Þjóðviljinn - 20.02.1977, Síða 25
Sunnudagur 20. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25
HVER VERÐUR
NÆSTI
ÁSKORANDI?
Nú þegar rétt rúmlega vika er
þangab til áskorendaeinvigin
hefjist hafa menn liklega aldrei
rennt jafn blint I sjóinn i getgát-
um sinum varöandi næsta
áskoranda. Um úrslit einvlg-
anna i fyrsta umgang er þó auö-
veldara aö spá. Þannig tel ég
Mecking sigur visan I einviginu
gegn Polugajewski. Þaö sem
staöfestir þessa skoðun er sú
glfurlega vinna sem brasiliski
skákprófessorinn innir af hendi
i undirbúningi undir hverja
keppni. A millisvæöamótinu i
Manila I sumar var aldrei nein
spurning hver færi meö sigur af
hólmi. t svo til hverri einustu
skák bryddaöi brasiliumaöur-
inn, uppá nýju i viökomandi
byrjun. Mecking tekur ekki oft
þátt I skákkeppnum en undirbýr
sig þeim mun betur. Þaö ætti
engum aö koma á óvart ef hann
ynni sér réttinn til aö skora á
heimsmeistarann. Viövikjandi
einvigi þeirra Spasskys og
Horts er erfitt aö sætta sig viö
annað en sigur Spasskys. Hann
mun vera I góöri þjálfun um
þessar mundir t.d. sigraöi hann
bandariska stórmeistarann
Kvalek 4 - 2 I einvigi I V-Þýska-
landi fyrir stuttu. Nái Spassky
sér á strik er enginn liklegri til
aö vinna áskorendaeinvigin en
einmitt hann. Þeir Hort og
Spassky hafa teflt 5 skákir sin á
milli og hefur Spassky unniö
eina en hinum hefur lokiö meö
jafntefli. Skák þessi var tefld á
alþjóöamóti i Tallin áriö 1975, en
þar varð Spassky I 2-3 sæti
ásamt Friörik óiafssyni á eftir
Paul Keres sem nú er látinn:
Hvitt: B. Spassky (U.S S.R.)
Svart: V. Hort (C.S.S.R.).
Slavnesk vörn
1. d4 d5
2. c4 c6
3. Rc3 Rf6
4. Rf3 dxc4
5. a4 Ra6
6. e4 Bg4
7. Bxc4 e6
(Ekki 7. — Rb4 8. Re5.)
8. 0-0 Rb4
9. Be3 Be7
10. h3 Bxf3
11. Dxf3 Rc2
12. Hadi 0-0
13. Hd2 Rxe3
14. Dxe3 Da5
15. f4 Db4
16. Ba2 c5
17. d5
(Annar möguleiki var 17. e5 t.d.
17. — cxd4 18. Hxd4 Bc5 19. Hxb4
Bxe3+ 20.Kh2 Rd7 21. Hxb7 Rc5
með gagnfærum.)
17. - c4
18. Kh2
(Auövitað ekki 18. dxe6 Bc5, eöa
18. d6 Bxd6 19. Hxd6 Dxd6 20. e5
Rd5 o.s.frv.)
18. - exd5
19. e5 Re4
20. Hxd4
(Ekki 20. Rxd5? Rxd2! o.s.frv.)
20. - Rxc3
21. Dxc3 Dxa4
22. Bxc4 Hac8
23. b3 Dc6
24. Df3 a6
25. f5 Dc7
(25. - b5 væri best svarað meö
26. f6!)
26. Dg3 b5
27. Bxb5 axb5
28. f6 g6?
(Mun sterkara var 28. - Bxf6 t.d.
29. exf6 Dxg3+ 30. Kxg3 Hc3+
31. Hf3 Hxf3+ 32. Kxf3 gxf6 33.
Hxb5 He8 og staöan er liklega
jafntefli.)
29. fxe7 Hfe8
30. Hxb5 Hxc7
31. Hdl Dc2
(Hér var timahrakið i algleym-
ingi. Svartur hefði best leikiö 31.
— Hce8, sem heidur i horfinu.)
32. Hbd5 Hce8
33. b4 Db2
34. Hld4 De2
35. b5 Hxe5
36. b6 Hxd5
37. Hxd5 Db2
38. Dc7! He2
39. b7! Hxg2+
40. Khi
(Þaö er næsta ótrúlegt aö svart-
ur geti ekki notfært sér kóngs-
stööu hvits. Staöa svarta kóngs-
ins gerir út um taflið þvi hvitur
hótar aö vekja upp með skák.)
40. - Kg7
41. b8 (D)
Svartur gafst upp.
Þeir Petrosian og Kortsnoj
heyja nú sitt þriöja einvigi. Þeir
áttustfyrst viö 1971, og lauk ein-
viginu með frægum sigri
Petrosians sem vann eina skák
en niu uröu jafntefli. Ariö 1974
mættust þeir aftur en eftir 5
skákir lagöi Petrosian niöur
laupana enda tveim vinningum
undir. Þeir báðir hafa komiö
mikiö viö sögu heimsmeistara-
keppninnar siöustu árin þó eink-
um Petosian sem hefur verið
samfleitt i innsta hring keppn-
innar frá 1953, og er ekki séö
fyrir endann á þátttöku hans
ennþá.
Þeir Larsen og Portisch hafa
einnig teflt einvigi áöur. Þaö
var áriö 1968 liöur I kandidata-
keppninni sem Spassky siöar
vann. Einvigiö sem fram fór i
Porec Júgóslaviu var hiö
skemmtilegasta. Larsen náöi
snemma tveggja vinninga for-
skoti, en meö mikilli hörku náöi
Portisch aö jafna. Þegar siöasta
skákin fór fram var staöan jöfn
4.5 v - 4.5 v. Viö skulum nú lita á
þessa mikilvægu skák:
Hvitt: B. Larsen (Danmörk)
Svart: L. Protisch (Ungverja-
land)
Vinartalf.
1. e4 e5
2. Rc3 Rc6
3. Bc4
(Larsen leikur kóngspeöi ekki
oft, en þegar svo ber undir reyn-
ir hann aö sniðganga vinsælustu
byrjanirnar. Þessa byrjun sem
er mjög sjaldséð hefur hann oft
notaö meö góöum árangri.)
3. - Rf6
4. d3 Ra5
5. Rge2
(I 8. skák þessa einvigis lék
Larsen 5. Bb3 en eftir: 5. - Rxb3
6. axb3 d5 7. exd5 Bb4 8. Rf3
Rxd5 9. Bd2 Rxc3 10. bxc3 Bd6
11. 0-0 0-0 12. Rg5 F5 13. Hel Df6
náöi sv. frumkvæöinu.)
Framhald á næstu siðu
Utog
suður um helgina
Flugfélag íslands býður upp á Út á land, til dæmis í Sólarkaffið
sérstakar helgarferðir allan veturinn fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár-
fram undir páska: Ferðina og dvöl á króki eða þorrablót fyrir austan, til
góðum gististað á hagstæðu verði.
keppni í skák eða í heimsókn til
kunningja. Víða er hægt að fara á
skíði.
Suður til Reykjavíkur vilja flestir
fara öðru hverju. Nú er það hægt
fyrir hóflegt verð. Þar geta allir
fundið eitthvað við sitt.hæfl til að
gera ferðiná ánægjulega. Margir hafa
notað helgarferðirnar og kunnað vel
að meta.
Gerið skammdegið skemmtilegt!
Leitið upplýsinga hjá skrifstofum
og umboðum um land allt.
FLUCFÉLAC ÍSLANDS
/NNANLANDSFLUG