Þjóðviljinn - 06.07.1976, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 6. júU 1976
Iimrásin í
Fjalaköttíim
lialni
Rœtt við ungt myndlistarfólk sem
hyggst opna galleri sólarmegin
við Morgunblaðshöllina
Sólarmegin við
Morgunblaðshöllina
stendur lágreist hús og
lætur ekki mikið yfir sér
við hlið risans. Ofan við
það er gamalt lúið skilti
þar sem stendur „Visir
— fyrstur með fréttirn-
a r” og vitnar um síðustu
ibúa þess sem voru
starfsmenn auglýsinga-
deildar Visis.
Hús þetta mun hafa veriö byggt
snemma á strlösárunum. Sá sem
það geröi hugðist brynna þar
breskum og bandariskum dátum
og var húsið rekið sem veitinga-
rtús fyrir þá meöan þeir voru hér i
borginni. Þegar engir dátar voru
hér lengur til að græða á yfirtdku
mennta- og háskólanemar húsið
og sóttu hann um nokkurt skeið.
Var það þá rekið með svipuöu
sniði og „Skallinn” viö Lækjar-
götu. Einhverra hluta vegna
hætta skólanemar aö sækja stað-
inn en við tók venjulegt fólk og
var þá gjarnar drukkiö þar vin
sem gestir földu undir boröum.
Fékk staðurinn þá nafnið Langi-
bar.
Loks gáfust menn upp á veit-
ingahússrekstri þarna og fóru að
selja mönnum farseöla i sumar-
leyfisferðir til útlanda. Að siðustu
lagði Vi'sir staöinn undir sig og
var þar þangaö til kviknaði i
húsinu fyrir nokkrum árum. Síð-
an hefur það staðið autt, þangað
til i vetur. I nóvember fengu þrir
myndlistamenn þá hugmynd að
stofna galleri einhversstaðar i
miðbænum. Einn þeirra
Sigurður örlygsson, fór á vit
Valdemars Þórðarsonar kaup
manns (Valda i Silla og Valda) og
falaðist eftir þessu húsi.
Samningar tókust og i desember
var farið að hreinsa til i húsinu
sem var mjög skemmt eftir
brunann.
Þaö fór að fjölga i hópnum og
nú telur hann tólf félaga: Sigurð
örlygsson, Orn Þorsteinsson,
Steinunni Bergsteinsdóttur,
Kristján Kristjánsson, Steingrim
Eyfjörð Kristmundsson, Þor-
björgu Þórðardóttur, Sigrúnu
Sverrisdóttur, Leif Breiöfjörð,
Magnús Kjartansson, Kolbrúnu
Björgólfsdóttur, Gunnar örn
Gunnarsson og einn leynifélaga.
Blaöamaður Þjóöviljans leit til
þeirra eitt kvöldið i þeim tilgangi
að forvitnast um fyrirætlanir
þeirra.
— Það hefur nú ekki verið
mörkúð nein ákveðin ste&ia i
starfseminni hér. Við ætlum að
reyna að koma þvi svo fyrir að
hér verði alltaf eitthvað aö ger-
ast. Hér verða haldnar sýningar
enauk þess verðuralltaf eitthvað
af föstum hlutum. Viö viljum
blanda sem mest saman ólikum
greinum innan myndlistarinnar
enda fást félagar hópsins viö
margar greinar, málverk. skúlpt-
úr, vefnað, listhönnun, steingler
■ofl.
— Einnig er hugmyndin að
tengja hér saman ö'likar list-
greinar, td. að bjóða hingaö tón-
listarmönnum og skáldum. Við
höfum þegar fengið nokkra djass-
ista tilaðleika við opnunina. Það
má segja að stefnan sé sú aö
halda uppi lifrænni starfsemi i
húsinu öllu. Héðan er innangegnt
Magnús Kjartansson mundar pensilinn
Séð inneftir sýningarsalnum
i Fjalaköttinn og þar höfum við
afdrep. Við litum svo á að innrás-
in I Fjalaköttinn sé hafin og stefn-
um að þvi að virkja allt húsið. Til
dæmis höfum við gælt við þá hug-
mynd aö setja upp kaffistofu i
garöinum inni I Fjalakettinum.
—Þið talið um sýningarhald, er
eitthvað ákveöið um sýningar?
— Já, við byrjum með sam-
sýningu hópsins. Þá hefur
Kristján ákveðið að halda einka-
sýningu og fleiri ganga með þá
hugmynd i maganum. Það er
væntanleg sýning frá Danmörku
á verkum eins frægasta málara
Norðurlanda um þessar mundir,
Richard Mortensen. Svo höfum
við i huga að setja upp sýningu á
erótik i islenskri myndlist.
— Hafið þið valið staðnum
nafn?
— Það hafa komið fram margar
tillögur um nafn en þetta mál er
ekki útrætt.
— Er ekki óskaplega dýrta að
gera húsið upp?
— Jú, en við höfum fengið
stuöning við það. Við sóttum um
styrk — 200 þúsund krónur — til
menntamálaráöuneytisins og
fengum 100 þúsund sem eru
vitanlega löngu búin. Mestu mun-
ar að Valdimar gaf allt bygging-
arefnið og svo hafa ýmsir aðilar
lagt okkur til efni eða þjónustu i
skiptum fyrir verk eftir okkur,
Harpa lét okkur hafa málningu,
Jón Auöunsson pipulagningar-
maöur lagði inn hitaveitu, Rafafl
sá um rafmagnið. En þetta er
samt mjög dýrt, td. verður mjög
dýrt að koma hér upp góðri
lýsingu, færanlegum ljósköstur-
um oþh., vegna þess að enginn
gluggi er á húsinu nema að fram-
an. Okkur vantar þvi peninga og
styrkir og stuðningsframlög eru
vel þegin.
— Eruð þið bjartsýn á að
grundvöllur sé fyrir rekstri svona
galleris?
— Já, það teljum við vi'st. Við
ætlum að skipta þvi á okkur að
vera hér og hafa opið sex daga
vikunnar. Hér á að vera opið um
helgar en með þvi gætum yið lagt
fram okkar skerf til að glæða
þennan miðbæ einhverju llfi.
Þetta veröur sölugaUerien þó alls
ekki listaverkaverslun eins og
þær gerast. Við bjóðum velkomna
menn utan úr bæ sem vilja halda
hér sýningar. Nú svo ákváðum
við að hver félagi hópsins legði
fram verk eftir sig fyrir ákveöna
upphæð sem rynni til rekstrarins.
Draumurinn er aö hafa ókeypis
aðgang en ekki er vist hvort það
er hægt. Stefnan er sú að halda
tapinu I lágmarki.
— Og hvenær verður svo opn-
að?
— Þegar við erum búin að gera
húsið upp. Við viljum helst ekki
gefa neinar yfirlýsingar, þær
hafa reynst ansi brigðular en ætli
við opnum ekki einhvern tima i
næsta mánuði. — ÞH
Garðurinn i Fjalakettinum. Þarna hafa myndlistarmenn áhuga á að
opna kaffistofu.
5/12 af hópnum, frá vinstri: Magnús Kjartansson, Steinunn Bergsteinsdóttir, Kolbrún Björgólfsdóttir,
Sigurður örlygsson og örn Þorsteinsson. (Myndir Valdis)