Þjóðviljinn - 02.10.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 02.10.1976, Blaðsíða 16
Kröflusvœðið: Eldgos í aðsigi eða skjálftum að ljúka? DMÐVIUINN Laugardagur 2. október 1976 Sameinast um sólar- ferðir Stofnuö hafa veriö samtök þriggja islenskra feröaskrifstofa og Flugleiða um rekstur og framkvæmd SÓLARFERÐA til Kanarieyja. Aöilar eru feröa- skrifstofurnar Landsýn, Crval, Otsýn og Flugfélag islands og Loftleiöir. Tveim öörum feröa- skrifstofum, Sunnu og Samvinnu- feröum var boöin þátttaka, en þær höfnuöu. Astæöan til stofnunar þessara nýju samtaka um SÓLARFERÐ- IR I SKAMMDEGINU er sú, aö sólarferðamarkaöur á Islandi er takmarkaður miðaö við önnur Framhald á bls. 14. Jarðskjálftakippum á Kröflu- svæöinu fer enn fækkandi aö þvi er Axel Björnsson jarðeðlis- fræöingur, tjáöi blaöinu 1 gær. Um tvöleytiö i gær höföu aöeins mælst fjórir kippir, en timabil- ið, sem miðað er viö mælingarn- ar, er frá kl. 3 til 3 slðdcgis. I fyrradag mæidust 16 kippir og daginn þar áöur 50. Hefur kippafjöldanum á dag fækkaö þetta úr 130 fyrir tæpri viku, en mestur hefur kippafjöldin oröið 139 á dag siöan mælingar hófust. Axel sagði að dæmi væru til um það erlendis frá að skjálfta- virkni dytti skyndilega niður skömmu fyrir gos, en hitt gæti lika verið að þetta væri fyrir- boði þess, að allt væri að veröa rólegt á Kröflusvæðinu. Erfitt væri að segja um hvort liklegra væri, þar eð engin tvö eldfjöll eru eins, og langvinnar og ná- kvæmar mælingar hafa ekki fyrr verið gerðar hér á landi i grennd við eldfjöll. Hinsvegar væru 'hinar öru breytingar á skjálftavirkni og fleiru siðustu Enn engin ákvörðun um varnar dagana vissulega varhuga- verðar og ástæöa til að vera við öllu búinn. Það ætti að vera orðið ljósara eftir nokkra daga, viku eða svo, hvort nýtt eldgos færi i hönd eöa að skjálftarnir væru að hætta, en eins og sakir stæðu væri ekkert um þetta hægt að spá. Af öðrum breytingum siðustu daga má nefna að dregið hefur úr rishraða norðurenda stöðvarhússins við Kröflu. Hús- ið seig að norðanverðu eftir gos- ið, en hefur verið að rétta sig af siðan, en nú hefur sú hreyfing sem sagt hægt á sér. Einnig hefur landrisið á Kröflusvæðinu hægt á sér. í upphafi var ris- hraðinn 6 1/2 millimeter á dag, en nú er hann kominn niður i ná- lega ámillimetra, þar sem mælt er rétt norður af stöðvarhúsinu. Gerð hefur verið á vegum Orkustofnunar áætlun um bygg- ingu tveggja varnargarða gegn hraunrennsli, og er ætlast til að garðarnir beini hugsanlegu hraunrennsli úr Leirhnjúks- sprungunni frá svæðinu, þar sem virkjunarframkvæmdirnar fara fram. Gert er ráö fyrir þvi að garðarnir verði úr möl og grjóti og þeim að verulegu leyti ýtt upp með jarðýtum. Axel Björnsson sagði að garðarnir yrðu að vera nokkurra metra háir og nokkra tugi metra á lengd, en sem slikir ættu þeir að koma að tilætluðu gagni, þar eð reynsla væri fyrir þvi af þessum slóðum að hraun væri þunnfljót- andi og þvi tiltölulega auðvelt að hafa áhrif á rennsli þess. Þessi áætlun um varnar- garðana, sem gert er ráö fyrir að muni kosta 50-60 miljónir króna að hrinda i framkvæmd hefur verið lögð fyrir iðnaðar- málaráðuneytið. Arni Þ. Arna- son skrifstofustjóri hjá ráðu- neytinu, skýröi Þjóðviljanum svo frá að málið væri þar i at- hugun og mætti búast við niður- stöðum frá ráðuneytinu um þaö mjög bráðlega. Guöjón Petersen hjá Al- mannavörnum tjáði Þjóðviljan- um að af þeirra hálfu væri þess óskað að menn væru tilbúnir til að gripa til þeirra aðgerða, sem búið væri að ákveða ef eldgos hæfist. Væru þær i fyrsta lagi i þvi fólgnar að flytja fólk frá Kröflu, ef mælar sýndu gos, að minnsta kosti þangað til vitað væri hvar gosstöðvarnar væru. Einnig yrði undirbúið að koma fólki úr Mývatnssveit, en ekki yrði fólk flutt þaðan þegar við upphaf goss, þa eð talið er að eldgos geti ekki ógnað byggð- inni þar skyndilega. dþ 40 kennarar knúðu fram bráðabirgða- lausn Allir kennarar sem við störf voru i Menntaskól- anum i Hamrahlið felldu niður kennslu i gær, þegar i ljós kom á skyndifundi, sem kallað var til i skólanum, að mikil óreiða og vanskil voru á launagreiðslum um þessi mánaðamót. Kröfunefnd kennara fékk áheyrn hjá fjármálaráðuneytinu siðdegis og voru i henni Arni Böðvarsson, Jón Hannesson, Þorlákur Helgason, Stefán Briem og Heimir Pálsson. Kröfur þeirra voru að launadeild fjármálaráðu- neytisins héldi geröa samninga i framtiðinni, að málefni stunda- kennarar og hlutakennara yröu leyst þegar i næstu viku, og að þegar yrði gengið frá samningum Grafíksýning framlengd Mikil aðsókn hefur verið á sýn- ingu Menningarstofunar Banda- rikjanna við Nesveg á verkum þekktra bandariskra grafiklista- manna. Sýningunni átti að ljúka nú um helgina en ákveðið hefur verið að hafa hana opna á sunnu- daginn frá kl. 14 til 22 og á -=-mánudag frá kl. 9 til 18. varðandi laun fyrir kennslu við öldungadeild. Höskuldur Jóns- son, ráðuneytisstjóri, afsakaði seinkun á launagreiðslum til fastra kennara, sem hann viður- kenndi að launadeild ráðuneytis- ins bæri alla ábyrgð á. Launa- greiðslur til stundakennara og hlutakennara sagði hann að leyst- ar y rðu með þvi að greiða skólan- um til bráðabirgða einhverja heildarupphæð sem reynt yrði að deila réttlátlega milli þeirra. Þá féllst ráðuneytið á að efna til samningafundar vegna öldunga- deildar n.k. þriðjudag. Engin loforð né fullnaðarsvör fengust að sögn kennara um það hvort staðið yrði við samninga framvegis. A kennarafundi var siðan samþykkt að sú lausn sem fékkst frá ráðuneytinu væri viðunandi i bili, en engin lausn hefði fengist á þvi grundvallar- atriði að treysta mætti þvi að greiðslur yrðu i lagi framvegis. En kennarar munu semsagt taka upp kennslu á ný. Flugfargjöld til útlanda hækka 20% í gær hækkuðu fargjöld með vélum Flugleiða til útlanda um 20% að jafnaði. Með þessu er leið- rétt að nokkru það gengissig sem hefur orðið á krónunni frá því 1. okt. i fyrra gagnvart dollar, en fargjöldin eru reiknuð út i þeim gjaldmiðli. Gcngissigið var orðið það mikið aö talsvert ódýrara var að kaupa farmiöa hér i islenskum peningum, heldur en að greiða I erlendum gjaldeyri. Það var semsagt ódýrara að fljúga héðan heldur en hingað. Að sögn Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiöa, hefur þó þessi munur ekki verið jafnaður að fullu. Kennaraverkfall í MH Baráttufundur herstöðva andstæðinga í Kópavogi A Starfshópur herstöðvaandstæðinga i Kópavogi boðartil baráttufundar í Þinghól sunnudaginn 3. október nk. kl. tvö eftir hádegi. Fundarstjóri Andrés Kristjánsson fræðslu- stjóri. 0 Stutt ávörp flytja: Ásmundur Ásmundsson verkfræðingur, Ingólfur Gíslason háskóla- nemi og ólafur R. Einarsson menntaskóla- kennari. a Upplestur og söngur: Sigurður Pálsson les w upp. Kristján Guðlaugsson syngur baráttu- söngva. 0 Starfshópur herstöðvaandstæðinga Ólafur Asmundur Siguröur Andrés Herstöðvaandstæðingar eru hvattir til að fjölmenna á baráttufundinn i Þinghól

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.