Þjóðviljinn - 28.07.1976, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 28. júli 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Hundrað ára afmœtí Wagner-
hátíðarinnar í Bayreuth
Hinum fornu grikkjum hefði komið það undarlega fyrir sjónir ef reynt hefði verið að banna kynvillu á
ólympíuleikjum.
Olympíuleikar hafð-
ir að skálkaskjóli
Lögregluofsóknir gegn ky’nvillingum
Um þessar mundir halda þjóðverjar upp á það að
hundrað ár eru liðin siðan hátiðaleikhús Wagners i
Bayreuth var vigt. Hinn 13. ágúst 1876 lyftist tjaldið
i fyrsta sinn og byrjað var að sýna „Rinargull”,
fyrstu óperuna af þeim fjórum sem mynda ferleik-
inn „Niflungahringinn”. Wagner hafði unnið að
þessum óperum árum saman og var þá nýlokinn við
hina síðustu.
Þegar nokkur Afrikuriki
ákváðu að hætta við þátttöku i
Olympiuleikunum til að mótmæla
þátttöku nýsjálendinga, s§m
höfðu unnið sér það til saka i
þeirra augum að taka þátt i
iþróttakeppni á móti suður-
afrikumönnum, spurðu margir:
hvers vegna að blanda pólitik inn
i ólympiuleikana? Þetta var
barnaleg spurning, þvi að stjórn-
mál i viðri merkingu hafa ævin-
lega verið snar þáttur i ólympiu-
leikum fyrr og siðar. Margir
muna sjálfsagt eftir Ólympiuleik-
unum i Berlin 1936, sem voru einn
allsherjar áróðursvettvángur og
sýningargluggi fyrir Þýskaland
nasismans. Nasistar, sem hafa
það á afrekaskrá sinni að hafa
myrt um 250 þúsund manna fyrir
það eitt að þeir.voru kynvilltir,
gengu svo langt að þeir létu opna
að nýju klúbba og samkomustaði
kynvillinga i Berlin, til að útlend-
ingar fengju þá hugmynd að þar
stæði frelsi og umburðarlyndi i
hinum mesta blóma. Auðvitað
var þessum stöðum lokað aftur að
Ólympiuleikunum loknum og of-
sóknunum haldið áfram.
Það er augljóst mál að ekki er
hægtað bera saman ólympiuleik-
ana i Berlin fyrir fjörutiu árum og
Ólympiuleikana i Montreal nú,
þvi aö tilgangurinn er alls ekki sá
sami. En danska blaðið Informat-
ion hefur nýlega sýnt fram á það
hvernig stjórnvöld i Kvibekk hafa
notfært sér undirbúning leikanna
til að ganga milli bols og höfuðs á
ýmsum stjórnmálasamtökum og
minnihlutahópum.
Lögreglan hefur þannig t.d.
haft öryggi á Ólympiuleikunum
sem yfirskin til ýmissá aðgerða
gegn fransk-kanadiskum þjóð-
ernissinnum og öðrum smáflokk-
um. En jafnframt hefur hún hald-
ið uppi stanslausum ofsóknum á
hendur kynnvillingum án þess þó
að útskýra það eða rökstyðja.
Gerðar hafa verið árásir á klúbba
og samkomustaði kynvilltra karl-
manna og kvenna og hundruð
manna handtekin, og lögreglan
hefur gert leit i skrifstofum sam-
taka þeirra. Þessar ofsóknir hóf-
ust fyrir mörgum mánuðum og -
hafa haldið stanslaust áfram.
Nefnir blaðið Information t.d.
að 23. janúar i ár hafi lögreglan
ráðist inn i „Club Bath” og hand-
tekið 36 menn. .10. mars gerði ör-
yggislögreglan leit hjá samtökun-
um „Toronto Gaý Alliance
Toward Equality”. Helgina 13. —
15.mai gerði lögreglan árás á sex
samkomustaði kynvillinga, hand-
tók 86 menn á einum stað og lagði
hald á lista yfir klúbbfélaga. Til
að undirstrika þessar lögreglu-
aðgerðir var gerð herferð i blöð-
um til að fordæma kynvillinga,
útmála þá og liferni þeirra i sem
svörtustum litum og iofsyngja
framferði lögreglunnar.
Nú er það býsna hæpið að þátt-
takendum og gestum Ólympiu-
leikanna standi nokkur ógn af litl-
um flokkum eins og fransk-kana-
diskum þjóðernissinnum og þvi
siður af kynvillingum Það er i
rauninni ekkert rökrétt samhengi
milli Ólympiuleikanna og þessara
lögregluofsókna. Dæmið sýnir
einungis hvernig unnt er að nota
Ólympiuleikana sem yfirvarp tH
ofsókna á hendur minnihlutahóp-
um, sem yfirvöldunum er af ein-
hverjum ástæðum i nöp við.
Sagter að Richard Wagner hafi
fyrstfengið þá hugmynd árið 1836
að byggja sérstakt leikhús fyrir
verk sin, þar sem hann gæti
komið i framkvæmd þeim
byltingarkenndu hugmyndum um
leikhús, sem hann var stöðugt að
glima við. En lengi skorti hann fé
til slikra framkvæmda, og vonir
hans um að Lúðvik 2. konungur i
Bajern myndi taka að sér bygg-
ingu leikhússins brugðust þegar
þessir tveir skapmiklu menn urðu
ósáttir. Áriðl862 var Wagner bú-
inn að ákveða i stórum dráttum
hvernig leikhúsið ætti að verða og
fór að safna fé með ýmsum hætti,
tónleikahaldi, áskriftum o.þ.h.
Það nægði þó ekki og varð endir-
inn sá að Wagner neyddist til að
þiggja aðstoð Lúðviks 2., sem
borgaði allar skuldirnar úr sinum
eigin vasa.
Það tókst með naumindum að
ljúka leikhúsinu i tæka tið fyrir
fyrstu Wagner-hátiðina 1876, þar
sem Niflungahringurinn var
frumsýndur, og Wagner gat sjálf-
ur aðeins séð um tvær slikar
hátiðar fyrir andlát sitt 1883. En
þá tók ekkja hans Cosima, sem
var dóttir tónskáldsins Liszt, við
leikhúsinu, og tókst henni að gera
þessar hátiðir að árlegum við-
burði. Vinsældir þeirra urðu
miklar, og var öllum ljóst að leik-
húsið i Bayreuth var I raun og
sann mjög byltingarkennt. Þykir
svo enn i dag.
Þegar Cosima hætti að stjórna
hátiðunum, tók Siegfried Wagner,
sonur tónskáldsins við og stjórn-
aði þeim frál908 til andláts sins
1930. Hann sá ekki aðeins um
skipulag hátiðanna, heldur einnig
um sviðsetningu á óperunum.
Eftir andlát Siegfrieds tók
ekkja hans Winifred Wagner við
stjórn Bayreuths og sá um
hátiðirnar frá 1931 til 1944. En
henni brást illilega val vina sinna,
þvi að hún varð mikill aðdáandi
Adólfs nokkurs Hitlers, sem þá
var mjög i heimspressunni, og
fannst henni að hann væri bæði
trúr og traustur aðdáandi
Wagners og góður vinur að auki...
Eftir þetta hefði mátt halda að
fjölskylda Wagners missti alla
umsjón með Bayreuth-hátiðunum
og þær jafnvel legðust niður. En
árið 1951 kom fram á sjónarsviðið
Wieland Wagner, sonarsonur tón-
skáldsins, sem reyndist einn
snjallasti leikstjóri ópera, sem
um getur. Hann gjörbreytti stiln-
um i Bayreuth og endurnýjaði
hátiðirnar. En hann dó fyrir aldur
fram 1966. Þá tók bróðir hans
Wolfgang Wagner við, en honum
hefur þó ekki tekist að hasla sér
völl á þessu sviði, og á þessu
hundrað ára afmæli var það hans
fangaráð að bjóða tveimur frökk-
um til að sjá um hátiðarleikina:
hljómsveitarstjóranum og tón-
skáldinu Pierre Boulez og leik-
húsmanninum Patrice Chéreau.
(eftir „Le Nouvel Observateur”)
Sonarsynir Richards Wagner, Wieland og Wolfgang, i hæpnum
félagsskap.
HEIMSÞEKKTIR
SOYÉSKIR FIMLEIKAMENN
r r
Ur Olympiuliði Sovétríkjanna sýna i Iþróttahöllinni
3., 4. og 6. ágúst. Meðal þeirra er NELLI KIM, önnur besta
fimleikakona í heiminum í dag.
_ r~
Forsala aðgöngumiða verður i Iþróttahöllinni miðvikudag,
fimmtudag og föstudag í þessarri viku, kl. 17 til 19.
FIMLEIKASAMBAND ÍSLANDS