Þjóðviljinn - 12.02.1977, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.02.1977, Blaðsíða 16
NQBVIUINN Laugardagur 12. febrúar 1977 A&alsfmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum-. Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. @81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. fyrirhugaðri verksmið j u Græna byltingin í Laugarnesinu var Laugarne sb mótmæla Eins og skýrt var frá í blaðinu á f immtudaginn er ætlunin að leggja megin- hluta Laugarnestúnsins undir íðnaðarhús, þrátt fyrir það að 1974 var sam- þykkt i borgarstjórn að þetta svæði skyldi vera úti- vistarsvæði. Mannleg mistök Þegar Laugarnesbúum varð þetta ljóst var spurst fyrir um máliö hjá Þróunarstofnun Rvk. 25. jan. svarar Hilmar ólafsson bréfi ibúanna og segir þar, að þetta svæöi hafi allt frá árinu ’56 veriö ætlaö fyrir kjötiönaö og engin breyting hafi orðiö þar á. Þá segir Hiimar einnig aö um „mannleg mistök” hafi veriö aö ræöa, £,egar svæöiö var sýnt sem „grænt svæöi” i áætlun borgar- stjórnar um Umhverfi og útivist frá árinu 1974, og kveöst hann harma þessi mistök. Borgarstjórar skrökva ekki Eitthvaö finnst Laugarnes- búum þó skjóta hér skökku viö, þvi aö á hverfafundi meö borgar- stjóra I október var hann einmitt spuröur, hvaö gera ætti viö umrætt svæöi, og þá svaraöi hann spurningunni þannig: sbr. „frétt” af fundinum I Morgunbl. 2. nóv. 1976. Sagöi borgarstjóri „aö samkv. skipulagi og áætl. um umhverfi og útivist frá 1974 ætti ekki aö byggja á Laugarnessvæðinu. Væri gert ráö fyrir auðu og opnu svæöi þarna og þyrfti aö gera svæöiö aölaöandi i náinni framtiö. M.a. heföi veriö talaö um litinn golfvöll þarna.” Eftir þennan fund vorum viö ekki i vafa um aö nú væri endan- lega tryggt aö þessu svæöi yröi haldiö óbyggöu i framtiöinni, sagöi Kristján Jóhannsson einn af mörgum ibúum hverfisins, sem eru áhugasamir um aö vernda þennan blett. — Þetta er eina leiksvæöi barnanna I hverfinu, sagöi hann, en hins vegar er brýn þörf á aö laga þarna til svo aö börn og fullorönir geti notaö túnið til útivistar. Nú er þaö allt I órækt og njóli og annaö illgresi er fariö aö teygja sig langt út fyrir túniö sjálft. Misjöfn afkoma togaranna Hvað veldur? akureyringar svara fyrir sig Vestfirðingar og Við lestur á yfirliti þvi sem Liú hefur gefið út um togara- afiann sl. ár vakna ýmsar spurningar. Til dæmis sú hvers vegna togarar vestfirðinga skara iangt fram úr öðrum tog- urum af minni gerð og standa stóru togurunum fyllilega jafn- fætis. Einnig vekur athygli hversu mikill munur er á þvi hve hátt verð er greitt fyrir afl- ann. Viö lögöum fyrri spurninguna fyrir Jón Pál Halldórsson frkv- stj. hraöfrystihússins Noröur- tanga á ísafiröi og fer svar hans hér á eftir. — A þessu er nú engin einhlit skýring. En þaö má tina til ýmis atriöi eins og þaö aö skipin hafa reynst mjög vel og á þeim er samhentur og duglegur mann- skapur. — En skiptir þaö ekki höfuö- máli hve stutt er á miöin fyrir ykkar skip? — Ég vil nú ekki gera mikiö úr þvl. Viö þurfum t.d. aö sækja á miöin fyrir sunnan og vestan land verulegan hluta ársins og þangað er ekki styttra fyrir okk- ur en aöra. Svo þetta jafnar sig upp. Hins vegar höfum viö lagt áherslu á að hafa túrana stutta og aö skipin komi inn um leiö og allir kassar hafa veriö fylltir. Þaö hefur náöst góö samvinna um þetta þótt þaö sé auövitaö sárt fyrir skipstjóra aö fara úr góöu fiskiríi. Ég get nefnt sem dæmi aö af afla Guðbjargar komu aöeins 200 tonn laus á dekki, allt hitt var i kössum. Þá höfum viö einnig lagt áherslu á aö flýta afgreiöslu skipanna i landi þegar góöur afli er og gengur hún fljótar fyrir sig hér en viöa annars staöar. En þaö stuölar einnig aö góöri afkomu skipanna aö þaö er fariö vel meö aflann, hann er allur isaöur i kassa og viö fáum gott mat fyrir hann. Loks má nefna þaö aö uppistaöan i afla okkar togara er þorskur og litið af veröminni fiski. En sem vestfiröingur get ég ekki setiö á mér aö segja aö þaö sé engin nýlunda aö vestfiröing- ar skari fram úr i aflabrögðum. Margir af toppmönnum togara- flotans hafa löngum veriö frá Vestfjöröum og má þar nefna menn eins og Sigurjón Stefáns- son, Pál Pálsson, Martein Jónasson og Bjarna Ingi- mundarson. Þegar þessir menn voru upp á sitt besta áttu vest- firðingar enga togara svo þeir uröu að sækja annaö. En nú er- um viö svo heppnir aö eiga góö skip, sagöi Jón Páll aö lokum. 3 ástæður En ef litiö er til stærri togar- ana kemur i ljós aö togarar út- geröarfélags akureyringa sýna jafnbestu útkomuna á st. ári. Meöalverðið sem þeir fengu fyr- ir aflann var 50.24 kr. en hjá reykvisku og hafnfirsku togur- unum 44.11 kr. Viö spuröum Vil- helm Þorsteinsson frkvstj. ÚA hvaö ylli þessu. — Þaö er einkum þrennt. 1 fyrsta lagi er aflaskiptingin öðruvisi hjá okkur en hinum stóru togurunum, meiri þorsk- ur. 1 ööru lagi er þaö aö á siö- asta ári var svo til allur afli tog-' aranna héöan isaöur i kassa en þaö þýöir 8% hærra verö fyrir 1. flokks fisk. 1 þriöja lagi er þaö aö betra hráefni fæst úr fiski sem settur er I kassa á réttan hátt. Þannig fæst betra mat og stærri hluti aflans fer I 1. flokk. — Hvernig eru akureyringar settir hvaö varðar fjarlægöina á miöin? — Viö sækjum mest á miðin úi af Vestfjöröum og þar suöur- af, Vikurál og Breiðafjörð. Viö veiöum sáralitiö hér fyrir Norö- urlandi en förum hins vegar suöur fyrir land á vertlðinni. Annars er alls staöar veriö aö loka svæöum fyrir togurunum. Þaö er búiö aö loka mörgum svæöum úti fyrir Noröurlandi og noröanveröum Vestfjöröum og sama máli gegnir á hrygningar- svæöunum fyrir sunnan land, sagöi Vilhelm Þorsteinsson. —ÞH Yfir 600 manns mótmæla Og nú vilja ibúarnir fá úr þvi skorið hver fer meö rétt mál, Birgir borgarstjóri eða Hilmar hjá Þróunarstofnun og ekki aöeins þaö, þeir vilja aö svæöiö veröi skilyröislaust óbyggt og lagfært. Þess vegna var gengist fyrir undirskriftasöfnun meöal fólks i Laugarnesi til áréttingar þessum kröfum og segir m.a. I texta undirskriftalistan?: „Þar sem hér er um að ræöa eitt fegursta svæöi Reykjavikur- borgar og nær að sjó, hafa ibúar hverfisins, sem búa i stórum blokkum og hafa þvi litiö athafnasvæöi til útiveru, vænst „Samkv. skipulagi og áætlun um umhverfi og útivist frá 1974 á ekki að byggja á Laugarnes- svæðinu. Þarna er gert ráð fyrir auðu og opnu svæði", segjr Birgir. Þetta er Laugarnestúnið og gamli Laugarnesbærinn sem e.t.v. hverfur undir verksmiðjur og malbik bráðlega. Þarna eru börn og ungiingar að leik bæöi vetur og sumar, þvi að ekkert annaö leiksvæöi er ætlað stálp- uðum börnum i hverfinu. Auk þess er Laugarnesið mjög sögufrægur staöur, þvf þar eyddi Hallgeröur langbrók Höskuldsdóttir siðustu ævidögunum. 1 Laugarnesi var lengi biskupssetur og þar var Jón Sigurðsson lengi ritari Stein- grfms biskups og hafði þar aðgang að góðu bókasafni, sem kom honum að miklu gagni isjálfstæöisbaráttunni. Og þarna bjó llka útgerðarmað- urinn sögufrægi Þuriður formaður. Hverjum eiga Laugar- nesbúar að taka mark á? þess á undanförnum árum, aö umrætt svæöi yröi lagfært og gert vistlegra. Undirritaöir ibúar i Laugarnesi vilja hér meö mót- mæla öllum byggingafram- kvæmdum á umræddu svæöi.” Undirskriftasöfnunin gekk frá- bærlega vel, svo til allir sem leitað var til skrifuöu undir og I gær gengu þeir Finnur Berg- sveinsson, Þormóöur Guö- mundsson, Kristján Jóhannsson og Jens Hjálmarsson á fund borgarstjóra, Birgis Isl. Gunn- arssonar, og afhentu honum undirskriftir 630 ibúa Laugar- neshverfis. _hs Fjórmenningarnir sem gengu ád fund borgarstjóra i gær fyrir utanl borgarskrifstofurnar í Pósthús- stræti. Frá vinstri eru þeir Finnur Bergsveinsson, Þormóður Guð- mundsson, Kristján Jóhannsson og Jens Hólmgeirsson. Mynd: —gsp „Þetta svæði hefur allt frá árinu 1956 veriö ætl- að fyrir kjötiðnað. Það hefur ekki verið gerð nein breyting á því", segir Hilmar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.