Þjóðviljinn - 12.12.1976, Síða 25

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Síða 25
Sunnudagur 12. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25 Sköpun dýranna Min skepna er farin aö hreyfa sig! LEÐURBLAKAN — Alllaf þarf hann að vera aö stela okkar hug- myndum. Músin vaknar til lifsins. — Er hann aö hvila sig? — Já, enda er hann aö búa til skriödýr. í rósa- garðinum Svona spyrja ekki sveita- píur Hvernig eiga tvö naut saman i vináttu- og ástarsambandi? Tvær kaupstaöarpiur. Heimilis-Timinn. Ævintýraleg stofnun Mörg höfuö á tollheimtunni. Fyrirsögn i Morgunblaöi Aumingja Gylfi Albert Guðmundsson var ómyrkur i máli og sagöi aö þetta frumvarp Alþýöuflokksmanna væri ómegnaöur kommúnismi. Timinn. Dramatísk hagfræði Þó að Matthias Bjarnason veröi hengdur fyrir þorskmorö eöa hrakinn frá rábherradómi fyrir að vera valdur að hinu hryllilega slysi, þá breytir þaö engu fyrir þorskinn meðan efnahagssérfræöngar þjóöar- innar sjá enga leiö til aö draga fram efnahagslifið i 1-2 ár, aöra en aö útrýma þorskinum. Dagblaöiö. Hinn óttalegi leyndardómur Seint og siðar meir hafa bandarikjamenn komist aö mjög eftirtektarverðu ráða- bruggi leyniþjónustunnar. Þaö átti að fá garöyrkjumann Hitl- ers til aö sprauta kvenhormón- anum ostrogen i þá ávexti og grænmeti sem aö Hitler lagöi sér til munns til að hann missti svo yfirskeggið. Bild Fróðleikur fyrir tjallann Breskt blaö reynir aö útskýra fyrir lesendum sinum hvaö tugakerfið sé, en þaö á i fram- tibinni einnig aö gilda á Bret- landi. Þaö segir meöal annars: „Litri er nokkurn veginn það sama og metri, en bara blaut- ari”. Daily Mirror. ADOLF J. PETERSEN: VÍSNAMÁL „TIL ÞÍN AUSTAN BLÆRINN BER” Visnamálum hefur borist gott bréf frá Óskari Þórbarsyni frá Haga. Meðfylgjandi visur nokk- rar mjög athyglisverðar visur, greinilega ortar viö þau tæki- færi þegar viöhorfunum er lýst. Eflaust hefur óskar verið á ferð um Suðurnes þegar hann kvaö: Fölna blóm og fer aö haust fellur hrim á veginn og hraunið grátt og gróöurlaust Grindavikurmegin. I versluninni kveður hann: Varan léleg, verðiö hátt, viösjált skraf viö fyrstu kynni: Tauiö veröur varla blátt veröi þaö þvegiö einu sinni. Hvort hann er að ræöa um sinn eða annara skáldskap, er ekki fullljóst, en jafngilt fyrir þvi þegar hann kveður: Fellur saman orö og orö i efnislausu kvæöi, úr þvf ég á annað borö einstig rfmsins þræöi. Um jólin vill óskar vera heima en ekki i suðurlöndum: Heima er betra aö halda jól þó hamist vindur sterkur en þar sem brennir suöræn sól sanda og eyöimerkur. Þá vill Óskar heldur eiga stund með Fjallkonunni: Aráttan er söm viö sig, sól og vindar kalla, Engan langar eins og mig upp til hárra fjalla. Með þökk fyrir bréfið, Óskar, kannski viö heyrum eitthvaö frá þér seinna, þvi satt mun reynast þegar fram liöa stundir, þaö sem Þóhildur Sveinsdóttir frá Hóli segir i þessari stöku: Mundu aö efla andans sjóö ef að treinast vökur. Enn þá getur islensk þjóö unað sér viö stökur. / Þaö var i Visnamalum þriöja október s.l. sem birtust visur eftir vestur islendinginn Björn Jónsson i Swan River. Ég lét þess þá getið að sennilega mætti eiga von á fleiru frá Birni. Af eftirfarandi visu má álykta að hann eigi von á yndi meö austanblænum, eöa heimþráin segi til sin. Þegar byrinn mæöu mér megnar styr og vandann, einatt spyr ég eftir þér elskan fyrir handan. Visnamál senda Birni bestu kveöjur með þessari visu: Heimþrá vakin handan er hafsins bláu linu. Til þín austan blærinn ber bros frá yndi þinu. öldur óróleikans, lægir Björn með þvi aö raula i rökkrinu: Ef lifið fátt vill ljá til þægöar og létta á þrautakifinu, yrki ég mér til hugarhægðar húm megin i lifinu. Af bréfi Björns M. má ráöa að hann ferðast mikið þar vestur frá, en þá kemur manni i hug visa Ingþórs Sigurbjörnssonar: Hvar sem þú um loft og lönd leggur þina vegi, gæfan þér I haldi hönd hinsta fram aö degi. Ingþór Sigurbjörnsson er mik ill áhugamaöur um bindindi og vinnur mikiö aö þeim málum. Eitt sinn hóf hann visu þannig: Vinið eyöir viti og þrótti, villir margan góöan dreng. Undirritaður sem hlustaöi á bætti við: Þar af leiðir lifsins flótti lýstur egg að hjartastreng. AJP. Ingþór hóf aðra visu: Njótum geisla glaöra stunda göngum djarft I sólar átt. seinni hlutinn kom þannig: Há skal stefna huga og munda herðum dug og viljans mátt. AJP En Ingþór þarf ekki að láta einn eöa neinn botna fyrir sig þaö getur hann sjálfur en kýs samvinnuna, og kveöur: Þaö er gott á góöri stund gleðjast meðal vina, taka i heita mjúka mund, milda samvistina. Það hefur kannski verið i góöu skammdegi eins og nú er sem Ingþór gerði þessa visu: Þegar okkar byggöa ból blessaö hefur vetur. Vonum þó aö vor og sól vermi okkur betur. Ekki eru allir á einu máli um bindindið.Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga i Skagafirði kvaö i kunningjahóp: Vekjum hlátur, vekjum villast látum trega, brögöum kátir brennivfn bara mátulega. grin, A ferðalagi kvaö Andrés Val- berg frá Mælifelli: Ólund heröir átökin, okkar skeröist rómur, af þvi ferðafleygurinn fer aö veröa tómur. Haraldur Hjálmarsson frá Hofi á Höföaströnd kvað viö skál: Af tilhlökkun titrar minn barmur ég trúi aö sálinni hlýni, er hátt lyftir hægri armur heilflösku af brennivini. Þorbergur Þorsteinsson frá Gilhaga blótaöi Bakkus sem margir aörir aö sagt var. Hann kvað: Vföa liggur vegur minn, vfs er lagakraftur, saklaus var ég settur inn sekur fór ég aftur. Mér er Ijúft aö lifa I synd, Ijósan ber þess vottinn, þú skalt dæma þina mynd þó meö samúö, drottinn. Faðir Þorbergs var Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga, hér á boröinu liggur blaö meö þessum visum eftir hann: Fyrir gig mér eyddist afl, oft nam ráöi skeika. ■ Nú er ævi tapað tafl,— tregöast ég aö leika. Anda napurt oft ég finn auðnu tapast vegur, asnaskapur allur minn er svo hrapailegur. Hann kom að lind, fékk sér að drekka og sá mynd sina um leiö I lindinni: Af þér drakk ég, lækjarlind langan teig meö þökkum, en þú drógst upp dapra mynd, djúp og slétt af bökkum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.