Þjóðviljinn - 28.07.1976, Side 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJDMN Miövikudagur 28. júli 1976.
Félags-
ráðgjafar
hvetja til
verkfalls-
aðgerða
A félagsfundi i Stéttarfélagi isl.
félagsráðgjafa sem haldinn var i
fyrradag, var samþykkt harðorð
ályktun gegn Urskurði kjara-
nefndar og vinnubrögðum fjár-
málaráðuneytisins i samningum
við rikisstarfsmenn. Jafnframt
samþykkti fundurinn að hvetja
dpinbera starfsmenn til þess að
gripa til verkfallsaðgerða.
„Félagið fordæmir harðlega
fáránleg og öldungis óviðunandi'
vinnubrögð kjaranefndar og lýsir
megnri óánægju yfir þvi, að
félagsráðgjafar hafa i engu
fengið kröfum sinum framgengt.
Það vekur furðu okkar, að
félagsráðgjafar fengu ekki launa-
flokkshækkun eins og allar aðrar
heilbrigðisstéttir innan SFR.
Úrskurður kjaranefndar i heild
itrekar litilsvirðingu rikisvalds-
ins i garð launþega. Augljóst er
að þessi launaflokkshækkun, sem
úrskurðurinn felur i sér, vegur
engan veginn upp á móti verð-
hækkunum undanfarið, og er þvi i
raun réttri kjaraskeröingu að
ræða.
Svo er að sjá sem kjaranefnd
, hafi enn ekki lokið öllum störfum
þar eð hún hefur ekki enn raðað
öllum starfsheitum i launaflokka
og skorum við á nefndina að ljúka
vinnu sinni nú þegar.
Við fordæmum 'þessi vinnu-
brögð enn harðar með hliðsjón af
fyrri samskiptum stéttarfélags-
ins við fjármálaráðuneytið i
ólokinni deildu um greiðslutaxta
vegna lausavinnu félagsráðgjafa
hjá rikínu. Fjármálaráðuneytið
hefur ekki, þrátt fyrir itrekanir
sinnt tilboði félagsins um frekari
viðræður um það mál.
Hin stórkostlega skerðing á
lifskjörum almennings undan-
farið og úrskurður kjaranefndar
nú, hlýtur að knýja launþega-
samtökin til að taka sér þann rétt
sem enn er ekki i þeirra höndum
og skorar þvi félagið á opinbera
starfsmenn að gripa til verkfalls-
aðgerða nú þegar.”
Umferðar-
upplýsingar
Umferðarráð og lögreglan
starfrækja um verslunarmanna-
helgina upplýsingamiðstöð i lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu,
Reykjavík. Hefst starfsemi
hennar kl. 13.00 á föstudag. Mið-
stöðin mun safna upplýsingum
um umferð, ástand vega, veður
og annað sem ferðafólki kann að
vera akkur i.
Beinar útsendingar verða i út-
varpi frá upplýsingamiðstöðinni
föstudag, laugardag, sunnudag
og mánudag. Auk þess er fólki
heimilt að hringja til upplýsinga-
miðstöðvarinnar i sima 83600.
Um þessa helgi mun verða
áframhald á birtingu auglýsinga
um þjóðvegaakstur. Auglýsingar
þessar eru fróðleikur og leiðbein-
ingar i akstri á þjóðvegum og i
framhaldi þeirra, eða eftir
miðjan ágúst, verður efnt til get-
raunar i dagblöðunum þar sem
spurt verður úr efni þvi sem birst
hefur i blöðunum. Fólk þarf þvi
að kynna sér vel efni þeirra ef það
ætlar að taka þátt i getrauninni.
Verðlaunin i henni nema samtals
kr. 400.000.00.
Starfstimi upplýsingamið-
stöðvarinnar verður sem hér
segir:
Föstud. 30. júli
Laugard. 31!. júlr
Sunnud. l.ágúst
Mánud. 2. ágúst
Kl. 13.00-22.00
Kl. 09.00-22.00
Kl. 10.00-20.00
Kl. 10.00-24.00
Sjálfsbjargar-
vinningur
afhentur
Nýlega var afhentur aðalvinning-
urinn í Byggingarhappdrætti
Sjálfsbjargar, sem dregið var i
12. júli s.i.
Vinninginn, sem var bifreiö af
gerðinni Ford Granada, hlaut
ilaiigrimur Vigfússon, Borgar-
firði eystri, en þar var miðinn
seldur.
Myndin sem hér fylgir með, var
tekin þegar formaður og fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar,
Landssambands fatlaöra, afhenti
Ilallgrimi vinningin.
Fyrstir með skipulagöar sólarferðir i skammdeginu
Nu erað velja
sér
vetrarfetó
FLUGFÉLAG LOFTLEIBIR
ISLAJVDS
Jan.: 6. 9. 16. 20. 23. 27.
Feb.: 3. 6. 13. 17. 20. 24.
Mars: 6. 10. 13. 17. 24. 27.
Apr.: 3. 7. 21.
Hægt er að velja um 2ja og 3ja vikna ferðir og gist-
ingu í smáhýsum og íbúóum eða á hótelum.
Sért þú aó hugsa um sólarfrí í skammdeginu — þá
snúóu þér til okkar.
Söluskrifstofur okkar, umboðsmenn og feröaskrif-
stofurnar veita allar nánari upplýsingar.
Feröaáætlun okkar fyrir Kanaríeyjaferðir næsta
vetur liggur nú fyrir.
Farnar veróa 30 sólarferðir, 24 til Gran Canaría og 6
til Tenerife.
Dagsetningar ferðanna eru sem hér segir:
AU . 07
Nóv.: 18.
Des.: 2. 9. 12. 16. 19. 29. 30.