Þjóðviljinn - 13.07.1977, Side 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 13. júli 1977
Hákon Bjamason sjötugur
Liklega er fátitt, aö lff og starf
manns í opinberri þjónustu sé svo
samtvinnaö eins og raun hefir á
oröiö um Hákon Bjarnason og
skógræktina á íslandi. Þaö er
ekki fyrir þá sök fyrst og fremst,
aö hann hefir i hvorki meira né
minna en i 42 ár veitt forstööu
þeirri rikistofnun, sem fer meö
málefni skógræktar i þessu landi,
heldur hitt, hvernig hann hefir
hagaö þeirri forstööu. Hann hefir
allan þennan langa tima stjórnaö
stofnun sinni af köllun vakninga-
manns, en ekki meö hugarfari
hins nákvæma og innhverfa em-
bættismanns. Fyrir þvi hefir
löngum staöiö nokkur gustur frá
Skógrækt rikisins, þótt hún sé aö
þvi er mannafla og veltu fjár-
muna varöar, meöal hinna minni
rikisstofnana.
Hákon Bjarnason tók viö stofn-
un sinni óvenjulega ungur maöur,
aöeins 28 ára gamall. Starfsdag-
urinn er þvi oröinn langur, og Há-
kon hefir hagaö störfum sfnum
svo, aö hann hefir lika veriö
strangur, a.m.k. oftast. Hákon
getur nú aö starfsdegi sinum
loknum séö mikinn árangur, en
hann hefir lika mátt þola ýmis
vonbrigöi. Slikt er hlutskipti
brautryöjanda.
Þegar hann snýr nú heim úr
viking til rólegra ævikvölds, eru
þaö merk timamót, ekki sist þeg-
ar fer einn þeirra manna, sem
settu svip á áratugina um miöbik
þessarar aldar.
Hákon Bjarnason fæddist 13.
júli 1907 I Reykjavik, sonur hins
þjóökunna merkismanns, Agústs
H. Bjarnasonar prófessors, og
Sigriöar Jónsdóttur, ölafssonar
ritsjóra og alþingismanns. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum I Reykjavik 1926 og hélt
aö þvi loknu til náms i skógrækt
við Landbúnaöarháskólann I
Kaupmannahöfn, fyrstur tslend-
inga til þess aö stunda þaö nám
viö háskóla. Þaðan brautskráöist
hann vorið 1932. Næsta vetur á
eftir vann hann sem aðstoöar-
maöur á Plantefysiologisk labor-
atorium viö sama háskóla. Heim
til tslands kom hann voriö 1933 og
tók þá viö framkvæmdastjórn
Skógræktarfélags tslands, sem
haföi veriö stofnaö á Alþingishá-
tiöinni á Þingvöllum 1930, en siö-
an litt látiö á sér kræla, þar til
Hákon tók viö framkvæmda-
stjórninni. Hinn 1. mars 1935 var
Hákon skipaöur skógræktar-
stjóri. Hann tók þar viö litlu og fá-
tæku búi og litlum skilningi al-
mennings eöa stjórnvalda á þeirri
starfsemi, sem hann átti aö veita
forstöðu. Til marks um þaö má
nefna, aö allt framkvæmdafé
Skógræktar rikisins á fjárlögum
áriö 1934 var 7.500 kr.
Úr þessu rættist litiö næstu árin
og fyrir þvi mun hafa komið til
tals, aö hann tæki aö sér starf auk
skógræktarstjórastarfsins viö At-
vinnudeild Háskóla íslands, sem
um þessar mundir var fyrirhugaö
aö setja á stofn. Af þessari ástæöu
dvaldist Hákon erlendis veturinn
1936-37 til þess aö kynna sér
vinnubrögö við tilraunastarfsemi
i jarörækt.
Hann var fyrst viö hina heims-
þekktu tilraunastöð I Rotham-
stead I Englandi hjá prófessor
Fischer, sem talinn er höfundur
nútfma tilraunastærðfræöi, og
siöar I Stokkhólmi hjá prófessor
Olaf Tamm, kunnasta jarövegs-
fræöingi Svia um þær mundir.
Til þess kom þó ekki, aö Hákon
færi aö Atvinnudeild Háskólans,
heldur tók hann voriö 1937 viö for-
stööu Mæöiveikivarna. Minnist ég
þess sem strákur, aö faöir minn
sagöi okkur þetta vor, nýkominn
frá Reykjavik, aö Hákon Bjarna-
son væri nýtekinn viö þessu starfi
vegna þess hver dugnaöarforkur
hann væri talinn, en mikið þótti
viö liggja aö láta hendur standa
fram úr ermum til þess aö hamla
gegn vágesti þeim, sem bariö
hafði aö dyrum hjá islenskum
sauöfjárbændum. Mun kannski
ýmsum finnast nú I ljósi þeirrar
viðureignar, sem Hákon átti siöar
i viö sauöfjárræktarmenn, aö hér
væri nokkur kaldhæðni örlaganna
aö verki gagnvart báöum aöilum.
Starfi sinu viö Mæöiveikivarnir
gegndi Hákon til ársins 1941.
Fleiri opinberum störfum utan
vettvangs skógræktarinnar mun
Hákon ekki hafa gegnt, ef frá er
skilin seta I ýmsum ráöum og
nefndum, svo sem Náttúrvernd-
arráöi frá stofnun þess til ársins
1972, samstarfsnefndinni til varn-
ar mengun frá álverinu I
Straumsvik o.fl., sem ástæöu-
laust er upp að telja hér.
Samhliöa starfi skógræktar-
stjóra var Hákon framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags íslands
tilloka sjöunda áratugarins. Hon-
um varð snemma ljós þýöing
þess, aö samtök áhugamanna
stæöu aö baki rikisstofnuninni,
sem sjá átti um framgang skóg-
ræktar i landinu, eöa viö hliö
hennar. Ég hygg, aö sú sam-
vinna, sem myndaöist milli þess-
ara tveggja aöila, sé nokkuö ein-
stæö hér á landi. Enginn vafi er á,
aö hún hefir haft mikla þýöingu.
En fyrir þær sakir, hve náin sam-
vinnan hefir veriö löngum, hefir
almenningur i landinu ekki gert
nægan greinarmun á rlkisstofn-
uninni og áhugamannafélags-
skapnum og þvi hlutverki, sem
þessir aöilar gegna hvor um sig.
Fyrr var á það minnst, að þaö
var ekki kansellistill yfir embætt-
isferli Hákonar Bjarnasonar,
heldur fór þar boðberi — eða
áróðursmaðwvef menn vilja held-
ur þaö orö. Enda væri þaö likara
dóttursyni Jóns Ólafssonar rit-
stjóra, sem lengst af stóð gustur
af og gekk ekki troðnar slóðir. Ég
hefi oft velt fyrir mér, hver væri
skýringin á þvi, hve vel honum
varð ágengt að fá fjölda fólks til
aö tileinka sér skógræktina sem
hugsjónamál, þvi aö einmitt'
fyrstu þrjá áratugina i starfi sinu
haföihann ekki marga stórvaxna
eða viðlenda skógarreiti til þess'
að flagga meö. Vissulega hafði
Hákon oröiö á valdi sinu, bæöi tal-
aö og ritað. En það hefði vart
dugaö honum til lengdar. Ég held
aö skýringin sé miklu fremur
óþreytandi elja við aö kynna
þetta hjartans mál sitt, þar sem
fáir dagar máttu falla úr, svo að
hann væri ekki að. í þvi birtist
m.a. það, sem getið var i upphafi
þessa máls, að starf Hákonar
Bjarnasonar væri jafnframt iif
hans.
Hinn brennandi áhugi áróðurs-
mannsins Hákonar á starfi sinu
er hins vegar ekki fyrirbæri, sem
kemursvHandiutan úr geimnum.
Hann á sér mjög sterkar Islensk-
ar rætur i þvi tvennu, sem ég
hygg að séu mestu hugðarefni
hans: Lif og saga þjóðarinnar og
töfrar og örlög landsins, sem hún
byggir.
Hann kynntist landinu
snemma. Fyrst sem messadreng-
ur á gömlu Esju hjá Þórólfi Beck
skipstjóra og frænda sinum i
strandferðum og siðar á ferðalög-
um sinum á landi. Kannski er
hann eini núlifandi Islendingur,
sem farið hefur riðandi hringinn i
kringum landið tvisvar og siðar
auðvitað ótal sinnum á bíl. Enda
er þekking hans á landinu með
ólikindum.
I hringferöinni 1933 hóf hann
sýnatöku á eldfjallaösku, sem
leiddi til samstarfs þeirra dr.Sig-
urðar Þórarinssonar við ösku-
lagarannsóknir. Það fæddi svo
afturafsér heila fræðigrein innan
jarðfræðinnar: Oskulagatimatal-
ið.
Ahugi Hákonar á sögu þjóðar-
innar, sem hann kann flestum
mönnum betur, á sér vafalaust
náin tengsl við athuganir hans á
örlögum gróðurrikis á Islandi, og
þá einkum birkiskógana. Þá
raunasögu þekkir hann að sjálf-
sögðu betur en allir aðrir íslend-
ingar. Rannsókn hennar hefur
verið meiri háttar viðfangsefni
hans á löngum ferli.
Um það efni fjalla margar rit-
gerða hans. Og er þá komið að
merkum þætti, sem minnst skal á
þessum timamótum: Ritstörfun-
um. Hér veröa þau aö visu ekki
rakin nema að litlu leyti. En Há-
kon á þvi láni aö fagna að hafa
skrifað ritgerðir, sem standast
munu tönn timans. Eina ritgerð
held ég þó að beri hæst: „Abúð og
örtröð”, sem birtist i Arsriti
Skógræktarfélags tslands 1942.
Hún er nú sigild I islenskum nátt-
úrufræðibókmenntum. Hér er i
fyrsta sinn gerð tilraun til að
áætla viðáttu gróðurlendis á Is-
landi, og reyndist ótrúlega lík nið-
urstaða og siðar hefur fengist við
gerð gróðurkorta. Og ræddar eru
og raktar orsakir gróðureyðing-
arinnar á íslandi af meiri skarp-
skyggni en áður hafði verið gert.
Alyktanir Hákonar i þessari rit-
gerð hlutu ekki almenningshylli.
Þær voru rödd hrópanda i eyði-
mörku. Nú er almennur skilning-
ur að vakna á réttmæti þeirra eft-
ir aldarþriðjung. Ekkisíst eftir að
ljóst er orðið, að þær eru ekki ein-
skorðaðar við Island eitt, heldur
hefur sama saga gerst vitt um
veröld.
I starfi sinu hefur Hákon
Bjarnason svo barist fyrir þvi að
bæta fyrir syndir fortiðar. Höfuð-
starf hans á þeim vettvangi hefur
verið auðgun islensku flórunnar,
fyrst og fremst með innflutningi
trjátegunda, en einnig alls kyns
jurta, sem til gagns mættu verða.
Þessi þáttur verður ekki rakinn
hér, það er gert allrækilega i riti,
sem innan skamms kemur út i til-
efni þessa afmælis Hákonar. Að-
eins skal hér nefnd sú niðurstaða,
að þann tima, sem Hákon Bjarna-
son hefur verið skógræktarstjóri,
hafa borist til landsins að hans til-
hlutan eða starfsliðs hans 110 teg-
undir trjáa frá rúmlega 900 stöð-
um á jörðinni. Margur léti sér
nægja minna lífsverk, þvi að
þessi uppskera hefur ekki borist á
silfurdiski. Hún hefur kannski
ekki kostað blóð, svita og tár, en
allavega og eingöngu komist i
hlöðu fyrir brennandi áhuga og
fjörutiu ára elju.
Aldarfjórðungur er nú siðan ég
hóf störf I Skógrækt rikisins undir
stjórn Hákonar Bjarnasonar, og
hafði áður haft af honum nokkur
kynni. Fyrir þessi löngu kynni og
samskipti á ég honum miklar
þakkir að gjalda, og ekki siður
Guðrúnu, konu hans, sem i
óvenjulegum mæli hefur verið
þátttakandi i starfi eiginmanns
sins. A heimili þeirra hjóna hefi
ég átt margar ógleymanlegar
stundir bæði einn og i hópi félaga
okkar. Margar ánægjustundir á
ég lika frá ferðalögum með Há-
koni, svo að ekki sé minnst á þær,
sem við höfum átt saman úti i
skógi hér og þar. Við höfum lika
oft tekið harðar brýnur, svo sem
skógræktarmanna er háttur. Og
aldrei hefur slegið i svo harða
brýnu milli okkar, að við höfum
ekki getað sest niður á eftir og
tekið upp léttara hjal eins og ekk-
ert hefði i skorist. Hér hefur birst
sá eiginleiki Hákonar — ein af
mörgum andstæðum I farihans —
að á sama tima og hann var yfir-
maður, oft og tíðum strangur,
stundum föðurlegur, iðulega
ósanngjarn, var hann jafnframt
góður félagi, sem lét væringar
niður falla, er nóg var leikið.
A þessum merku timamótum I
ævi Hákonar Bjarnasonar sendi
ég honum, Guðrúnu og börnum
þeirra bestu árnaðaróskir og
þakka samskiptin i öll þessi ár.
Sigurður Biöndai
Hákon Bjarnson fyrrverandi
skógræktarstjóri er 70 ára i dag.
Þegar ég lit yfir farinn veg og
langt samátarf með Hákoni
Bjarnasyni er margs að minnast
og yfir þeim minningum hvilir
ævintýrablær.
Ég hugsa til heiðrikjunnar og
sibjartra nátta, þegar fyrstu
starfsár Hákonar Bjarnasonar
hófust á Islandi.
Hann var trúboði i vissum
skilningi, sýndi Island annað og
betra land með miklum fram-
tiðarmöguleikum ef þjóðin vildi
leggja það á sig að skilja hvað
þyrfti að gera til þess að landið
yrði betra og byggilegra en það er
i dag.
Það er óhætt að fullyrða að með
kenningum Hákonar Bjarnasonar
um þýðingu skógræktar á íslandi
hafi farið vakningaralda meðal
islensku þjóðarinnar sem hreif
jafnt eldri sem yngri til fylgis við
skógræktarhugsjónina.
Ég minnist enn i dag stofn-
fundar skógræktarfélags Borgar-
fjarðar fyrir 40 árum þar sem
mættu um 60 manns og flest af þvi
bændur úr héraðinu.
Þar flutti Hákon Bjarnason
eina af sinum snjöllu ræðum um
gildi skógræktar á Islandi.
Að lokinni ræðu hans reis upp
aldraður þekktur bóndi, Ha'íl-
-grimur Nielsson á Grimsstööum,
og lýsti þvi yfir að hann gæfi
skógræktarfélaginu 20 ha. skóg-
lendi úr jörð sinni.
Hákon Bjarnason er lánssamur
maður. Hann hóf störf sin i þann
mund sem þjóðin var vöknuð til
meðvitundar um rétt sinn og mátt
og áður en sá hugsunarháttur
ruddi sér til rúms að hugsjónir
um sigur góðra málefna væru lft-
ils virði.
Hákon Bjarnason er einn þeirra
manna sem aldrei spyr um hvað
klukkan sé eða hvort sé hvíldar-
dagur, hann vinnur að frámgangi
málefna skógræktarinnar skil-
yrðislaust.
Það er oft erfitt hlutskipti fyrir
unga menn að hefja störf við stór
og umfangsmikil verkefni. Hin
aldna kynslóð er stundum vana-
föst og jafnvel þröngsýn og finnst
það eitt vel ráðið sem mótað er á
langri ævi. Ungir menn verða þvi
að takast á við margvisleg
vandamál og kveða niður for-
dóma og staðnað kerfi fortíðar-
innar, samfara vinnu við að
byggja upp umfangsmikil verk-
efni og fara inn á nýjar leiðir.
Hákon Bjarnson hefur reynst
þessum vanda vaxinn. I sam-
starfi hefur hann reynst sam-
vinnuþýður og hefur frábært lag á
að sameina gjörólfkar skoðanir,
enda oft komið fyrir að menn sem
ætluðu að vera harðsnúnir and-
stæðingar hans hafa snúiö við
blaöinu eftir nánari kynni af
manninum og að lokum reynst
góðir liðsmenn skógræktar- og
gróðurverndarmála. Persónuleg
kynni Hákonar Bjarnasonar við
Sportbíll í vanskilum
Dregið var 5. júli i happdrætti Blindrafé-
lagsins og kom vinningurinn, Ford Capri
sportbifreið, á miða nr. 11633.
Blindrafélagið,
Hamrahlið 17.
Hjúkrunarfræðing vantar i hálfa stöðu við
skóla frá 1. september. Upplýsingar veitir
forstöðukona.