Þjóðviljinn - 13.07.1977, Síða 16

Þjóðviljinn - 13.07.1977, Síða 16
DJOÐVIUINN Miövikudagur 13. júli 1977 Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstju- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægtað ná i blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. I Norræn menning- arhátíð á Norður- landi Norræni menningarsjóöurinn hefur veitt styrk sem nemur 1,6 miljónum isl. kr. til 5 bæjarfélaga á Norðurlandi, Akureyrar, Siglu- fjaröar, Dalvikur, Olafsfjarðar og Húsavikur, sem varið veröur til dagskrár og skemmtanahalds þar nyrðra vikuna 13.-20. ágúst n.k. Bæjarfélögin fimm veita til samans jafn miklu fé til þessa fyrirtækis og er áætluð norræn dagskrá alla daga vikunnar á Akureyri en 2-3 daga i smærri bæjunum. Undirbúningur gengur mjög vel, sagði framkvæmda- stjóri menningarvikunnar, Ólafur Rafn Jónsson, i samtali við Þjóðviljann, og vænta menn mik- illar og almennarþátttöku bæjar- búa og gesta i þessu skemmtana haldi. Væntanlegir eru til landsins fjölmargir norrænir listamenn, m.a. djasstrió og djasskvartett frá Sviþjóö og Finnlandi,þjóölaga- söngvarar frá Noregi og Sviþjóð, leikflokkur frá Danmörku, auk færeyskra listamanna. Framlag íslendinga er ekki fullfrágengiö ennþá, en i undirbúiningi er norð- lensk myndlistarsýning I Iðnskól- anum á Akureyri, sýning Alþýöu- leikhússins á Skollaleik á Akureyri og á Siglufirði, hljóm- leikahald Ingimars Eydals og hljómsveitar á Ráðhústorginu, brúðuleikhús og dansleikir svo eitthvaö sé nefnt. Frumkvæöið að menningar- vikunni kom fram á fundi norrænu félaganna fyrir nokkru, en i fyrra var ein slik haldin i Kópavogi og sú þriöja i Vest- mannaeyjum i haust. 1 sumar eru u.þ.b. 50 hliöstæðar menningar- vikur haldnar á Norðurlönd- unum. Framkvæmdanefnd skipa fulltrúar bæjarfélaganna fimm auk fimm fulltrúa norrænu félag- anna á stööunum. Formaður framkvæmdanefndarinnar er Bárður Halldórsson. —A.I. 20% hækkun á útseldri vinnu Rikisstjórnin stað- festi i gær ókvörðun verðlagsnef ndar um að leyfa hækkun á útseldri vinnu í sam- ræmi við niðurstöður kjarasamninga VSí og ASÍ, það er 2 1/2% í sérkröf ur og 18 þúsund krónurnar. Farið var fram á 28% hækkun á útseldri vinnu, en hækkunin sem leyfð var nemur innan við 20%. Hafi hækkun á kaup iðnaðarmanna orðið umfram ramma AS( samkomulagsins verða iðnmeistarar og aðrir sem selja út vinnu að bera aukninguna sjálfir. SAMNINGAR FARMANNA Ekkert hefur gerst segir Sigurður Sigurðsson i samninganefnd undirmanna Siguröur Sigurösson starfsmaður Sjómannafélags Reykjavlkur. Mynd eik. Þótt búiö sé aö semja viö flest landfólk og fiskimenn eiga far- menn enn I kjaradeilu viö sina at- vinnurekendur. Deilan sú er til- tölulega nýkomin til sáttasemj- ara og i húsakynnum hans i Toll- stööinni hittu Þjóöviljamenn aö máli Sigurö Sigurösson starfs- mann Sjómannafélags Reykja- vlkur en hann er I samninga- nefnd undirmanna á farskipum. — Það hefur hvorki gengið né rekiö i þessum viðræöum. Við lögðum fram langan kröfulista I endaðan mai en útgerðarmenn hafa einungis samþykkt 4-5 atriði sem ekkert vigta og ekkert kosta. Það er varla farið að vinna neitt af alvöru i þessu máli enn. — Hverjar eru ykkar höfuö- kröfur? — Við setjum hækkað kaup á oddinn. Farmenn hafa dregist svo aftur úr öðrum stéttum að þaö tekur engu tali. Ég get nefnt sem dæmi að eftir samningana 1972 höfðum við 9.7% hærra kaup en kranamenn i uppskipun. Nú vantar okkur 19% upp á þeirra laun. — Hafa verið stifir fundir upp á siðkastir? — Nei, deilan er tiltölulega ný- komin til sáttasemjara og ég held að fundurinn sem hófstkl. 15 I dag sé sá fimmti. Siöasti fundur var i fyrri viku, við vorum látnir biöa meðan verið var að ganga frá samningum viö fiskimennina. Og eins og ég sagöi þaö hefur ekkert gerst, sagði Sigurður. —ÞH Knýja þatfá um efndir á loforðum i dagvistunarmálum: Eins og flestum mun kunnugt var skipuö nefnd I slöustu kjara- samningum til aö gera tillögur I dagvistunarmálum og var þaö I fyrsta sinn sem fjallaö var um þennan málaflokk I almennum kjarasamningum. Þar sem hætt er aö segja aö I dagvistunar- máium rlki nánast algert öng- þveiti I dag og hvarvetna langir biölistar eftir dagvistunar- plássum, ræddum viö viö einn nefndarmanna I nefnd þeirri sem ASl skipaöi til aö fjalla um þennan málaflokk, Aöalheiöi Bjarnfreösdóttur, en aörir I Konurnar komast ekki að heiman þótt þörfín á vinnuafli þeirra sé gifurleg, segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar nefndinni frá ÁSI voru Einar ögmundsson og Þórunn Valde- marsdóttir. Aðalheiður sagði, að sam- starfið i þessari nefnd heföi verið mjög gott og einkiyn heföi verið mikill styrkur af full- trúum frá menntamála- og fé- lagsmálaráðuneytinu, en einnig áttu atvinnuéekendur fulltrúa I nefndinni. Voru lagöar fram tillögur um að framlag i fjárlögum til dag- vistunarstofnana hækkuðu úr 150 miljónum i 450 miljónir, en Aðalheiður sagði að sú tala myndi fullnægja þeim um- sóknum sem þegar lægju fyrir. Hefði ríkisstjórnin ekki talið sig geta gefið loforð um alla þessa upphæð, en heitiö þvi að bæta verulega viö það fjármagn, sem á siðustu fjárlögum var váriö til dagvistunarstofnana. Varðandi efndir á þessu loforði sagði Aðalheiður: „Það er að sjálfsögðu nauð- synlegt að fylgja þessu máli vel eftir. Ég tel að lofaö hafi verið að upphæðin yrði mjög nærri þeirri tölu sem við nefndum, enda liggja þegar fyrir um- sóknir um fé til dagvistunar- stofnana sem þessu nemur. Þetta er mjög brýnt mál, sem ekki er hægt að draga. Það er nauðsynlegt að öll börn fái að- gang að dagvistunarstofnunum ef foreldrar óska þess. Við bentum á ýmsar lausnir, sem ættu að flýta þróuninni, t.d. aö konur, sem hafa unnið á barna- heimilum, en fara svo i Fóstur- skólann, þurfi ekki að taka aftur vinnuskylduna inni á barna- heimilunum. Sömuleiðis hef ég persónulega mikinn áhuga á að reyna að koma upp meira samstarfi t.d. I stóru fjölbýlishúsunum og þar sem ætti að vera hægt að taka eina ibúð til sameignlegra þarfa bæði fyrir börnin i húsunum og eldra fólkið. Astandið úti á landi er lika viða mjög slæmt i dagvistunar- málum, og að það skuli þurfa að flytja inn vinnuafl á sumum stöðum bæði frá Astra- liu og Pakistan vegna þess að það skortir dagvistunarrými fyrir börnin svo að konurnar komist út að vinna er auðvitaö fáránlegt.Okkar tillögur gera ekki ráð fyrir einni lausn um- fram aðra, en hverju sveitarfé- lagi á aö vera i sjálfsvald sett hvort það reisir dagheimili, leikskóla eða skóladagheimiii”, sagði Aðalheiður að lokum. þs „Sé ekkert smit að Laxalóni” — segir Frank Bregnballe, danskur sérfrædingur sem Skúli á Laxalóni fékk hingað ,,Ég hef ekki séð neitt á þessum fiskum, sem bendir til þessaöþeir séu með smitandi nýrnasjúkdóm. Ég hef reynt að skoða sérstaklega nýrun i fiskunum og finna ein- kenni sem bentu til þessa sjúk- dóms t.d. á húðinni, en ekki getað fundið þau. Ég get þó ekki fullyrt að sjúkdómurinn finnist ekki i stöðinni, en mér sýnist ekkert benda til þess”,sagöi danskur sérfræðingur, Frank Bregnballe frá Jótlandi, en Skúli Pálsson á Laxalóni hefur fengið hann hing- að til að rannsaka fiskinn I Laxa- lóni. Sem kunnugt er hefur fisk- sjúkdómanefnd komist að þeirri niðurstööu að laxaseyði i Laxa- lóni séu sýkt af smitandi nýrna- sjúkdómi, en Skúli hefur ekki vilj- að fallast á þá sjúkdómsgrein- ingu. Var haidinn blaðamannafundur með Frank Bregnballe þar sem lögfræðingur Skúla, Sveinn Snorrason, gerði grein fyrir komu hans til landsins. Sagöi Sveinn að þegar niðurstöður fisksjúkdóma- nefndar heföu legiö fyrir, hefði verið farið fram á aö fá hingað er- lenda sérfræðinga til að rannsaka fiskinn og þegar ljóst var að þeirri beiðni yrði ekki sinnt, heföi Skúli fengið Frank Bregballe, sem væri mjög reyndur í fisk- eldismálum og fisksjúkdómum, til að koma hingaö og rannsaka fiskinn. Hefur hann nú skilaö niðurstöðum sinum, þar sem fram kemur að almennt heil- brigðisástand fiskanna i Laxalóni sé gott, þótt þar sé að finna fiska með ýmsa algenga sjúkdóma, sem eölilegt sé að upp komi i svo stórum fiskeldisstöðvum. Engin sýnanna sem tekin voru bentu til þess að þarna væri kominn upp smitandinýrnasjúkdómur. Frank vildi þó ekki fullyrða aö sjúk- dómurinn væri ekki fyrir hendi, en taldi að jafnvel þótt einhverjir fiskar væru meö þessa bakterlu, þá væri hún tæplega svo hættuleg sem fisksjúkdómanefnd heföi Frank Bregnballe: ,,Sé engin merki um smitandi nýrnasjúk- dóm.” talið og auk þess gæti sjúkdómur- inn aðeins hafa borist i stöðina með hrognum úr islenskum ám. Þannig myndi alger niðurskurður á fiskistofninum i Laxalóni ekki tryggja að hægt yrði að stöðva út- breiðslu nýrnaveikinnar, ef i ljós kæmi aö hún væri fyrir hendi I stöðinni.Varðandi spurningu blaðamanna um það hvort hugsanlegt væri að sjúkdómurinn heföi verið i fiskinum i april, en væri nú horfinn,sagði hann að það væri hugsanlegt, þótt hæpið væri aö smitandi sjúkdómur hyrfi á svo skömmum tima. Um rann- sóknir Norðmannsins Haastens, sem taldi að um smitandi nýrna- sjúkdóm væri að ræða i laxi i Laxalóni, sagði Frank að hann teldi Haasten mjög hæfan fisksér- fræðing, en þess bæri þó að geta að einkenni af smitandi nýrna- sjúkdómi i fiski væru nijög svipuð einkennum tveggja annarra sjúk- dóma, „soft water desease” og „gas bubble desease ”.Engir is- lenskir visindamenn fylgdust með rannsóknum Franks á fisk- inum, en fulltrúum fisksjúk- dómanefndar hafði verið boðið á blaðamannafundinn meö Frank Bregnballe, en þeir mættu ekki. Rannsóknirnar voru gerðar 7. — 11. júli og voru tekin sýni af fiski 1 — 2 svar á dag. ÞS

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.