Þjóðviljinn - 04.09.1976, Qupperneq 10
JO SÍÐA — ÞJ(M)VILJINN Laugardagur 4. september 1976
Skrifið
eða
hringið.
Sími: 17500
Hœpin hjálpsemi
Þrátt fyrir allt er Þjdðviljinn
blað hinna vinnandi stétta, enda
þótt mörgum okkar, sem
vinnum hörðum höndum, þyki
þar í blandast ýmislegt, er kyrrt
mætti liggja.
Vil ég þar fyrst nefna dekur
hans við hina svokölluðu lista-
menn, er nú i dag fylla náströnd
islenskra lista. Þjóðviljinn
virðast óþreytandi að útmæla
þessum starfsleysingjum bita
og sopa af almannafé.
Lika er hann ætið boðinn og
búinn til þess að mæla með
styrkjum handa hinum ýmsu
námsmönnum, bæði hér heima
og erlendis. Það virðist þó vera
að bera i bakkafullan lækinn.
Við eigum i dag vafalaust nægi-
lega mikið af allskonar lær-
dómsmönnum, svo að slikar
fyrningar munu aldrei hafa
þekkst meðal islenskra bænda
og tvennt er það, sem aukist
hefur i sama hlutfalli, sem sé
háskólafólk og svartbakur.
Leiðir það af sjálfu sér, þvi það
er hending ef háskólinn eða
skólar yfirleitt útskrifi einstak-
linga, sem ætla sér að vinna að
bættri og fjölþættari úrvinnslu
afurða okkar frá sjó eða land-
búnaði. Af þvi leiðir, að einstak-
lingar við þau störf eru orðnir of
fáir og þvi fellur til of mikil fæða
fyrir t.d. svartbak og honum
fjölgar,ásamtóþörfum mennta-
mönnum. Þó skulum við ekki
fordæma menntun sé svo, að
þeir góðu menn skipi sér þar i
flokk, sem manntaks er þörf,
þvi það er fyrst og fremst hin
vinnandi hönd, sem veitir aflið
til þess sem gjöra skal.
Við sendum t.d. sjómennina
okkar út á sjóinn til gjaldeyris-
öflunar en jafnframt þúsundir
manna út sem Mæjorka -
flakkara og viðar, til þess að
eyða þessum sama gjaldeyri,
svo að eitthvað sé nefnt. Aftur á
móti er eldsneyti til bifreiða-
aksturs hér innanlands orðið
með sliku ránverði, að þótt
einhverjir vildu ferðast um
tsland þá er það varla hægt.
Þið takið lika öllu minna tillit
til fjöiskyldufólks með mörg
börn, — þótt i dag sé það
ósvinna að hrúga niður fjölda
barna, — en náunga, sem
leggjast i fylleri. Þegar þeir eru
búnir að þjóna lund sinni sem
slikir, tekur okkar vatns-
grautar-mannúð við þeim,
leggur þá inn á sjúkrahús og
dekrar við þá til endurhæfingar
og nýs fylleris. Oft er það svo,
að þessir menn fylla þau rúm,
sem raunverulegir sjúklingar
ættu að njóta. Þessa menn á að
láta vinna, skilyrðislaust, fyrir
mat sinum.
Vegna þess að þrátt fyrir allt
eruð þið Þjóðviljamenn oft að
taka á kýlunum, vildi ég spyrja
ykkur: Hver er glæpamaðurinn
sá, sem glæpinn fremur eða sá,
sem lætur hann liðast, t.d. þegar
einstaklingur eða félag svikst
undan að greiða sina skatta svo
miljónum og tugmiljónum
skiptir og þessu er safnað
saman frá ári til árs, en ekkert
er gert að þvi er virist, til þess
að koma i veg fyrir þetta af
þeim mönnum, sem eru full-
trúar okkar borgara? Hver er
glæpamaðurinn? ABC
Eftirmáli Bæjarpósts
Trúlegt er, að ýmsir séu
ósammála sumum þeim
skoðunum, sem lýst er i grein-
inni hér að ofan. Svo er og
raunar einnig um umsjónar-
menn Bæjarpóstsins. Allt um
það er greinin birt. Menn eiga
að vera frjálsir að skoðunum
sinum og einnig að þvi, að koma
þeim á framfæri i ræðu og riti.
Þeirra er þá að andmæla, sem
ósamþykkir eru.
Bæjarpósturinn vill vera vett-
vangur fyrir opin skoðana-
skipti. Þeim, sem ósammála
eru greinarhöfundi, er velkomið
að birta athugasemdir sinar hér
á siðunni.
Umsjónarmaður Bæjarpósts
Ljósm. eik.
Eiríkur Asgeirsson,
forstjóri SVR:
Viljum
hindra
hamstur
hinna
efnameiri
Vegna bréfs i Bæjarpósti á
fimmtudag hafði Eirikur
Asgeirsson, forseti Strætis-
vagna Reykjavíkur samband
við þáttinn og sagði að það væri
samkvæint ákvöröun borgar-
ráðs og stjórnar SVR að 1000 kr.
afsláttarkortin væru ekki lengur
til sölu. Astæðan hefði verið sú
að fyrir hefði legið 20%
hækkunarbeiðni frá SVR sem
borgarráð hefði samþykkt.
Hækkanir eru háðar samþykki
verðlagsráðs og ákvað borgar-
ráð samhljóða að til þess að
koma i veg fyrir hamstur skyldi
sölu þúsund króna korta hætt,
þar til hækkunarbeiðnin hefði
hlotið afgreiðslu borgarráðs. 1
borgarráði koin fram sú skoðun
að þetta væri réttlætismál, þvi
það væru' einungis þeir efna-
ineiri sem hefðu ráð á að
hamstra, en hinir yrðu að láta
sér nægja að kaupa kort jafnóð-
uin. Það hefði svo farið fyrir
þessari hækkunarbeiðni eins og
inörgum öðrum, að hún hefði
verið lengi að velkjast fyrir
verðlagsráði og hefði enn ekki
verið afgreidd. Meðan svo væri
fengjust þúsund kr. kortin ekki.
Blómlegur
búskapur í
Hólminum
— Talsvert miklar fram-
kvæmdir eru hér hjá bæjarfé-
laginu i sumar, sagði Halldór S.
Magnússon, framkvæmdastjóri
i Stykkishólmi I viðtali við'
blaðið s.l. miðvikudag.
Verið er nú að steypa aðalgöt-
una i þorpinu og einnig hafnar-
svæðið. 1 haust er áformað að
undirbúa fleiri göturundir lagn-
ingu oliumalar, sem ætlunin er
svo að leggja að sumri.
Að undanförnu hefur verið i
byggingu og er enn hótel og fé-
lagsheimili og eru þær bygging-
ar samtengdar. Félagsheimilis-
álmunni var nú raunar lokið á
s.l. vetri. Það rúmar 300 til 400
mannsog er af ýmsum, sem um
það þykjast geta dæmt, eitt hið
fallegasta félagsheimili á land-
inu.Bygging þess gekk meö ein-
dæmum greiðlega, þvi hún tók
aðeins um 7 1/2 mánuð. Flýtti
það verulega fyrir byggingunni
hversu sjálfboðaliðar lögðu þar
rösklega hönd að verki. Sveitar-
félagið er stærsti aðilinn að fé-
lagsheimilinuog svo koma ýmis
önnur félagasamtök i bænum.
Hótelbyggingin var komin
það áleiðis á s.l. vetri að nokkur
hluti hennar var þá tekinn i
notkun fyrir gagnfræðaskólann.
Við gerum okkur vonir um að
unntverði að ljúka byggingunni
næsta sumar. Ekki er þess að
vænta að hún verði einvörðungu
nýtt fyrir gesti að vetrinum.
Það hefur komið til álita að
nota hana þá sem heimavist
fyrir skólafólk og e.t.v. einnig
að einhverju leytisem kennslu-
húsnæði. 1 byggingunni verður
sameiginlegt eldhús fyrir hótel-
ið og félagsheimilið og er verið
að fullgera það nú.
Það er eins með hótelið og
félagsheimilið að hreppsfélagið
er stærsti aðilinn að þvi og svo
að hinu leytinu sérstakt hluta-
félag. Að einhverju leyti er
hótelið byggt fyrir fjármagn frá
Ferðamáiasjóði.
Fyrir nokkrum árum var
vatnsveita lögð til bæjarins, hér
ofan úr f jalli Er nú unnið að þvi
að endurbæta hana og full-
komna.
Allmörg fbúðarhús eru hér i
smiðum, þar á meðal blokk, sú
fyrsta, sem hér er byggð.
Blokkin er að nokkrum hluta
byggð samkvæmt lögum um
verkamannabústaði en að hinu
leytinu fellur hún undir lög um
Stykkishólmshöfn
byggingu leiguibúða. Nefna má
og, að verið er að hefja hér
kirkjubyggingu.
Eins og ýmsir vita þá er hér i
Hólminum kaþólskt nunnu-
klaustur. Klaustursysturnar eru
nú að byggja við klaustrið eins-
konar systraheimili. Akveðið er
einnig, að þær verði aðilar að
heilsugæslustöð, sem á að reisa
i sambandi við sjúkrahúsið. Er
mikill menningarauki að dvöl
þessara klaustursystra hér.
Þær reka hér dagheimili, hina
þörfustu stofnun, og þar að auki
prentsmiðju.
Atvinnuástand er gott hér i
bænum. Skelfiskvinnslan, sem
stöðvaðistá dögunum, er nú aft-
ur komin i gang og stunda átta
bátar skelfiskveiðar. Mikill at-
vinnuauki er að skelvinnslunni,
bæði fyrir karlmenn, kvenfólk
og unglinga, allt niður i 12 ára
aldur. Er ekki sist mikilvægt að
hafa þannig atvinnu fyrir ung-
lingana þvi skortur á hentugri
vinnu fyrir þá er viða talsvert
vandamál.
Þá hafa tveir til þrir bátar
héðan stundað þorskveiðar i
sumar, en afli þeirra hefur verið
fremur tregur. Eigendur bát-
anna munu nú bráðlega fá
„beitingavél” og vænta sér góðs
af þvi.
Mikill iðnaöur er hér i
Stykkishólmi. Við rekum skipa-
smiðastöð og hefur hún nóg
verkefni. Að meiri hluta til eru
það viðgerðir en einnig nokkur
nýsmfði. Skipasmiðastöðin
sinnir bæði járn-, tré- og raf-
magnsvinnu og veitir þannig
bátunum alhliða þjónustu. Við-
skiptamenn hennar eru aðal-
lega bátaeigendur hér við
Breiðafjörðinn. I stöðinni vinna
milli 40 og 50 manns.
Svo eru hér reknar tvær
trésmiðjur, sem sinna húsbygg-
ingum og innréttingasmiði og er
meira en nóg að gera h.já þeim.
Hér vantar mikið frekar fólk en
hitt en aðflutningur þess hingað
i bæinn strandar á húsnæðis-
skortinum.
Félagslif er hér gott og býsna
fjölskrúðugt, Hér er starfandi
kvenfélag, ungmennafélag,
leikfélag og svo ýmsir klúbbar.
Leikfélagið sýndi tvö leikrit á
s.l. vetri, annað fyrir fullorðna
en hitt fyrir börn. Þá er og rek-
inn hér tónlistarskóli undir
stjórn Vikings Jónassonar frá
Eskifirði en hann stjórnar
einnig lúðrasveit. Karlakór er
hér og stjórnar sr. Hjalti Guð-
mundsson honum.
Siðast en ekki sist má geta
þess, að hér I Stykkishólmi er
merkilegt bókasafn og er það að
stofni til gamla amtsbókasafn-
ið. Safnið stendur þannig á
gömlum merg og á mjög mikið
af bókum og mörgum merkum.
—mhg
Umsjón: Magnús H. Gíslason