Þjóðviljinn - 04.09.1976, Side 9
Laugardagur 4. september 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
island er láglaunaland
þrátt fyrir háar þjóðar-
tekjur
Efnahagsmálin og sú gifurlega
kjaraskerðing sem láglaunafolk
hefur orðið fyrir verður eitt aðal-
mál BSRB-þingsins. tsland er
láglaunaland þó að þjóðartekjur
séu meiri en viðast hvar annars
staðar. Laun islendinga eru lik-
lega upp undir helmingi lægri en
gerist annars staðar á Norður-
löndum svo að dæmi sé tekið.
Lægstu byrjunarlaun opinberra
starfsmanna nú eru 59.510 krónur
á mánuði en þau laun getur eng-
inn haft nema i eitt ár. Eftir fjög-
urra ára starf eru lægstu laun
67.192 kronur og eru það nokkru
betri kjör en sambærilegir starfs-
kraftar hafa á almennum vinnu-
markaði. Séu hins vegar ýmis
sérhæfð tækni- og verkstjórnar-
störf borin saman við almennan
markað eru kjör opinberra
starfsmanna langtum lakari.
Hæstu laun sem skráð eru á
launaskalanum nema 172 þúsund-
um króna en ég held að enginn
maður innan BSRB hafi þau laun
segir Haraldur. Það eru hreinar
undantekningarefmenn hafa yfir
152 þúsund.
Skattamál
Skattamál verða áreiðanlega á
dagskrá á þingi BSRB. Það er
skoðun opinberra starfsmanna að
þeir greiði hlutfallslega meiri
skatta en flestir aðrir.
Lagabreytingar
Lagabreytingar verða ræddar á
þinginu en milliþinganefndir
hafa fjallað um lögin. M.a. verður
að gera breytingar ýmsar i sam-
ræmi við hin nýju kjarasamn-
ingalög.
Fræðslumál
Fræðslumál verða tekin fyrir.
BSRB gefur nú út eitt af stærstu
timaritum landsins. Það er Ás-
garður sem kemur út i 14 þúsund
eintökum og sem sendur er öllum
félögum. Nýlega er svo byrjuð út-
gáfa á fréttabrefi sem Hugi
nefnist og sent er trúnaðarmönn-
um á vinnustöðum BSRB eru einu
heildarsamtökin sem halda
reglulega fundi i öllum kaupstöð-
um landsins. Þá eru og haldin
námskeið fyrir trúnaðarmenn.
Erlend samskipti •
Á þinginu verða rædd erlend
samskipti m.a. Þær hugmyndir
að BSRB gerist aðili að norrænu
samstarfi og evrópsku samstarfi
við hlið Alþýðusambands Islands.
Orlofsheimilin
Rekstur orlofsheimila er mjög
merkur þáttur i starfi bandalags-
ins. Á 6 árum hefur orlofsheimila-
byggðin i Munaðarnesi orðið
stærst á öllu landinu. Þar eru nú
alls 70 orlofshús sem stjórnað er
af BSRB og er velta þessarar
starfsemi um 10 miljónir króna á
ári. Ennfremur er þar starfrækt
veitingahús 4 mánuði á ári og i
þvi er aðstaða fyrir félagsstarf-
semi að vetri til. Það eru 24 félög
sem eiga hús i Munaðarnesi, flest
eiga þau 1 til 4 hús en Starfs-
mannafélag rikisstofnana og
Starfsmannafélag Reykjavikur-
borgar eiga 10 hlið fyrrnefnda en
11 hið siðarnefnda.
Umfangsmikíð
starf BSRB
Starfsmenn BSRB eru nú 5 en
bandalagið hefur aðsetur að
Laugavegi 170-172 i vistlegu hús-
næði. Þar er salur sem hentar vel
til fræðslustarfsemi og er hann
mikið notaður.
Af þessu sést starf BSRB er
mjög umfangsmikið og verður at-
hyglisvert að fylgjast með þing-
inu i október nk. og hvað kemur út
úr þvi.
—GFr.
Kapellurústirnar eru I klárri
mótsögn við hið risastóra
álver. (Myndir tók eik).
í blámóðu
Álversins
Þegar ekið er suður framhjá
álverinu i Straumsvik veita fáir
þvi eftirtekt aö á vinstri hönd
þar sem stórvirkar jarðýtur hafa
jafnað út hraunið að mestu
stendur hóll uppúr sem þyrmt
hefur verið við hamförum
mannsins. A honum stendur
kapella, sem þjóðminjavörður
heftir friðlýst. Um kapelluna
leika biáar eiturgufur álversins
án afláts, sviða mosann og
minna raunar frekar á helviti
heldur en afdrep Drottni til
dýrðar. En hvernig stendur á-
þessari k apellu þarna þar sem
áður var úfið apalhraun og erfitt
yfirferðar? Og hvers konar
kapella er þetta?
Talið er að þetta mikla hraun,
sem kallað er Bruninn ofan tii,
en Kapelluhraun neðan til, sé
örugglega það sem nefnt er i
fomum heimildum Nýjahraun
og hafi það runnið eftir að land
byggðist, þó að engar heimildir
séu tilum það. Þettahraun sem
rann í sjó fram var ógnvekj-
andi farartálmi og vegfarendur
fóru i ótal krókuift um það milli
hárra hraunhóla og djúpra
katla. A miðri leið að norðan-
verðu við gamla þrönga þjóð-
veginn eru rústir af litlu húsi
sem menn kölluðu kapellu.
Munnmæli og þjóðsögur
hermdu að menn frá Bessa-
stöðum hefðu verið þar dysjaðir
ihefnd eftirJón Arason.
Arið 1950 fór Kristján Eldjárn
ásamt nokkrum mönnum og
grófti upp þessa rúst, lagfærðu
og rannsökuðu. Og viti menn!
Uppúrgólfinu komlitið likneski
af heilagri Barböu sem menn
tignuðu á kaþólskum tima.
Myndin er telgd úr grágul-
um leirsteini, nokkuð illa farin
og heldur Barbara á tákni sinu,
turni i vinstri hendi. A Barböru
var gott að heita i háska af eldi,
húsbruna, sprengingum og þess
háttar. Mundi hún þá ekki
einnig hafa dugað vel gegn
háska af völdum jarðelds og
hraunbruna, segir Kristján Eld-
járni grein um þennan uppgröft
i árbók fornleifafélagsins 1955.
Þarna þóttust menn hafa fengið
sönnun þess að i kaþólskri tið
hefði verið þarna litið bænahús
eða kapella fyrir vegfarendur á
leið yfir hættulegt hraun.
Og þarna standa veggir þess-
arar gömlu kapellu rétt við
hraðbrautina suður með sjó og
gamli mjói reiðvegurinn i sveig
fram hjá uppi á hól sem er eins
og eyja i æðisgengnu umróti
mannskepnunnar.
Hversu margir sem aka
Keflavikurveginn dagsdaglega
ætli viti af þessum merku forn-
minjum?
Blaðamaður og ljósmyndari
Þjóðviljans brugðu sér út úr
bilnum og skoðuðu þessa rúst i
sólskini og blámóðu áversins
um daginn.
Mosinn við Kapelluna er kol-
svartur, grár og lifvana á
köflum, og án þess að hafa
fengið staðfestingu á þvi hvarf-
laði ekki annað að okkur en
mengun frá álverinu ylli. Þessi
ófreskja gnæfir ógnvekjandi
yfir og spýr eitri án afláts.
Ekkert heyrist um mengunar-
varnir sem löngu er búið að
skipa fyrir. Auðhringurinn fer
sinu fram hvað sem litilli þjóð
liður.
Og hver láir fólki þó að það
vilji ekki skoða þetta gamla
bænhús i blámóðunni sem minn-
ir á helviti?
•GFr
1 botni gömlu reiðgötunnar I skjóli við Kapelluna virðist gróður með
eðlilegum hætti, en til hægri sýnist mosinn vera aðdeyja.
Blaðamaður Þjóðviljans athugar kolsvartan mosann sem að öllum
likindum hefur orðið þannig af mengun frá álverinu.