Þjóðviljinn - 12.12.1976, Page 27

Þjóðviljinn - 12.12.1976, Page 27
Sunnudagur 12. desember 1976 þjóÐVILJINN — SÍÐA 27 BRODDI OG JAKOB Broddi Siguröarson er 5 ára gamail. Hann á heima á Bræðraborgar- stíg 21 íReykjavík. Bróðir hans heitir Jakob og er 4 ára. Þeir bræðurnir eru í leikskóla eftir hádegi. Leikskólinn heitir Drafnarborg og er ekki langt frá heimili þeirra. Þeim finnst gaman þar og tíminn líður f Ijótt. Þeir fara i skóiann klukkan hálf eitt og koma heim um fimmleytið. Bæði mamma þeirra og pabbi eru að læra í Háskólan- um. Broddi og Jakob eru ekki búnir að eiga lengi heima á Bræðraborgar- stignum, þeir fluttu þangað í fyrra. Áður áttu þeir heima á Spáni í fallegri borg sem heitir Barcelona. Stundum langar þá aftur til Spánar. Þar var svo gaman og þeir áttu góða vini þar. Hérna er mynd af þeim að skoða spánska myndabók. Þeireru yngri á myndinni en þeir eru núna því hún var tekin á Spáni. Broddi er þriggja Broddí og Jakob. ára en Jakob tveggja ára. litlu fugiunum Tunglið er blátt og það sést stórt vatn á tunglinu. Svo er maður í loftbelg. Hann er í útsýnisferð. örin sýnir úr hvaða átt vindur- inn blæs. Patreksf irði, Bárðardak og Garðabæ. Nú verða getraunirnar ekki fleiri, það féll niður Kompa í afmælisblaðinu, þess vegna urðu þær aðeins fimm, til að bæta fyrir það verður dregið um ein aukaverðlaun, svo þau verða sex eins og ákveðið var. Á morgun er 13. og þá verður dregið. Úrslitin verða birt í næsta blaði. Það er margt á þessari mynd sem Broddi teiknaði. Hús og tré. Svo sést eldfjall sem gýs gló andi grjóti. Það fljúga fuglar í loftinu. Fjórir mávar og einn mávsungi, en svo er lika krummi. Það er búið að skjóta hann í vænginn, af því að hann er svo grimmur að éta eggin og ungana frá 29 svör í þessari viku Við getraun 4 bárust 9 svör, við getraun 3 bárust 13 svör, við getraun 2 bár- ust 5 svör og við getraun 1 bárust 3 svör. Flest bréfin komu úr Reykjavík og Kópavogi eða 6 frá hvorum stað, frá Hafnarfirði 3, Akra- nesi 2 en eitt bréf frá Hellu, Vestmannaeyjum, Hveragerði, Mýrdal, Broddi gerði þessa mynd af Molda handa Jakobi bróður sinum. Þeir horfa æfinlega á Stundina okkar og Jakobi finnst Moldi svo skemmtilegur. Myndin er af Molda þegar hann var að festa upp stjörnuna. Brodda finnst Kommóðukarlinn miklu skemmtilegri, en það er bara ekki laust við að Jakob sé örlítið smeykur við hann. Jól á Spáni Spánverjar halda ekki upp á aðfangadagskvöld eins og við gerum. Jóla- nóttina kalla þeir noche- buena (þ.e. góða nóttin) þá er farið í kirkju. Dag- inn eftir 25. desember byrjar hátíðin, en börin fá engar jólagjafir, þær koma ekki fyrr en á þrettándanum. Jóla- sveinninn kemur kki með g jaf irnar, heldur vitringarnir þrír, Kaspar, Balthasar og Melchior, sem forðum færðu Jesú- barninu hinar fyrstu jóla- gjafir: gull, reykelsi og myrru. Fyrir jólin er búin til Betlehemjata með Jesú- barninu, Jósef og Maríu og öllum dýrunum í kring, hún kemur í staðinn fyrir jólatreð hjá okkur. Hver og einn notar hugvit sitt og hagleik til að gera þessa jóla- skreyingu sem fallegasta. Oft er stór (tvegg jakílóa) brauð- hleif ur skorinn í tvennt og holaður innan, svo er skorpan notuð í f járhúsið. A gamlárskvöld (nochevieja) verða öll börn að vaka til mið- nættis, þegar klukkan slær borða þau 12 vinber, eitt við hvert klukkuslag. Þau eru kölluð hamingju- vínber og er eitt fyrir hvern mánuð komandi árs. Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.