Þjóðviljinn - 02.10.1976, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 02.10.1976, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. október 1976 Þessi eru á elstu deildinni I Laugaborg, en börnunum þar er skipt I hópa eftir aldri. A sumum heimilum er fariö aö blanda saman aldurshópunum, en forstööukonan sagöi okkur, aö þaö væri erfitt á jafnstóru heimili og þessu. Hólmfrföur Jónsdóttir, formaöur Fóstrufélagsins, og forstööumaöur skóladagheimilisins aö Skipasundi 80 var aö spjalla viö Ragnar, þegar viökomum. Hann vildiauövitaö vera meöá myndinni. Þriggjaára námeftir stúdentspróf eöa svipaða framhaldsmenntun. 92-101 þús. króna mánaðarlaun. í heimsóknum okkar blaðamanna Þjóð viljans á ýmsa vinnustaði í borginni höfum við kom- ist að raun um það, að sá hópur manna, sem hefur 65-70 þús. kr. í kaup á mánuði og engar aðrar tekjur er býsna fjölmenn- ur. Væri fróðlegt að kom- ast að því, hversu margir fylla þann flokk og e.t.v. tekst okkur að komast að því innan tiðar. Bæði konur og karlar eru i þessum hópi, en óhætt mun að full- yrða, að konurnar eru samt í yfirgnæfandi meiri- hluta. Fjölmargar þeirra eru eina fyrirvinna heimilis með eitt eða fleiri börn á framfæri. Blandast víst engum hugur um, að þetta fólk má með sanni nefna láglaunafólk. Laun þessara sfétta hafa alltaf verið lág, en á nokkrum undanförnum ár- um hefur kaupmáttur launanna minnkað jafnt og þétt og margs konar þjón- usta, sem þetta fólk þarf á að halda er hlutfallslega dýrari nú en fyrir 10-15 ár- um. Falleg orð við hátíðleg tækifæri I finum skálaræðum og við hatiöleg tækifæri eru uppeldis- störf talin vandasömust og mikil vægust allra. Það ser samt á al mannavitorði, að þau eru illa borguð og hafa alltaf verið. A dagvistunarheimilum og viðar starfa lærðar fóstrur og þó að þær séu ekki i hópi hinna allralægst launuðu á vinnumarkaðnum, eru þær ekkert ofáælar af sinum 92 þús kr. á mánúði eftir þriggja ára nám i Fóstruskólanum að stúdentsþrófi loknu eða námi úr framhaldsdeildum gagnfræöa- skólanna. En það eru fleiri en fóstrur, sem annást uppeldi og umönnun barnánna á þessum heimilum. Með hverri fóstru vinnur ófag- lærö starfsstúlka sömu störf og fóstran og fyrir kemur, a.m.k. úti á landi að eingöngu ófaglært fólk vinni á heimilunum. Þvi veldur fóstruskortur. Til að fræðast nánar um kjör starfsfólks dagvistunarheimil- anna heimsóttum við i gær for- mann Fóstrufélagsins og dag- heimilið Laugaborg. Hólmfriður Jónsdóttir, for- stöðumaður skóladagheimilisins að Skipasundi 80 er formaður Fóstrufélagsins. Hún sagði okk- ur, að starfandi fóstrur voru um 300, en alls hefðu útskrifast úr Fósturskólanum rúmlega 500 manns. Flestar fóstrur eru borgar- og bæjarstarfsmenn, en allmargar starfa þó hjá rikinu. t.d. starfa fóstrur bæði i öskju- hliðarskólanum og Heyrn™ leysingjaskólanum. Fóstrur i Reykjavik eru i Starfsmanna félagi Reykjavíkurborgar og semur það um kaup og kjör fyrir þær. — Fóstrur eru illa launaðar miöað við mikilvægi óg ábyrgö starfsins, sagði Hólmfriður, þær eru flestar i 9. launaflokki (miðað við nýju flokkaröðunina), en hæstu laun i þeim flokki eru um 92 þús. kr. á mán. Yfirfóstrur á vöggustofum eru einum launa- flokki hærri og forstööumenn leikskóla og dagheimila eru i 11. og 12. flokki eftir stærð heimil- anna. Hæstu laun i 12. fl. eru 101 þúsund kr. Of Iitill munur sagði Hólm- friður að væri á launum forstöðu- fólks og fóstra, þess vegna væri oft erfitt að fá fóstrúr til að taka að sér slik störf. Fóstrufélagið gerði þær kröfur við siðustu samningagerð, að vinnutimi þeirra styttist með hækkándi aldri eins og kennara, sömuleiðis að fóstrum yrði ætlaðir a.m.k. 5 timar á viku til undirbúnings daglegu starfi á heimilunum og til foreldrasam- vinnu. — Ekkert af þessu náði fram að ElIn Arnad5ttir hefur unniö á Laugaborg I rúmt ár. Hún hefur umsjón ganga í þetta sinn, sagöi Hólm- meg einni deildinni en fær borgaö eftir Sóknartaxta. / Laugardagur 2. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 friður, og satt aö segja er mér nær að halda, að karlarnir, sem sömdu við okkur, hefi ekki einu sinni lesið þessar kröfur okkar. Skilja ekki gildi starfa okkar Á dagheimilinu Laugaborg eru 69börn frá eins og hálfs árs aldri til 5 ára. Anna Soffia óskarsdóttir er þar yfirfóstra og hefur unnið á þessu heimili i rúmt ár. Hún hefur um 95 þús. kr. I laun á mánuði og seg- ir, að sér gangi alveg bærilega að lifa af þeim launum. — En ég er lika barnlaus, sagði hún, og mað urinn minn vinnur fyrir litlu lægra kaupi, þannig að okkur er ekki mikil vorkunn miðað við marga aðra. Hins vegar skil ég ekki, hvernig hægt væri að fram- fleyta 4-5 manna fjölskyldu á þeim launum. Anna sagði, að fóstrustarfið væri erfitt en skernmtilegt, námið tæki þrjú ár og nú væri stúdents- próf talið æskilegt til að fá inn- göngu i skólann. — Fóstrustarfið er lágt metið til launa eins og öll önnur uppeldis- störf, sagði hún, þeim sem pen- ingunum ráða,þykir vist borga sig betur að leggja þá i eitthvað annað en að gera vel við fólkið, sem er að ala upp þjóðina. Arangurinn af starfi okkar sést heldur ekki svo greinilega frá degi til dags. Malbikunarfram- kvæmdir og önnur mannvirkja- gerð er fremur mælanleg. Fær 70 þús. í laun A dagvistunarheimilum starfar fleira fólk en fóstrur. Þar vinnur lika ófaglært aðstoðarfólk við umönnun barnanna og taka þær laun eftir Sóknartaxta. Allt eru það stúlkur, og eru byrjunarlaun þeirra 60,457 þús. kr. á mán og hæstu laun, sem unnt er að fá samkv. þeim taxta er 64,666 kr. Sé erfitt fyrir fóstrur að komast sæmilega af með þau laun sem þær hafa, hvað þá með þessar stúlkur? Við spurðum Elinu Arnadóttur að þvi, en hún er ein þessara stúlkna. — Ég fæ að visu 10% álag á þessa upphæð vegna þess að ég hef umsjón með og ber ábyrgð á deild eins og fóstra. Min mánaðarlaun hanga þvi rétt i 70 þús. á mán. Ég er einhleyp og eyði ekki miklu, en ég þurfti aö taka mikla aukavinnu um tima, þegar ég var að koma mér fyrir i nýju leiguhúsnæði. Það er dýrt að leigja og fyrirframgreiðsla oft mikil. Kjör aðstoðarstúlkna Forstöðumaöur Laugaborgar er Guðrún Guðjónsdóttir. Hún sagði, að stöðugt væri skortur á fóstrúm og þess vegna væri alltaf eitthvað um það, að ófaglært fólk gengi inn i fóstrustörfin og bæri á- byrgð á deildum eins og Elin ger- ir. Hún kvað kjör þessara stúlkna vera fyrir neðan allar hellur og með verðlaginu i dag ættu engin laun að vera undir 100 þús, kr. á man. Veit ekki hvað framundan er 1 eldhúsinu hittum viö Erlu Veturliöadóttur. Hún hefur unnið á barnaheimilum yfir 10 ár og mánaöarkaup hennar er nú 64.666 kr. Hún er einstæð móðir með 13 ára dóttur sína á framfæri. Þetta eru einu tekjur hennar. Hún býr i leiguhúsnæði, en hefur verið heppin og ekki þurft að borga fyr- ir það nema 15. þús. á mán. Nú þarf hún hins vegar að fara aö leita sér aö nýju húsnæði og öruggt er, að hún fær ekkert svona ódýrt aftur. Kannski þarf hún að greiða allt að 30 þús. i húsaleigu i framtiöinni eða nærri helming mánaöarkaupsins. — Maður getur auð^ vitaö ekki veitt sér neinn lúxus fyrir þetta kaup sagði hún. Ég reyni að láta telpuna ganga fyrir og það er dýrt að kaupa föt og skóladót fyrir börn á þessum aldri. Það má segja, aö maður rétt skrimti af þessum launum. —hs. » g. - Erla Veturliðadóttir vinnur bæöi I eldhúsi og þvottahúsinu. Eins og sjá má þarf aö láta vel i pottana. Hæsta kaup aðstoðar- fólks á dagvistunar heim- ilunum í Reykjavík er 64,666 kr. Fulltrúakjör til ASÍ-þings 6 félög hafa útnefnt fulltrúa Fulltrúarkjör til Alþýöusam- bandsþings sem haldiö veröur i Ileykjavik dagana 29. nóvember til 3. desember. fer nú fram I verkalýösfélögunum. Frestur til aö skila framboöslistum til fulltrúakjörsins er þegar út- runnin i fimm félögum aö þvi er Þjóöviljanum er kunnugt. Sjálf- kjörið var i þeim öllum. Þessi félög eru Félag Járniðnaðar- manna, Trésmiöafélag Reykja- vikur, Verslunarmannafélag Reykjavikur, Verkalýösfélagiö Eining og Landssamband vöru- bifreiöastjóra. Hér fer á cftir listi yfir fulltrúa þessara félaga. Félag járniönaöarmanna — 6 aöaifulltrúar. Jón Jónsson, Tryggvi Benediktsson, Snorri Jónsson, Brynjólfur Steinsson. Guð- mundur Sn. Jónasson og Gisli Sigurhansson. Trésiniðafélag Reykjavikur — 7 fulltrúar. Benedikt Daviðsson. Jón Snorri Þorleifsson, Grétar Þorsteinsson, Hannes Helgason, Páll Jörunds- son, Þórhallur Eiriksson, Eggert Kristmundsson. Verslunarmannafélag Reykja- vikur — 35 aöalfulltrúar. Guðmundur H. Garðarsson, Magnús L. Sveinsson, Hannes Þ. Sigurðsson, Bjarni Felixsson, Helgi E. Guðbrandsson, Óttar Októsson, Elis Adolphsson, Bragi Lárusson, Auður Torfadóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Pétur Maack, Jón tvarsson, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Klemenz Hermannsson, Jóhanna Sigurðardóttir. Björn Þórhalls- son, Ragnar Guðmundsson, Böðvar Pétursson, Guðmundur Jónsson, Soffia Johnson, Stella M. Jónsdóttir, Grétar Hannesson, Guðmundur Karlsson, Ólafur Hannibalsson, Björk Thomsen, Teitur Jensson, Sólveig Sveins- dóttir, Erna Björnsdóttir, Gunn laugur E. Danielsson, Reynir Josepsson, Ottó J. Olafsson, Kristján Sigurðsson, Sigrún Jóhannsdóttir, Oddgeir Bárðar- son og Gisli Gislason. Verkalýösfélagiö Eining, Akur- eyri.og deildir þess i Eyjafiröi — 15 fulltrúar. Björn Jónsson, forseti ASÍ, Ei- rikur Agústsson, Dalvik, Gunnar J. Gunnarsson, Akureyri, Gunnar Stefánsson, Grenivik, Heiðrún Stefánsdóttir, Akureyri, Helgi Asgrimsson, Dalvik, Jakobina Magnúsdóttir, Akureyri, Jón Helgason, Akureyri, Jóhan Sigurðsson', Hrisey, ólöf Jónas- dóttir, Akureyri, Sigvaldi Einars- son, Ólafsfirði, Svan Ingólfsson, Akureyri, Una Arnadóttir, Ólafs- firði, Unnur Björnsdóttir, Akur- eyri og Þórarinn Þorbjarnarson, Akureyri. Landssamband vörubif reiöastjóra — 7 fulltrúar. Einar ögmundsson, Reykjavik. Skúli Guðjór.sson, Arnessýslu, Helgi Jónsson, Keflavik, Gunnar Valdimarsson, Bildudal, Björn Pálsson, Egilsstöðum, og Gunnar Arnason Akureýri. Verkalýösfélag Vestmannaeyja- 2 fulltrúar. Jón Kjartansson, form. Alltaf er nóg aö gera hjá önnu Soffiu yfirfóstru á skriödeildinni, smáfólkiö sér um þaö.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.