Þjóðviljinn - 20.02.1977, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 20.02.1977, Qupperneq 17
Sunnudagur 20. febrúar 1977 ÞJÓDVILJINN — SiÐA — j- Leiðin til samvinnuverslunar Samvinnumenn munu halda upp á daginn i dag af þvi aö 75 ár eru liöin siöan fyrsti visirinn aö Sambandi Islenskra samvinnufé- laga sá dagsins ljós, ekki af þvi aö 95ár eru liöin frá stofnun.Kaupfé- lags þingeyinga. Mér veröur þvi vonandi ekki virt til veisluspjalla þó aö ég noti þetta tækifæri til aö hrófla svolitiö viö nokkrum al- mennt viöurkenndum hugmynd- um varöandi stofnun Kaupfé- lags þingeyinga og upphaf sam- vinniiireyfingar á Islandi. Þaö mun flestum kunnugt sem á annaö borö gera sér einhverja rellu út af þessum hlutum aö Kaupfélag þingeyinga var fyrsta kaupfélagiö , og af þvi hefur fólki hætt til aö draga þá ályktun aö samvinnustarf og samvinnu- hreyfing Islendinga eigi upphaf sitt aö rekja til stofnunar þess 20. febrúar 1882. 1 framhaldi af þvi hafa menn svo velt þvi fyrir sér hvort þingeyingar hafi þekkt til útlendra samvinnufélaga þegar þeir stofnuöu félag sitt eöa hvort þeir hafi fundiö samvinnuskipu- lagiö upp af brjóstviti sinu. Jón Sigurösson i Ystafelli var til dæmis á siöarnefndu skoöuninni þegar hann skrifaöi um stofnfund félagsins i tilefni af fimmtugsaf- mæli þess: ,,Án þess aö nokkur fundar- manna heföi hugmynd um aö til væru sviplik félög erlendis var undirstaöan hin sama og i fé- lögum þeim I Englandi og Danmörku sem náö höföu mikl- um þroska og höföu hinar si- gildu regiur hinna fátæku, ólæröu vefara i Rochdale til fyrirmyndar”. Hér mun þvi hins vegar haldiö fram aö ekkert verulega nýtt hafi oröiö til á Islandi viö stofnun Kaupfélags þingeyinga nema nafniö kaupfélag. Af þvi leiöir a& afar litlu máli skiptir hvort eöa hve mikiö þingeyingar þekktu til samvinnustarfs i öörum löndum. Þeir höföu nægar fyrirmyndir innanlands. Ekki ætla ég þó aö finna annaö betra upphafsár samvinnuhreyf- ingarinnar á Islandi. Arsetningar eru nefnilega oftast lélegar upp- bætur fyrir raunverulega sögu, þó aö þær séu nauösynlegar I sögu- legri frásögn. Einar sér munu ársetningar notaöar i tvennum tilgangi. Þær gefa fólki tækifæri til aö halda upp á afmæli og gera sér glaöan dag, og hef ég sist nokkuö á móti þvi. Lika eru þær notaöar til aö kenna þær krökkum i staöinn fyrir sögu, og þaö ætti liklega aö varöa viö lög. En i hvorum tilganginum sem er kem- ur ártaliö 1882 aö eins góöu gagni og hvert annaö þegar talaö er um upphafiö aö samvinnuhreyfingu okkar. Saga er hins vegar allt annaö. Hún fjailar um tengsl milli fólks, milli fólks og hluta, fólks og jaröar, fólks og sauöfjár og svo framvegis. Þar dugar ekkert aö benda á fjögurra stafa tölu og segja: Hér byrjaöi samvinnu- hreyfingin. Eins og verkalýds- félög í kapítalískum samfélögum Um þaö bil hálfri öld áöur en Kaupfélag þingeyinga var stofn- að — og ef til vill ennþá fyrr — tóku islenskir bændur aö slá sér saman i hreppi eða kirkjusókn og semja sameiginlega við kaup- menn um verö á vörum. Þeir lögöu eölilega einkum kapp á aö gera ákveönar kröfur um verö á söluvörum sinum, og þvi hef ég vaniö mig á aö kalla félög af þessu tagi verökröfufélög. Sam- taka af þessari gerö er einna fyrst getiö I grein um verslun eftir Jón Sigurösson forseta I Nýjum fé- lagsritum áriö 1843. Þar segir: „Meöal samtaka þeirra sem vel mætti takast eins og nú stendur og heppnast hafa sums staöar er þaö aö heilar sveitir og héruð taki sig saman til verslunar og kjósi menn til að standa fyrir kaupum af allra hendi fyrir sanngjarnliga Þessi mynd var tekin eftir fund í Sambandshúsinu árið 1923. Tekist hefur að grafa upp nöfn eftirfar- andi manna: I. Jón Guðmundsson, cndursk., 3. Þorsteinn Jónsson, Reyðarfirði, 4. Einar Árnason á Eyrarlandi. 5. Sig- urður Kristinsson. 6. Ingólfur Bjamason frá Fjósa- tungu, 7. Jón Árnason, 8. Sigurður Bjarklind, 9. Jón Jónsson í Stóradal, 10. María Jónsdóttir, starfs- stúlka hjá Sambandinu. II. Sigursteinn Magnússon. 12. Guðbrandur Magnússon, 13. Stefán Rafnar, 15. Þórólfur í Baldursheimi, 21. Þórhallur Sigtryggs- son, 22. Gísli Magnússon í Eyhildarholti, 24. Ingi- mar Eydal, 27. séra Sigfús á Sauðárkróki, 29. Vil- hjálmur Þór, 31. Sigurður Steinþórsson í Stykkis- hólmi, 33. Guðmundur i Ási í Vatnsdal, 34. Sig- urður Jónsson á Arnarvatni, 35. Jón Gauti Péturs- son, 3G. Björn Kristjánsson, Kópaskeri, 37. Erlingur Friðjónsson, Akureyri, 38. Davíð Jónsson á Kroppi, 39. Jón Ólafsson í Króksfjarðarnesi, 42. Svavar Guð- mundsson, 48. Ólafur Methúsalemsson, 49. Þorleif- ur Jónsson, Hólum, 50. Hallgrímur Sigtryggsson, 51. Tryggvi Þórhallsson, 52. Árni Eylands, 57. Jón Jakobsson, 58. Jónas Jónsson frá Hriflu, 59. Tóm- as Jónsson, Hofsósi. þóknun”. Ekki nefndi Jón i þetta sinn hvar slik samtök heföu starf- aö, en seinna kom fram i grein eftir hann aö þau heföu veriö til i Rangárvallasýslu um 1830 og i Skaftafellssýslu liklega um svip- aö leyti. Ekki er vitað hvort hér voru á ferðinni formleg félög meö kjör- inni stjórn. Fyrstu verslunarfélög sem meö vissu voru stofnuö á formlegan hátt og stjórnaö meö aðferöum fulltrúalýöræöis komu upp noröur I Þingeyjarsýslu haustiö 1844. Annaö þeirra náöi yfir Fnjóskadal en hitt var stofn- að I Ljósavatnshreppi, sem náöi þá yfir Báröardal og Köldukinn. Miklu meira er kunnugt um fé- lagiö I Fnjóskadal. Meöal annars eru til mjög rækileg lög sem þvi voru sett, I fimm köflum og 48 greinum. Þar kemur fram aö aðaltilgangurinn var aö semja viö kaupmenn um verölag, en jafn- framt voru I lögunum ákvæöi um vöruvöndun félagsmanna og ráö- stafanir til aö los'a af þeim skuldaklafa kaupmanna. I þvi skyni var skuldlausum félags- mönnum gert skylt aö lána skuld- ugum félögum sinum vaxtalaust til þess aö þeir gætu greitt versl- unarskuldir. Skuldugir félags- menn uröu aö sinu leyti aö sætta sig viö aö takmarka kaup á ó- þarfavörum samkvæmt ráöum forstööumanna félagsins. I þetta félag gengu i upphafi um 40 bænd- ur eða um tveir þriöju hlutar bænda á félagssvæöinu. I heimildum frá næstu áratug- um skjóta upp kollinum svipuö fé- lög viös vegar um land. I Reykja- vlk var stofnaö verslunarfélag áriö 1848, og má sjá greinilega áhrif frá verslunarfélagi fnjósk- dæla I lögum þess og skipulagi. A áratugunum milli 1850 og 1870 verður vart viö verökröfufélög i öllum landsfjóröungum, og hefur þó aldrei veriö gerö nein skipuleg leit aö þeim i heimildum. Ég hef hins vegar reynt aö tina saman öll dæmi um verökröfufélög i Suður- þingeyjarsýslu. Sú leit hefur leitt til þeirrar niðurstööu aö I sumum sveitum hafi þaö veriö venja frekar en hitt aö bændur versluöu I samlögum og semdu sameigin- lega um verðlag viö kaupmenn. Vel má vera aösvo hafi veriö viöa um land, þvi tæpast er nokkur sérstök ástæöa til aö ætla aö þing- eyingar hafi skaraö fram úr öörum I verslunarfélagsskap um þetta leyti,. Arnór Sigurjónsson hefur skrif- að um nokkur þessara verökröfu- félaga, og þar benti hann á aö þau störfuöu i rauninni nauðalikt verkalýðsfélögum I kapitaliskum samfélögum. Verkamenn taka sig saman um aö selja vinnu sina i félagi til þess að vega upp á móti auövaldi atvinnurekenda. A sama hátt tóku bændur sig saman um aö bjóöa kaupmönnum af- rakstur vinnu sinnar I einu lagi til þess aö vega upp á móti ofurvaldi þeirra. Einn og einn bóndi gat ekki ógnaö atvinnu kaupmanns, en bændur heillar sveitar gátu gert það ef þeir tóku sig saman. Árángur verökröfufélaganna mun lika aö ýmsu ieyti hliöstæöur árangri verkalýösfélaga sem ein- skoröa starf sitt viö kaupgjalds- baráttu. 1 fyrstu tókst þeim aö þoka veröi á söluvörum bænda talsvert upp á viö. I Fnjóskadal var sagt að verslunarskuldir fé- lagsmanna hefðu lækkaö um full- an þriöjung á fyrsta starfsárinu og félagsmenn hagnast um hátt aö þriöja hundraö rikisdala. En kaupmenn komust fljótt upp á lag meö aö láta koma krók á móti bragöi. Þeir fundu tvo króka, og eru báðir sviplikir þeim sem at- vinnurekendur beita gegn verka- lýösfélögum á okkar timum. 1 fyrsta lagi beittu þeir samtökum gegn samtökum bænda og komu sér saman um hvaöa kosti þeir skyldu bjóöa. I ööru lagi fóru þeir aö eins og atvinnurekendur sem velta kostnaöi af kauphækkunum út i verðlag þar sem þaö bitnar mest á launþegum. Kaupmenn gáfu oft eftir og hækkuöu verö á söluvöru bænda, en jafnframt hækkuðu þeir álagningu á út- lendar vörur aö sama skapi og bættu sér þannig skaöann. Af þessu leiddi veröbólguþróun sem einkennir mjög utanlandsvið- skipti islendinga á 19. öld. Verö- kröfufélögin leiddu þvi ekki til mikilla hagsbóta þegar fram i sótti, og þvi var ekki heldur látið staöar numiö viö þau. Almannahlutafélögin brugöust Eftir aö verökröfufélögin höföu sýnt hve skammt þau dugöu voru viöa um land gerðar umfangs- mikiar tilraunir til aö koma á fót hlutafélögum um verslun r.ieb al- mennri þátttöku bænda. Hreyf- ing verslunarhlutafélaganna reið Kramhald á bls. 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.