Þjóðviljinn - 28.07.1976, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJCMN Miðvikudagur 28. júli 1976.
UQBVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón með sunnudagsblaði:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
ÞAÐ ÞARF NÝJA EFNAHAGSSTEFNU
Eitt af megíneinkennum islenska pjöö-
félagsins er sóun og röng nýting á f járfest-
ingarfjármagni. Það er notað til þess að
reisa oft þarflausar verslunarhallir, eink-
um á höfuðborgarsvæðinu þar sem þær
gefa mestan arð i verðbólguþenslunni, og
mörg eru dæmin um það að fjárfesting i
sjávarútvegsgreinum hafi verið ákaflega
handahófskennd.
Um siðustu helgi birti Morgunblaðið
viðtöl við nokkra efnahagssérfræðinga og
stjórnmálamenn þar sem meðal annars er
fjallað um þessi vandamál. Einn þeirra
sem svara er Þráinn Eggertsson, lektor.
Hann segir:
„Loks er illa haldið á fjárfestingarfé og
þvi ekki veitt i arðsömustu framkvæmd-
irnar, enda þótt litil þjóð i stóru og harð-
býlu landi verði að gæta itrustu varkárni í
fjárfestingarmáium. Fjárfesting i at-
vinnutækjum þjóðarinnar er orðin að póli-
tiskum skripaleik.
Þegar sjást merki þess að ísland sé að
verða lágtekjusvæði i Evrópu, en það
mundi stefna í hættu framtið íslands-
byggðar. Þeirri hættu verður ekki afstýrt
nema með aðgerðum sem taka mið af
stöðunni mörg ár fram i timann. Nú reynir
á hvort islendingar geta litið svo sem 11 ár
fram i timann af jafnmikilli iþrótt og þeir
skoðuðu 1100 ára sögu sina fyrir tveimur
árum.”.
Hér hreyfir lektorinn tveimur mjög þýð-
ingarmiklum málum og svörin við kröfum
hans i þessum efnum koma heim og sam-
an við stefnu Alþýðubandalagsins.
í fyrsta lagi er ljóst og hefur lengi verið
að hér þarf að taka upp áætlunarbúskap i
öllum fjárfestingarmálum. Slik áætlun
verður að ná til allra framkvæmda, bæði
rikis og einstaklinga. Áætlunarbúskapur
þessi hafi það markmið að tryggja að f jár-
magnið sé vel nýtt en að þvi sé ekki sóað i
vitleysur. Áætlanirnar þarf að gera nokk-
uð fram i timann og samstilla þær heildar-
markmiðum þannig að sem flestir aðilar
geti náð samkomul. um þær. 1 þeim þarf
að tryggja að f jármagninu sé fremur var-
ið i samfélagslegar framkvæmdir og
atv.tæki en i einskisnýta steinkassa sem
eru reistir til þess eins að geyma verð-
bólgufjármagn og tryggja stóreigna-
mönnum meiri eignir, meiri gróða, sem
siðan eru nær ekkert skattlagðar. Með
þessum hætti má án efa ná miljörðum út
úr þjóðarbúinu, sem siðan mætti nota til
þess að tryggja launafólki þann kaupmátt
launa sem hér er nauðsynlegur. Það er
stórhættulegt að Island verði láglauna-
svæði eins og nú er að gerast, en forsenda
þess að launin hækki að marki i raun og
veru — ekki aðeins i verðbólgukrónum —
er sú að þjóðfélaginu verði breytt frá þvi
sem nú er.
Þessi meginatriði samræmast ekki
stefnu núverandi rikisstjórnar. Hún rig-
heldur sér i gamlar kreddur um frelsi
fjármagnsins, enda þótt það skerði frelsi
einstaklingsins. Þetta gerir hún vegna
þess að það er i þágu stórgróðamannanna
i Sjálfstæðisflokknum braskaranna sem
ráða núorðið mestu i Framsóknarflokkn-
um. Þess vegna er núverandi rikisstjórn
andvig áætlunarbúskap — hann kemur
ekki heim og saman við kenningarnar sem
forustumenn stjórnarflokkanna vilja
hefja til hæsta vegs, kenningarnar um
hinn takmarkalausa gróða gróðamann-
anna. Jafnframt er það beinlinis i sam-
ræmi við stefnu rikisstjórnarinnar að
halda laununum niðri. Hún vill allt til þess
vinna að ísland sé og verði láglaunasvæði,
til þess i fyrsta lagi að landið verði girni-
legri vettvangur fyrir erlent fjárfesting-
arf jármagn og i annan stað til þess að is-
lenskir launamenn sem verða atvinnu-
lausir fari úr landi eins og var á stjórnar-
árum Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins.
Það er þvi augljóst mál að núverandi
rikisstjórn ræður ekki við að skapa þá
samstöðu sem nauðsynleg er i landinu til
þess að taka upp raunhæfan áætlanabú-
skap og efnahagsstefnu sem hefur hags-
muni launamanna — meirihluta þjóðar-
innar — að leiðarljósi. Til þess að tryggja
slika stefnu i framkvæmd þarf fyrst og
fremst sterkt Alþýðubandalag, miklu
sterkara en það er i dag,og viðtæka al-
þýðueiningu, sem forráðamenn eigna-
stéttarinnar óttast.
—s.
Morgunblaðið
falleraði
á prófinu
í sumar hefur pennalipur
maður, sem skrifar undir stafn-
um A. ritað vikulegar greinar i
Þjóðviljann, er nefnast ,,A
þriðjudegi”. f þremur siðustu
greinunum, 27., 20. og 13. þessa
mánaðar, hefur hann gert
kaldastriðsáróður Morgun-
blaðsins að umræðuefni, mis-
notkun blaðsins á skáldinu Sol-
sjenitsyn og birt gagnrýni
Medvedev-bræðra og Amalriks,
auk annarra sovéskra andófs-
manna, á stjórnmálaviðhorf
Nóbelskáldsins. Viljandi gat
hann ekki um það i greininni frá
20. hvar skoðanir Roy
Medvedevs, sem vitnað var til
innan gæsalappa fjórum sinnum
i greininni, komu fram. Með þvi
var hann að leggja svolltið próf
fyrir ritstjóra Morgunblaðsins,
ef vera kynni að útkoman úr þvi
myndi sannreyna kenningar
hans frá 13. þ.m. Ekki stóð á
viðbrögðunum: Leiðari á föstu-
daginn, breiðsiða á laugardag
og Reykjavikurbréf á sunnu-
dag. Þar sannaðist allt sem A
hafði haldið fram, kaldastriðsá-
róðurinn, rangfærslurnar, æru-
meiðingarnar — allt kom þetta
upp á yfirborð á óvenju van-
stilltan hátt. Með þessu var goð-
sögninni um fréttaæru Morgun-
blaðsins hnekkt einu sinni enn.
Ritstjórarnir féllu á frétta-
mennskuprófinu, sem A lagði
fyrir þá. Blaðið gerði þvi skóna
að skrif þessi i Þjóðviljanum
hefðu verið matreidd hjá APN
og Novosti, enda væru blaða-
menn Þjóðviljans aöeins plötu-
snúðar þessara stofnana.
1 þriðjudagsgreininni i gær
kemur hinsvegar fram að til-
vitnanirnar i grein Medvedevs
voru úr breska blaðinu Sunday
Times og trúi þvi hver sem vill,
að þar séu að verki plötusnúðar
alheimssamsæris kommún-
ismans. A hefur þvi náð tilgangi
sinum fullkomlega með prófinu
og sannað kenningar sinar. Eft-
ir standa Morgunblaðsrit-
stjórarnir með allt niðrum sig
og 0 I einkunn. Blaðalesendum
skal bent á að lesa greinar þær 1
eftir A sem hér hafa verið
nefndar og viðbrögð Morgun-
blaðsins við þeim um helgina.
Sú lesning gefur fróðlega innsýn
i vinnubrögð viðlesnasta blaðs
landsins.
Hrökkállinn
í Tjörnina
Þúsundir reykvikingar hafa
lagt leið sina niður að Tjörn
undanfarna daga til að dást að
hinum undurfagra gosbrunni,
sem þar hefur verið tildrað upp.
mSSMsii
Rennur það nú upp fyrir öllum
aö þetta var einmitt þaö sem
Foroyingur tikin sum
«terroristur» í USA!
oyingarnar á 200 ára
frælsishátiðarhaldi-
num, varð hann tikin
sum «terroristur». Or-
sekin var tann, at hann
hevði ein slíörakniv
uppi á sær.
Margháttligar kunnu
hendingarnar vera i
heiminum. Tá ið hin
friðarligi framkomni
bátasmiöurin, Niklas i
Koltri, skuldi fara
gjegnum tollin, og eft-
íransingina i USA, har
hann hevur verið mill-
um teir luttakandi far-
Það eru ekki bara islenskir þingmenn og júdókappar sem
taldir eru liklegir til hryðjúverka og byltingarstarfsemi i
Bandarikjunum eins og þessi úrklippa úr mágagni Þjóö-
veldisflokksins i Færeyjum, 14. september, ber með sér.
vantaði I Tjörnina frá land-
námstið, og hver veit nema Ing-
ólfur Arnarson hafi einmitt val-
ið sér bólfestu hér, og nefnt
staðinn Reykjavik vegna þess
að hann var forvitri og sá það
fyrir að einhvern tima myndi
koma upp rjúkandi gosbrunnur
skammt frá bæ hans.
Ymsum þykir þó einn ljóður
vera á þessu ráði, þvi sýnilegt
er að nokkur jafnvægisskortur
er i Tjörninni, þegar þessi
glæsilegi gosbrunnur prýðir
syðri Tjörnina en nyrðri Tjörnin
gapir auð. Við getum nú glatt
alla sanna reykvikinga með þvi
að þetta stendur til bóta: okkur
hefur nefnilega borist sú frétt að
hinn kunni Islandsvinur, stór-
kaupmaðurinn Alphonse de
Lousoddaix I Rúðuborg, hafi
ákveðið að gefa Reykjavikur-
borg stóra og glæsilega styttu af
þeim landsfræga atburði, þegar
hrökkállinn slengdi sér upp úr
Tjörninni og beit i besefann á
Þórbergi, og eigi að setja stytt-
una upp I nyrðri Tjörninni beint
fyrir framan Kvennaskólann,
þar sem þessi atburður geröist.
Nokkur töf hefur þó orðið á af-
hendingu styttunnar, þvi að
myndhöggvarar suður i Frans
eru að gera tilraunir með þetta
mikla verk og hyggjast jafnvel
gera úr þvi „móbll” eöa hreyf-
anlega styttu: á hrökkállinn að
koma stökkvandi upp úr Tjörn-
inni með vissu millibili og bita i
besefa Þórbergs, en hann hristir
hann vitanlega af sér eins og
segir I Bréfi til Láru. Komið hef-
ur til tals að samræma þessar
listir styttunnar við friminútur i
kvennaskólanum, en slikt er
mjög I anda draumsins.
Tilraunirnar eru komnar svo
langt að góðar vonir eru til þess
að styttan verði afhent i haust,
um það leyti sem gagnfræða-
skólar hefjast. En þetta seljum
við ekki dýrara en viö keyptum
það
Lögreglu-
aðgerðin:
JEPPI
Að undanförnu hefur borið
nokkuð á efasemdum um að is-
lenska lögreglan væri vanda
sinum og okkar vaxinn, sérstak-
lega þegar fréttir berast af at-
hafnasemi einstaklinga innan
hennar á vafasömum sviðum.
Eftirfarandi frétt úr Morgun-
blaðinu sýnir að ekki þurfum við
að óttast um að lögreglan gegni
ekki varnarstarfi sinu gegn
rússum fremur heldur en
Bandarikjaher á Miðnesheiði:
„FÓTUR og fit varð uppi á
lögreglunni i gærmorgun, þegar
vökulir löggæslumenn fundu
rússneskan jeppa, sem skilinn
hafði verið eftir á næsta ein-
kennilegum stað i borginni — á
miðjum gatnamótum Baróns-
stigs og Egilsgötu.
Löggæslumennirnir árvökulu
lögöu saman tvo og tvo, og
fengu út að allt hátterni jeppans
þarna á horninu benti til þess að
jeppinn væri stolinn. Þusti nú aö
allmikið lögreglulið og rann-
sóknarlögreglumaöur var
kvaddur sérstaklega á staðinn
til að komast til botns i þjófnað-
inum.
1 þann mund sem rannsókn
málsins var að hefjast kom hins
vegar hið rétta á daginn. Aðvif-
andi kom kona og gat gefið
skýringar á veru jeppans á
þessum stað. Hún hafði ekið
jeppanum fyrr um morguninn,
og svo óhönduglega tekist til að
jeppinn hafði einmitt orðið oliu-
laus á þessum stað. Sjálf hafði
konun ekki krafta til aö ýta
jeppanum fyrir hornið, og hann
þvi staðið þarna meðan hún brá
sér frá eftir aðstoð.”
— ekh