Þjóðviljinn - 13.01.1977, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.01.1977, Blaðsíða 16
DJÖÐVIUINN Fimmtudagur 13. janúar 1977 ' Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er þægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaðsins i þessum simum Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla81482 og Blaöaprent81348. 81333 Einnig skal bent á heimasima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i simaskrá. Leikhúsfólkið frá Bretlandi á fundi meö forráðamönnum Þjóðleikhússíns i gær. Krá hægri: Hovhannes 1. Filikian, Ralph Koltai, Sveinn Einarsson, Jane Bond, Sigurjón Jóhannsson, yfirleikmyndateiknari, og Stefán Baldursson, aðstoðarleikstjóri. Shakespeare lika í Þjóðleikhúsinu Sótt í smiðju til Bretlands Rit væntan- legt um einangrun ibúðarhúsa- á vegum Rann- sóknastofnunar byggingar- iðnaðarins Þjóöviljinn hafði samband við Hákon Olafsson yfirverkfræðing hjá Rannsóknastofnun bygging- ariðnaðarins og spurðist fyrir um það hvortekki væri hægt að spara orku með þvi að einangra hús bet- ur. Hákon sagði að þetta væri ekki sama vandamál hér og hjá öðrum Norðurlandaþjóðum þar sem á næstu árum hefðum við umfram orku t.d. frá Sigöldu- virkjun og þvi hefðu islendingar ekki lagt eins mikið kapp á þetta og þær. Þó væri þetta stöðugt á döfinni og nú er Rannsóknastofn- un byggingariðnaðarins einmitt að gefa út rit um einangrun ibúðarhúsa sem kemur út eftir uþb. hálfan annan mánuð. A mánudaginn var gekkst Rann- sóknaráð rikisins fyrir ráöstefnu um orkumál og bar þetta einnig á góma þar. Hákon sagöi að gluggar væru veiku punktarnir i einangrun húsa og þrefalt gler mundi spara mikinn kyndingarkostnað og enn- fremur betri einangrun á loftum og útveggjum en þetta hefði allt sin fjárhagsiegu takmörk og miöaöist við verð og framboð á orku hverju sinni. A Norðurlöndum hefur verið lagt geysimikiö i rannsóknir á þessu svið og nú er þar td. fariö að reisa sjálfhitandi hús. Þau væru mjög vel einangruð og nýttu sólarorkuna til upphitunar. —GFr. Þrir breskir leikhúsmenn leggja Þjóðleikhúsinu lið við uppsetninguna á Lé konungi eftir Shakespeare, en æfingar eru hafnar fyrir skömmu. Leik- stjórinn, Hovhannes I. Pilikian, er einn af þekktustu yngri leik- stjórum i Bretlandi, og Ralph Koltai, leikmyndasmiður, er yfirleikmyndateiknari Royal Shakespeare Company I Lundúnum, og hefur hlotið heimsfrægð fyrir leikmyndir sinar. Með þeim vinnur að sýningunni Jane Bond, sem aöstoðar Koltai við leikmynda- gerðina og búninga scrilagi. Pelikian og Koltai hafa unnið saman að tveimur sýningum, sem báöar eru rómaðar, ödipús Sófóklesar og Ræningjunum eftir Schiller. í umsögnum blaða hefur Pilikian verið llkt við Grotowsky og Peter Brook að frumleika i leikstjórn. Koltai hefur gert leikmyndir fyrir um 100 uppsetningar I leikhúsi og óperuhúsum, aðallega 1 Bret- landi, en einnig i Bandarikj- unum, Astraliu og fl. stöðum. Hann fékk m.a. fyrstu verðlaun á alþjóðastefnu leikmynda- teiknara i Prag i fyrra. Hann var i 8 ár, fram til ’73, skóla- stjóri Theatre Design at The Central School of Design i Lundúnum. Hann er hér aðeins skamma hrið nú, og stjdrnar Jane Bond sviðsmyndagerð þar til hann kemur aftur. Frum- sýning er ráðgerð 2. mars. Lér konungur hefur aldrei verið fluttur hér á sviði áður, en þessi harmleikur Shakespeares hefur veriðfluttur i útvarp. Það er þýðing Helga Hálfdanar- sonar sem leikin verður. Stefán Baldursson er aðstoðarleikstjóri, Rúrik Haraldsson leikur Lé konung, Baldvin Halldórsson fiflið, Erlingur Gislason jarlinn af Gloster og Kristbjörg Kjeld, Anna Kristin Arngrimsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir dæt- urnar Goneril, Regan og Kordeliu. —ekh Skuttogari 1 smlöum. 12 nýir skuttogarar Einn af þeim kemur til landsins í dag Um þessar mundir eru 11 skuttogarar i smiðum fyrir Is- lenska útgerðaraðila og einn nýr togari kemur til landsins i dag; það crpólsk-smiðaðurskut- togari af minnigerðinni, sem Miðnes h.f. I Sandgerði fær. Hinir 11 togararnir eru ýmist i smiðum hér á landi, i Noregi eða i Póllandi. 1 Póllandi eru tveir skuttogarar i smiðum i Gdansk. Annar þeirra er fyrir vestmannaeyinga en hinn fyrir útgerðaraðila frá Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfossi. I Noregi eru i smiðum tveir skuttogarar fyrir Isbjörninn h.f. Þar er einnig i smiðum togari fyrir seyðfirðinga og annar fyrir ú t g e r ð a r f y r i r t æ k i á Stöðvarfirði. 1 Slippstöðinni á Akureyri er verið að smiða togara fyrir Þórð Óskarsson á Akranesi og annan fyrir Magna Guðmundsson á Ólafsfirði og eru þeir báðir smíðaðir frá grunni hér á landi, en þar er einnig verið að ljúka við smiði togara fyrir dalvik- inga en skrokkur þess togara var smiðaður i Noregi og siðan fluttur til Islands. 1 Stálvik er verið að smiða tvo togara, annar fer til Suðureyrar en hinn er fyrir aðila i Reykja- vik. —S.dór Byggðalínan formlega tekin í notkun Mikill kuldi olli erfiðleikum í prufukeyrslunni t fyrradag prufukeyrðu Raf- magnsveitur ríkisins I fyrsta sinn nýju rafmagnslinuna til Akureyr- ar og voru flutt þangað 4 mega- wött. Tilraunin tókst ágætlega, um tuttugu megawött fóru yfir Borgarfjörðinn en vegna mikils kulda noröan lands og vestan varð að ræsa dieselvélar siðari hluta dags til þess að ekki þyrfti að gripa tii varavéla á Akureyri. Voru dieselvélar settar I gang á Suðárkróki og Laxárvirkjun, en rafmagnið að sunnan var uppurið er þangað kom, vegna hinnar — en hjá Raf- magnsveitum ríkisins eru menn hœstánœgðir með rafmagns- flutninginn að sunnan miklu notkunar á leiðinni ikjölfar kuidans. Kári Einarsson hjá Rafmagns- veitum rikisins sagði að strengur- inn yfir Hvalfjörð gæti borið um 25 megawött eins og nú er ástatt, en af þeim fara um 6 til Akraness, sex á Snæfellsnes, og sex að Lax- árvatni, þegar kuldar eru miklir, en mörg hús eru rafmagnshituð. Byggðalinan var prufukeyrð áfram í gær, en i dag verður hún tekin formlega i notkun á Akur- eyri. —gsp ítalskir kommúnistar styðja tékkneska andófsmenn RÓM 12/1 Reuter — L’Unita, dag- blað Kommúnistaflokks Italiu, fordæmdi i dag árásir tékkóslóvakiskra yfirvalda á mannréttindaávarp þarlendra andófsmanna og þá, sem að ávarpinu standa. Blaðið vikur að stöðugum yfirheyrslum yfir andófsmönnum og heiftarlegri árás á þá i Rude Pravo, málgagni Kommúnistaflokks Tékkó- slóvakiu, i dag, og segir að af þessu megi glögglega marka, i hvaða anda og með hverskonar aðferðum tékkóslóvakisk yfirvöld hyggist snúast við þeim vanda- málum, sem tekin eru til meðferðar I ávarpi andófsmanna. Framkvæmdanefnd Kommún- istaflokks Italiu kemur saman siðar i dag til að ræða viðhorf sitt til þessa máls. — Yfir 280 tékkóslóvakar hafa nú undirritað mannréttindaávarpið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.