Þjóðviljinn - 13.01.1977, Síða 13

Þjóðviljinn - 13.01.1977, Síða 13
Fimmtudagur 13. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA — 13 Sverrir Hólmarsson skrifar leikhúspistil: Kjarni málsins Hreyfileikhúsiö sýnir FRÖKEN JCLÍA ALVEG ÓÐ að Frikirkjuvegi 7. Hreyfileikhúsiö er afsprengi þeirra hjóna Nigel Watsons og Ingu Bjarnason, en þau hafa bæöi starfaö erlendis, einkum i Englandi, við leikhús sem leggja áherslu á svipaöa hluti og hér er gert, þ.e. likamlega hreyfingu leikarans, enda er þetta kallað „theater of physical action” eða „action theatre” á enskri tungu. I leikhúsi af þessu tagi er gjarnan tekinn gamall og góður texti, hann krufinn, bútaður i sundur, allur söguþráöur leystur upp, og siðan reynt aö koma kjarna hans til skila með stflfæröum leik- brögðum sem allajafna reyna mjög á þanþol líkamans, spenna hann til hins ýtrasta. Leikstill þessi er mjög undir áhrifum pólverjans Grotowskis og kenn- inga hans um hiö fátæka leikhús, sem varpar fyrir borð öllum tæknimeðulum hins „rika” leikhúss en reynir að leita að hin- um raunverulega kjarna leiklistarinnar i beinum tengslum leikara og áhorfenda. Leikstill þessi er i eðli sinu expressijónisk- ur eða kjarnsær, algerlega and- stæður öllum hófstilltum natúral- isma. Nigel Watson er áður kunnur hér um slóöir fyrir vandaöa og hugmyndarfka uppfærslu sina á Hamlet i leikgerö Marowitz, sem enskudeild Háskólans stóð fyrir siöastliöinn vetur. Nú hefur hann, ásamt þeim Ingu Bjarnason og Sólveigu Halldórsdóttur, tekiö sér fyrir hendur að tæta i sundur texta Strindbergs, skjóta inn nokkrum Bibliutilvitnunum og söngvum til bragðbætis, og túlka allt þetta i öfgakenndum kjarn- sæisstil. Sá kjarni sem hér er leit- að eftir úr Fröken Juliu sýnist mér fyrst og fremst vera stéttar- eöli leikritsins, þaö hvernig allar persónurnar eru lokaöar inni i heimi sinnar stéttar og komast ekki út úr honum, þrátt fyrir full- an vilja og ákafar tilraunir. Þaö er þessi hömlun og þessi frelsis- leit sem kemur afskaplega sterkt fram i sýningunni, og virðist mér þetta vera fullkomlega réttmæt og gild túlkun á verki Strindbergs og sýna það i nokkuð nýju ljósi. Sýningin öll ber vitni um mikla vinnu og fágað handbragð. Nigel Watson er óhemjulipur og fjaður- magnaöur leikari sem spilar á skrokk sinn eins og hljóðfæri. Inga Bjarnason nær mikilli spennu i hlutverki Júliu og er leikur hennar á köflum afar sann- færandi. Sólveig Halldórsdóttir er Nigel Watson og Sólveig Hauks- dóttir. nýliði, sem áður hefur vakið nokkra athygli I Nemenda- leikhúsinu, en sýnir hér að hún býr yfir töluvert öruggri lfkams- tækni og feiknagóðri framsögn. Það kann aö vara að samblönd- un islensku og ensku geri sýning- una eilitið óaögengilegri en ella fyrir suma, en enginn ætti þó aö láta það aftra sér, þvi að textinn er ekkert aðalatriði i þessari sýn- ingu, sem býöur upp á svo margt fallegt og áhrifamikiö fyrir sjón skynið. Sverrir Hólmarsson. Utvarpsleikritið: Fabian opnar hliðin 1 kvöld kl. 20.15 verður flutt ieikritið „Fabian opnar hliðin” eftir finnska rithöfundinn Walen- tin Chorell.Þvi var áður útvarpað 1951 og 1961. Þýðinguna gerði Bjarni Benediktsson frá Hofteigi, en leikstjóri er Gisli Haildórsson. Með hlutverkin fara Valur Gisla- son, Helga Valtýsdóttir, Sigriður Hagaiin og Jón Aðils. Leikurinn segir frá auöugum verksmiðjueiganda á sjötugs- aldri, sem fer út að skemmta sér. Honum dettur i hug að gaman geti veriö að breyta til, flytur frá konu sinni og fer að búa með ann- arri. Sllkt fyrirtæki heppnast stundum, ekki þó ævinlega. Walentin Chorell fæddist I Ábo árið 1912. Hann hefur skrifað yfir 80 leikrit, bæði fyrir útvarp og leiksvið. „Fabian opnar hliðin” (1949) varð til að afla honum frægöar, en af öörum leikritum hans má nefna „Hefðarfrúna”, sem útvarpiö flutti á s.l. ári. Chorell tekur oft til meðferðar skipti einstaklingsins við sam- félagiö. Hann getur verið gaman- samur á stundum, en undirtónn- inn i verkum hans er alvarlegur. útvarp 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.30. Morgunstundbarnanna kl. 8.00: Bryndis Sigurðardóttir lýkur lestri sögunnar „Kisubarnanna kátu” eftir Walt Disney i þýöingu Guðjóns Guðjónssonar (4). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Við sjóinn kl. 10.25: Trausti Eiriksson vélaverkfræðingur talar um orkunotkun i fiskimjöls- verksmiðjum. Tónleikar. Morguntónleikar kl. 11.00: Kammersveitin i Helsinki leikur Divertimento (1962) eftir Leif Segerstam, höf- undurinn stj./Hljómsveit útvarpsins i Moskvu leikur Sinfóniu nr. 15 eftir Dmitri Sjostakovitsj, Maxim Sjostakovitsj stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Fóstur frá útlöndum Sendandi: Sigmar B. Hauksson. 15.00 Miödegistónleikar Liv Glaser leikur pianólög eftir Agötu Backer Gröndahl. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tónleikar. 16.50 Ilvenær á þjóðin að hugsa? Guömundur Þorsteinsson frá Lundi flyt- ur stutta hugleiðingu. 17.00 Tónleikar. 17.30 Lagið mitt Anne Marie Markan kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 Samleikur I útvarpssal. Jónas Ingimundarson, Rut Ingólfsdóttir, Graham Tagg, Pétur Þorvaldsson og Einar B. Waage leika Kvintett i A. dúr fyrir pianó, fiðlu, viólu, selló og kontra- bassa, „Silungakvintettinn” op. 114eftir Franz Schubert. 20.15 Leikrit: „Fabian opnar hliöin” eftir Valentin Chorell Aður útv. í april 1961. Þýðandi Bjarni Benediktsson frá Hofteigi. Leikstjóri: Gisli Haildórs- son. Persónur og leikendur: Fabian... Valur Gislason, Olga... Helga Valtýsdóttir, Lilly Lilja... Sigribur Hagalin, Róninn... Jón Aðils 21.35 t)r islensku hómiliubók- inni. Stefán Karlsson les si"ðari þrettándapredikun frá tólftu öld. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Minningabók Þorvalds Thoroddsens”Sveinn Skorri Höskuldsson les (32). 22.40 llljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Sýrð mjólkurafurð, holl og góð ÝMIR Launagreiðendur er hafa i þjónustu sinni starfsmenn, búsetta i Keflavik, Njarðvik, Grindavik og Gullbringusýslu Samkvæmt 7. tölulið 103. gr. reglugerðar nr. 245/1963, er þess hér með krafist af öll- um þeim, sem greiða laun starfsmönnum, búsettum hér i umdæminu, að þeir skili nú þegar skýrslu um nöfn starfsmanna, nafn- númer og heimilisfang. Þá er vakin athygli á skyldu launagreið- anda að tilkynna, er starfsmaður hættir að taka laun hjá honum, og einnig þeirri ábyrgð, sem launagreiðandi ber, ef hann vanrækir ofangreint, eða vanrækir að halda eftir af launum starfsmanna upp i þinggjöld samkv. kröfu innheimtumanns. í þessum tilvikum er hægt að innheimta gjöldin hjá launagreiðendum, svo sem um eigin skuld væri að ræða. SÝSLVMAÐURINN í GULLBRINGUSÝSLU BÆJARFÓGETINN í KEFLAVÍK OG GRINDA VÍK Vatnsnesveg 33 - Sími (92) 1923 «1! ÞRÓUNARSTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR W ÞVERHOLTt 1S - SÍMI 26102 Skipulagssýningin að Kjarvalsstöðum Á sýningunni i kvöld fimmtudaginn 13. jan. mun Haukur Viktorsson arkitekt frá Teiknistofunni Arkir kynna skipulag Nýs Miðbæjar við Kringlumýrarbraut. Kynningin hefst kl. 20.30 með sýningu skuggamynda. Kynning verkefnis og al- mennar umræður. Þróunarstofnun Reykjavikurborgar. Sölubörn á Akureyri óskast til að selja „NORÐURLAND” Góð sölulaun Blöðin verða afhent á skrifstofu „Norður- lands” Eiðsvallagötu 18 á föstudag mill^ kl. 16:00 og 17:30 Norðurland. 3.46 Tökum að okkur nýlagnir i hús, viðgerðir á eldri raflögnum og raftækjum. RAFAFL SVF. Kynniö ykkur af- sláttarkjör Rafafls á skrifstofu félagsins, Barmahlið 4 Reykja- vík, simi 28022 og i versluninni aö Austur- götu 25 Hafnarfiröi, simi 53522. Blikkiðjan AsgarAi 7, Garóahreppi önnumst þakrennusmíði og uppsetningu —ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð. SIMI 53468

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.