Þjóðviljinn - 28.07.1976, Page 1
UOmiUINN
Miðvikudagur 28. júli 1976. —41. árg. —164. tbl.
Skipakaup í rannsókn
Vegna uppkominna gjaldeyrissvika við kaup á-
sanddæluskipinu Grjótjötni til landsins hefur Seðla-
bankinn hafið rannsókn á skipakaupum til landsins
almennt.
Ranmsóknin nær fjögur ár aftur i timann, og nær
til kaupa á 10—20 skipum. Flest eru það flutninga-
skip, sem um er að ræða, en einnig fiskiskip. —úþ
Isl. útvegsmenn
Biðja um
kennslu
i frétt frá NTB i gær segir
aö Landssamband Islenskra
útvegsmanna hafi fariö þess
á leit viö norska sendiráöiö i
Reykjavik að Islenskir sjó-
menn fái að kynna sér veiðar
á úthafsrækju I norskum
skipum.
Að sögn fréttastofunnar
mælti sendiráðið með þessu
við sjávarútvegsráðuneytið i
Osló sem siðan sendi málið
til umsagnar fiskimálastjór-
ans.
Þjóðviljinn bar þessa frétt
undir Kristján Ragnarsson
framkvæmdastjóra Lltl og
staðfesti hann hana, sam-
bandið hefði fyrir nokkru
farið fram á þetta. Hafi það
verið gert fyrir beiðni nokk-
urra útgerðarmanna innan
Ltú.
— Ef það á að fara að
stunda veiöar á úthafsrækju
i einhverjum mæli hér við
land viljum við að menn
kunni að vinna aflann um
borð þvi það er miklu hag-
’ kvæmara en að sigla með
hann óunninn til lands. Norð-
menn hafa mikla reynslu á
þessu sviði og þvi var eðli-
legt að leita til þeirra. Við
höfum ekkert svar fengiö
enryen þegar það berst verð-
ur þeim sem um þetta báðu
gerð grein fyrir þvi, sagði
Kristján.
—ÞH
Skattskrain:
43,8%
hækkun
Samkvæmt skattskrá
Iteykjaneskjördæmis, sem
var lögö fram I gær, var þar
lagt á 20.681 einstakling
5.555.277.000.00 krónur og er
þaö 43,8% hærri álögur en
voru I fyrra. Þá voru lagöar
848,7 miljónir á fyrirtæki I
umdæminu. Gjaldendur auk
fyrirtækja i ár eru 794 fleiri
en I fyrra og er þaö nokkuö
minni fjölgun milli ára en
veriö hefur undanfariö en þá
hefur gjaidendum i þvi
skattumdæmi, Reykjanes-
umdæmi, fjölgaö um eitt
þúsund. Hæsta meöalgjöld á
ibúa eru I Garöabæ eöa
369.958.00 krónur.
Á Seltjarnarnesi var aö
meðaltali iagt á hvern gjald-
anda 307.715 þúsund, i Njarö-
vikum 278.857 þúsund, i
Grindavfk 271.289 þúsund, i
Kópavogi 262.939 þúsund, i
Keflavik 259.681 þúsund og I
Hafnarfiröi 254.365 þúsund. i
sveitahreppum umdæmisins
var meðaltalsálagning lægri
og undir 200 þúsund á ein-
stakling I þremur hreppum.
Fyrirtækjagjöldin voru nú
lögð á 71 gjaldanda fleiri en i
fyrra en álagt 258 miljónum
meir en þá. Samtals nema
þvi gjöld álögö I Reykjanes-
kjördæmi 6.404.008.941.00
krónum og gjaldendur eru
alls 21.823 talsins.
—úþ
gjalda
Skattlausum fyrirtœkjum fjölgar verulega
Tapar ríkissjóður
7 miljörðum í ár?
5 i m*rn& 9
|L *
„Ég lentiá svarta listanum eftir aö ég sagði aö Karpov ætti engan möguleika I skákeinvigi gegn Fisher,
sagöi Kortsnoj i viötali viö -gsp i Hollandi sl. laugardag. Myndin er tekin fyrir utan Crest hóteliö þar sem
blaðam. þjv. ræöiV viö stórmeistarann um feril hans og viðskipti viö opinbera aöila I heimalandi hans.
Ljósmynd: Bert Verhoeff.
Á árinu 1975 hafði
skattlausum fyrirtækj-
um i Reykjavik fjölgað
um helming frá þvi ár-
inu áður. í fyrra voru
þau 432 og veltu um 20
miljörðum króna. Af
Skattskr áRey k j a vikur
’76 má ráða að enn hafi
orðið veruleg fjölgun
skattlausra fyrirtækja.
1 fyrra var áætlað að rikissjóð-
ur missti 3—4 miljaröa i skatta-
tekjum af þessum fyrirtækjum og
um einn miljarð króna vegna ein-
staklinga, sem fást við rekstur,
en komast upp með að telja sér
sáralitlar persönulegar tekjur. i
ár má gera ráð fyrir að saman-
lagt sé hér um að ræöa upphæð
sem ekki er undir sjö miljarðar
króna, og er það talsvert meira,
en tekjuskattur allra einstaklinga
i landinu.
i fyrravetur flutti Ragnar Arn-
alds, alþm., i annað sinn tillögu á
Alþingi um breytingu á tekju-
skattslögum, sem miðaði að þvi
að breyta þessu skattamisrétti.
Þar var gert ráð fyrir að ákvæði
um flýtifyrningu, og verðhækkun-
arstuðul yrðu afnumin úr skatta-
lögunum og fyrningarhlutfall
miðað við eðlilegan endingar-
tima. Ennfremur var lagt til að
takmörk yrðu sett á leyfilegan
vaxtafrádrátt og atvinnurekend-
um áætlaðar tekjur af eigin
rekstri ef þurfa þætti, enda þótt
fyrirtæki syndu bókhaldslegt tap.
Þessi tillaga var svæfð á Alþingi
og rikissjóður heldur áfram að
tapa miljörðum á ári hverju.
SJÁSÍÐU7 r
Viktor Kortsnoj leitar hœlis í Hollandi:
„16 mánaða einangrun
var of mikið fyrir mig”
sagði þessi heimsfrœgi skákmaður í einka
viðtali við Þjóðviljann í Amsterdam sl. laugardag
— Þaö var ekki hægt
fyrir mig að kyngja öllum
þeim erfiðleikum sem ég
lenti i eftir þessi ummæli
mín um Karpov og eftir
sextán mánaða einangrun
frá öllum skákmönnum
var svo sannarlega kominn
timi til þess að undirbúa
brottför úr Sovétríkjunum,
sagði sovéski stórmeistar-
inn Viktor Kortsnoj i ýtar-
legu viðtali sem Þjv. átti
við hann i Hollandi sl.
laugardagskvöld.
Kortsnoj leitaði siðan hælis sem
pólitiskur flóttamaður i Hollandi
og kom það nokkuð á óvart. Hann
hafði að visu ekki farið svo mjög
dult með fyrirætlanir sinar um að
fara úr landi en i samt^linu við
Þjv. sagðist hann ætla heim til
Leningrad á þriðjudag og siðan
reyna aö komast þaðan lil tsrael
Framhald á 14. siðu.
Opnuviðtal við Kortsnoj á morgun