Þjóðviljinn - 13.07.1977, Síða 5
Miövikudagur 13. júli 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Fischer farinn
að ókyrrast eft-
ir fimm ára
einangrun
— og vill nú ólmur tefla einvígi við Viktor Kortsnoj
GEIMSUIMASUMUS
Gunnar Steinn
í Frakklandi:
Evian 12.7..Frá Gunnari Steini
Pálssyni:
Robert Fischer, sem i fimm ár
hefur lifaö i einangrun og helgaö
sig hinum margvislegustu áhuga-
málum, hefur á nýjan leik gefiö
sig skákinni algerlega á vald og
hefur hann um þessar mundir
geysilegan áhuga á aö tefla ein-
vigi viö einn af betri stórmeist-
urum heimsins.
Blaöamaöur frá Sviss, Ever
Hrausharr, náöi fyrir skömmu
tali af Fischer og er hann fyrsti
blaöamaöurinn sem kemst i tæri
viö hinn dyntótta stórmeistara
slðan hann einangraði sig meö
heimsmeistaratitilinn i fórum
sinum. Hrausharr sagði aöspurð
ur, að hann hefði eytt 12 klukku-
stundum með Fischer I Los
Angeles fyrir skömmu og voru
þeir saman á rölti um stræti borg-
arinnar tvær kvöldstundir, eða
réttara sagt tvær nætur, þvi eins
og kunnugt er fer Fischer ekki á
stjá fyrr en undir miðnætti og
vakir þá fram undir morgun. Aö
þvi leytinu til hafa lifsvenjur hans
ekkert breyst frá þvl aö hann gisti
á Loftleiðahótelinu forðum og
heimtaði skyrið sitt kl. 4 að nóttu
og lét opna sundlaugina á svip-
uðum tima.
Fischer, sem um tima helgaöi
sig trúmálum, helgar sig nú skák-
inni alfariö, hann vinnur marga
tima á dag til að útbúa upplýs-
ingakerfi um skák fyrir tölvu og á
það að sjálfsögðu að vera hið al-
fullkomnasta sinnar tegundar hér
á jörðu. Bandariski stórmeistar-
inn hefur undanfarið I síauknum
mæli fylgst meö helstu skák-
Robert Fischer, bandarlski skáksnillingurinn sem lagöi undir sig
heiminn á dögum heimsmeistaraeinvígisins viö Spassky. Hann hefur
nú hug á aökoma fram I sviösljósiöeftir fimm ára hvlld.
Hver man ekki tima heimsmeistaraeinvlgisins hér á landi? Þarna aöstoöar Sæmundur Pálsson Fischer
viö aö komast á keppnisstaö.
mótum sem fram fara og rann-
sakað til botns þær viðureignir
sem þar fara fram. Einnig hefur
hann með aðstoö einkaritara sins
haft bréfasamband við nokkra
stórmeistara. Þannig er m.a.
þessi áhugi á einvigi við Kortsnoj
sprottinn.
Bandariskur, elliær auðkýf-
ingur hefur reyndar boðist til að
greiða 200 miljónir dollara I verö-
laun fyrir einvigi Fischers gegn
góðum stórmeistara. Sá hængur
er þó á að sá gamli vill hafa ein-
vlgið i Bandarikjunum, og gæti
honum reynst erfitt aö fá þangað
a.m.k. austantjaldsskákmenn.
Auk þess mun skákheimurinn
vera hættur aö taka mark á
þessum karli vegna fyrri reynslu,
en áður hefur hann lofaö stórum
fjárfúlgum i allar áttir en jafnoft
svikið að reiða þær af hendi.
Fischer lætur sér nægja að láta
einkaritara sinn skrifa öll bréf
sin, hripar aðeins nafnið sitt
undir, sem reyndar þykir hið
mesta hrafnaspark. öllum er að
sjálfsögðu gefinn kostur á að
svara bréfunum i hið opinbera
pósthólf Fischers, en enginn fær
að vita hans raunverulega heim-
ilisfang né áimanúmer nema ör-
fáir vinir hans og vandamenn. Og
hann heldur áfram flakki sinu
milli borga til að forðast að menn
geti rakið slóð hans.
En með einhverjum ráðum
tókst svisslendingnum Hrausharr
aö komast að Fischer og var tekið
vel á móti honum. Vafalaust hafa
Hart barist um næstu einvígi
Luzern í Sviss öruggt með sjálft Heimsmeistaraeinvígið ?
— nema því aðeins að Kortsnoj verði næsti áskorandi
Genf 11.7., Frá Gunnari Steini
Pálssyni:
Nú þegar eru fjölmargir aðilar
farnir að freista þess aö fá að
halda næsta skákeinvigi um
heimsmeistaratitilinn. Um
þessar mundir virðist -uzern I
Sviss, sem sá um einvígi þeirra
Polugajevskis og Meckings,
koma einna sterklegast til
■greina.
En Luzern hefur aldeilis sam-
keppni. Þannig hefur t.d. Royal
Hotel i Frakklandi, sem óneitan-
lega býður uppá afar fullkomna
og þægilega aðstöðu, mikinn
áhuga á fleiri skákviðburðum og
vist er að bæði Korstsnoj og
Polugajevski munu báðir bera
þessu hóteli góða sögu að
einvíginu loknu.
Reykjavik og a.m.k. ein borg i
Þýskalandi eru einnig staöir sem
nefndir eru I sambandi við þetta
einvlgi. Það er á monnum aö
heyra að Island komi mjög sterk-
lega til greina enda hefur land-
anum tekist vel að sjá um skák-
mót og einvígi. Viktor Korstsnoj
sagði i samtali við Þjóðviljann i
kvöld að hann hefði mikinn áhuga
á aö tefla i Reykjavik hvort sem
það væri einvigi um heims-
meistaratitilinn eða réttinn til að
skora á heimsmeistarann. Opin-
berlega munu bæði alþjóða
skáksambandið FIDE og sovéska
skáksambandið hafa lagt blessun
sina á Luzern sem staö fyrir ein-
vlgið milli Karpovs og þess stór-
meistara sem hlutskarpastur
verður I áskorendaeinvigunum.
I Luzern verður eftir nokkra daga
haldin alþjóðleg ráðstefna á
vegum FIDE og mun heims-
meistarinn Karpov verða meðal
gesta þar. Karpov mun um leið
athuga allar aðstæöur fyrir loka-
einvígiö.
En fari svo, sem mörgum þykir
liklegt, aö Korstsnoj, sem
mörgum þykir Hklegasti áskor-
andinn, verði sigurvegari, er
þarna stór hængur á, og i rauninni
nær útilokað, aö Luzern veröi fyr-
ir valinu. Kemur það til af þvi aö
Kortsnoj um á sinum tima hafa
sóst eftir rikisborgararétti I Sviss
með aðsetur i Luzern i huga, en
ennþá hefur ekkert ákveðið svar
borist. Er trú margra að
ástæðan sé sú að Luzern hafi i
langan tima rennt hýru auga til
heimsmeistaraeinvlgisins en um
leið gert sér ljóst að rússar
myndu aldrei samþykkja borg,
sem tæki Kortsnoj uppá sína
arma, sem keppnisstaö. I Luzern
hafa áhugamenn um einvígið
mikil pólitisk áhrif og munu þeir
hafa komið þvi til leiöar að Korts-
noj hefur enn ekki hlotið náð fyrir
augum svisslendinga. En nú á
Kortsnoj næsta leik. Avinni hann
Euwe, forseti FIDE. Hans biöa
erfiö verkefni á hans siöasta
starfsári.
sér rétt til að skora á heimsmeist-
arann mun hann setja Luzern
allra aftast á óskalistann ef
marka má þær sögur sem á lofti
eru i Genf um þessar mundir.
Reyndar hefur Kortsnoj gert
samning við skákklúbb i Köln um
að þjálfa þar næstu tvö árin skák-
menn og jafnvel þýska landsliðið.
Fyrir þetta fær Kortsnoj dágóðan
skilding, auk þess sem hann
veröur gerður að þýskum rikis-
borgara eftir hálft annað ár.
miklir peningar verið I boði fyrir
þetta viðtal en Fischer gaf sér
einnig góðan tima og tók nætur-
svefninn af blaðamanninum
tvisvar i röð.
Kortsnoj jákvæöur
Viktor Kortsnoj sagði i viðtali
við Þjóðvifjann i kvöld, að hann
hefði fyrir mánuði fengið bréf frá
Bobby Fischer, fyrrverandi
heimsmeistara i skák,þar sem
bandariski stórmeistarinn bað
hann um aö hitta sig aö máli sem
allra fyrst. Með viðræður um ein-
vigi i huga.
Lýsti Fischer yfir miklum
áhuga á aö komast aftur inni
skáklifið af fullum krafti og sagð-
ist Korstnoj gera allt sem i sinu
valdi stæði til að svo gæti orðið.
„Þetta er að minu áliti engin
spurning um peninga, Fischer
langar að tefla og mér þykja lik-
urnar góöar á aö koma mætti á
laggirnar einvigi. Fischer er að
minu áliti einstakt „séni” og það
verður að gera allt til aö koma
honum fram i dagsbirtuna að
nýju. Og nú er tækifærið, Fischer
er æstur I að tefla skák um þessar
mundir.” Kortsnoj sagöi aö ein-
vígið kæmi báðum að miklum
notum, fyrir sig væri það mikil-
vægt þar sem Fischer væri mjög
frægur maöur og það myndi
draga hann sjálfan mun meira
fram i dagsljósið. Fyrir Fischer
væri þarna tækifæri til aö
koma fram i sviðsljósiö aö nýju,
Kortsnoj væri jú einn af sterkustu
skákmönnum heims. Fischer
hefur fylgst mjög náið meö öllu
þvi sem fram hefur farið i skák-
heiminum að undanförnu. „Hann
er örugglega ekki lakari nú en
þegar hann háði einvigiö við
Spassky i Reykjavik 1972,” sagði
Kortsnoj. Eftir einvigið mun
Kortsnoj halda til Bandarikjanna
til að tefla fjöltefli og I leiðinni
hitta Fischer að máli og þá verða
ákvarðanir um einvigið teknar,
hvar teflt verður, hvenær o.s.frv.
Spassky ekki
upplagður og
fimmtu skák-
inni frestað
Evian 12.7.. Frá Gunnari Steini
Pálssyni:
Fimmtu einvigisskák Spasskys
og Portisch sem fara átti fram i
Genf i dag var frestað. Boris
Spassky bað um frestun og gaf þá
skýringu að hann væri ekki vel
upp lagður. Staðan i einviginu
eftir fjórar skákir er þannig, að
Portisch hefur 2,5 v. en Spassky
1,5 v. Spassky hefur hvitt i næstu
umferð sem tefld verður á
fimmtudag.