Þjóðviljinn - 28.07.1976, Page 9
8 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 28. júli 1976.
Miðvikudagur 28. júli 1976. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 9
Montreal ’76
Þetta er hinn 20 ára gamli
búlgarski lyftingamaður
Valentin Kristhov, sem sigr-
aði I þungavigt i lyftingum á
Ölympiuieikunum. Þessi ungi
lyftingamaður hefur vakið
mikla athygli fyrir afrek sin,
þar sem aldur hans er aðeins
20 ár, en bestu ár lyftinga-
manna eru sögð á milli 25 og 35
ára.
Berin
eru súr...
Montreal — 26. júli — Reuter
— Derek Parr..
Þjálfari austur-þýska
kvennalandsliðsins I sundi á
Öiy mpiuleikunum hélt á
blaðamannafundi i dag uppi
vörnuin fyrir hið sigursæla lið
sitt. Fullyrðingar höfðu komið
fram frá m.a. bandarisku
sundfólki um að austur-þýsku
sundstúlkurnar væru ekki
kvenlegar. Með sér á blaöa-
mannafundinum hafði Kudolf
Schramm hina hávöxnu og
ljóshærðu stjörnu liðs sins,
Korneliu Ender, sem vann til
fjögurra gullverðlauna i sundi
á O I y m p i u 1 ei k u n u m .
Schramm visaði á bug um-
mælum bandarisku sundkon-
unnar og fegurðardisinnar,
Shirley Babashoff, sem hafði
sagt: „Ég vildi ekki ganga um
eins i útliti og strákur.”
— Ég get ekki imyndað mér
að Korneliu líði ekki eins og
kvenmanni, sagði Schramm.
— Ef þið berið bandarisku
stúlkurnar saman við okkar er
ég viss um að þið gætuð ekki
tilgreint hverjar væru banda-
riskar og hverjar ekki. Mér
finnstokkar stúlkur alveg eins
fallegar og þær bandarisku.
Meðan á sundkeppninni stóð
létu Babashoff og aðrir sund-
menn i bandariska liðinu i Ijós
gagnrýni á það að aust-
ur-þýsku stúlkurnar virtust
ekki hafa neina ánægju af
sundinu og áhersla þeirra á
lyftingar og þrekþjálfun gerði
það aö verkum að þær litu ekki
kvenlega út. Professor
Schramme viöurkenndi að
áherslan á lyftingar væri ein
af skýringunum fyrir þvi hve
miklum árangri austur-þjóð-
verjar hefðu náð i sundi.
— Án mikilla æfinga i lyft-
ingum getur enginn sundmaö-
ur náð toppárangri, sagði
hann.
Babashoff er þó engin vei-
miltita heldur. Hún stundar
lyftingar hálftima á dag og
synti 16 kilómetra á dag fyrir
keppnina. Hún viðurkennir að
hafa lagt hart að sér og það
hafi Endcr lilotið að gera lika.
Hinsvegar noti bandarisku
stúlkurn'ar lyftingatæki sem
láti þær ekki lita út eins og
karlmenn. Babashoff hlaut
tvenn silfurverðlaun á mótinu,
og tapaði tvisvar í einvigi við
Ender, en tókst ásamt þremur
bandariskum félögum sinum
að ná i guU af austur-þýsku
stúlkunum i4x lOOmetra boð-
sundi. Ender vann hinsvegar
fjögur gull á Ölympiuleikun-
um og er það nýtt kvennamet
á þessum vettvangi.
Kornelia Ender er ekki von-
svikin yfir þviað hafa tapað af
guUinu i siðustu sundgrein-
inni, fjórum sinnum hundrað.
Hún segist ekki vera viss um
hvort hún heldur sundþjálfun
áfram og segir það vera óút-
rætt mál heimafyrir. Hún er
aðeins 17 ára, en það þykir
miður aldur hjá keppnisfólki i
sundi.
Heitmaður, Kornelfu Ender,
Koland Matthes, er hinsvegar
ákveðinn i að hætta. Hann var
tvölaldur gullverðlaunahafi I
baksundi frá Ólympiuleikun-
um ’68 og ’72 i Montreal mis-
tókst honum að verja titU sinn
i harðri baráttu við banda-
rikjamanninn John Naber.
Matthes segist vera ánægður,
nú sé nóg komið og sér þyki
væntum aðhætta eftir aöhafa
sýnt góðan árangur.
Og siðustu spurningunni á
fundinum með austur-þýska
sundfólkinu svaraöi Korneliu
Endcr. „Ertu reiðubúin að
endurtaka þetta allt aftur.” —
„Já, hvenær sem er.”
Kornelia Ender
Búlgarinn sigraði á
nýju Olympíumeti
einvígi sovétmanna og búlgara algert í lyftingunum
Lasse Viren
Hefur hlaupið 7 þús.
kílómetra á árinu
og þessi œfing og mjólkin min, dugði mér til sigurs, sagði
Lasse Viren eftir sigurinn i 10 km. hlaupinu —
Hann œtlar að taka þátt i 5 km. og maraþonhlaupinu á OL
— Það sem af er þessu ári
hef ég hlaupið 7 þúsund kiló-
metra til að koma mér i æf-
ingu og það er greinilegt að
þessi vegalengd og mjólkin
min, hefur dugað til að koma
mér i æfingu og það er greini-
legt að þessi vegalengd og
■njólkin min, hcfur dugað til
að koma mér i þá æfingu sem
þurfti til að vinn a þetta 10 km.
hlaup, sagði hinn stórkostiegi
hlaupari Lasse Viren frá
Finnlandi, á blaðamannafundi
cftir sigur sinn i lOkin. hiaupi
á ÓL i fyrrakvöld.
Þessi sigur Virens vakti
mikla athygli fyrir margra
hluta sakir. Ilann er 3ji mað-
urinn i heiminum (ekki annar
eins og fréttaskeyti sögðu
fyrst) sem vinnur það afrek að
sigra tvisvar i röð á ÓL i þess-
ari erfiðu grein. Hinir voru
þeir Emil Zatopek, frá Tékkó-
slóvakiu og Pavo Nurmi, frá
Finnlandi sem sigraði i 10 km.
hlaupi 1924 og 1928.
Þá vakti sigur hans ekki sið-
ur athygli fyrir þær sakir, að
Lasse hefur litið sem ekkert
æft og keppt siðan 1972 að
hann sigraði i Munchen og i
þau fáu skipti sem hann hefur
keppt hi fur honum gengiðilla.
Og sannast sagna voru finnar
búnir að afskrifa hann sem
stórstjörnu. En svö I fyrra-
haust byrjaði hann af fullum
krafti og I ár hefur hann
hlaupið 7 þúsund kOómetra á
æfingum. (tslenski hringveg-
urinn mun vera á milli 2 og 3
þúsund km.)
Viren hefur ákveðið að
keppa einnig i 5 km. hlaupinu
eins og hann gerði 1972 i
Munchen, en svo ætlar hann
að kóróna allt saman með þvi
að taka þátt i Maraþonhlaup-
inu, en hann hefur aldrei keppt
i maraþonhlaupi áður.
Lasse Viren átti 27 ára af-
mæli fyrir 4 dögum siðan og
ótrúlegt er að hann eigi oftar
eftir að keppa á ÓL.
Tadeusz Slusarski
Einvigi sovétmanna og búlgara
i lyftingakeppninni á ÓL hefur
verið mjög ntikið og siðustu
keppni i þessari grein, keppninni i
þungavigt, lauk með sigri
búlgara, það var trölliö Valentin
Khristov, sem sigraði á nýju
Ólympiumeti.
Þá er aðeins eftir keppni i yfir-
þungavigtinni og þar er það
heimsmethafinn Aleksev frá
Sovétrikjunum og búlgarinn
Planchkov, sem berjast um sig-
urinn. En litum þá aðeins nánar á
keppnina i þungavigt.
Það var, eins og áður segir
Það tók Novikov
aðeins 1 mínútu
og 19 sekúndur
að vinna
gullverðlaunin
þegar hann sigraði v-þjóðverjann
Neureuther í þungavigt í júdó
Það tók sovéska júdómanninn
Sergei Novikov aðeins 1 minútu
og 19 sekúndur að sigra v-
þjóöverjann Gunther Neureuth-
er i úrslitakeppninni i þungavigt i
júdó á ÓL i Montreal i /yrrinótt.
Úrslitin koma ekki á óvart, þar
sem Novikov hefur orðið heims-
meistari i greininni, hann er 26
ára. Hinsvegar kom frammistaða
þjóðverjans á leikunum á óvart,
þar sem hann er aðeins 20 ára
gamall.
Japaninn Sumio Endo hlaut
bronsverðlaunin og var niður-
brotinn maður. Hann hengdi haus
við verðlaunaafhendinguna en
áður var hann búinn að biðja jap-
önsku blaðamennina afsökunar á
þvi að hann hefði óvirt japanskt
júdó með þessari slöku frammi-
stöðu sinni, en eins og menn ef-
laust vita er júdó þjóðariþrótt
japana enda er hún upprunnin
þaðan.
Sergei Novikov sagði eftir
keppnina að viðureign hans við
Endo hefði verið sú erfiðasta.
„Ég vissi að Endo var mjög
sterkur og i góðri likamsþjálfun
og að ég yrði að taka á öllu sem ég
átti til.”
Tveir
leikir
gegn
South-
ampton
1 vikunni fara fram tveir
leikir gegn ensku bikarmeist-
urunum I Southampton.
tslenska landsliöið mætir
þeim á Laugardals velli á
morgun klukkan átta og siðan
á Akureyri á föstudagskvöld
klukkan hálfátta.
Forsala aðgöngumiða fyrir
Akureyrarleikinn hefst i dag i
sportverslunum þar nyröra.
búlgarinn Khristov, sem sigraði á
nýju meti i samanlögðu en i öðru
sæti varð Zaitsev, frá Sovétrikj-
unum, sem margir spáðu sigri i
þessúm þyngdarflokki fyrir
keppnina. En annars urðu úrslit
þessi:
kg.
1. Valentin Khristov, Búlgar. 400
(ÓL-met)
2. Yuri Zaitsev, Sovétr. 385,0
3. KrastioSemardjiev,
Búlgar. 385,0
4. Tadeusz Rutkowski, Póll. 377,5
5. Mark Cmeron, USA 375.0
KYNNING Á ÍSLENSKU ÓLYMPÍUKEPPENDUNUM
Ég nýt þess að
ferðast og
kynnast fólki
Rœtt við Lilju Guðmundsdóttur hlaupara
Lilja Guðmundsdóttir keppir i 800 m og 1500 m hlaupi á
Olympiuleikunum i Montreal. Lilja er 21 gömul, Reykviking-
ur en hefur verið búsett úti i Norrköping i Svíþjóð siðan á ár-
inu 1974 og vann siðast i sjónvarpsverksmiðju þar i borg.
Ég byrjaði þátttöku i iþróttum •
árið 1968, segir Lilja, þá tók ég
þátt i Illjómskálahlaupinu en
hafði raunar áður verið litils-
háttar i sundi. Ég fór svo ekki að
æfa fyrr cn tveim árum seinna
og var Guðmundur Þórarinsson
fyrsti þjálfari minn. Þó tók ég
þátt i móti 1971 og var þá i
spretthlaupunum og árið eftir
hljóp ég 100 m á 13,2 sek og 200
m á 27,4.
Þetta ár fór ég einnig að
hlaupa 800 m og setti mitt fyrsta
tslandsmet i þessari grein þá
um sumarið 2:20,2 min. Árið
eftir setti ég svo tslandsmet i
400 m 0:59,3 min., og þetta sum-
ar var ég fyrst valin i landslið.
Það var keppnin um Norður-
landabikarinn sem frant fór i
Danmörku og hljóp ég þar á 60,9
sek. Fyrsta tslandsmetið I 1500
m 4:41,0 min. setti ég 1975.
A þessum tima var ég einnig
með bæði i handbolta og körfu-
bolta og keppti þar i mfl. En
árið 1974 verður sú breyting á
högum minurn að ég flyst út til
Sviþjóöar og hef verið þar siðan.
Ég fór þangað fyrst og fremst til
að æfa og keppa. Ég hef haft að-
stöðu hjá einu sterkasta iþrótta-
félagi i Sviþjóð, IFK og hef
margsinnis keppt á stórmótum
viða um Sviþjóð. Jafnframt hef
ég komið hingað heim og tekið
þátt i mótum, t.d. meistaramót-
inu og bikarmótinu I fyrra. Og i
Kalottkeppninni I Noregi i fyrra
keppti ég með islenska landslið-
inu, sigraði bæði I 800 m (2:14,7
min.) og i 1500 m (4:44,4 min.)
og var I boðhlaupssveitinni sem
sigraöi i 4x400 m.
í fyrra setti ég íslandsmet á
mótum I Sviþjóð I 800 m 2:08,5
min. og i 1000 m 2:58,0 min. og
nú i sumar i 1500 m 4:26,2 min.
Þetta eru metin sem ég á núna.
Þar sem mér gekk svona vel i
800 m hlaupinu i fyrra fór ég aö
hugsa um að reyna aö komast á
Olympiuleikana. Lágntarkið I
1500 m var 4:30,0 min. og 19. júni
I sumar tókst mér að ná þvi þeg-
ar ég setti metiö, en mig vantar
enn 1/2 sek. á lágmarkiö I 800 m
sem er 2:08,0 min. Raunar hef
ég aöeins keppt fjórum sinnum i
800 m I ár.
Ég hef haft mjög góðan
júgóslavneskan þjálfara úti i
Sviþjóð, Zicka að nafni, en hann
var áður þjálfari Júgóslavncska
iandsliðsins. Hann hefur útbúið
fyrir mig sérstakt æfinga-
prógram sem miðast allt við að
ég verði á toppinum á Olympiu-
leikunum i Moskvu eftir 4 ár.
Það er takmarkið hjá mér. Ég
æfi alla daga vikunnar upp i 3
klst. á dag og i vetur æfði ég
tvisvar á dag um helgar. Ég
miða æfingarnar meira við 1500
m og langar til að reyna mig við
3000 m og ná metinu af
Kagnhildi (10:21,8 min.). Ég
ætia mér að fara undir 10 min.
og á að geta það.
Ég er að sjáifsögðu full til-
hlökkunar að keppa á Olympiu-
leikunum og set mér það mark
að bæta mig og hef meiri trú á
800 m eins og sakir standa nú.
Satt að segja kviði ég svolitiö
fyrir keppninni i 1500 m hlaup-
inu, t.d. senda Sviar og Danir
enga keppendur i þessa grein.
Sú rússneska vinnur trúlega
bæði hlaupin, a.m.k. 1500 m þar
sem hún á heimsmetið.
Þegar ég kem heim frá Mon-
treal býst ég við að keppa á
islandsmótinu i byrjun ágúst og
siðan verður alþjóðiegt stórmót
I Stokkhólmi 10. og 11. ágúst,
það gæti verið að ég kæmi heim
aftur siðast iágúst til að taka
þátt i bikarkeppninni fyrir mitt
félag hér.
Næsta takmark hjá mér er
svo Evrópumeistaramótiö I
Prag 1978 og siðan Olympiuleik-
arnir I Moskvu 1980, maöur
verður alltaf að hafa eitthvert
takmark að keppa að. Ég býst
við að verða áfram úti i Sviþjóð
fram að Evrópumótinu, siðan
kem ég kannski heim I eitt ár en
verð svo aftur úti siðasta árið
fyrir næstu Olympiuleika. i
haust ætla ég að reyna að kom-
ast I skóla i Sviþóð sem er sér-
stakiega ætaður fyrir þá sem
komnir eru yfir tvitugt.
Siðasta vetur hljóp ég um 85
km i hverri viku en nú i vetur
ætia ég að lengja þetta upp i 100
km. Þetta eru erfiðar æfingar
og maður verður aö ieggja
mikið að sér til að ná árangri.
Samt sé ég ekkert eftir þvi erfiði
og þeim tima sem ég hef iagt i
Iþróttirnar, það kemur svo
niargt i staöinn Ég hef ferðast
viða og kynnst mörgum iöndum.
Ég nýt þess að feröast. Utan
Norðurlandanna hef ég æft og
keppt á italiu og Spáni, i Kúss-
landi og viðar og nú cr þaö
Kanada. Mér finnst gaman að
kynnast fóiki, og iþróttunum á
ég það að þakka að hafa eignast
góða vini og kunningja bæði hér
heima og erlendis, sú vinátta er
mér mikils virði.
—Hj.G.
Þrír jafnir í
stangar-
stökkinu
en pólverjinn Tadeusz Slusarski hlaut gullið
Þaö hefur sýnt sig oftar 4. Patrick Abada.Frakki. . 5,45
en einu sinni á þessum 5. Wojciech Buciarski, póii. 5,45
ólymiuleikum aö þaö er 7; j.aMichei’Bellot,Frakkl. 5^0
ekki nog að eiga heimsmet
i viðkomandi grein, stund-
um dugar það ekki einu
sinni til verðlauna þegar i
úrslitin er komið. Þannig
var það í stangarstökkinu,
heimsmethaf inn David
Roberts frá USA, varð að
láta sér nægja 3ja sætið. Þó
er ekki nema mánuður síð-
an hann setti heimsmetið í
stangarstökki, 5,70 m. en á
ÓL stökk hann aðeins 5,50
m
Það var pólverjinn Tadeusz
Slusarski sem sigraði og hlaut
gullið. Þessi pólverji hefur sýnt
mjög mikið öryggi i stangar-
stökkinu á þessu ári og virðist
nokkuð öruggur með hæðina 5.50.
Sigur hans kemur þvi ekki svo
mjög á óvart, það er einmitt ör-
yggið sem mestu ræður þegar úti
stórmótin er komið.
I 2. sæti var finninn Antti Kalli-
omaki, hann stökk lika 5.50 m og
kemur frammistaða hans nokkuð
á óvart. Hann er ekki þekkt nafn i
stangarstökkinu, en hefur þó unn-
ið nokkur umtalsverð afrek i vor
en áreiðanlega reiknaði enginn
með honum sem verðlaunahafa á
Öly mpiuleikunum.
Annars urðu úrslit i stangar-
stökkinu sem hér segir:
1. Tadeusz Slusarski, Póll. 5,50
2. Antti Kalliiomaki, Finnl. 5,50
3. David Roberts, USA 5,50
Sextán liða úrslit
í bikarkeppni KSI
Sjá baksíðu
F ádæma
harka í
fimmtar-
þraut
kvenna
Eins og við sögðum frá i
gær, unnu a-þjóðverjar öll
verölaunin i fimmtarþraut
kvenna, en þar sem keppninni
lauk svo seint i fyrrakvöld,
gátum við ekki sagt frá endan-
legum úrslitum. Keppnin i
þessari erfiðu grein var mjög
jöfn og hörð, á milli a-þýsku
stúiknanna, tvær voru jafnar
að stigum og sú sein hafnaði i
3ja sæti var aðeins 5 stigum á
eftir hinum tveimur. úrslitin
urðu þeesi:
1. Siegrun Siegl, A-
Þýskal. 4745
2. Christine Laser, A-
Þýskal. 4745
3. Burglitide Pollak, A-
Þýskal. 4740
4. Liudmila Popovskaya,
Sovétr. 4700
5. Nadejda Tkachenko.
Sovétr. 4669