Þjóðviljinn - 08.03.1977, Síða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 8. mars 1977
afnota- og umráöarétti, sem
varnarliöiö fékk yfir skýlunum
1951”!!
Og Einar bætt viö: „Þá viö-
geröaraöstööu, sem íslensku
flugfélögin nú hafa á Kefla-
víkurflugvelli hefur varnarliöiö
látiö þeim i té i ööru húsnæöi en
þessum skýlum.”!
Einar sagöi siöan, aö Flug-
virkjafélag Islands hafi um
skeiö haldiö uppi gagnrýni á
jViökomandi yfirvöld vegna
' slæms aöbúnaöar félagsmanna
sinna á vinnustaö, og teldi
félagiö aö af þeim sökum vildu
engir læra starfiö og f jölskyldur
flugvirkja hrektust úr landi, en
þjóöarbúiö tapaöi stórfé vegna
flugvélaviögeröa erlendis.
Þá gat ráöherra þess, aö flug-
virkjafélagiö hafi látiö Hagvang
h.f. taka saman skýrslu um
þjóöhagslegt tjón af þessum
völdum. Þessa skýrslu hafi hins
vegar forystumenn Flugleiöa
h.f. ekki viljaö viöurkenna og
hafi Flugleiöir fengiö fyrirtækiö
Dixon Speas til að gera alls-
herjarúttekt á viðhaldsmálum
Flugleiöa hér á Islandi sem og
erlendis. Sú skýrsla er ókomin.
Aöstaöa á Keflavikurflugvelli
er vart fyrir hendi til viðhalds
flugvélum, sagöi ráöherra,
nema byggö veröi ný flugskýli.
— Hvort bygging flugskýla sé
hlutverk rikisins, það er svo
önnur saga.
Hefur oröiö aö ráöi aö utan-
rikisráöuneytiö, samgöngu-
ráöuneytið og aörir viökomandi
aöilar tilnefni menn í nefnd,
sem formlega gangi frá áliti um
þaö mál og fleiri þessu aö lút-
andi. Mun sú nefnd væntanlega
hefja störf á nætunni, og hafa
flugvirkjar þegar tilnefnt full-
trúa i nefndina, en Flugleiðir
ekki.
Herinn heldur flug-
skýlum sem ríkid á
Engin
aðstaða til
flugvéla-
viðgerða á
Keflavíkur-
flugvelli
I síðustu viku svaraði
Einar Agústsson, utan-
ríkisráðherra, á fundi
sameinaðs þings fyrir-
spurn frá Jóni Skaftasyni
um viðgerða- og viðhalds-
aðstöðu á Keflavíkur-
f lugvelli.
Spurt var hvað liöi
framkvæmd þingsályktunartil-
lögu um þessi mál sem
samþykkt var á Alþingi 11.
mars_ i fyrra.
Utanríkisráðherra sagði aö i
sumar hafi utanrikisráöuneytiö
og samgönguráöuneytiö tilnefnt
Frá Keflavlkurflugvelli.
sinn manninn hvort til aö annast
gagnasöfnun í máii þessu.
Gagnasöfnun lauk i nóvem-
bermánuöi og sýna gögnin hver
aöstaðan er nú bæöi á Reykja-
víkurflugvelli og Keflavikur-
flugvelli til flugvélaviðhalds.
íslenskir flugvirkjar starfa
ekki fyrir „varnarliðið” á
Keflavikurflugvelli, og sagði
Einar aö ráöamenn liösins teldu
það af öryggisástæöum ekki
ráðlegt aö íslenskir flugvirkjar
annist viögeröir herflugvéla!!
011 flugskýli á Keflavikurflug-
velli eru eign bandarikjamanna
nema fjögur sem islenska rikið
á. Þessi skýli voru öll byggö
fyrir 1951. En á grundvelli
„varnarsamningsins” frá 1951
eru einnig þessi fjögur skýli i
rekstri hjá bandariska hernum.
Einar Agústsson sagöi um
skýlin fjögur: „Var þá (1951)
varnarliöinu heimilaö aö nota
skýli þessi, og voru engin tak-
mörk sett á afnotaréttinn
meöan bandarikjamenn annast
varnir landsins. íslenska rikið
getur þvi ekki einhliða rift þeim
HELGI SELJAN:
Sviptum áfengið
dýrdarljómanum
Fyrir nokkrum dögum
var til umræðu á Alþingi
þingsályktunartiliaga um
að auka fræðslu í þágu
áfengisvarna.
Sigurlaug Bjarnadóttir
er fyrsti flutningsmaður
tillögunnar og mælti fyrir
henni en næstur tók til
máls Helgi Seljan, sem
einnig er í hópi flutnings-
manna.
Helgi sagöi m.a.:
Auövitaö er ýmislegt gert i okk-
ar áfengismálum til hjálpar, en
mest er það þó til hjálpar þeim,
sem alla fótfestu hafa misst. Þaö
starf skal sist vanmetiö, en hitt er
engu aö siöur staöreynd, aö alltof
litiö og miklu minna er unniö aö
fyrirbyggjandi aðgeröum. Það er
i þessum efnum talaö um vin-
menningu og talaö um frelsi, en
slikt tal ber vott um ábyrgðar-
leysi og alvöruleysi varöandi
mjög erfitt vandamál.
Ég vona aö viö getum veriö
sammála um nauösyn þeirrar
fræöslu i áfengismálum, sem
hér er lögö til, en fræöslan er ein-
mitt best til þess fallin aö fyrir-
byggja hættur áfengisins.
En menn greinir sjálfsagt á um
þaö hvers viröi fræöslan sé og
hvtrnig henni eigi aö haga. Hvert
gildi hefur fræösla almennt,
hvaöa áhrif hefur hún á mótun og
viðhorf hvers einstaklings? —
Ekki sist þarf hér aö berjast gegn
andsnúnu almenningsáliti, sem
hvarvetna veröur þungt á met-
um. Min skoöun er sú aö fræösla
geti aldrei oröiö nema til góös,
einkum ef hún er byggö á raun-
hæfu mati og bláköldum
staðreyndum.
1 fræöslustarfinu þarf aö nýta
alla tiltæka aöila, ekki sist þær
stofnanir sem mestan hafa
áhrifa- og áróöursmáttinn.
Heilbrigt skemmtana- og
félagslif i skólunum er ekki sist
mikilvægt i starfi aö áfengisvörn-
um, en hér skortir betra skipulag
og áhugamannastarfiö er tæplega
jafn öflugt og áöur var. Iþrótta-
I iðkanir og félagslif i tengslum viö
þær geta einnig átt góöan hlut aö
fyrirbyggjandi áfengisvörnum, ef
vel og réttilega er á málum hald-
iö.
Þaö er einmitt á sviöi félags- og
skemmtanalifsins, sem barátt-
una gegn áfenginu þarf aö heyja
af fullum krafti. Það er sá vett-
vangur sem baráttunni hæfir. En
ekki mun auögert aö slita
skemmtanalif æskunnar úr þeim
tengslum viö áfengiö, sem svo al-
geng eru nú. En þaö er ekki viö
unga fólkiö aö sakast fyrst og
fremst i þessum efnum, þvi aö
þeir eru margir vinmenningar-
postularnir af eldri kynslóöinni,
sem ganga á undan svo sem
áfengið væri ómissandi liöur á
hverju gleðimóti.
Þaö er fordæmi hinna eldri sem
mest áhrif hefur á æskuna til ills
eöa góös.
Viö höfum mjög hugleitt þaö I
áfengismálanefnd Alþingis, hvort
viö gætum ekki áöur en þar
veröur upp staöiö og áliti skilaö til
þingflokka, — komiö á framfæri
beinum ákveönum tillögum til úr-
bóta einmitt á sviöi félags- og
þingsjé
skemmtanalifs. Þaö mun reynt
hvernig sem til tekst.
Oft veröa fjölmiölar til aö vekja
athygli á hinni gifurlegu aukn-
ingu hvaö varöar drykkju þeirra
fullorönu, alveg sérstaklega i
heimahusum við hliöina á bæöi
unglingum og kornabörnum.
Þar er vlnið haft um hönd af
þeim eldri sem hinn eölilegi og
ómissandi gleöigjafi, hinn ómiss-
andi förunautur á skemmtistaöi,
hinn visi fylgifiskur hverrar
veislu, hvers gleðimóts á vegum
fjölskyldunnar. Mætti maöur
kannski gerast svo djarfur aö
segja þaö hreint út, aö meö öllu
þessu séu hinir eldri aö læöa þvi
aö ungmennunum meövitaö eöa
ómeövitaö, aö hér sé i raun um
mannsins besta félaga og vin aö
ræöa, þar sem áfengið er, og þvi
þá ekki barnanna besta vin lika?
Hvers vegna er þessi þáttur
ekki tekinn rækilega fyrir? Fjöl-
miölar fara á vettvang og taka-
unglingana tali. Þaö er útvarpaö
og sjónvarpaö á ýmsan veg
drykkjulátum þeirra, en hvaö um
heimahúsin og fullorðna fólkiö
þar? — Þaö mætti kannski
skyggnast inn á eitt saklaust
bridgekvöld eöa saumaklúbb, eöa
samkvæmi i faömi fjölskyld-
unnar. Má vera þar kynni aö finn-
ast eitthvaö álika og margur
álasar unglingunum fyrir.
Aö skella skuldinni á unglinga
og börn og úthrópa þau, svo sem
oft er gert, er aðeins afleiöing
slæmrar samvisku hinna eldri.
Númer eitt er aö svipta áfengið
þeim ljóma, þeim dýröarljóma,
sem yfir þaö er breiddur nú, ekki
af unglingunum, heldur hinum
fullorðnu.
Þaö er rétt.almenningsálitiö er
hvort tveggja i senn sorglega
sljótt og um leiö aö verulegu leyti
á bandi áfengisneyslunnar. Slikt
er oft faliö bak viö frelsishjal sem
lætur vel I óvitaeyrum. Þetta al-
menningsálit er þaö sem skiptir
mestu máli, þvi þarf aö breyta og
þaö þarf aö virkja. Þaö þarf aö
virkja fyrst og fremst til fyrir-
byggjandi aögerða I þessum efn-
um, þó aö ég dragi á engan hátt úr
hinu hlutverkinu, aö hjálpa þeim
sem þegar hafa misst fótfestuna.
Sú tillaga sem hér er til
umræöu beinist aö fyrirbyggjandi
aögeröum fyrst og fremst. Raun-
hæf og alvarleg framkvæmd til-
lögunnar gæti oröiö skref i rétta
átt.
Læknir og
forstöðumaður
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra auglýs-
ir eftir yfirlækni við Endurhæfingarstöð
félagsins. Umsóknir.er greini menntun og
fyrri störf, sendist skrifstofu félagsins,
Háaleitisbraut 13, fyrir 1. april n.k.
Ennfremur auglýsir félagið eftir
starfsmanni, konu eða karli, til þess að
veita forstöðu sumardvalarheimili félags-
ins i Reykjadal. Umsóknir, er greini
menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu
félagsins, Háaleitisbraut 13, fyrir 1. april
n.k.
Stjórn Styrktarféiags lamaðra og
fatlaðra.
Sjúkraliðar
Fundur verður haldinn i Lindarbæ
miðvikudaginn 9. mars kl. 20.
Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga.
Myndir frá 10 ára afmælishátíð.
Kjaramál.
Mætið öll.
Stjórnin.