Þjóðviljinn - 06.07.1977, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 6. júli 1977
SEYÐISFJÖRÐUR
— Nýr umboðsmaður
Theódór E. Blöndal
Norðurgötu 2
Simi 2283
Þjóðviljinn
V erkstæðisstörf
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða menn til
starfa á vélaverkstæði.
Verkefni eru blönduð, viðhald bifreiða og
vinnuvéla, einnig smiðar. Upplýsingar
gefur verkstjóri i áhaldahúsinu við Flata-
hraun. Simi 53444.
Sumarbúðir—Kópa-
vogur og ttágrenni
Sumarbúðir eru reknar i Kópaseli fyrir
börn 6-12 ára.
Næsta námskeíð hefst 12. júii.
Annað frá 13. til 24. júli.
Þriðja frá 25. júli til 3. ágúst.
Daggjald er 1200 kr. en jafnframt er veitt-
ur systkinaafsláttur.
Upplýsingar i sima 4-15-70
Félagsmálastofnun Kópavogs.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i lagningu 4. áfanga dreifi-
kerfis Hitaveitu Akureyrar.
útboðsgögn afhent á skrifstofu Hitaveitu
Akureyrar, Hafnarstræti 88 B, Akureyri,
frá og með 6. júli 1977 gegn 10 þúsund
króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri,
mánudaginn 18. júli 1977 kl. 14.
Akureyri 2. júli 1977
Hitaveita Akureyrar
Járniðnaðarmenn
Landssmiðjan óskar eftir að ráða plötu- og
ketilsmiði og rafsuðumenn.
Upplýsingar i sima 20680.
Landssmiðjan
Blaðberar
vinsamlegast komið á afgreiðslu blaðsins
og sækið rukkunarheftin.
Opið til kl.18.00 mánud.-föstud.
Þjódviljinn Sidumúla 6 - sími 81333.
Skólabarnabörnin
1 Landpósti birtist á dögunum
staka eftir Gisla Björgvinsson I
Þrastahliö i Breiödal.' En
Gisli á meira I pokahorninu.
Þegar skólanemendur fóru meö
börn sin á þingpalla kvaö hann:
t háskólamönnum gaular görn-
in.
Góðsemi Vilhjálms breytir
öngu.
Þvi nú eru skólabarnabörnin
byrjuð að fara I kröfugöngu.
Frá Skagaströnd.
Skagstrendingar vilja
koma upp loðnubrœðslu
— Togarinn okkar hef-
ur borið að landi milli
1700 og 1800 tonn frá ára-
mótum/ sagði Kristinn
Jóhannsson á Skaga-
strönd< er Landpóstur átti
tal við hann nú fyrir
skömmu. — Heita má/ að
samfelld vinna hafi verið
í frystihúsinu.
Framkvæmdir við höfn-
ina
■>- Áformaöar eru töluveröar
framkvæmdir hér viö höfnina i
sumar. A aö verja til þeirra 70
milj. kr. Rekiö veröur niöur 60
m. langt stálþil og fram fer
dýpkun á höfninni i sambandi
viö þaö. Viö dýpkunina veröur
notaö nýtt „graftæki”, sem
Vitamálastjórnin er búin aö fá.
Erum viö Skagstrendingar aör-
ir í röö þeirra, sem tækið
heimsækir síöan þaö kom til
landsins.
Gatnagerð
Veriö er nú aö skipta um jarö-
veg í tveimur götum hér I þorp-
inu, i þvi skyni, að þær veröi
lagöar olfumöl á næsta sumri.
Varanleg gatnagerö var hafin
hér i fyrra og mun þeim fram-
kvæmdum veröa þokaö áleiöis
eftir föngum.
Færeyjaför
Ekki munu Skagstrendingar
flykkjast svo mjög til hinna títt
auglýstu „sólarlanda”, enda
getur nú víst, þrátt fyrir allt,
brugöið til beggja vona með sól-
skinið þar, eins og annarsstaö-
ar. A hinn bóginn er f ráöi aö
héðan fari 30 manna flokkur til
Færeyja og nýtur ferðafólkið
styrks úr orlofssjóöi verkalýös-
félaganna. Veröi af þessari för,
— og ekki er ástæöa til að ætla
annaö, — er hugmyndin aö
fljúga út þann 26. júli og til baka
31. sama mánaöar. Tekur feröin
þannig alls 6 daga og fjóra
þeirra veröur staöið viö i
Færeyjum.
Dagvistunarheímili
Fyrir nokkru var tekiö hér i
notkun nýtt dagvistunarheim-
ili. Er þar unnt aö koma fyrir 30
börnum. Forstöðukona þess er
Lára B. Guðmundsdóttir. Húsiö,
sem heimiliö er rekiö i, er gjöf
frá Lionsklúbbnum og er ástæða
til þess aö þakka þann höföings-
skap. Geta má nærri aö dagvist-
unarheimiliö kemur i góöar
þarfir.
Einn búinn — annar i
smíðum
Eins og áður hefur veriö skýrt
frá f fréttum héöan er Guð-
mundur Lárusson nú farinn að
flytja inn plastbátaskrokka,
Framhald á bls. 14.
Frá Elli- og hjúkrunarheimili
Austur-Skaftfellinga
A fundi með fréttamönnum,
sem boðað var til af forstööu-
manni Elii- og hjúkrunarheim-
ilis austur-skaftfellinga, Frið-
jóni Guöröðarsyni, sýslumanni,
kom fram, að ýmis félagasam-
tök i sýslunni hafa veitt hjúkr-
unarheimilinu ómetanlegan
stuðning.
Góðar gjafir.
Þannig hefur Kvenfélaga-
samband sýslunnar afhent muni
og peninga, aö verömæti 2,2
milj. kr. til aukins búnaðar og
endurbóta á byggingunni.
Lionsklúbbur Hornafjaröar
afhenti sjúkrarúm fyrir 266 þús.
kr. og kvenfélagið Tibrá i Höfn
gaf súrefniskassa fyrir börn aö
verömæti 180 þús. kr. en fæö-
ingardeild er i húsakynnum
heimilisins.
Auk þessa hafa margir ein-
staklingar gefið nytsamar
gjafir, án þess aö mörg orö séu
um þaö höfö.
öllur þessum aöilum, ásamt
starfsfólki heimilisins, voru
færðar hinar bestu þakkir.
Stjórn.
Stjórn Elli- og hjúkrunar-
heimilisins skipa: Friðjón Guö-
röðarson, sýslumaöur, for-
maöur og framkvæmdastjóri,
Kjartan Árnason, héraöslæknir,
Sigrún Hermannsdóttir, hjúkr-
unarkona, Margrét Gisladóttir,
simastúlka og Gisli Björnsson,
fyrrverandi rafveitustjóri.
Hækkandi hagur.
Elli- og hjúkrunarheimiliö er
rekiö I tveim viölagasjóös-
húsum, sem Hafnarhreppur og
sýslan keyptu og hófst þar
rekstur á miðju ári 1974. Fjár-
hagsafkoma heimilisins hefur
veriö nokkuö erfiö, m.a. vegna
lágra daggjalda, en nú fer
hagur þess batnandi, bæöi
vegna þess, að leiörétting hefur
fengist á daggjöldunum og nýt-
ing á húsunum hefur orðið hag-
kvæmari.
Fleiri og smærri.
Fram kom I ræðu Friöjóns
Guöröðarsonar, sýslumanns aö
málefni aldraöra hafa veriö i
nokkrum ólestri úti á lands-
byggðinni, og þvi hafa fylgt erf-
iöleikar, að flytja aldraö fólk til
annara landshluta fjarri ætt-
ingjum og vinum, þar sem það
hefur svo verið „geymt” i risa-
stofnunum.
Sýslumaður sagöi einnig, aö
dvalarheimili aldraðra ættu aö
vera smáar stofnanir meö
heimilislegum blæ, þar sem
hægt væri aö sinna sérhverjum
einstaklingi eftir þörfum. Slik
heimili þyrftu aö vera sem viö-
ast um landiö.
þlþ/mhg