Þjóðviljinn - 16.08.1977, Side 11

Þjóðviljinn - 16.08.1977, Side 11
Þriöjudagur 16. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Fram—Breiðablik 1:4 á Laugardalsvelli Nýtt andlft á llði Breiða- bliksmanna! Eftir slæman og áhuga- lausan fyrri hálfleik í viðureign Fram og Breiða- bliks sl. sunnudag mættu Blikarnir með óþekkjan- legan svið í seinni hálfleik- inn og skoruðu þá fjögur mörk gegn engu hjá ráð- þrota Frömurum. Eitthvað hlýtur Þorsteinn Frið- þjófsson að hafa lesið yfir sinum mönnum i leikhléi þvi Breiðab li ks menn sýndu raunar á sér nýtt aldlit og buðu upp á knatt- spyrnu sem í senn var ógn- andi og árangursrík. Blikar hafa raunar í sumar leikið oft á tiðum ágæta knattspyrnu, en ógnun og einbeitni hefur oftast vant- að þar til á sunnudaginn að allt var sett í botn og Fram varð að þola þriggja marka tap. Þaö voru þó Framarar sem skoruöu fyrsta mark leiksins á 43. minútu og höfðu þvi forystu 1-0 i leikhléi. Kristinn Jörundsson fékk þá boltann frá Pétri Ormslev og skoraði af öryggi framhjá Ólafi Hákonarsyni sem nú lék aö nýju i marki Breiðabliks. Fyrri hálfleikurinn einkenndist af einhverri lognmollu i herbúð- um beggja liöa, en i leikhléi voru það sem sagt Breiðabliksmenn sem hristu af sér slenið og yfir- spiluðu Framara gjörsamlega. Mörkin komu þannig: 5. min.:ólafur Friðriksson með hörkuskot af löngu færi, boltinn skaust með jörðu og endaði i blá- horninu án þess að Árni Stefáns- son kæmi vörnum við. 1:1. 10. min.:Langur „krossbolti” Gisla Sigurðssonar af vinstri kanti upp i hægra vitateisgshorn, Þór Hreiðarsson með fyrirgjöf á Sigurjón Randversson sem sneri á varnarmenn Fram og skoraöi gott mark, 2:1. 32. min.:Ólafur Friðriksson með fast skot að marki sem stefndi i netmöskva Framara. Kristinn Atlason varð þó fyrir boltanum, breytti stefnu hans verulega, en engu að siður skoppaði boltinn inn fyrir marklinu. 3:1. 43. min.:ólafur Friðriksson enn á ferð með laglega fyrirgjöf á Jón Orra Guðmundsson, sem stóð óvaldaður á markteigshorni og skallaði boltann yfir Arna Stefánsson i stöngina fjær og það- an inn fyrir marklinu. 4:1. Bæði liðin áttu sin tækifæri fyrir utan þau fimm sem gáfu tnörk. Ólafur Friðriksson, langbesti maður Breiðabliks i þessum leik, sivinnandi, átti m.a. skot i stöng i siðari hálfleik og eftir að staðan var orðin 2:1 áttu Frmarar nokk- ur gullin tækifæri til þess að jafna metin, en misnotuðu þau ölí. Ekki er óliklegt að Framarar leggi nú alla áherslu á úrslitaleik- inn i Bikarkeppninni sem nú er framundan. A.m.k. sýndu þeir þessum leik ekki mikinn áhuga og enginn leikmaður náði að rifa sig verulega upp úr meöalmennsk- unni. Arni Stefánsson var að þessu sinni óöruggur i markinu. Breiðabliksmenn tóku sitt hlut- verk hins vegar af alvöru. Þeir léku án miðherja sins Hinriks Þórhallssonar, en sóknarleikur- inn gekk engu að siður upp og var áberandi meri vinnsla og leik- gleði hjá Blikunum heldur en Frömurum. —gsp Harka i Eyjum Það vakti mikla athygli hversu gifurleg harka var i leik tBV og ÍBK i í.-deildar- keppninni. Leikurinn fór fram í Eyjum og á timabili missti dómari leiksins, Þor- varður Björnsson, öll tök á honum. Einnig var ýmsum áhorfendum heitt i hamsi svo að til vandræða varð. Litil gæsla var á vellinum og mættu Eyjamenn huga betur að sliku, ef ekki á illa að fara. Hún var oft þung Valssóknin i leiknum gegn FH. Þarna skallar Kristján Asgeirsson að marki FH. Ljósm. — G.Jóh. íslandsmótið 1. deild: FH—Valur 1:1 Jöfnunarmark Vals á elleftu stundu Það var heldur betur farið að fara um áhangendur Vals á Kaplakrikavellinum á sunnudag- inn. Aðeins ein minúta til leiks- loka og staöan 1:0 FH i hag. Þrátt fyrir nær stöðuga Valssókn allan leikinn og mýgrút af góðum tæki- færum var þarna allt útlit fyrir fyrsta tap Valsliðsins i 19 leikjum. En ekki voru allir búnir að sætta sig viö oröinn hlut. Einn af þeim var Magnús Bergs. Siðasta sókn Vals i uppsiglingu og eftir send- ingu frá Inga Birni Albertssyni geröi Magnús sér litið fyrir og sendi sannkallaöan þrumufleyg i bláhornið vinstra megin, gersam- lega óverjandi fyrir Ragnar Þor- valdsson i marki FH. Orslitin 1:1 eru samt þrátt fyrir allt nokkuð sanngjörn. Valsmenn voru mun meira með boltann og sóknarlot- urnar æði margar, en FH-ingar börðust eins og ljón allan tfman, gáfu aldrei grið og það öðru frem- ur gaf af sér þetta stig sem á timabili virtist ætla að tvöfaldast. Leikurinn á Kaplakrika var að mörgu leyti mjög góður. Bæði lið- in böröust vel og oft sást bregöa fyrir skemmtilegu samspili leik- manna. Veður var ágætt og völl- urinn i nokkuö góðu ástandi. Valsmenn léku undan vindinum i fyrri hálfleik. Sóttu þeir nær lát- laust allan fyrri hálfleikinn, þó án þess að markatækifærin væru neitt sérlega hættuleg. Vantaði Valssókninni greinilega illilega Guðmund Þorbjörnsson en hann gat ekki leikið vegna flensu. Seinni hálfleikur var ámóta fjörugur og sá fyrri. Valsmenn voru meira með boltann en tæki- færin létu á sér standa. Langskot Atla Eðvaldssonar skipuðu helst einhverja hættu. FH-ingar ná forystunni: Á 20. min seinni hálfleiks kom svo mark FH-inga. Eftir eina af tiltölulega hættulausum sóknum FH gómaði Sigurður Dagsson boltann. Ólafur Danivalsson fylgdi á eftir, og viti menn. A ein- hvern ótrúlega klaufalegan hátt missti Sigurður boltann úr greip- um sér beint fyrir fætur ólafs sem þakkaöi gott boö og skilaði boltanum rétta boöleið i markið, 1:0. Fremur fáséð mistök hjá markmanni á borð við Sigurð. Eftir markið lögðu Valsmenn greinilega allt á eitt spil. Sóknar- þunginn var geysimikill og tæki- færunum hreinlega rigndi niður. En allt kom fyrir ekki og minút- urnar fjöruöu út hver af annarri. Um lokaminútuna þar þarf ekki að fjölyrða meira. FH-ingar börðust mjög vel i þessum leik. Þeirra besti maöur var Janus Guðlaugsson sem átti sannkallaðan stórleik. An hans hefðiaðöllum likindum Valssigur séð dagsins ljós. Ragnar Þor- valdsson i markinu stóð sig og mjög vel. Valsliðið lék ágæta vel úti á veilinum i þessum leik. í sóknina vantaði hinsvegar allan brodd, greinilegt hversu mikilvægur leikmaður Guðmundur Þor- björnsson er þar i herbúðum. Atli var góður, sivinnandi og fylginn sér. Athygli vakti afspyrnuléleg frammistaða Harðar Hilmars- sonar sem oft á tiðum virtist eng- an áhuga hafa á þvi sem úti á vellinum var að gerast. Dómari var Sævar Sigurðsson. Verður ekki sagt að hann hafi gert hlutverki sinu nein stórkost- leg skil. —hól. tslandsmeistarar Vals i Islandsmótinu í handbolta utanhúss Valur vann á útimótinu í hand- knattleik Valsmenn eru harðir i horn að taka hvortsem eríhandbolta eða knattspyrnu. A sunnudaginn bættu þeir einni skrautf jöðrinni i hattinn með sigri yfir Vikingi 22:18 í úrslitaleik Isiandsmótsins I handbolta. Sigur Váls i mótinu kom engum á óvart. Þeir voru með jafnbesta liðið auk þess sem áhuginn virtist vera meiri en hjá flestum öðrum liðum 1 mótinu. Jón P. Jónsson var drjúgur i leiknum gegn Vikingi, skoraði 10 mörk. Björn Magnússon skoraði 4 mörk og Jón Karlsson var með 3. Aðrir skoruöu minna. Hjá Vikingi var ólafur Einarsson drýgstur í að skora. Þá fór fram leikur um 3. sæti i mótinu. Fram vann Hauka með 22 mörkum gegn 18.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.