Þjóðviljinn - 20.02.1977, Page 30
30 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. febrúar 1Ú77
Leikfélag Kópavogs
Glataðir
snillingar
eftir William Heinesen
og Caspar Koch.
Sýning sunnudag
kl. 20,30.
Miðasala opin frá
kl. 17,00
Næst síðasta sinn
tfoófuba
LANG ODÝRUSTU
20" Htsjónvarpstækin á markaðnum
Vegna hagstæðra samninga við Toshiba Japan getum við boðið nokkurt
magn 20“ iitsjónvarpstækja fyrir
AÐEINS KR. 213,915
Þetta nýja glæsilega litsjónvarpstæki er tryggir úrvals svart-hvíta mynd
er búið fjölda tæknilegra nýjunga: jafnt og litmynd.
line-in myndlampi Blackstripe- kerfi Sjálfvirk afsegulmögnun.
Árs ábyrgð
Greiðsluskilmálar
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A
Simi 16995
Útsölustaðir úti á landi:
Kaupfélag Borgfirðinga
Borgarnesi.
Húsavik.
Karl Hálfdánarson.
Bolungarvik: Einar Guðfinns-
son
Hvammstangi: VSP
Sauðárkrókur: Kf. Skagfirðinga
Akureyri: KEA
Húsavik: Kf. Þingeyinga
Vestmannaeyjar: Kjarni.
Mótorhjól
Framhald af bls. 3.
19 þúsund krónum á viku —
hvorki meira né heldur minna.
Það er þó nokkru lægra kaup en
meöalkaup t.d. i Leylandbila-
verksmiðjunum, sem eru þarna i
grenndinni. Aöeins fram-
kvæmdastjórinn og fjármála-
stjórinn, sem verkamennirnir
verða að ráða sérstaklega, fá
hærra kaup. Allir aörir hafa sama
kaup.
Og þótt kaupið sé ekki hátt, þá
er það einmitt þessi jöfnuður sem
tryggir Meriden aödráttarafl.
Hafnarverkamenn sem náma-
menn hafa látiö I ljós áhuga á
þessari reynslu. Eða eins og áð-
urnefndur Denis Johnson sagöi:
,,Ef viö lifum af, þá gæti okkar
fordæmi oröið stefnumarkandi”.
Ef viö lifum af. Þaö er ekki
nema von, aö svo sé að oröi kom-
ist. Þvi hvaö eftir annað hefur það
gerst að hárkarlar fjármála-
heimsins og hægrisinnaöir stjórn-
málamenn hafa lagst á eitt til að
koma fyrir kattarnef tilraunum
sem þessum.
Á dagskrá
Framhald af bls. 4
sér ihaldið i þvi að iáta herinn
fara?” Eða: „Býr hér eitthvað
undir?”
Helst hallast ég nú að hinu
siðasttalda, hér er eitthvað
gruggugt á seyði!
Sá tilgangur, sem ég óttast að
undir búi, er illur, jafnvel enn
verri en að hafa hér herstöð i
Keflavik.
A undanförnum árum hefur
skuldasöfnun landsmanna við
útlönd farið hraðvaxandi, ekki
sist i tiö núverandi rikisstjórn-
ar.
Gifurleg lán hafa verið tekin
erlendis til að fjármagna kaup
óhagkvæmra fiskiskipa; til
óhagkvæmra virkjana, hvort
sem náttúran eða annaö veldur;
og til uppbyggingar stóriðju,
þar sem landsmenn verða að
greiða niður raforkuna fyrir
fjölþjóöahringina, skrattanum
til skemmtunar.
Skuldabyrðin af þessu öllu er
nú komin á fimmta hundrað
þúsund á herðar hvers manns-
barns i landinu og vex stöðugt.
Erlend stóriðjufyrirtæki seilast
hingað með sifellt meiri ákafa.
Ef svo fer sem fram heldur
verða senn á þjóðinni aðrar
viðjar og seigari en herstöðin i
Keflavik. Þær verða e.t.v. ekki
eins áþreifanlegar og hún, en
hálfu verri fyrir bragðið.
Gróðaöflin i landinu sjá sér leik
á borði. Þau gefa i orði kveðnu
undir fótinn með það aö herinn
verði látinn fara,en galopna um
leiö fyrir fjölþjóðahringina
bakdyramegin. I skjóli stóriðj-
unnar og skuldabyröarinnar
verða ihaldsöflin fastari i sessi
en nokkru sinni fyrr.
Þetta óttast ég að búi undir.
Sú hugsun, sem ég vil helst ekki
hugsa til enda, er, að Alþýðu-
bandalagið verði fyrir þeirri
ógæfu að ganga til samstarfs viö
Sjálfstæöisflokkinn á þeirri
forsendu að herinn verði látinn
fara. I staðinn verði gerðar til-
slakanir á beim kröfum. eorn
vinstri menn gera sem torsendu
frekari stóriðju i landinu. Þvert
á móti veröur aö herða þær
kröfur.
Ég vona, að ótti minn sé
ástæðulaus, fjarstæðukenndur
hugarburður. Þetta er einungis
sett hér á dagskrá öörum til
ihugunar.
Samyinnumenn
Framhald af bls. 16.
að inn i lög margra kaupfélaga
voru sett ákvæði um aö starfs-
menn væru ekki kjörgengir i
stjórn. Nú er það gagnstæða uppi
hjá ýmsum, sem telja að starfs-
menn ættu aö kjósa fulltrúa i
stjórn. Sá gullni meðalvegur var
þræddur I fyrra á aöalfundi Sam-
bandsins að ályktað var að tveir
fulltrúar starfsfólks, kosnir af
þvi, skyldu eiga sæti á stjórnar-
fundum, með málfrelsi og tillögu-
rétti. Þetta fer vel af staö og
væntum við góðs af þessari til-
högun.
Þá sýnir mér vera tilhneyging i
þá átt að nema úr samþykktum
bann viö þvi aö starfsmenn séu
kjörgengir i stjórn.
Finnast í öllum flokkum
Sumum finnst samvinnuhreyf-
ingin eiga of vingott við Fram-
sóknarflokkinn.
— Framsóknarflokkurinn hef-
ur alltaf tekiö mjög eindregna af-
stöðu meö samvinnuhreyfing-
unni. Kjarninn i þvi liöi, sem
stofnaði hann, voru áhugamenn i
samvinnuhreyfingunni. Hug-
sjónatengsl eru þarna á milli og
samleið a samvinnubrautinni.
Er ekki best aö vera hreinskil-
inn og benda á, aö kannski er
þetta af eitthvað svipuðum toga
spunniö og þaö, að þeir I Alþýöu-
sambandinu eiga fremur vingott
viö suma flokka en aöra og þeir I
Verslunarráöinu og kaupmanna-
samtökunum sömuleiðis, að
manni skilst.
Þetta raskar ekki þvi, að góða
samvinnumenn og góða verka-
iýðssinna er að finna i öllum
flokkum og aö menn veröa aö
vinna saman heils hugar i stéttar-
félögum og samvinnuhreyfing-
unni, hvaö sem öörum viöhorfum
liður.
Margt bíður
úrlausnar
— Viltu benda á einhver verk-
efni innan samvinnuhreyfingar-
innar, sem þú telur sérstaklega
brýnt að sinna?
— Verkefnin eru mörg og brýn
og á þeim mun aldrei verða þurrð
hjá samvinnumönnum. Ég hefi
hér minnst á nokkur: eflingu
fræðslu- og féiagsstarfsemi, lausn
á vandkvæðum dreifbýlisverslun-
ar, aukningu iönreksturs, svo
nokkuö sé nefnt.
Hér vil ég þó auka þvi við i lok-
in að eittbrýnasta verkefniö er aö
efla samvinnustarfiö og sam-
vinnuverslunina i Reykjavik og
grennd. Af þvi gæti leitt lækkun
vöruverös og það er kjarabót,
sem ekki hleypur frá mönnum.
—mhg