Þjóðviljinn - 02.10.1976, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 02.10.1976, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. október 1976 Skrifið eða hringið. Sími: 17500 Fyrirspurn úl Orkustofnunar ( Skútudal við Siglu- fjörð hafa staðið yfir jarðboranir að undan- förnu. Viðborunina munu starfa sex menn. Fram- kvæmd er þannig hagað, að á móti hverjum þrem vikum, sem borað er, kemur ein frívika. Bor- mennirnir fara þá allir í frí og borinn stendur ónotaður á meðan. Alkunna er, aö mikið er sóst eftir jaröborunum Orkustofnun- ar til aö leita aö jaröhita. Meö þvi fyrirkomulagi, sem hér er haft, stendur borinn ónotaöur i þrjá mánuöi á ári. Eölilegt virö- ist, aö þessi dýru og eftirsóttu taeki væru i samfelldri notkun allt áriö og aö borun væri þannig hagaö, aö viö borinn störfuöu 8 menn, sem færu i fri til skiptis, t.d. tveir i senn eina viku I einu, en eftir væru alltaf sex menn til starfa við borunina, sem þá félli aldrei niöur. Orkustofnun, eöa sá aöili innan hennar, sem sér um rekstur jaröboranna, er vin- samlegast beðinn að skýra hversvegna rekstri borsins, sem hér starfar, er hagaö á þennan hátt, og hvort sama fyrirkomu- lag er viö rekstur annarra jarö- bora, sem eru i gangi á vegum stofnunarinnar. Benedikt Sigurösson. Vegaframkvœmdir á Vestfjörðum — Já, stærstu verkefni i vegamálum hér á Vestfjaröa - kjáikanum i ár er vegaiagning fyrir Hörgsnes I Vatnsfirði, svo aö maður byrji þá þeim megin, sagöi Eiríkur Bjarnason á tsa- firði, umdæmisverkfræðingur Vegagerðarinnar á Vestfjörð- um, er blaöið átti tai við hann á fimmtudaginn var og spurði hann cftir vegaframkvæmdum á Vestfjörðum i sumar. Þaö verður tekinn af vegurinn yfir Fossárháls og i hans staö • lagöur vegur fyrir Nesiö. Þetta er svona 8 km langur kafli, sem var raunar byrjað á i fyrra. Nýi kaflinn veröur tengdur viö eldri veg meö einskonar lágmarks- tengingu nú i ár, en veröur svo væntanlega aö fullu lokiö á næsta ári. Er við það miðað, að. hann veröi jeppafær fyrir bænd- ur nú i vetur. Þetta er stærsta verkefnið i Vestur-Baröa- strandarsýslu, og um leiö i öllu kjördæminu. 1 Austur-Baröastrandarsýslu höfum viö tekið nokkra smærri kafla viö Bjarkarlund og þar fyrir sunnan. Þar er um aö ræöa endurbætur á núverandi vegi,en engar stórbyltingar. Ef viö förum svo i Vestur-lsa- fjaröarsýsluna þá hefur veriö jnninn inn frá Þingeyri kafii, sem heitir Sandfell — Ketils- eyri, og gamli veturinn þar endurbættur verulega. I Djúpinu hefur veriö lagöur nýr vegur viö Skutulsfjörö að austanveröu, frá flugvellinum og útaö Arnarnesi. Hann nær aö visu ekki aö flugvellinum nú í ár, en vonandi samt á næsta ári. A fjárhagsáætlun eru svo hraöbrautarframkvæmdir viö tsafjörö. Ekki er enn ljóst hvort þaö verk verður unniö i haust, þvi enn hefur ekki náöst sam- komulag um hvar vegurinn skuli koma inn i bæinn. Efviö höldum siöan áfram inn Djúpiö, þá hefur veriö unniö i — Hér var gott veður i vor, en hinsvegar mjög rysjótt 1 sumar, svo ekki sé meira sagt. En það skipti um tið með Höfuðdegi og siðan hefur verið hin mesta bliðu4Ið. Þær fréttir færði okkur Ketiil Guðfinnsson i Bolgunar- vik er blaöiö haföi tal af honum nú i vikunni. Heyskapur gekk hér sæmi- lega, en hér er hey verkaö bæði Bolungarvik Bolungarvíkinni er björgulegt lífið” sem vothey og þurrhey og þó meira þurrkaö. Sæmilegt fiskiri var I sumar, en trillukarlarnir eru nú aö byrja að setja bátana sína. Enn- þá er róðrarstöðvun á stærri bátunum, 150 tonna og þar yfir, en veriö er nú aö undirbúa þá báta, sem hugmyndin er að halda út á rækjuveiðar I vetur. Rækjuveiöin hefst nú upp úr mánaðam ótunum. Nokkrar endurbætur voru geröar hér á höfninni I sumar og var unniö I henni fyrir um 50 milj. kr. Var sú vinna I þvi fólg- in, aö Grettir mokaði upp úr höfninni 11 þús. rúmm. Auk þess var unniö við trébryggju, lengdur viðlegukantur. Þá er verið aö ganga hér frá nokkrum götum til undir- búnings lagningu á bundnu slit- lagi,en það er nú vist varla hægt aö kalla þaö varanlegt lengur, þetta vill reynast forgengilegt. Mér er ekki kunnugt um aö neitt varanlegt slitlag hefi verið lagt á vegi hér á Vestfjöröum, nema þá eitthvaö litilsháttar á Pat- reksfiröi af oliumöl. Senn liöur aö þvi, aö leit hefjist hér aö heitu jarövatni. Er borinn, sem nota á til þess, nú i Súgandafiröi, en er væntan- legur hingað eftir 10 til 12 daga. Mun þetta vera framkvæmd upp á einar 25 milj. kr. og biöa menn nú meö eftirvæntingu þess aö sjá hvaö út úr þessum tilraunum kemur. Skuttogarinn okkar er búinn aö afla 2740 tonn frá áramótum og afli hefur einnig veriö alveg sæmilegur hjá bátunum. Unniö er aö stækkun hraö- frystihússins um eina 1000 ferm. og verður sú viöbót á tveimur ef ekki þremur hæöum. Allverulegt magn hefur borist hingaö aö loðnu. Er búiö að landa 7500 tonnum og Arsæll Sigurösson er að koma meö 150 tonn. Búiö er aö skipa héöan út 750 tonnum af mjöli og 500 tonn- um af lýsi og svo við vikjum aft- ur aö loönunni þá er hún ekki nema 70 milur hér undan landi og er nú kotnin hér suöur fyrir okkur. Manni finnst þaö þvi vera hálf skothent þegar alltaf er verið aö tala um loönuna út af Noröurlandi. Miklar framkvæmdir eru hér viö byggingar. Ég hef áöur minnst á stækkun hraðfrysti- hússins,en auk þess eru i bygg- ingu ein 10 Ibúðarhús. Vél- smiöja Bolungarvikur er aö reisa hús yfir nýtt plötuverk- stæöi. Veriö er aö byggja hús yfir trésmiöaverkstæði og ann- aö yfir vélsmiðaverkstæöi og svo er loks veriö að byggja yfir heilsuverndarstöö. 1 júli var flutt inn i 6 Ibúöir sem komið var hér upp sam- kvæmt lögum um byggingu leiguibúöa á vegum sveitar- félaga. Hér hefur verið og er alveg yfirdrifin atvinna. Þaö vantar i raun og veru ekkert nema fólk. Og þaö er mjög fátt aðkomufólk hér I vinnu. Við erum þannig settir meö húsnæöi, gagnstætt þvi sem mér skilst aö sé viöa annarsstaðar, að viö gætum tekið á móti aðkomufólki. Ég man i svipinn eftir fjórum ibúöum, sem standa auöar, og þær kunna aö vera fleiri. Unglingar vinna hér mikiö viö fiskinn yfir sumarmánuöina. Aftur á móti tekur sumt eldra fólkiö sér þá gjarnan sumarfri. Þegar svo unglingarnir hverfa inn I skólana með haustinu kem- ur eldra fólkiö aftur til vinnu. —mhg Skötufirðiog er þaö frágangur á vegi, sem lagöur var 1973 og 1974. Brú var smiöuö á Laugardals- á I Djúpi og þar var einnig lagö- ur dálitill vegarspotti. Brúin á Laugardalsá er ein hin stærsta, sem byggö hefur veriö á Vest- fjöröum til þessa, 46 m löng. Nýr vegarkafli hefur veriö lagöur hjá Arngeröareyri viö ísafjörö, sem er innsti fjöröur- inn I Djúpinu. Þar er um aö ræöa tveggja km kafla og er þaö aö mestu nýr vegur en einnig aö nokkru gamall vegur, sem var endurbættur. En veruleg sam- göngubót er aö þessari fram- kvæmd. 1 Strandasýslu var unniö aö ærnum endurbótum á veginum viö Árnes. Var hann hækkaöur og hefur tekið viö þaö miklum stakkaskiptum. I Hrútafiröi var nýr vegur lagöur hjá Stóru-Hvalsá og brú smiöuö á ána og eiimig var unniö að nýjum vegarkafla hjá Prestsbakka. Til viöbótar þvi, sem hér hefur veriö drepið á má geta þess, aö unniö hefur veriö aö nokkrum lagfæringum á vegin- um i Kollafiröi á Baröaströnd, á Ketildalavegi og á Laxárdals- vegi var fyllt aö brú, sem smlðuö var i fyrra. Loks er svo ástæöa til þess aö nefna þaö, aö I fyrra voru settir upp á Breiðadalsheiöi nokkrir snjóskermar af mismunandi geröum, og var tilgangurinn meö þvi sá, aö prófa hvernig þeir reyndust til þess aö bægja snjóhengjum frá veginum, en veruleg brögð eru aö slikri hengjumyndun á Breiöadals- heiöi. Niöurstaöan af þeirri reynslu, sem af skermunum fékkst i fyrravetur er sú, aö ein tegund þeirra bar af, og veröa skermar þeirrar geröar nú sett- ir viöar upp á heiöinni fyrir veturinn. Vonumst viö til þess, aö fyrir vikiö haldist vegurinn yfirheiðina lengur opinn en ella. Fjárveiting til þessa verks er um 1 milj. kr. Ég held ab þá sé lokiö viö aö geta um helstu framkvæmdirn- ar en svo hefur náttúrlega veriö unnið aö viöhaldi eldri vega, auk þess sem hér er talið, en þaö skortir alltaf viöhaldsfé. En svo er fólk nú heldur ekki ánægt nema þaö fái lika aö sjá eitthvaö nýtt. — mhg ! ■ Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.