Þjóðviljinn - 24.08.1977, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 24.08.1977, Qupperneq 11
Miövikudagur 24. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA’ll Slök tilþrif í Keflavík — þegar IBK vann Breiðablik í síðasta leik þessara lið á keppnistímabilinu IBK og Breiðablik kvöddu knattspyrnuvertiöina i ár ineö fremur slökum ieik i Kcflavik i gærkvöid. IBK sigraöi, skoraöi 3 mörk gegn 2 mörkum Blikanna. Þaö eina sem reis upp úr þessum leik var prýöisgóö markvarsla Þorsteins Bjarnasonar, sem enn einu sinni undristrikaöi hversu frábær markvöröur hann er aö veröa og reyndar er . Keflvikingar skoruöu þrjú fyrstu mörkin og öll I fyrri hálfleik. Verður bróöurpart- ur þeirra aö skrifast á reikn- ing Ólafs Hákonarsonar sem ólíkt kollega sinum i Kefla- vikurmarkinu, voru herfi- lega mislagðar hendur. Þóröur Karlsson opnaöi markareikninginn snemma I fyrri hálfleik eftir mistök I vörn Blikanna. Stuttu siöar bætti hann ööru marki viö. Tókst á einhvern ótrúlegan hátt aö vippa yfir ólaf i markinu. Friðrik Ragnars- son skoraöi svo þriöja mark- Framhald á bls. 14. /*v staðan FH-Þór 5— 2 ÍBV-ÍA 0—1 ÍBK—UBK 3- -2 Akranes 18 13 2 3 35:13 28 Valur 17 11 4 2 35:15 26 ÍBV 18 9 3 6 27:18 21 ÍBK 18 8 4 6 29:28 20 Vikingurl7 6 7 4 19:20 19 Breiða- blik 18 7 4 7 27:26 18 FH 18 5 6 7 26:30 16 Fram 17 4 5 8 23:34 13 KR 17 3 3 11 23:33 9 Þór 18 2 2 13 21:48 6 Markhæstu menn: Pétur Pétursson ÍA 16 Ingi Björn Albertsson Val 13 Sigurlás Þorleifsson ÍBV 12 Fram og KR í Þýskalandi Um siöustu helgi fóru meistarafiokkar Fram og K.R. I keppnisferöir til Vest- ur-Þýskalands. K.R.-ingar héldu utan á laugardag til Luxemborgar og héldu þaö- ar i bifreið i 2.000 km. hringferö, sem nær allt suður til Ulm viö Dóná og noröur til Hannover og Osnabrilck. Siöan heldur liöiö um Ruhr- héraðiö og um Köln til Luxemborgar. A þessari ferö leikur liöiö 9 leiki, m.a. gegn Bundesligaliðunum FA Göppingen og TV Neuhaus- en. Flokkurinn kemur heim 4. september. Fram fór utan á sunnudag til Luxemborgar og veröur i Vestur-Þýskalandi á vegum Grön-Weiss Dankersen, sem kom hingað s.l. haust á veg- um Fram, en með þvi liði leika sem kunnugt er þeir Axel Axelsson og Ólafur Jónsson. Framarar dvelja hjá Dankersen i eina viku og leika þar a.m.k. 4 leiki, m.a. gegn GW Dankersen. Flokk- urinn kemur heim fimmtu- daginn 1. september. Skagamcnn hafa tryggt sér úr- slitaleik um tslandsmeistaratitil- inn i ár. Með 1:0 sigri yfir ÍBV i Vestmannaeyjum I gærkvöldi er sú einkennilega staða komin upp aö Valsmenn sem leitt hafa mótiö svo til sleitulaust allt frá sigrin- uin yfir ÍA 4:1 verða nú aö vinna Víking til að tryggja sér aukaleik um titilinn. Það verður ekki sagt með neinni sanngirni að IA hefði verð- skuldað sigurinn miklu heldur var einhver stórkostleg farsæld yfir liðsmönnum. Meistara heppni segja sumir. Það kemur ekki i ljós fyrr en upp er staðið. Pétur Pétursson hinn ungi og marksækni framherji IA skoraði eina mark leiksins á 8. min. Eftir skemmtilegt upphlaup upp völl- inn þar sem Pétur naut rikulega aðstoðar Kristins Björnssonar og Harðar Gunnlaugssonar komst Pétur i dauðafæri, sneri á Sigurð I markinu og skoraði örugglega. Fyrri hálfieikur var annars fremur dauflegur á að horfa og fátt markvert gerðist. Eyjamenn léku undan sterkum meðvindi en það virtist hafa litið að segja. Seinni hálfleikur var hins vegar mun li'flegri og bauð uppá ara- grúa marktækifæra. Strax á 5. min. á Hörður bakvörður 1A þrumuskot sem smellur i þver- slánni. Tómas Pálsson veldur oft mikl- um usla i seinni hálfleiknum en Framhald á bls. 14. Auðvelt hjá FH FH-ingar voru ekki i vandræð- um með að ná i bæði stigin i siö- asta leik þeirra i 1. deildinni i knattspyrnu sem var gegn Þór i gærkvöld. Sigruðu FH-ingarnir verðskuldað 5-2. Sigur sem var sistofstór. i hálfleik varstaðan 2- 1. Það var Janus Guðlaugsson, langbesti maður vallarins, sem skoraði fyrsta mark, FH. Hár bolti kom fyrir markið og gullfallegur skallabolti Janusar hafnaði i marki Þórs 1:0. Pálmi Jónsson skoraði svo ann- að markið. Fékk hann góðan stungubolta innfyrir Þórsvörnina og skoraði af öryggi 2:0. Fyrra mark Þórs skoraði Sig- þór Ómarsson. Eftir mikla þvögu fyrir framan FH markið tókst Sigþóri að senda boltann í markið 2:1. Snemma i siðari hálfleik tókst þórsurum að jafna. Pressuðu þeir stift og barst boltinn til Jóns Lárussonar sem skaut að mark- inu. A leiðinni fór boltinn i varnarmann, breytti um stefnu og framhjá Þorvaldi markmanni, 2:2. En FH-ingar voru ekki á þvi að gefa stig. Þeir léku mjög vel og áttu góð tækifæri og að þvi kom að þeir tækju aftur forustu. Viðar Halldórsson tók aukaspyrnu langt Ut á kanti, sendi boltann beint á hausinn á Janusi sem stökk að- eins upp og skallaði i markið, 3:2. Sibustu tvö mörkin skoraði Andrés Kristjánsson. Fyrra markið lagði Helgi Ragnarsson upp og þurfti Andrés ekki annað en að ýta i boltann til að skora, 4:2. Janus gaf stuttu siðar góðan bolta til hans, hann lagði boltann aðeins betur fyrir sig og vippaði honum siðan framhjá markverði Þórs, 5:2. G.Jóh. Pétur Pétursson. Hann hefur nú svo gott sem tryggt sér marka- kóngstitilinn i ár, þrcmur mörkum á undan Inga Birni Albertssvni Val. Melstaraheppni Skagamöiuium í — Eyjamenn sóttu og sóttu en eina markið var Skagans Velheppnað héraðsmót UMSV Héraösmót Ungmennasam- bands Vestur-Skaftafellssýslu var háö á Sindravelli viö Péturs- ey i Mýrdal dagana 13. og 14. ágúst s.l. Mótiö er stigakeppni milli ungmennafélaganna i sam- bandinu, en þau eru Umf. Dyr- hólaey, Umf. Drangur, Umf. Skafti og Umf. Armann. Mótiö gekk vel, veöur var allgott, en strekkingskaldi var þó verulega til baga. Aö þessu sinni sigraöi Umf. Armann I keppninni meö 178 stigum, Umf. Skafti hlaut 105,5, Umf. Dyrhólaey 90,5 og Umf. Drangur 58 stig. Mótsstjóri var Guömundur Þórarinsson. Úrslit i einstökum greinum urðu sem hér segir: Kvennagreinar: 100 m hlaup sek. 1. Vilb. Jónsd. Dyrhólaey 13,5 2.StellaSverrisd. ,Skafta, 13,6 3.Sólb.Steinþórsd., Arm. 13,8 200 m hlaup sek. 1. Stella Sverrisd. Skafta, 27,5 2. Vilb. Jónsd.Dyrhólaey, 27,6 3. Jóh. Steingrimsd. Árm 27,9 400 m hlaup min 1. AstaK.Helgad.Árm. 1.10,8 2. LiljaSteingr.d. Arm. 1.11,4 3. Jóh.Steingr.d. Arm. - 1.14,5 Hástökk min 1. Asta Sverrisd. Skafta 1,38 2. GuðrUn Geirsd, Skafta 1,34 3. Vilb. Jónsd.Dyrhólaey, 1,34 Kúluvarp min 1. Brynja Guðjónsd, Dyrhólaey 9,16 2. Þórhildur Jóns,Dyrhólaey 8,15 Kringlukast metra 1. Þórh. Jónsd. Dyrhólaey 2. Brynja Guðjóns, 29,16 Dyrhólaey 21,81 3.Vilb. Jónsd,Dyrhólaey 19,38 Spjótkast metra l.Þórh. Jónsd. Dyrholaey 29,18 2.GuörUn Geirs, Skafta, 23,80 3. MargrétHéöinsd, Skafta 23,13 800 m hlaup min l.ÁstaK.Helgad.Arm 2.53,6 2.LiljaSteingrd. Arm. 2.55,0 3. Jóh Steingrd., Arm 2.56,2 Langstökk metra 1. GuörUn Geirsd, Skafta 4,92 2. Ásta K. Helgad, Arm. 4,46 3. Jóh. Steingrd. Arm 4.45 4x100 m boðhlaup sek 1. Sveit Ármanns 59,5 2,SveitSkafta 63,3 Karlagreinar: 1. Birgir Einars, Arm 11,5 2. Jón JUliusson, Skafta, 11,6 3. Einar MagnUss, Arm 12,2 400 m hlaup sek 1. VigfUs Helgas, Árm. 58,2 2. Ólafur MagnUs, Árm, 59,5 3. Einar Magnúss. Arm. 59,9 U.S.V.S.-hlaup (3 km) min 1. GuðniEinars, Drangi 11,23,1 2. Ölafur MagnUss, Árm. 11,43,7 3. VigfUs Helgas, Arm. 11,44,5 I500mhlaup min 1. Guðni Einarss., Drangi 5.02,1 2. KjartanP. Einarss., Drangi 5.10,4 3. VigfUsHelgas., Árm. 5.15,7 Hástökk m 1. Salómon Jónss. Dyrhólaey 1,68 2. Ólafur MagnUss., Árm. 1,63 3. Gisli Sveinsson, Skafa 1,55 4. HeimirGunnarss., Dyr- hólaey 1,55 Þristökk m 1. Ólafur MagnUss., Árm. 13,03 2. Birgir Einarss., Arm. 12,47 3. Stefán Gunnarss., Dyrhóla- ey 12,31 Langstökk m 1. BirgirEinarss., Arm. 7,03 2. ÓlafurMagnUss., Arm. 6,19 3. VigfUs Helgas., Arm. 6.05 Kúluvarp m 1. PálmiSveinss., Arm. 11,28 2. Jón JUliuss,Skafta 10,28 3. HeimirGunnarss.,Dyrhóla- ey 10,28 Kringlukast m 1. PálmiSveinss., Arm. 33,20 2. Jón JUliuss.,Skafta 30,96 3. Guðm. Eliass., Dyrhólaey 29,46 Spjótkast m 1. Jón Júliuss.,Skafta 45,54 2. Guðm. Sigurjónss., Drangi 44,75 3. HeimirGunnarss.,Dyrhóla- ey 44,65 4x100 m boðhlaup sek 1. Sveit Armanns 50,5 2. Sveit Skafta 51,1 3. SveitDrangs 53,5 4x1000 m boöhlaup min 1. Sveit Armanns 21.86 2. SveitSkafta 22.64 3. SveitDrangs 22.68 1 knattspyrnu sigraði lið Ar- manns i Urslitaleik við liö Drangs með 4:2. Lið Drangs sigraði i blakkeppni, og i handknattleik kvenna kepptu til Urslita lið Dyr- hólaeyjar og Drangs, og lauk leiknum meö 6:3 fyrir Dyrhólaey eftir framlengdan leik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.