Þjóðviljinn - 12.12.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Blaðsíða 5
Sunnudagur 12. desember 1976 1>JÓÐVILJ1NN — SIÐA 5 ,TO * nokkrar af b6\um ol&ar r SKÁLDSÖGUR SÁLMURINN UM BLÓM- IÐ eftir Þórberg Þórðarson. Sagan um Litlu manneskjuna, Sobbeggi afa og Mömmu- göggu, meistaraverk Þórbergs frá sjötta áratugnum, loksins komið í nýrri útgáfu. KERLINGARSLÓÐIR eftir Líneyju Jóhannesdóttur. Aðalpersónan er barn ungl- ingsstúlku sem flyst frá einum ættingja til annars í því rót- leysi nútíma Reykjavíkurlífs sem höfundur er svo einkar skyggn á. Hér er fjallað um vandamál sem ekki hafa fyrr verið tekin til meðferðar í is- lenskum bókmenntum. LJOÐ JAPÖNSK LJÓÐ FRÁ LIÐNUM ÖLDUM í þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Þessi bók er enn ein sönnun snilldar Helga Hálfdánarson- ar sem skálds og þýðanda. Útkoma hennar er öllum ljóðaunnendum mikið fagn- aðarefni. Gullfalleg bók yst sem innst. Tryggvi Emilsson FÁTÆKT FOLK Æviminningar ÆVIMINNINGAR FÁTÆKT FÓLK eftir Tryggva Emilsson. Útkoma þessarar bókar sætir einna mest- um tíðindum á þessum vetri. Einstæð öreigafrásögn frá Akureyri og Eyjafjarðardölum á fyrstu áratugum þess- arar aldar. Frásagnargáfa höfundar er einstæð og bókin fulltrúi hins besta í alþýðlegri, ís- lenskri frásagnarlist. y BÍÁL OG MENNÍÍIG Ljónshjarta Astrid LindgreirVJ SAGNFRÆÐI GALDRAR OG BRENNUDÓMAR eftir Siglaug Brynleifsson. Hér segir frá óhugnanlegustu vitfirringu sem yfir landið hefur gengið og var einkum bundin við Vestfirði. Rakinn er uppruni og saga galdrafársins á íslandi frá fyrstu galdrabrennunni til hinnar síðustu. Þetta er sérstæð bók, mjög forvitnilegt sagn- fræðirit og skemmtilegt aflestrar. ÆVINTYRI BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA eftir Astrid Lindgren. Sagan um bræðurna Jónatan og Snúð Ljónshjarta og ævintýri þeirra í furðu- landinu Nangijala. Fögur, uggvænleg og áhrifamikil frásögn um gott og illt — og um leið full af töfrum og skáldskap. Þetta er ævintýri sem á ríkulegt erindi, bæði við börn og fullorðna. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.