokksins. Ráðherrar Framsóknarflokksins þvældu svo hermálið i i rikisstjórninni, rufu þing og gengu i sæng með ihaldinu. Herinn var kyrr og Esso gat haldið áfram að mjólka hann i miljónavis. Shell og Sjálfstæðisflokkurinn Þótt Shell hafi orðið uppvist að stórfelldri mútustarfsemi og spillingartengslum við stjórn- málaflokka og ráðamenn i mörgum löndum hefur það ekki þurftaðbeita slikum brögðum á Islandi. Hér er i gangi miklu sniðugra kerfi. Formaður Sjálf- stæðisflokksins er einfaldlega umboðsmaður hins alþjóðlega auöhrings. Shell á islandi er meðal hornsteina ættarauðs is- lenska forsætisráðherrans og styrkir frama hans og for- mennsku i flokknum með marg- vislegum ráðum. Eins og fjölmörg önnur fyrir- tæki lætur Shell Sjálfstæðis- flokknum i té rekstrarfé og ým- iss konar aðstoð. Vegna hinna beinu tengsla milli formannsins og fyrirta'kisins geta fjármunir Shell streymt eftir tiltölulega greiðum og jafnvel löglegum brautum til Sjálfstæðisílokks- Framhald af 14. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.