Þjóðviljinn - 06.07.1977, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.07.1977, Blaðsíða 16
1DMÐVIUINN 1 AÖalsimi Þióðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til fösUi- . .. . , . . daga. kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. *% E.nn.g skal bent á hc.ma- 'Utan þessa tima erhægtað ná i blaðamenn og aðra starfs- vSjgáHljSv ibsÉT 1 K sima starfsmanna un ir menn blaðsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527, á&| Q I / j Þjoðv.ljans . s.ma- 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. ■HiHHi ■■ skra. Miövikudagur 6. júli 1977 . Blaöamenn vilja leið- réttingu Blaðamenn og útgefendur komu saman á stuttan fund hjá sáttasemjara í gær, og hefur ann- ar fundur verið boðaður á morg- un. A fundinum i gær settu útgef- endur fram tilboð um það sama og samið var um i kjarasamning- um ASÍ og VSt. Blaðamenn lögðu hinsvegar fram margvislegar greinargerðir með samanburði á kjaraþróun þeirra viö kjör frétta- manna hjá útvarpi og sjón- varpi, sem er þeim mjög i óhag. Krefjast þeir leiðréttinga á samn- ingsgrunninum áður en lengra er haldið i samningaviöræðum. Happdrœtti A Iþýðubandalagsins i Reykjavik ”77 númerin Dregið hefur verið i Happ- drætti Alþýðubandalagsins i Reykjavik og ákveðið að birta vinningsnúmerin I dag. Vinn- ingar komu á eftirtalin núm- er: Vinningur nr. 1 á miöa nr. 988 Vinningur nr. 2 á miða nr. 531 Vinningur nr. 3 á miða nr. 533 Vinningur nr. 4 á miða nr. 95 Vinningur nr. 5 á miða nr. 596 | Vinningur nr. 6 á miöa 1 nr. 617 Vinningur nr. 7 á miða nr. 1119 Viningur nr. 8 á miöa nr. 848 Vinningur nr. 9 á miða nr. 583 Vinningur nr. 10 á miöa nr. 1677 Vinningur nr. M á miða nr. 849 Vinningur nr. 12 á iniöa nr. 1484 Vinningur nr. 13 á miða nr. 673 Vinningur nr. 14 á miða nr. 498 Vinningur nr. 15 á miða nr. 685 Vinningur nr. 16 á miöa nr. 1542 Vinningur nr. 17 á miða nr. 1172 Vinningur nr. 18 á miða nr. 496 Vinningur nr. 19 á miða nr. 448 Framhald á bls. 14. , VIÐREISN MAGNAR UPP LAND- FLÓTTA Skýrslur um brottflutninga fólks frá islandi benda til þess, að viöreisnarstjórn eigi sérstaklega illa við lands- fólkið. A árunum 1911-1974 fluttu 5.218 manns úr landi umfram aðflutta. En af þeim fluttu aðeins 1.187 úr landi fyrstu 49 árin af þessum tima, hins- vegar fluttu 4.031 úr landi umfram aðflutta á 13 árum, frá 1961-74 en sá timi var aö mestu leyti viðreisnartimi. Og af þeim fóru um 3000 manns á aöeins tveim árum, 1969 og 1970. Nær helmingur vinnur í þjónustugreinum: Orust íjölgun í bönkum og tryggingastarfsemi í skýrslu um þróun mannafla í atvinnugrein- um kemur f ram, að örust hefur fjölgun starfsfólks orðið hjá bönkum og tryggingafélögum Þar hefur mannafli meira en tvöfaldast á timabilinu 1964-74 — fyrra árið störfuðu við banka og tryggingar 1.880 manns, en 4.709 árið 1975 eða 5% alls mannafla. Mikil aukning varð i hinum ýmsu öðrum þjónustugreinumeða um 93% — árið 1975 vinna i þeim 20,4% alls mannafla. Mannafli heilbrigðisþjónustu hefur nær þrefaldast og mannafli i kennslu tvöfaldast. Hlutur þeirra sem vinna i fram- leiðslugreinum hefur minnkað, enda þótt um tölulega fjölgun sé að ræða i öllum greinum nema landbúnaði. Árið 1963 unnu 13,7 starfandi manna við landbúnað, en 9,3% 1975, hlutur fiskimanna minnkaði úr 6,6% I 5,4%, hlutur fiskiðnaðarfólks úr 9,9% í 8,2% og hlutu annars iðnaðar úr 17,8% i 16,1%. A meðan fór hlutur þjón- ustugreina úr 40,9% mannaflans i 47,5%. Upplýsingar þessar er að finna — reiknaðar i mannárum — i yfir- liti um mannfjölda, mannafla og tekjur sem Framkvæmdastofnun rikisins hefur gefið út. Valdarán hersins í Pakistan # Stjómmálamenn handteknir # — herlögum lýst yfir Islamabad 5/7 Reuter — Herinn í Pakistan framdi valdarán ídag, setti stjórn Zulfikars Ali BhuttO/ forsæt- isráðherra/ af og lýsti yf ir herlögum í landinu. Jafnfram lofaði yfirmaður herforingjaráðsins/ Zia-ul-Haque, því i útvarpsávarpi að kosið skyldi til þings í landinu í októ- ber. Zia.hershöfðingi er rúmlega fimmtugur að aldri og fyrrver- andi riddaraliðsforingi. Að sögn varð ekkert mannfall við valda- töku hersins. Undanfarið hefur veriö óeirðasamt i Pakistan milli stuðningsmanna stjórnar og stjórnarandstæðinga og er talið að minnsta kosti um 350 manns hafi verið drepnir. Flokkur Bhuttos vann mikinn kosninga- sigur i þingkosningum 7. mars, en stjórnarandstæðingar sökuðu hans menn um að hafa falsað kosningaúrslitin og kröfðust nýrra kosninga. Herinn hófst handa við valda- ránið fyrir dögun og handtók flesta leiðtoga jafnt stjórnar sem Ali Bhutto á velmegtiardögum I Karachi; deilan við stjórnarandstöð- una reyndist honum dýrkeypt. stjórnarandstöðu, þar á meðal Bhutto. Zia hershöfðingi lét á sér skilja i útvarpsávarpinu að hann og félagar hans hefðu gripið til þessara aðgerða sökum þess, að þeir hefðu verið úrkula vonar um aö stjórnmálamennirnir kæmu sér nokkurntima saman. Bæði þjóðþingið og fylkisþingin fjögur i landinu verða leyst upp. Stjórn- málastarfsemi veröur bönnuð og sumar greinar stjórnarskrárinn- ar numdar úr gildi. Zia hershöfð- ingi hét þvi þó, að stjórnmála- flokkum yrði aftur leyft að starfa er kosningar færu i hönd. Hærra kaup fyrir salt- fískvinnu á Snæfellsnesi Saltfiskverkendur greiða eftir 4. taxta Samkomulag hefur oröið um það milli atvinnurek- enda og 4 verkalýðsfélaga á Snæfellsnesi að greiða hærra kaup fyrir saltfisk- vinnu en um var samið á Loftleiðum. Við hringdum i Sigurö Lárusson formann verkalýðsfélagsins i Grundarfirði og sagði hann okkur að samkomulag hefði orðiö um að greiða samkvæmt 4. taxta fyrir þessa vinnu I stað 3. taxta sem samkomulag varð um i stóru samningunum. Eftir að töxtum var fækkað svo mjög sem varð I samningunum munar töluverðu á launum eftir 3. og 4. taxta, eða um 14 krónum á timann i dagvinnu. Hjá Viglundi Jónssyni, saltfisk- verkanda i Ólafsvik, fengum við þær upplýsingar aö vinna viö saltfisk hefði jafnan verið greidd hærra en önnur fiskvinna; hefðu nær allir saltfiskverkendur þar um slóðir greitt samkvæmt hin- um gamla 8. taxta. Það hefði þó ekki munað eins mikiö um þá yf- irborgun eins og þessa, þvi bilið milli taxta hefði verið minna en nú er. eng. Júgóslavar styðja evrópukommúnista BEOGRAD 4/7 Reuter — Rato Dugonjic, meðlimur forsætis- nefndar Kommúnistasambands Júgóslaviu, fordæmdi i dag atlög- ur sovétmanna og bandamanna þeirra að spænska kommúnista- flokknum og öðrum evrópu- kommúnistum. Sagði Dugonjic i ræðu að það væri skýlaus réttur Kommúnistaflokks Spánar að á- kveða stefnu sina án utanaðkom- andi ihlutunar, og væri flokkurinn i þvi efni ekki ábyrgur fyrir nein- um nema félögum sínum og spænsku verkalýðsstéttinni. Dugonjic minnti á samþykktir ráöstefnu evrópskra kommún- istaflokka i Austur-Berlin 1976, en þar var lögð áhersla á sjálfstæði og jafnrétti allra kommúnista- flokka. Halda yrði fast við sam- þykktirnar frá Berlin, sagði Dug- onjic, að öðrum kosti væri hætta á þvi að alþjóðahreyfing kommún- ista biði tjón af.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.