Þjóðviljinn - 06.07.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.07.1977, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 6. júli 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Zulfikar Ali Bhutto: Harðsnúinn stjórnmálamað- ur — leikinn diplómat Zulfikar Ali Bhutto, forsætis- ráðherra Pakistans, sem nú hefur verið steypt af stóli, er tæplega fimmtugur að aldri og hefur orð á sér sem harðsnúinn og einbeittur stjórnmálamaður. Honum er að miklu leyti þakkað að Pakistan náöi sér furðanlega eftir hrakfarirnar miklu i strið- inu við Indland út af Bangladess 197i og langan og útdráttarsam- an hernað gegn bangladeslskum skæruliðum þar á undan. Þvi striði lauk sem kunnugt er með þvi að Pakistan missti Bangla- dess (áður Austur-Pakistan), þar sem meirihluti Ibúa hins upprunalega Pakistans bjó. Ibúar hins núverandi Pakistans munu vera um 70 miljónir. Eftir striðið og missi Bangla- dess var Pakistan næsta illa á sig komið, vonleysi rikti og kjörin voru mjög bág hjá öllum þorra landsmanna, sem að miklum meirihluta eru ólæsir smábændur. Bhutto er hinsveg- ar af hástéttarfjölskyldu, en sagður hafa skoðanir i ætt við sósialisma. Hann tók við völd- um er herforingjastjórnin, sem rikthafði yfir landinu I I3ár,féll á illvirkjum sinum I Bangla- dess, varð fyrst forseti og siðan forsætisráðherra. Bhutto er lög- fræðingur að mennt, nam I Ox- ford og Berkeley I Kaliforniu og hafði orðið fyrir áhrifum frá vestrænum hugmyndum um stjórnarfar. 1 samræmi við það kom hann á þingræði i landinu Bhutto hefur gegnt miklu hlut- verki I sögu Pakistans. En er stjórnmálaferli hans hér með lokið? og setti því nýja stjórnarskrá, sem að visu miðaðist mjög við múhameðstrúna, sem þorri pakistana játar. Þrátt fyrir lýö- ræðislega meginstefnu var Bhutto oft sakaður um hrotta- skap og fyrirlitningu gagnvart andstæðingum. 1 utanrikismáium lagði hann áherslu á að forðast árekstra við Indland og að vingast við önnur múhameðsk riki, sem efldust að völdum vegna oliu sinnar. Honum tókst einnig furðufljótt að koma á eðlilegu sambandi við Bangladess, þrátt fyrir hryllileg hryðjuverk paki- stanska hersins i striðinu þar. Diplómatisk leikni hans kom einnig fram i þvi, að honum tókst að halda góðri sambúð jafnt við Bandarikin, Sovétrikin ogKina. Frá íran, Saudi-Arabiu og fleiri oliuauðugum múham- eöskum rikjum heppnaðist hon- um að fá rikulega efnahagsað- stoð og forða Pakistan þannig frá verstu skellunum af völdum kreppunnar siðust árin. Sem fyrr er getið tók Bhutto stundum ómjúkum höndum á pólitiskum andstæöingum. 1 febrúar 1975 bannaði hann þannig Þjóðlega Awani-flokkinn svokallaða og sakaði hann um aö reyna að skilja tvö af f jórum fylkjum landsins, Norövestur- fylkið og Balútsjistan, frá rik- inu. í Balútsjistan gaus upp mikil uppreisn 1973 og óttaöist Bhutto að það fylki færi sömu leiðina og Bangladess, endseru ibúar Balútsjistans öllu likari Irönum og afgönum en öðrum pakistönum. Bhutto lét bæla þá uppreisn niður með harðri hendi. Hann var um tima ráðherra i stjórn herforingjanna, en þeir höfðu hann fangelsaðan um tima eftir að stofnaði stjórn- málaflokk sinn, Alþýðuflokkinn, 1957. Siðan sættist hann þó við herforingjana og tók fulla af- stöðu með þeim gegn sjálfstæð- issinnum i Bangladess, fór þannig á vegum herforingja- stjórnarinnar til Sameinuðu þjóöanna að tala máli hennar þegar Bangladess-málið var þar á döfinni. Stuðningur OAU viö Mugabe og Nkomo LIBREVILLE 5/7 Reuter — Ein- ingarsamtök Afrlku (OAU) sam- þykktu I dag tillögu frá Sambiu þess efnis, að Föðurlandsfylking- in, sem iýtur forustu þeirra Joshua Nkomo og Robcrts Mugabe, skuli teljast brjóstfylk- ing svartra ródesiumanna i frels- isstriði þeirra. Er þessi samþykkt talin jafngilda þvi, að OAU liti héreftir á Föðurlandsfylkinguna sem hina einu réttu baráttuhreyf- ingu ródesiskra blökkumanna. Þessi samþykkt er skoðuð sem mikiö áfall fyrir sjálfstæðissam- tök þau, er þeir Ndabaningi Sit- hole og Abel Muzorewa biskup standa fyrir, en þau samtök keppa við Föðurlandsfylkinguna. r Félagsfundur Ibúasamtaka Vesturbæjar i kvöld: Græn bylting I Grjótaþorpi og skipu- lagsmál Hafnarstrætis I kvöld, miðvikudaginn 6. júli, kl. 21.00 gangast Ibúasamtök Vesturbæjar fyrir almennum fé- lagsfundi að Hallveigarstöðum, gengið inn frá öldugötu. Allir eru velkomnir á þennan fund sem vilja starfa með samtökunum en þau eru öllum opin. A dagskrá verða þessi mál: I. Græna byltingin i Grjótaþorpi II. Skipulagsmál I Hafnarstræti i brennidepli III. Utgáfa bæklings um viðhald húsa IV. Gerð plakats V. Stofnun vinnuhópa VI. önnur mál Gúatemala ógnar Belize BELMOPAN, Belize 5/7 Reuter — Breskar hersveitir hafa tekið sér stöðu skammt frá landamær- um Belize og Gúatemala og vig- búnaður hefur einnig verið auk- inn i höfuðborg nýlendunnar. Er þetta gert vegna herskárra yfir- lýsinga frá stjórn Gúatemala, sem innlima vill Belize, sem enn erbresk nýlenda. Bretland hefur boðið Belize sjálfstæði, en belize- menn frábiðja sér það nema þvi aðeins, að þeir fái fulla tryggingu fyrir þvi að gúatemalamenn ráð- ist ekki inn i landiö. Gúatemala- menn hafa gert kröfur til Belize allt f rá þvi að þeir urðu sjáifstæö- ir frá Spáni 1821. 1U Luxembomg eðalengm. Luxembourg er friðsæll töfrandi ferðamanna- staóur, mótaður af frönskmn og þýskum menningaráhrifum — þar sameinast franska glaðlyndið og þýska nákvæmnin. Þar sem landið er lítið, er stutt að skjótast til ýmissa stórborga í nágrannalöndunum. Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta- héruð Evrópu sameinast, á mótum Mosel og Rínar. Luxembourg — einn fjölmargra staða í áætlunarflugi okkar. FLUGFÉLAC LOFTLEIBIR LSLAJVDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.