Þjóðviljinn - 06.07.1976, Side 13

Þjóðviljinn - 06.07.1976, Side 13
Þriðjudagur 6. júli 1976 ÞJóÐVILJINN — StÐA 13 Nokkur orð um útvarpssöguna: Ofbeldi í orðum og ofbeldi í verki i—-i.i—-i— útvarp 7.00 Morgunútvarp, Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.110. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.55 Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sigrún Valbergsdóttir heldur áfram sögunni „Leynigarðinum” eftir. Francis Hodgson Burnett (14). Tonleikar kl. 10.25. Morguntónleikar kl. 11.00 : Stuvesant strengjakvart- ettinn leikur Sjakonnu i g- moll eftir Henry Purcell / Kathleen Ferrier syngur ariur úr óratoriunni Elia eftir Mendelssohn og ariu úr óperunni Orfeus og Evredike eftir Gluckj Boyd Neel hljómsveitin leikur með / Pierre Fournier leik- ur á selló og Ernest Lush leikur á pianó Italska svitu eftir Igor Stravinski við stef eftir Giovanni Pergolesi / Gwydion Brook leikur með Konunglegu Filharmoniu- sveitinni i Lundúnum Kon- sert i B-dúr (K 191) fyrir fagott og hljómsveit eftir Mozart; Sir Thomas Beecham stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Farðu burt, skuggi” eftir Steinar Sigurjónsson. Karl Guð- mundsson leikari les (4). 15.00 Miðdegistónleikar. Jean Fournier, Antonio Janigro og Paul Badura-Skoda leika Trió nr. 2 i g-moll op. 26 fyr- ir fiðki, selló og pianó eftir Antónin Dvorák. Pro Arte píanókvartettinn leikur Kvartett i c-moll op. 60 fyrir pianó og strengi eftir Johannes Brahms. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.30 Sagan: „Ljónið, nornin og skápurinn” eftir C.S. Lewis, Rögnvaldur Finn- bogason les (2). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Aldarminning Hall- grims Kristinssonar for- stjóra.Páll H. Jónsson frá Laugum flytur erindi. 20.00 Lög unga fólksins. Asta R. Jóhannesdóttir kynnir. 21.00 Bjargvættur Skaftfell- inga i tvo áratugi. Brot úr sögu vélskipsins Skaftfell- ings frá 1918-1963. Gisli Helgason tekur saman. Les- ari meö honum: Jón Múii Árnason. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Kvöldsag- an: „Litli dýrlingurinn”eft ir Georges Simenon. As- mundur Jónsson þýddi. Kristinn Reyr les (5). 22.40 Hamonikulög. Andrés Nistad og félagar leika. 23.00 A hljóðbergi; Manns- röddin. Mónódrama eftir Jean Cocteau. Ingrid Berg- man flytur. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. SUNN ÁLYKTAR UM N ÁTTÚRUVERND r Alyktanir aðalfundar 1976 Við urðum höndum seinni aö vekja athygli á útvarpssögunni um Glataða æru Katrinar Blum eftir þýska nóbelsskáldiö Hein- rich Böll, sem Franz Glslason er nú að lesa. Saga þessi vakti firna- athygli þegar hún kom út. Hún byggir á tiðindum sem enn voru i fersku minni: hatursherferð Springerblaðanna vesturþýsku gegn „vinstri-öfgamönnum”, sem hún hafði dæmt fyrirfram seka um alla skapaða hluti löngu áður en málaferli hófust gegn þeim (Baader-Meinhof hópurinn o.fl.) Og svo hatursherferð þess- ara sömu blaða gegn Heinrich Böll sjálfum, sem hafði mótmælt aðferðum sorpblaðanna, og hlaut fyrir á vixl nafnbætur eins og nas- isti eða kommúnisti. En sagan var að sjálfsögöu meira: ágæt- lega skrifuð og markviss úttekt á þjóðfélagslegri meinsemd: has- arblöð og yfirvöld og fjölmiöla- notendur („almenningur”) sam- einast um að hrekja hrekklausa manneskju til örþrifaráða. Hér fer á eftir i endursögn kafli úr grein ágætri eftir Wenche Aamold um skáldsögu Bölls, sem nýlega birtist i norska bók- menntatimaritinu Edda: Atburðarásin er öll byggð upp utan um konu, Katrinu Blum. Hún er samt ekki kona athafnar- innar, heldur þvert á móti. Hún lifir fremur tilþrifalitlu lifi, þar til hún á 27nda aldursári er þvinguð inn i æsilega atburði, i þeirri rás eru henni veitt tilræði i orðum, sem leiða til þess að hún fremur morð. Með orðum (i yfirheyrsl- um, i skrifum hasarblaðamanns- ins Tötgens) er framið ofbeldi gegn Katrinu Blum og vald orðs- ins er mikið — þetta óbeina of- beldi verður orsök til hinnar beinu ofbeldisaðgerðar hennar. Hún er gerð aö peði i tafli, tafli samfélagsmaskinu þar sem of- beldi getur af sér ofbeldi. Katrin er vinnukona og tekur auk þess að sér að sjá um sam- kvæmi ýmiss konar. Hún hefur meö heiðvirðu starfi sinu komið sér upp ibúð og notuðum bil. Hún er ung og lagleg. Hún er fremur feimin, alls ekki gáfnaljós og ekki frelsuð I nútlma jafréttisskiln- ingi. En Böll lætur hana vera á- nægða með það lff sem hún hefur gertsér, hún vill fá að lifa i friði við dyggðir sínar: iðjusemi, hóg- værð og viðkvæma blygðunar- kennd i kynferðismálum, þvi þetta er undirstaða þess sem hún telur æru sina. Fyrir tilviljun verður þessi dygðuga kona skotspónn fyrir æs- ingaþorsta stórs slúðurblaðs og lesenda þess. Þetta gerist vegna þess, að Katrín Blum kynnist á kjötkveðjuballi ungum manni sem lögreglan leitar að sem rót- tækum (þ.e. vinstrisinnuðum) glæpamanni og er blátt áfram kallaður banditt. Innan tiðar verða orðin róttækur og bandit færö yfir á Katrinu sjálfa, vegna þess að hún fær ást á þessum unga manni, Ludwig Götten. Þegar i byrjun mætir lesandinn afleiðingunumafþviofbeldi I orð- um sem Katrin hefur orðið fyrir, afleiðingum af þvi að æra hennar meidd og einkalif hennar fótum troðið: við heyrum að Katrin Blum hafi skotið hasarblaða- manninn Werner Tötges. Þessi dygðuga kona, sem I hugmyndum sinum um heiður og sóma finnur engan stað ofbeldi, gripur til meðala andstæðingsins, þ.e.a.s. meöala samfélagsins sjálfs til að reyna að endurheimta æru sina. Morðið er þegar lagt á borð fyrir okkur sem orðinn hlutur. Lesand- inn þarf ekki að spyrja sig að þvi, hvað hefur skeð. Böll þvingar hann heldur til að rannsaka með Sér, hvernig oghvers vegnaþetta gerðist. Höfundur og lesandi halda saman afstað i leit að sann- leikanum. Smám saman er aðdragandi morðsins rakinn af sögumanni, sem sýnisthlutlægur en lætur sér samt ekki takast að fela andúð eða samúð með persónum og fé- Heinrich Böll; ekki fordæmi, lagslegum fyrirbærum. Við kynn- umst forsögu Katrinar, einkallfi hennar og sögusögnum um það, við kynnumst lögreglu og blaða- mönnum og starfssiðgæði þeirra, eða réttara sagt skorti á þvi. Sagan af Katrinu Blum liki'st með ýmsum hætti gömlum götu- söng þýskum um týnda æru konu. En hinu gamla mynstri er ekki lengur fylgt eftir. Almenningsá- litið krafðist þess áður fyrr, að konan gjaldi fyrir yfirsjón sina, fyrst með iðrun og sfðan með eig- in lifi til að endurheimta með slikri fórn hina glötuðu dyggð. En hérer eitthvaðnýtt áseyði.Þvi að þegar hlutlægt er skoðaö, hefur Katrin Blum ekki framið þau verk sem hún er ásökuð um. Það eralmenningsálitið sem rifur nið- ur og útbiar það sem menn oft nefna dyggð eða æru. Almenn- ingsálit, sem stýrt er af fölsku og spilltu tæki, slúðurpressunni. En þetta almenningsálit fær ekki sina fórn — nefnilega iðrun Katrinar og bæn um fyrirgefn- ingu synda. Hún öðlast I rás at- buröa sterkari sjálfsvitund. Fyrst er hún sem lömuð af öllum þeim óhróðri sem dembt er yfir hana. Svo litur út um stund sem fórnin verði færð. En það gerist ekki, Katrin Blum kemst að þeim skilningi, að með þvi að hún er beitt ofbeldi, hafi hún sjálf rétt til að nota meðul árásaraflanna sér til varnar. Katrin Blum er þvi sagan um konu sem gerir uppreisn. Ung kona sem heitir þvi táknræna nafni Katrin (hin hreina) Blum (blóm), hin saklausa, beitir skammbyssu að fréttamanninum samviskulausa, sem er i senn sekur sem einstaklingur og hluti af stærri samfélagsglæp. Sú stað- reynd að Katrin hin hreina og saklausa fremur verknað, sem fyrirfram sýnist óhjákvæmilegur er hluti af stærra orsakasam- hengi. Slikir hlutir hljóta að ger- ast i samfélagi, sem notar kyn- ferði konunnar sem söluvöru, sem ekki hlifist viö að setja einkalif manna á markaö. Hasar- blaðamaðurinn Werner Tötges verður Katrinu tákn um nafniaust samfélag, sem byggir á „sexi og glæp”, tákn um samfélag sem grefur undan kröfum hvers ein- staklings til einkalifs. Þetta sam- félag hrekur hana, hina saklausu og hreinu, fram á ystu nöf, og hún gripur til ráða þessa andstæðings sins, ofbeldis. Og á eftir finnr hún ekki til neinnar iðrunar. Hún gef- ur sig sjálf fram viö lögregluna og telur að með þvi að myrða þann heldur útskýring. sem hafði myrt æru hennar, hafi hún endurheimt hana. Hún hefur hefntsin á þeim sem hefur lagt lif hennar i rúst, lif hins saklausa, með lygum, auðmýkjandi háði og svivirðilegum æsingaskrifum, með þvi að gera hana i augum al- mennings að einhverju sem hún ekki er: félaga i hópi pólitiskra glæpamanna. Eftir að hún hefur með þessu móti lært á leikreglur samfélagsins biður hún róleg sins dóms. Með sögu sinni byggir Böll upp iskyggilegar framtiðarsýnir á forsendum hluta sem nú eru að gerast. Lögreglan tekur að sér hiö „ytra” eftirlit — að fylgjast með ferðum og athöfnum einstak- lingsins ogsimtölum hans. Blöðin taka að sér einskonar innra eftir- lit með þvi að miöla upplýsingum um áform einstaklingsins, geðs- hræringar og óskir. Sameiginlega brjóta þau manneskjuna niður. Ef ekki lögreglan, þá blöðin, og þegar blöðin hafa misst áhugann þá tekur jón jónsson við, almenn- ingsálitið sem blöðin fjarstýra. Með þessum hætti vill Böll sýna hvernig ofbeldi verður til og til hvers það getur leitt. Hann vill ekki hvetja fólk til að fara að fordæmiKatrinar Blum eftir hinu fornkveðna: auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Hann reynir að miðla lesanda af skilgreinandi af- stöðu sinni, til að sýna að það sé hægt að útskýra athafnir einstak- lingsins (Katrinar Blum) út frá samfélagsgerðinni, vara viö skaðræðismeinsemd sem mun breiðast út ef ekki verður að gert. Aðalfundur SUNN Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, haldinn I Skúlagarði i Kelduhverfi dagana 26.-27. júni 1976, ályktar eftirfarandi: 1. Umferðamál Fundurinn telur ástæðu til, aö endurskoöað verði hlutverk Nátt- úruverndarráös i sambandi við feröamál og verkaskipting þess og Ferðamálaráðs, ásamt viöeig- andi lagaákvæðum, þannig að það siöarnefnda taki almennt aö sér það hlutverk að búa I haginn fyrir ferðafólk. Jafnframt telur fundurinn að ferðaskrifstofurnar ættu að kosta að sinu leyti þær framkvæmdir, sem gerðar eru til að bæta mót- töku ferðamanna, á þeim stöðum sem þær nota til gistingar. Aðalfundur Alþýðuorlofs var haldinn 30. júni s.l. aö Hótel Sögu. A fundinum flutti formaður Al- þýðuorlofs, Óskar Hallgrimsson, skýrslu stjórnarinnar um starfs- semi samtakanna siðasta starfs- timabil árin 1974 og 1975. 1 skýrslunni kom fram að aðild aö Alþýöuorlofi eiga nú um 85 fé- lög innan A.S.Í. og 3 landsambönd 2. Um laxastiga við Brúarfossa Fundurinn ályktar að endur- skoða beri fyrirætlanir um bygg- íngu laxastiga við Brúarfossa i Laxá (S.Þing.), með tilliti til nýrrar þekkingar og nýrra við- horfa i þessum málum. 3. Um friðlýsingar. Fundurinn skorar á Náttúru- verndarráð að friðlýsa Vatns- dalshóla, (A.Hún.) ásamt nokkr- um merkum svæðum I nágrenn- inu, vegna yfirVofandi hættu á náttúruspjöllum. Þeim tilmælum er einnig beint til Náttúruverndarráðs, að það beiti sér fyrir auknum verndar- aðgerðum I efri hluta Laxárdals i S-Þingeyjarsýslu. og er félagsmannatala þeirra yfir 30 þús. Þá eiga aðild að orlofs- samtökunum aðilar utan A.S.t. þ.e. Iðnnemasamband tsands og Bifreiöastjórafélagið Frami. I,oks geröi aðalfundurinn svo- hljóðandi ályktun um hópferða- fargjöld: „Aðalfundur Alþýðuorlofs' Framhald á 14. siöu Minningarorð Arnór Stefánsson F. 20.3. 1961 - D.29.6. 1976 Þeir sem Guðirnir elska deyja ungir. Hann Arnór er horfinn. Það ér erfitt að trúa þvi, að Nóri eins og viö kölluðum hann, bekkjarbróöir okkar, sé horfinn fyrir fullt og allt úr þessu lifi. Hann var hrókur alls fagn- aðar i bekknum, alltaf kátur og fjörugur og leysti gjarnan vandamál okkar hinna. Hann kom ungur I Kópavoginn og slóst strax i för með okkur i barnaskóla og fylgi okkur i skóla og frltimum til dauða- dags. Nóri var samviskusamur og stundvis á allan hátt, duglegur að læra og áhugasamur. Hann var góður trúnaðar- vinur og varð aldrei þreyttur á að hlusa á okkur. En við verðum að sætta okk- ur við stóra skaröið sem höggvist hefur i vinahóp okkar við hvarf hans. Viö vottum foreldrum hans og systkinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Minning hans lifir meðal okkar allra. Bekkjarsystkinin. Aðalfundur Alþýðuorlofs

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.