Þjóðviljinn - 06.07.1976, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 06.07.1976, Qupperneq 11
Þriðjudagur 6. júll 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Staðan í 1. deild Staðan i 1. deild tslandsmótsins í knattspyrnu er nú þessi: Valur 9 6 3 0 29:7 15 Vikingur 9 6 12 12:8 13 Fram 9 5 2 2 11:9 12 Akranes 9 5 2 2 13:11 12 JBK 9 4 1 5 15:15 9 KR 9 2 4 3 12:10 8 UBK 9 3 2 4 9:12 8 FH 10 1 4 5 6:17 6 Þróttur 10 0 1 9 6:24 1 Markhæstu leikmenn eru: Hermann Gunnarsson, Val 9 Guömundur Þorbjörnsson, Val 9 IngiBjörn Albertsson, Val 7 Teitur Þórðarson, tA 6 Sigþór ómarsson, tA 4 Rúnar Georgsson, ÍBK 4 Hinrik Þórhallsson,UBK 4 JóhannTorfason, KR 4 Staðan í 2. deild Staðan i 2. deild islandsmótsins i knattspyrnu er nú þessi: ÍBV Þór Armann Haukar KA tBl Völsungur Seifoss Reynir Markhæstu þessir: 8800 28:5 16 8521 18:8 12 8422 16:8 10 8323 17:15 8 8323 17:18 8 8223 10:13 7 8224 8:11 6 8116 14:27 3 8107 9:32 2 leikmenn eru Gunnar Blöndal KA 9 örn óskarsson ÍBV 8 TómasPálsson ÍBV Jón Lárusson Þór Sigurlás Þorleifsson IBV Sumarliði Guðbjarsson Selfoss Loftur Eyjólfsson Haukum Heimsmet í kúluvarpi kvenna Ivkana Hristova frá Búlgariu setti nýtt heimsmet i kúluvarpi kvenna um helgina, 21,89 m. Fyrra metiðáttiMarianne Adam, Austur-Þýskalandi, 21,67 m. Oft skall hurð nærri hælum við mark Breiðabliks. Hér reynir Bjarni Bjarnason angistarfuliur að ná til boltans sem sigldi rétt framhjá stönginni, en Guðmundur Þorbjörnsson er á hælum hans. A marklinunni standa þeir Sigurjón Randversson og Haraldur Erlendsson, en Ólafur Hákonarson markvörður er viðsfjarri, eða lengst til vinstri ásamt þeim Inga Birni, Einari Þórhallssyni, og tveimur sóknarmönnum Vals til viðbótar. Mynd:—gsp Markaskorarar Vals klúðruðu tækifærum og fyrir vikið náðu baráttuglaðir Breiðabliksmenn stigi út úr viðureigninni Eftir sannkallaða draumabyrjun i leiknum gegn Val um helgina léku Breiðabliksmenn af ó- mældri skynsemi og tókst með herkjum og töluverðri heppni að halda í annað stigið. Þeir náðu 1-1 jafn- tefli á mikilli og þrotlausri baráttu, en margsinnis misnotuðu hinir fjölmörgu markaskorarar Vals- manna opin tækifæri. Ólafur Hákonarson átti stórgóðan leik í Breiða- bliksmarkinu og bjargaði á köflum ævintýralega. Breiðabliksmenn skoruðu sitt mark strax á elleftu minútu leiks- ins og var þar að verki Þór Hreiðarsson, sem lék I stöðu mið- herja i forföllum Hinriks Þórhalis sonar, sem var meiddur. Þór fékk boltann frá Einari Þórhallssyni eftir hornspyrnu Gfsla Sigurðs- sonar og sendi hann með þrumu- skoti i markið. Til varnar var Vaísmaður á linunni,en hann var fyrir innan marklinu að mati dómara og linuvarðar sem báðir voru i góðri aðstöðu til þess að skera úr um þetta atriði. Þar með voru Valsmenn i fyrsta sinn i sumar komnir i „yf- irdrátt” á markareikningi sínum og áttu þeir greinilega bágt með að sætta sig við mótlætið. Þeim gekk illa að skapa sér tækifæri til að byrja með og náöu ekki að sýna allt það, sem til þeirra hefur sést i sumar. Þeir sóttu þó mun meira en andstæðingarnir, sem vöröust af grimmd, en urðu þó að láta i minni pokann á 15. min. seinni hálfleiks. Þá var þaö Guðmundur Þor- björnsson sem einu sinni sem oft- ar prjónaði sig upp hægrikantinn og siðan inn eftir endamörkum. Hann slapp framhjá tveimur varnarmönnum á nánast yfirskil- vitlegan máta og sendi hárfinan bolta til Inga Björns sem skallaöi i opið markið. Við þetta náði Valur sér mikið á strik og sótti stift án þess þó að uppskera mark. Hvað eftir annaö skapaðist hætta við mark UBK og á köflum var um hreina neyðar- vörn að ræða. Engu að siður lauk leiknum án þess að fleiri mörk væru skoruð, og það verður að segja Breiðabliki til hróss að þar sást að þessu sinni sú barátta sem gaman væri að sjá hjá hverju liði i hverjum leik. Leikið var af skynsemi upp á eina markið sem kom i byrjun, og með þá Einar Þórhallss. og Sig urjón Randversson sem bestu menn i vörninni tókst þeim að hafa hemil á sóknarmönnum Vals, sem virtust enda á köfium full-ákveðnir i að gera hlutina sjálfir i stað þess að senda á næsta mann. Sigurjón er korn- ungur leikmaðursem kom aftur i stöðu bakvarðar er Magnús Steinþórsson meiddist illa i byrj- un leiks.og skilaði hann sinu hlut- verki af miklu öryggi. Hjá Val bar mest á þeim Guð- mundi Þorbjörnssyni sem hvað eftir annað komst á lipurðinni i gegnum varnarmenn Breiðabliks og svo Inga Birni sem var sivinn- andi og gerði betri hluti en sést hafa til hans i sumar. Valur náði sér hins vegar ekki á strik fyrr en of seint, en ef þair hefði leikið all- an leikinn eins og eftir að þeir jöfnuðu 1-1 hefði sigur þeirra ver- ið vis og vafalaust stærri en eins eða tveggja marka. Valur hefur hins vegar tapað stigi i tveimur siðustu leikjum sinum og ljóst er að staða liðsins i efsta sætinu er siður en svo örugg. —gsp Markasúpa í leik KR og Fram Fram sigraði KR 4:3,Kristinn Jörundsson með þrennu. I byrjun var leikurinn jafn, en KR-ingar voru þó meira með boltann, en gátu ekki skapaö sér færi. Fyrsta mark- iö kom á 25. min. Kristinn Jör- undsson eftir góða fyrirgjöf frá Asgeiri Eliassyni. KR-ing- ar jafna á 31. min. Guðmundur Jóhannesson lék á þrjá fram- ara og skaut föstu skoti af 15 m færi. Annað mark KR skoraði Birgir Guðjónsson á 35. min- útu eftir ljót varnarmistök hjá Jóni og Marteini. Þriðja mark KR skoraði Jóhann Torfason, skaut háum bolta yfir Arna i markinu. Framarar löguðu stöðuna fyrir leikhlé með góðu marki Kristins, eftir langt inn- kast Péturs Ormslevs. Þannig var staðan i hálfleik, 3:2. Siðari hálfieikur byrjaöi eins og sá fyrri, KR-ingar voru meira með boltann. Framarar skora jöfnunar- markið á 65. min. Eggert skaut þrumuskoti af rúmlega 20 metra færi, algjörlea óverj- andi fyrir Halldór Pálsson varamarkmann KR. Fjórða mark Fram kom á 75. min. leiksins. Kristinn Jör- undsson skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Rúnari. Bestu menn Fram i þessum leik voru Kristinn Jörunds- son, Asgeir Eliasson og Agúst Guðmundsson. Hjá KR bar mest á Halldóri Björnssyni, Ottó Guðmundssyni og Jó- hanni Torfasyni. Leikinn dæmdi Grétar Norðfjörð og geröi þaö sæmi- lega. —Eir.H. Kalottkeppnin hefst í kvöld All ir OL-keppendur meðal þátttakenda stærsta frjálsíþróttamót sem haldið hefur verið hér á Eitt stærsta frjálsí- þróttamót sem haldið hefur verið hér á landi hefst á Laugarda Isvell- inum í kvöld og lýkur annaðkvöld. Keppendur verða yfir 200, þar af um 170 annarsstaðar af Norðurlöndum. Keppni þessi er nefnd Kalott- keppni og er þátttaka bundin bú- setu noröan 68. breiddarbaugs. tslendingar sigruðu i siðustu Kalottkeppni og hafa góða mögu- leika á sigri nú. Allir bestu frjáls- iþróttamenn okkar taka þátt i mótinu og þeirra á meðal allir landi keppendur á Olympiuleikunum i Kanada, en þeir eru nú flestir ný- komnir til landsins. Meðal erlendra keppenda er finnskur stangarstökkvari sem stokkið hefur yfir 5 m. Hingað koma einnig fimm spjAtkastarar sem kastað hafa 75-78 m og fær óskar Jakobsson þai verðuga keppni. Þarna verða einnig hlauparar sein hlaupið hafa 100 m á 10,6 sek og 400 m á 48,00 sek. Góðar iþróttakonur verða einnig meðal keppenda, t.d. ein sem hlaupið hefur 1500 m á 4:2,00 min og spjótkastari með yfir 54 m. Keppnin hefst. kl. 7.30 i kvöld, en Skólahljómsveit Kópavogs leikur frá kl. 7.00.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.