Þjóðviljinn - 16.08.1977, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.08.1977, Síða 7
Þriðjudagur 16. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Min skodun er sú að þá beri hiklaust að fara eftir tiliögum Hafrannsóknarstofnunar án undansláttar Örlagastund Það hljóta að teljast stórtið- indi, þegar tslendingum er bannað að veiða þorsk. Um ald- ir hefur það fyrirkomulag rikt að þeir , sem vildu, hafa getað veitt eins og þeim sýndist, og sem þeir gátu, hvar og hvenær sem var. Það eru þvi geysimikil viðbrigði, þegar taka skal upp stjórnun fiskveiða, vandinn óendanlega stór og vonlaust að leysa hann án þess að einhverj- um finnist sinn hlutur skertur. Ef við litum á sildina, verður ekki annað sagt, en að vel hafi tekist, með verndun og vöxt hennar, og þvi full ástæða til að ætla, aö eins gæti orðið með þorskinn. Allar aðgerðir okkar i þessum málum eru byggðar á lögum frá 1948, um visindalega verndun landgrunnsins. Mér skilst, að ekki séu i lögum þess- um nein ákvæði um, hvort hin visindalega verndun, skuli mið- ast við álit visindamanna er stunda rannsóknir á landgrunn- inu, og lifi þeirra fiska er i sjón- um synda, og við veiðum, okkur til lifsframfæris. Eða hvort miða skuli við álit þeirra stjórn- visindamanna, er allt sitt hafa á þurru, og rannsaka helst hvað aukið geti atkvæðamagn við- komandi, við kosningar til al- þingis. Skiljanlega getur orðið regin- munur á áliti þessara hópa, og hefur það reyndar greinilega komið fram. Þegar svo skerst i odda, sem gerðist milli Haf- rannsóknarstofnunar og ráðu- neytis i sambandi við lágmarks- stærð fisks sem veiða má, hver á þá að ráða? Min skoðun er sú að þá beri hiklaust að fara eftir tillögum Hafrannsóknarstofn- unar, án undansláttar. Þar talar sá aðili er haldbestu þekk- inguna hefur, og á að geta dreg- ið raunhæfustu ályktanir af þeim gögnum, sem fyrir liggja. Ekki verða fiskifræðingar okkar sakaðir um of mikla svartsýni, nægir þar að nefna sildina, hún hvarf, og islenskt efnahagslif rambaði á barmi glötunar; þaö var þungur skellur. Þó hefur tekist að viðhalda hér á landi svokölluðu velferðarþjóðfélagi, oftar en einu sinni hefur syrt i álinn, og mönnum verið skipað að herða sultarólina. Einkenn- andi er, að undantekningar litið, er allt komið á ystu nöf, þegar gripið er til einhverra ráðstaf- ana, þær verða þvi harðari en ella, og bitna ætið verst á þeim sem minnst mega sin. Fer ekki að verða timabært, að sýna meiri forsjá, láta ekki sifellt reka á reiðanum, þar til i óefni er komið? Mér er það ætið ofarlega i huga, að við lifum á fiskveiðum, einnig að framleiðsla matvæla hlýtur að vera lifvænleg i svelt- andi heimi. En höfum við al- mennt gert okkur það ljóst, hve ótæmandi auðlindir fiskimiðin umhverfis landið eru? Höfum við veitt þvi næga athygli, að fiskurinn er búinn þeim eigin- leikum að viðhalda sjálfum sér; þetta eru óskaplega einföld sannindi, en einmitt þessvegna, er svo auðvelt að láta sér sjást yfir þau. Það er talað um ör- lagastundir i lifi manna og þjóða. Við tslendingar lifum nú eina slika, á viðbrögðum okkar veltur framtið lands og þjóðar, ákvörðunin skapar örbirgð eða allsnægtir. Verndun og upp- bygging þorskstofnsins og stjórnun fiskveiða, eru það þýð- ingarmikil atriði varðandi efna- hagslegt sjálfstæði landsins, að nú duga engin vettlingatök. Enga sérhagsmuni á að taka til greina, hér er það hagur heild- arinnar sem máli skiptir. Það á ekki að skirrast við að taka nú einu sinni i taumana, áöur en komið er á heljarþröm. Ef það eru stjórnmálamennirnir, sem ætla að ráða,verður að gera þá kröfu til þeirra, að þeir geri nauðsynlegar ráðstafanir, þótt óvinsælar verði. Afgerandi ákvarðana er þörf, og með öllu óafsakanlegt að leyfa veiðar umfram það hámark, sem Haf- rannsóknarstofnun leggur til. Slikt mun hafa i för með sér óbætandi skaða. Það gildir sama um þorskseiðin og mann- anna börn, þau þurfa sinn tíma til að vaxa, sýna hvað i þeim býr. Þetta verðum við að sætta okkur við, og skertir stundar- hagsmunir eru sár sem gróa, en útrýming þorsksins yrði sú hol- und að nægði tslandi til ólífis. Þvi átakanlegra yrði slíkt óhapp, að aldrei fyrr i sögu lands og þjóðar, hafa verið að- stæður til að framkvæma, nær hverjar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar teljast, til við- halds auðlinda okkar. A meðan við berjumst fyrir lifi þrorsks- ins og okkar, með boðum og bönnum, sem islenskir fiski- menn verða að lúta, er að minu mati óverjandi að leyfa öðrum þjóðum veiðar hér við land. Það leikur rökstuddur grunur á, að þeir þurfalingar, er njóta góðs af þverrandi auðlindum tslands, fari ekki að settum reglum. Ólöglegur veiðarfærabúnaður hefur sannast á þá, og óskap- legur seinagangur virðist á að aflaskýrslur berist. Hvort sem þær segja svo hálfan sannleik eða allan. Þeir samningar um fiskveið- ar, sem gerðir hafa verið, og framkvæmdir, ættu nú að hafa sýnt heiminum svo ekki verður um villst, að séu íslendingar af- lögufærir, láta þeir af hendi það sem umfram er. Þvi á undan- förnum árum Jiöfum við tekið brauðið frá munni okkar barna, og gefið það þjóðum, sem flest- ar ef ekki allar, eru betur meg- andi en við. Þvi er mál að linni, austri útlendra úr þverrandi auðlindum tslands, enga samn- inga við þá fyrr en betur horfir, og virðum sjálfir 275.000 tonna markið. Suöureyri, á þorskveiðibanns dögumT, 1977. Gestur Kristinsson. leiðslu á brúnni, heillaður af óttu- söng ræðaranna á hinum tigulegu gondólum. Beið Þorsteinn ferju- mannsins? Varþaðhérí kvæðinu, sem hann einkum vék við orðum, kallaði gondólana einu nafni kænu? Nú er hann kominn yfrum, minn aldavin, meö þrá sina og von, — von, sem var sifrjó af þvi að hún gat ómögulega rætzti lif- anda lifi. Þessa von sina iklæddi hann þeirri álfkynjuðu ijóðrænu, sem honum einum var eigin, og sem hann lifði og dó fyrir. Alla mina daga mun ég minnast hins prúða söngvasvans, sem bar nafnið Þorsteinn Valdimarsson. Hann var einstakur maður. Friður sé með honum. Arni Kristjánsson. Fáirstaðirá Fróni eru eins hlý- ir og vinalegir og Hallormsstaður á Héraði eystra, ekki sist á hey- önnum og á haustmánuði. Þar man ég Þorstein best og þar finnst mér enginn hafa átt frekar heima. Elskulegri, ljúfari og skilnings- rikari dreng hef ég aldrei þekkt. Alltaf reiðubúinn aö greiða götu manns, léttur i lund og spori. A æskuslóðum inni i Laugarnesi kynnist ég fyrst þessum ljóða- manni vorsins. Hann var þar gestur vinar okkar Kolbeins i Kollafirði. Komdu vinur og fáðu hjá mér Vilta vor. t kjallaranum á Bergstaðastræti hjá móðursyst- urhansGuðbjörgu,ef ég man rétt. Sama snyrtimennskan þar og alla tlð hjá þvi, sem ég kynntist af hans fólki. Vilta vor — ungur drengur hreifst af þvi vori — þeim andblæ hreinlyndis og lifsástar. Guðfræðineminn söng svo hlýtt og kvað svo blitt. Hann átti tóninn hreinan, skæran og sannan I þess- ari misbliðu veröld. Arin liðu, við hittumst meö höppum og glöppum. Ætið fór ég léttari I spori af fundi þessa hóg- láta og brosandi lífsunnanda. Allt I einu eigum við báðir heima i Kópavogi. Þorsteinn minn, okkur langar að biðja þig að yrkja um þessa barnabyggð. Hún er tiu ára sem kaupstaður núna 1965. — Viltu ekki f nefið, vinur, segir skáldiö. Það má at- huga málið. Aldrei hafa grýttir hálsar og hrjóstrug klettaklungur hlotið annan eins lofsöng, ástaróö lífið sem þar býr: Heyrið þið bara: Vagga börnum og blómum borgin hjá vogunum tveimur risinn einn árdag úr eyði, — heill undrunarheimur. Og blikið i bernskum augum er bros gegnum tár sögunnar, sem oss fæddi og signir oss þurrar brár. Vagga börnum og blómum, borgin i önn og draumi, farvegur, framtið brotinn af fallþungum straumi. A'.t þú iokið þvi lausnarstriði er lönd skjálfa við? Sýndu þitt svar i verki og set þér æ hærra mið. Griðland börnum og blómum. Brosi við framtið sinni allt sem þú vaxtar og verndar i vöggunni þinni. — Þó að flóðbyigja fleygrar tiöar sé fallþung og ströng geym þinna grænu vinja og gleym ei lóunnar söng. Elskusemin og ástin tilallssem lifir er þessu skáldi svo irmgróin, hagleikurinn, smekkvisin, tón- og söngvisin bregðast honum ekki. Enn liða ár. Upp kemur sú hug- mynd að halda menningarviku i Kópavogi árið 1970. Til Þorsteins er fyrst leitað og viðtökurnar eru sem fyrr. Heldurðu að það væri ekki ráð að hafa heimahaga höfundanna höfuðefni fyrsta dagsins, segir hann. Það var ráðið á stundinni og magnað kvæði aö lifsþekkingu, ljúfum minningum frá bernsku dögum og sárum er horfnir voru ástvinir góðir þeir frændur Þorsteins, feögarnirSæmundsen,Einar yngri og eldri, varð upphaf þessarar vöku og það sem lifir lengst i minni vitund. Já, stutt er ævin,en dáðin löng. Það er öllum harmabót I mis- vindasömu lifsstriði að kynnast góðu fólki, manneskjum þar sem hjartað heyrist slá. Þrjár slikar unaðsverur tengd- ar Kópavogi hafa horfið okkur á skömmum tima, Gerður Helga- dóttir, Barbara Arnason og nú Þorsteinn Valdimarsson. Lista- menn, svoafbar.en um leið sjálf- um sér og boðskap sinum svo samvaxnir að enga þekki ég betur fallna sem fyrirmyndir um öll mannleg samskipti. Það má minna á að Þorsteinn var Kór Menntaskólans við Hamrahlið mikill hollvættur. Mér finnst sem hið undurfagra erfiljóö hans um snillinginn Ró- bert A. Ottósson gæti eins fylgt höfundi sinum: Eldiúðrar duna og draga skjótt dumbrauðan seim I þögn og nótt. Hví mun þar eftir þrotinn dag þjóta á tindum slikt sólarlag? Af þvi að gleði unaðslöng yljaði blæ hans og fyllti söng. Nú er söngur þinn þagnaður elskulegi vinur. Þér fylgja eins og frændum þinum forðum „saknaðaraugu úr heimatröðum, meðan sér til reykja”. Hjálmar óiafsson. Vögguljód Birt i minningu látins vinar, skálds og ljóðaþýðanda. Kvæðið er eftir Maikoff, lag eftir Tsjai- kovski (op. 16 nr. 1). Sofi sveinninn.rótt, sælt og hljótt, sælt og hljótt, dýrðarfulla draumanótt. Svæfi og verndi sveininn minn sól og örn og vindurinn. Upp i hreiður örninn flaug, eygló sökk i hafsins laug. Kári heim á fæti frár ferðast eftir nætur þrjár. Móðir storms á ströndu beið, storminn spyr: „Hvarrannst þú skeið? Striddir þú við stjörnufans, steigst á bárum tryllidans?” „Lék ég ei viö lón og sker, lét i friöi stjarnaher; hrærði vöggu hægt um stund, hneig þá sveinn i væran blund.” Sofi sveinninn rótt, sælt og hljótt, sælt og hljótt, dýrðarfulla draumanótt. Svæfi og verndi sveininn minn sól og örn og vindurinn. Þórarinn Guðnason islenskaði. Við, sem höfum skipað okkur undir merki sósialismans i rétt- indabaráttu vinnandi fólks, höfum oft notið þess með marg- víslegum hætti að eiga að bar- áttufélögum og vinum marga fremstu listamenn landsins i flestum greinum lista. Vegna ná- ins félagsskapar og langvarandi vináttu höfum við tiðum getað til- einkað okkur fyrr og betur það framlag á sviði lista, sem þessir félagar okkar skópu til að efla til- finningar- okkar og skilning á lif- inu, samfélagi okkar og landi. Einn þessara listamanna, Þor- steinn Valdemarsson skáld, lést sunnudaginn 7. þ.m. Ég átti það að þakka sameigin- legum vini okkar Þorsteins, Bjarna heitnum Benediktssyni, rithöfundi frá Hofteigi, að ég kynntist honum fyrr en ella. Það mun vera um 30 ár siðan ég var staddur með þessum tveim and- riku félögum i sólbjartri lyng- brekku, þar sem einhver úti- skemmtun sósialista var haldin. Eðlilegt var að mikið væri leit- aú i smiðju til Þorsteins, sem var allt i senn, fjöllærður maður með margháttaða Verkreynslu, alltaf hógvær og hjálpfús og hjartahlýja hans brást aldrei. Um langt ára- bil áttum við skoðanabræður hans greiðan aðgang að hinum miklu mannkostum hans, einkum þegar kaffistofan Miðgarður að Þórs- götu 1 var okkar annað heimili á námsárunum. Það var einmitt á þeim tima, sem Þorsteinn var að kveða sér hljóðs sem ljóðskáld. A þessum árum var samsöngur mikið tiðk- aður til að lifga upp félagsstarf ungra sósialista. Sérstaklega var mikið sungiö af róttækum bar- áttusöngvum eftir hópferð á heimsmót æskunnar i Berlín 1951. Þorsteinn var lærður tónlistar- maður og lagði því mikinn skerf til okkar pólitisku sönglistar- mála. Framlag hans er meðal annars að finna i „Söngvabókin” sem Bókaútgáfan Argalinn gaf út árið 1953. Þar er ljóðið Friöarhvöt við lag eftir rússneska tónskálcúö Sjostakovitzj og kvæðiö Volstrit við lag Sigursveins D. Kristins- sonar og Hallgrims Jakobssonar. Þorsteinn tók þátt i heimsmóti æskunnar i Búkarest i Rúmeniu árið 1953 og starfaði af eldmóði að undirbúningi þessa ógleymanlega viðburðar, sem varð til þess, að margir bundust vináttu- og tryggðaböndum, sem enst hafa til þessa dags. Við, sem kveðjum Þorstein i dag i hinsta sinni, eigum óvenju- margt til huggunar og gleði: Góð- ar minningar og fögru ljóðin hans. ölafur Jensson Nú er syngjandi svifinn svanur úr Austurvegi héðan á burtu hrifinn hann, sem vér gleymum eigi. Vinur friðar og frelsis fagurkeri og drengur óvinur haturs og helsis heilsar oss ekki lengur. Þó að héðan sé horfinn hann mun samt áfram lifa, Ijóðin hans létt og sorfin lengi hjörtunum bifa. »>óroddur Guðmundsson. Þorsteinn Valdimarsson fædd- ist 31. október 1918 að Bruna- hvammi i Vopnafirði. Foreldrar hans voru Pétur Valdimar Jó- hannesson bóndi þar og Guðfinna Þorsteinsdóttir, en hún gaf út bókmenntaverk undir nafninu Erla. Þorsteinn lauk stúdents- prófi 1939 og kandidatsprófi i guð- fræði 1946. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann i Reykjavik og hélt tónlistarnámi áfram i Vinar- borg og Leipzig. Hann var kenn- ari við Stýrimannaskólann i Reykjavik frá 1957. Ljóðabækur Þorsteins eru þess- ar: Villta vor (1942), Hrafnamál (1952), Heimhvörf (1957), Heiðnuvötn (1962), Limrur (1965), Vegastafrófið, barnavisur (1966), Fiðrildadans (1967), Yrkj- ur (1975), og þegar hann lést hafði hann að fullu búið til prentunar niundu ljóðabók sina, Smalavis- ur. Þorsteinn þýddi mikið af ljóð- um, tvo óperutexta, klassiska texta sem fluttir voru af ein- söngvurum eða kórum á sinfóniu- tónleikum, texta við söngleiki og mikinn fjölda annnarra söng- ljóða.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.