Þjóðviljinn - 16.08.1977, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 16. ágúst 1977
Lögtaks-
úrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjald-
föllnum og ógreiddum þinggjöldum ársins
1977 álögðum i Kópavogskaupstað, en þau
eru: tekjuskattur, eignarskattur, kirkju-
gjald, slysatryggingagjald v/heimilis-
starfa, iðnaðargjald, slysatryggingagjald
atvinnurekanda skv. 36. gr. laga nr.
67/1971, lifeyristryggingargjald skv. 9. gr.
laga nr. 11/1975, atvinnuleysistryggingar-
gjald, almennur og sérstakur launaskatt-
ur, kirkjugarðsgjald, iðnlánasjóðsgjald og
sjúkratryggingagjald. Ennfremur fyrir
skipaskoðunargjaldi, lestargjaldi og vita-
gjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bif-
reiða og slysatryggingagjaldi ökumanna
1977, vélaeftirlitsgjaldi áföllnum og
ógreiddum skemmtanaskatti og miða-
gjaldi, söluskatti af skemmtunum, vöru-
gjaldi af innl. framl. sbr. 1. 65/1975, gjöld-
um af innlendum tollvörutegundum, mat
vælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktar-
sjóðs fatlaðra skipulagsgjaldi af nýbygg-
ingum, söluskatti, sem i eindaga er fall-
inn, svo og fyrir viðbótar- og aukaálagn-
ingum söluskatts vegna fyrri timabila.
Verða lögtök látin fara fram án frekari
fyrirvara á kostnað gjaldenda en ábyrgð
rikissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu
úrskurðar þessa ef full skil hafa ekki verið
gerð.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAVOGI
15. ágást 1977
INNRÖMMUN
Hamraborg 12
Slmi 43330
innrömmunarþjónusta
Skattar
í Kópavogi
Skattgreiðendum i Kópavogi, sem ekki
hafa gert full skil á gjaldföllnum þing
gjöldum 1977, er bent á að LÖGTÖK
HEFJAST 1. SEPTEMBER.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
....................................
Konan min
Guðrún Sveinsdóttir
andaöist að heimili okkar, Eyhildarholti, laugardaginn 13.
ágúst.
GIsli Magnússon.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð viö andlát og útför
svstur minnar
Guðbjargar Jónsdóttur
Nökkvavogi 30.
Fyrir hönd vandamanna,
• Einar Jónsson.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi
Cr Vatnsdat, sem liggur inn úr Vatnsfirði, en um hann liggur leiö
Alþýðubandalagsmanna á Vesturlandi I sumarferð þeirra um næstu
helgi.
Fariö aö
LÁTRA-
BJARGI
19.-21. ágúst
Sumarferð Alþýðubandalags-
ins á Vesturlandi veröur farin
dagana 9. — 21. ágúst n.k.
Farið veröur I Vatnsfjörð, út
að Látrabjargi og um suðurfirði
Vestfjarðakjálkans. Gist veröur
I Birkimel á Barðaströnd.
Náttúrufegurð er mikil á
Vestfjörðum og á Barðaströnd.
Vatnsfjörður er ein fegursta
perla íslenskrar náttúru og fáir
staöir á landinu er hrikalegri en
Látrabjarg.
Leiðsögumaður verður Unn-
ar Þór Böðvarsson, skólastjóri
á Birkimel.
Lagt veröur af stað frá Akra-
nesi kl. 6.00 á föstudag. Til-
kynna verður þátttöku fyrir
miðvikudagskvöld til eftirtal-
inna manna, en þeir veita einnig
nánari upplýsingar um ferðina:
Bjarnfríöur Leósdóttir
Akranesi (93-) 1538
Þórdis Kristjánsdóttir
Akranesi (93-) 1880
Skúli Alexandersson
Hellissandi (93-) 6744
Jenni R. Ólafsson
Borgarnesi (93-) 7176
Kristrún óskarsdóttir
Stykkishólmi (93-) 8205
Kristján Helgason
Ólafsvik (93-) 6198
Sigurður Lárusson
Grundarfirði (93-) 8707
Ferðir Alþýðubandalagsins á
Vesturlandi hafa jafnan veriö
mjög fjölmennar og skemmti-
legar. Verði verður I hóf stillt,
enda á þetta að verða ferö fyrir
alla fjölskylduna.
Islendingar aðilar að
samtökum norrænna
fataframleiðenda
Að undanförnu hafa veriö
staddir hér á landi tveir fulltrúar
Scandinavian Ciothing Council,
þeir Per Andersen formaöur og
John Ljungreen framkvæmda-
stjóri, en þessi norrænu samtök
standa fyrir „Scandinavian
fashion week” sem haldnar eru
tvisvar á ári I Kaupmannahöfn.
Hafa islendingar nú gerst aðilar
að þessum samtökum, en þeir
hafa undanfarin ár tekib þátt I
þessum fatasýningum, án þess að
vera formlega I samtökunum.
tJtflutningsmiðstöð iðnaðarins
boöaðitil blaðamannafundar með
þeim Per Andersen og John Ljun-
green og skýröi Úlfur Sigur-'
mundsson frá því að s.l. vor hefðu
7 islensk fyrirtæki sýnt á þessari
tiskuviku og vakið mikla athygli.
Voru þetta eingöngu fyrirtæki
sem framleiddu ullar- og skinna-
fatnað, en vaxandi áhuga á þess-
um fatnaði gætir nú viðast hvar
erlendis.
Dönsku fulltrúarnir sögðu aö
áhugi á náttúrulegum efnum og
þá ekki slst uilinni skipuðu islend-
ingum í fremstu röð I fatafram-
leiðslu. Eru það einkum Norður-
landaþjóðirnar, sem kaupa hver
af annarri á „Scandinavian
fashion week”, en einnig koma
fulltrúar frá nágrannalöndunum i
Evrópu svo og frá Norður-
Ameriku. Munu Scandinavian
Clothing Council ganga í Evrópu-
samtök fataframleiðenda, AEIH,
innan skamms og verða islend-
ingar þá þátttakendur I þvi sam-
starfi. Er nú verið að undirbúa
næstu fatasýningu, sem verður i
haust, og munu amk. 5 fslensk
fyrirtæki sýna framleiðslu sina
þar.
þs.
Austurlönd
Framhald af bls. 5.
einnig fyrir alla muni forðast
styrjöld þvi aö þeir óttast að
israelar myndu nota tækifæriö og
hrekja allaaraba burt frá Vestur-
bakkanum og gera hann að
israelsku landi. Þessi mikli mun-
ur á hermætti er einmitt ein skýr-
ingin á þvi hvers vegna arabar
sýna nú talsverða sáttfýsi, eða
„aukinn sveigjanleika”svo notuö
séu orð Cyrusar Vance.
Vegna þessa aðstöðumunar
hafaýmsirlátiöiljósþannótta að
israelar kunni að falla i þá freist-
ingu að hefja eins konar „fyrir-
byggjandi striö”, en litlar likur
eru þó á þvi vegna þess að þá má
búast viö þvi að almenningsálitið
iheiminum snúistgegn þeim. Það
er þvf erfitt að sjá hvaö nú getur
tekið við, en það verður þó að
vona að ísraelar eigi ekki eftir að
iðrast þess að þeir skuli ekki hafa
verið samningsfúsari þegar öll
staöan var þeim i hag og and-
stæðingar þeirra vildu koma til
móts við þá.
e.m.j.
Stúlkan
Framhald af 1
fá nánari upplýsingar um liðan
drengsins i gærkvöld .
Skotvopnið sem notað var viö
þennan voðaverknað er riffill af
hlaupvidd 22 cal. og mun hann
hafa verið i eigu hins unga ógæfu-
manns, sem hafði leyfi fyrir hon-
um.
Ekki hafði enn veriö hægt að yf-
irheyra drenginn formlega, en þó
höfðu rannsóknarlögreglumenn
rætt eitthvað við hann, en ekki
hafði hann gefið þeim upp ástæð-
ur fyrir þessu hörmulega tiltæki
sinu, enda i miklu uppnámi eftir
verlmaöinn og litiö hægt við hann
að tala. Bæði hin myrta og dreng-
urinn fæddust áriö 1955. Þau
höfðu dvalið saman erlendis og
voru fyrir stuttu komin aftur
hingað til lands.
Prentvilla í
forustugrein
í FORYSTUGREIN Þjóövilj-
ans á sunnudaginn var féll niöur
einn bókstafur svo aö merking
brenglaðist. Þar átti aö standa:
„Sagan og timinn velkja (ekki
velja!) okkur öll með breytileg-
um hætti”. — Þetta leiðréttist hér
meö.
i Styrkið
neyðarvamir
RAUÐA KROSS fSLANDS
Pípulagnir
Nýlagmr, breyting
ar, hitaveitutenging
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 a
kvöldin)
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum
verður haldinn að Laugarbóli í Bjarnarfirði, Strandasýslu,
dagana 10. og 11 sept. n.k.
Fundurinn hefst klukkan 2 laugardaginn 10. sept.
Auk aðalfundarstarfa verður rætt um stjórnmálin, héraðsmál og
félagsstarf Alþýðubandalagsins. Dagskrá nánar auglýst síðar.
— Stjórn kjördæmisráðs.
Umræðufundur um samvinnuhreyfinguna.
Næsti umræðufundur Alþýöubandalagsins I Reykjavík veröur
haldinn fimmtudaginn 18. ágúst kl. 20.30 að Grettisgötu 3. Rætt
verður um samvinnuhreyfinguna.
® Blikkiðjan
Ásgarði 7# Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468