Þjóðviljinn - 24.07.1976, Page 20
MOÐVIUINN
Laugardagur 24. júli 1976.
Soares
tekur við
LISSABON 23/7 Reuter — Rikis-
stjórn sú er Mario Soares, leiötogi
Sósialistaflokks Portugals, hefur
myndað, hefur nú tekið við em-
bætti. Ráðherrar eru átján og all-
ir úr Sósialistaflokknum nema
þrir herforingjar og þrir óháðir,
sem þó eru allir hlynntir sósial-
istaflokknum. Stjórnin er minni-
hlutastjórn, þar sem Sósialista-
flokkurinn hefur aðeins 107 þing-
sæti af 263 i portúgalska þinginu,
en virðist þó nokkuð örugg i sessi
til að byrja með, þar eð bæði al-
þýðudemókratar (miðflokkur) og
miðdemókratar (ihald) hafa lýst
yfir stuðningi við hana.
Larsen og
Smysloff efstir
Úrslit i 9. umf. i rnillisvæða-
mótinu i skák i Bienne urðu þessi:
Tal vann Diaz, en jafntefli var i
öllum öðrum skákum sem lokið
var, hjá Byrne og Rogoff,
Portisch og Hilbner, Lombardy
og Smejkal, Larsen og Sosonko,
Geller og Csom. Portisch og
Matanovic gerðu jafntefli i bið-
skákinni úr 7. umferð.
Staða efstu manna eftir 9.
umferð er þessi: Larsen og
Smysloff 6 v., Petrosjan og Byrne
51/2 v., Hiibner 5 v., Tal, Portisch
og Matanovic 4 l/2v.
Eirikur Nielsson
Ingvar Björnsson
Axel Axelsson.
Gunnlaugur Gunnlaugs- Öli blaðasali.
son.
Skatturinn og ég
— Jæja, hérna hefurðu
sumarglaðninginn, sagði
pósturinn við undirritaðan um
leið og hann afhenti álagningar-
seðilinn. Það fer um mann alveg
sérstakur fiðringur þegar þessi
merki seðill berst. Titrandi
höndum plokkar maður af
honum heftin þvi ekki er gott að
rifa svo örlagaríkt plagg.
En hver eru svo viðbrögðin
þegar seðlinum er flett i sundur
og upphæðin blasir við? Þau eru
flest á-þrjá vegu: — Hver djöf-
ullinn, ætla þeir að setja mann á
sveitina? — nú, er það ekkí
verra en þetta? — Þessu mátti
maður búast við!
Þegar blaðamaður og ljós-
myndari Þjóðviljans fóru út á
götu til að hitta „hinn almenna
borgara” að máli og spyrja
hann um skattinn komu öll þessi
viðbrögð fram. Hér á eftir
kemur árangur ferðarinnar.
í Bankastrætinu bar að Eirik
Nielsson lærling á bilaverk-
stæði. — Ég er eins hress og
maður getur verið, sagði hann,
þetta er ósköp svipað og við var
að búast.
— Helst hækkunin i hendur
við launin?
— Já, ætli það ekki.
Ingvar Björnsson sem vinnur
i Straumsvík var ekki eins
hress. — Ég er alls ekki
ánægður. Skattarnir hafa
hækkað mikið og eru mér miklu
óhagstæðari en i fyrra.
Axel Axelsson trésmiður og
frægur knattspyrnumaður úr
Þrótti brosti hins vegar út að
eyrum þegar við spurðum um
skattinn hans. — Þeir eru
mjög góðir, hafa ekki hækkað
mikið, sennilega ósköp svipað
og launin. Annars er ég alltaf
ánægður með skattana, þetta er
allt i lagi ef nóg er af börnunum.
Gunnlaugur Gunnlaugsson er
lika trésmiður, og hann hittum
við fyrir utan Reykjavikur-
apótek. — Ég er ekki ánægður
með skattana, þeir hafa hækkað
allt of mikið.
— Meira en launin?
— Ja, ætli það sé ekki þetta
venjulega hlutfall, skattarnir
hækka of mikið og launin of
litið.
Rétt hjá Gunnlaugi var óli
blaðasali við iðju sina. Hann
þverneitaði að hafa nokkuð
saman við blaðamenn að sælda.
— Ég tala aldrei við blöðin,
sagði hann itrekað, en bætti svo
við: — thaldið er að ganga af
manni dauðum.
Og með það snerum við aftur
upp á Skólavörðustlg.
—ÞH/myndir eik.
Þjóðviljinn leitar ó vit hins almenna borgara
Mjólkárvirkjim II
komin í gagnið
Samt verður etv. að keyra díselvélar á Vestfjörðum
Vatn fyrir Mjólkárvirkjun II fæst úr uppistöðulóni sem gert er úr
þremur vötnum, Langavatni, Tangavatni og Hólmavatni. Fallhæðin
niður að stöðvarhúsinu er um 500 metrar.
Á fimmtudaginn var Mjólkár-
virkjun II tekin I gagnið en hún er
5,8 MW. Eldri virkjunin er 2,4
MW. Viðstaddir virkjunina voru
starfsmenn hennar, þingmenn og
sveitarstjórnarmenn á Vestfjörð-
um, en um 40 manna lið með
Gunnar Thoroddsen orkumála-
ráðherra i broddi fylkingar beið á
Reykjavikurflugvellián árangurs
eftir að fá flugveður vestur. t stað
Gunnars vigði starfcbróðir hans
Matthias Bjarnason virkjunina
en hann var staddur vestra.
Þjóðviljinn haföi samband við
Aage Steinsson rafveitustjóra
Vestfjarða og sagði hann að þrátt
fyrir mikla aukningu orkuvinnslu
með þessari nýju virkjun gerði
hún ekki annað en fylla upp i þá
þörf sem þegar er fyrir hendi, og
etv. mætti búast við nokkurri
dieselvélakeyrslu i vetur þó að
húnyrði ekkert á við það sem hún
var siðasta vetur. Þá var 30% af
rafmagni á Vestfjörðum unnið
með dieselvelum og kostaði það
250 miljónir króna. Kostnaður við
Mjólkárvirkjun II var orðinn 700
miljónir 1. mai sl.
Afsláttar-
blekking
Fyrir álagningu fasteigna-
skatts I ár var fasteignamatið frá
árinu 1970 margfaldað upp með
2,7 og þannig nær þrefaldað skatt-
virði fasteigna.
Skattfrelsismörkin voru þá 2,1
miljón. Bráðabirgðalög voru
gefin út um að þessi mörk skyldu
hækka i 2,7 miljónir eða um 33%.
Hækkun fásteignamatsverðs varð
þó 270%,svo afslátturinn, gerðum
með auglýsingum og bráða-
birgðalögum var blekking: 33%
afsláttur að undangenginni 270%
hækkun!
Rétt er að geta þess hér einnig,
að þrátt fyrir þessa margföldun
eignamatsins er það ekki nema
um það bil 1/3 hluti af söluvirði
fasteigna, sem metnar voru árið
1970. Þannig hefur til að mynda
einbýlishús, sem á árinu 1970 var
metið á þrjár miljónir, verið
hækkað I 9 miljónir I mati, en
söluv. mun vart vera undir 27
miljónum króna.
-úþ
Ekki er nóg vatn til að full af-
kastageta náist með gömlu vélun-
um iMjólká og er búist við að það
kláristihaust. Ennfremur á nýja
rafmagnslinan norður um að
klárast i haust.
Búið er að kanna virkjun
Dynjanda, en nú eru ýmsir aðrir
valkostir að koma i ljós varðandi
næstu virkjun á Vestfjörðum,
sagði Aage, sem sýnast vera
skynsamlegri. Hér er sérstaklega
um að ræða Vatnsdalsá i Vatns-
firði en þar væri hægt að byggja
20 MW virkjun og væri þá
Dynjandivirkjun úr sögunni þar
sem um sama vatnasvæðið er að
Hunda-
hald
ekki
bannað
í Eyjum
Þeir sem eiga erindi
við Kaupfélagið í Vest-
mannaeyjum njóta
þeirrar þ jónustu að geta
skiíið hundana eftir
utan dyra, án þess að
eiga á hættu að þeir
hlaupi á brott.
Kaupfélagsstjórinn hefur
nefnilega látið festa hringi i
húsvegginn þar sem festa má
hunda I bandi i. Sigfinnur
Einarsson teiknikennari sem
undanfarið hefur staðið fyrir
þvi að lifga upp á bæinn með
utanhússkreytingum málaði
skilti sem sjást hér á myndun-
um. Þetta er gert bæði að þörf
þar sem hundar inni i
versluninni geta skapað ýmis
vandræði og einnig til gam-
ans. Þetta mætti hins vegar
alls ekki i Reykjavik, þvi að
þar er hundahald bannað —
amk. að nafninu til. 1 Vest-
mannaeyjum er hundahald
leyft.
— GFr./Myndir Eir.H.
ræða.
GFr.
Jeppa
& Dráttarvéla
hjólbaröar
Verð ] KR. J 10 7 0i A Stærð gj 650-16/6
Veró i KR. t 12. 71 61 Stærö . ■ 750-16/6
|7ÉKKNESKA BIFRE/ÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIHÆ
AUDBREKKU 44 - 46 S/\V 42606