Þjóðviljinn - 04.09.1976, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 04.09.1976, Qupperneq 13
Laugardagur 4. september 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Þjóðleikhúsið byrjar sýningar í næstu viku Upp eru þar meö talin helstu leikverk á komandi vetri en ekki má þó gleyma „kjallaraverk- inu” Don Juan i helviti. Þar veröur þó ekki um leikrit aö ræöa i orösins fyllstu merkingu, heldur upplestra á völdum köfl- um úr verkinu Man and Super- man eftir Bernard Shaw. Flytj- endur sveröa fjórir, en stjórn- andi Baldvin Halldórsson. Aö sögn Sveins Einarssonar er von á nokkrum islenskum verkum til viðbótar, bæði til sýninga á stóra sviöinu og þvi litla. — gsp Helgi Skúlason leikstjóri í fyrsta sinn Helgi Skúlason, sá gamalreyndi leik- hússmaður, mun i vetur' leikstýra uppsetningu á leikritinu „Nótt ástmeyj- anna" sem er umdeilt nú- tímaverk eftir skandinaviskan höfund. Fjallar það um líf „les- bískra" stúlkna og er í þýðingu Stefáns Baldurs- sonar. Leikritið veröur eitt af f jórum verkum sem sýnd veröa á „Litla sviðinu” I Þjóðleikhús- kjallaranum sem sérstök röö eða seria af nútimaverkum. Er eitt þeirra eftir islenskan höf- und, Odd Björnsson. Helgi Skúlason mun þarna i fyrsta sinn á sinum langa leik- hússferli sjá um leikstjórn i Þjóölekhúsinu og veröur svo sannarlega gaman aö sjá hvernig þessum ágæta leikara okkar tekst upp. —gsp. Afsláttar- kort verða æ vinsælli Núna verður hœgt að kaupa áskrift á Litla sviðið lika Sú þjónusta Þjóðleikhússins aö bjóða áhugasömum leikhús- gestum upp á 25% afsl. með þvi að kaupa sérstakt kort i byrjun vetrar sem gildir á allar sýning- ar, hefur mælst mjög vei fyrir. Sagði Sveinn Þjóðleikhússstjóri þaö ekki aðailega vegna afslátt- arins heldur einnig vegna þess að fólki þætti gott að einhver „drifi” það i leikhúsið, .. i þessu tilfelli afsláttarkortið! t vetur verður miöaverö á frumsýningar krónur 1.500 ef tekið er algengasta verð i saln- um en á venjulegar sýningar mun kosta krónur 1.000.00. Á skólasýningum er veittur 50% afsláttur. Miðaverð á barna- sýningar er i lágmarki, krónur 700 fyrir fullorðna en 500 fyrir börn. Þeir leikhússmenn sögöu ekki viðlit að reyna aö hækka miða- verð i samræmi við verðbólguna og bentu á að miðað við ná- grannalöndin væri hræódýrt að ■ fara i leikhús hér heima á Islandi. 1 ár hækka þeir t.d. barnaverðið úr kr. 450.- i 500.- og fullorðinsverð á barnasýningar úr kr. 600.- i 700.-. Dugar það væntanlega skammt i verð- bólgukeppninni. Miðaverð i kjallarann i vetur verður kr. 800.00 en 25% afslátt-' ur er gefinn ef keypt er áskriftarkort. Eru menn hvatt- ir til að tryggja sér þau timan- lega og ákveðin sæti um leið, en miðasala i Þjóðleikhúsinu hefst strax i næstu viku. -gsp Mynd eftir Delvaux frá 1937. Kvikmyndasýning á Haustsýningu Á mörkum hugaróra Mynd um súrrealisma og dada sýnd i kvöld klukkan 20,30. „A mörkum hugaróra” er þýsk mynd sem leitast ekki við að fjalla um súrrealismann á fræði- legan hátt, heldur er myndavél- inni beint inn i verk margra þeirra listamanna er könnuðu furðuveröld hugans, þ.á.m. Arnold Bocklin, James Ensor, Salvador Dali, Francis Bacon, Paul Delvaux og Yves Tanguy. Reynt er siöan að sýna fram á að hversdagsveröld okkar er engu ófurðulegri en myndveröld þess- ara listamanna. „Súrrealisminn” er aftur á móti fræðilegri frásögn af vexti og þróun súrrealismans i Frakk- landi fram undir heimsstyrjöld- ina siðari, og sýnir fram á hin sterku tengsl sem voru milli skálda og myndlistarmanna. jDýrð bolans” er afar sérstæð pólsk mynd um pólskan lista mann sem stundar einskonar nú- tima súrrealsima, og reynt er að tengja lif og verk hans með sér- kennilegri kvikmyndatækni. Einn af þeim listamönnum sem vikkuðu landamæri súrreal- ismans var André Masson, sem siðar fluttist til Bandarikjanna og haföi ómæld áhrif m.a. á Jackson Pollock meö tilfinningalegum vinnubrögðum sinum. Myndin fjallar um hann og nýrri verk hans. „Dada & Ný-Dada” kannar siöan stuttlega ýmsa anga innan Dada og sýnir fram á þaö hvernig ungir listamenn leita aftur til þeirrar stefnu. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða með skrásetningarbókstafnum G i lögsagnarumdæmi Gullbringusýslu og Njarðvikur. Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með að bifreiðar með G skráningarmerkj- um, sem staðsettar eru i Gullbringusýslu og Njarðvik verða skoðaðar þann 7.8 og 9. sept. 1976 kl. 9.15 til 12 og kl. 13—16.30 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar að Iðavöllum 4 I Keflavik (Bifreiðaeftirlit rikisins) og verður skoð- un framkvæmd þar á fyrrgreindum tima. Við skoðún skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðaiðgjöld fyrir árið 1976 og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á framangreindum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist hér með öllum sem hlut eiga að máli. Það skal tekið fram að fulltrúi innheimtu- manns rikissjóðs i Hafnarfirði verður staddur að Iðavöllum 4 á framangreind- um tíma og mun taka við greiðslu á bif- reiðagjöldum. Bæjarfógetinn i Njarðvik, sýslumaðurinn i Gullbringusýslu. UTBOÐ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i smiði á miðlunargeymi úr stáli Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10 A Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhit- un, h.f. Álftamýri 9, Reykjavik, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita- veitu Suðurnesja þriðjudaginn 21. septem- ber kl. 14.00. Auglýsing um lóðir Á næstunni verður úthlutað 7 lóðum undir einbýlishús með sérstökum vinnustofum. Lóðirnar eru við Tjarnarsel og Vogasel i Seljahverfi. Eru þær fyrst og fremst ætlaðar myndlist- armönnum, aðilum, sem starfa að ýmiss- konar listiðn, tónlistarfólki o.þ.h. Lóðirnar eru nú þegar byggingarhæfar Nánari upplýsingar eru veittar á skirf- stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð. Umsóknum skal skilað fyrir 1. okt. n.k. á þar til gerðum eyðublöðum. Borgarstjórinn I Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.