Þjóðviljinn - 24.08.1977, Page 12
12 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. ágúst 1977
Tefldu
með lifandi
mönnum
Skák með lifandi
mönnum er nokkuð sem
ekki sést oft hér á landi.
Þetta þykir oft hin besta
skemmtun og er þá
skemmst að minnast, er
þeir Bent Larsen og
Friðrik ólafsson tefldu
með lifandi mönnum á
Laugarvatni á meðan
Heimsmeistaraeinvígið
stóð yfir hér á landi 1972.
Þeir fyrir norðan tóku
upp þráðinn á nýjan leik
og fengu til liðs við sig tvo
nýbakaða Norðurlanda-
meistara í skák, Guð-
laugu Þorsteinsdóttur og
Jón L. Árnason.
Skákin var hin skemmtileg-
asta, og má með sanni segja að
hinir fjölmörgu áhorfendur hafi
skemmt sér konunglega. Það
sama verður kannski ekki sagt
um þá sem tóku að sér hlutverk
skákmannanna. Skákin stóð i
eina klst. og má nærri geta að
sumir voru orðnir ansi þjakaðir,
þó einkum kóngarnir, sem urðu
að standa sleitulaust hreyfing-
arlausir. Fór svo, að svarti
kóngurinn fékk aðsvif, enda Jón
ekkert á þeim buxunum að
hreyfa hann um of. En hér birt-
ist skákin eins og hún kom
mönnum fyrir sjónir að
Melgerðismelum:
Hvftt: Guðlaug Þorsteinsdóttir
Svart: Jón L. Árnason
Benoni-byr iun
1. d4 Rf6
Jón L. Arnason og Guðlaug Þorsteinsdóttir viö taflborðiö að Melgerðismelum. Skákinni lauk með sigri
Jóns eftir snarpa viðureign.
DB-mynd
2. c4 c5 3. Rf3
(Hógvær ieikmáti, einkenn-
andi fyrir Guðlaugu. Hún reynir
augljóslega að forðast þær
flækjur sem iðulega koma upp
eftir 3. d5).
3. .. cxd4 6. Be2 Be7
4. Rxd4 e6? 7. 0-0 0-0
5. e3 Rc6 8. Rc3 a6
(Ollu skarpara er hér 8. — d5,
og svartur virðist ekki eiga i
miklum erfiðleikum með að
jafna taflið.)
9. b3 d6 12. Rd5 Rxd5
10. Bb2 e5 13. cxd5 Rb8
11. Rf3 Da5 14. e4 f5
(Blæs til sóknar. Staðan má
nú heita i jafnvægi.)
15. Rd2 fxe4 19. a3 Kh8
16. Rxe4 Bf5 20. b4 Db6
17. f3 Rd7 21. Dd2 Rf6
18. Khl Hac8 22. Rc3 (?)
(Hér verða Guðlaugu á mis-
tök, og Jón nær frumkvæöinu i
sinar hendur. Sterkara var að
leika 22. Bd3, og staðan er i jafn-
vægi.)
22. .. Dd4! 23. Hfdl Dh4!
(Drottningin ræðst til atlögu á
kóngsvængnum þar sem varnir
hvits eru hvað veikastar fyrir.)
24. Del Dh6
25. Hacl Hce8 29. Hd2 Hf5
26. Bd3 Bxd3 30. Rg3 Hf6
27. Hxd3 Rh5 31. Hc7 b5
28. Re4 Rf4 32. Dcl
(Með lúmskri hótun: 33.
Hxe7)
32. ..Bd8
33. Hc6 Hg6 34. Del?
(Afleikur i bullandi tima-
hraki. Betra var 34. Kgl, þó að
svartur hafi geysisterka sókn
eftir 34. — Bh4 t.d. 35. Rfl Bf2
—! 36. Kxf2 Hxg2 — 37. Kel e4!
o.s.frv.)
34. .. Bh4 35. Kgl Rh5
(Hér fór Guðlaug yfir tima-
mörkin, er staðan er farin veg
allrar veraldar. Svartur vinnur
peð og mylur kóngsstöðu hvits
um leið.)
Deilt um landspildu í Vík í Mýrdal:
Ráðuneytið er á móti
opinberri umræðu
Heilbrigðisráðuneytið hefur
sent frá sér greinargerð vegna
fréttar á þriðju sfðu Þjóöviljans i
gær um mælingu og giröingu á
landspildu i Vík I Mýrdal. 1 lok
greinargerðarinnar kemur fram
að ráðuneytiö vill ekki taka þátt i
frekari blaðaskrifum um málið.
Greinargerð áðuneytisins er svo-
hljóöandi i heild sinni:
Vegna fréttar i Þjóöviljanum
þirðjudaginn 23. ágúst 1977, sem
ber yfirskirftina: „Ráðunéyti
sendi fulltrúa til að sjá um yfir-
troðslu”, óskar heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið eftir
þvi að eftirfarandi verði birt á
siðum Þjóðviljans:
Um nokkurt skeið hefur staðið
yfir deila um eignarrétt aö hluta
lands þar sem verið er að reisa
heilsugæslustöö í Vik i Mýrdal og
ráðgert var að reisa læknisbú-
stað. Heimamenn ráðstöfuðu
þessu landi undir umrædd mann-
virki og lýstu þvi yfir við ráðu-
neytið að þaö væri kvaöalaust.
Siðan kom á daginn aö skv. gjafa-
afsali hafði hluta landsins veriö
ráöstafað undir elliheimili og að
ekki hafði verið leitað eftir sam-
þykki gefenda til breytinga þar á.
Fyrir skömmu kom og fram aö-
ili, sem telur sig eiga hluta um-
rædds lands, þ.e.a.s. þar sem
fyrirhugað var aö reisa læknisbú-
staöinn. Styður þessi aðili kröfu
sina það sterkum rökum að mati
ráðuneytisins að ráðuneytiö telur
ekki fært að leggja fé I frekari
framkvæmdir við umrætt verk
fyrr en fengist hefur viðunandi
lausn á þessu deilumáli. Sam-
kvæmt lögum nr. 56/1973 um heil-
brigöisþjónustu ber rikinu aö
greiða 85% kostnaðar við bygg-
ingu heilsugæslustöðvar, þannig
að mikið er i húfi að mati ráðu-
neytisins að rétt sé að málum
staðið.
Fyrir nokkrum dögum var
ráöuúeytinu tilkynnt að sá aðili,
sem telur sig eiga hlut umrædds
lands, hygðist. láta mæla þá
spildu sem hann telur sig eiga.
Ráðuneytið taldi ástæðu til þess
að senda fulltrúa sinn á vettvang
til þess að verða vitni að um-
ræddri mælingu enda bentu likur
til aö þegar kæmi til lögbannsað-
geröa af hálfu heimamanna.
Sú fullyrðing greinarhöfundar
að fulltrúi ráðuneytisins hafi tek-
iö þátt i mælingunni og lagt á ráö-
in um girðingaframkvæmdir er
að sjálfsögðu röng.
Fyrir atbeina sýslumannsins i
Vik féllust aðilar á sáttatilraun i
málinu og var lögbannsaðgerðum
þvi frestað.
Ráðuneytið telur ekki aö þaö
muni stuðla að samkomulagi i
þessu máli að ræöa þaö frekar á
opinberum vettvangi.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráöuneytiö,
23. ágúst 1977
bækur
The Good Life.
John Esmonde and Bob Larbey.
Penguin Books 1977.
Höfundarnir setja saman efni
fyrir sjónvarp og útvarp. 1 þess-
ari bók, sem hefur verið prentuð
þrisvar sinnum siðustu tvö árin,
segir frá manneskjum sem taka
sig til og fara að stunda sjálfs-
þurftarbúskap. (Jtgáfa bóka um
slik efni hefur aukist siðustu árin
víða i Evrópu og Bandarikjunum
og auðvitaö á Englandi. Ýmsir
eru orðnir þreyttir á borgarlifi og
tilbreytingarlitiili skrifstofuvinnu
eða verksmiðjuvinnu og meðal
þeirra er að finna lesendur slikra
bóka, sem þessarar. Ýmsir hafa
gert tilraunir til að lifa af sjálfs-
þurftarbúskap og sumum hefur
tekist það.
Doctor Caro.
Bernard Packer. Heinemann 1977
Höfundurinn hefur stundað
margvislegar atvinnugreinar,
hann vann um tima i verksmiðju,
var farmaður og skólakennari og
býr nú i Washington og starfar
sem þýðandi úr spænsku. Hann
var á herskólanum i West-Point
eftir að hann hvarf að heiman, en
hann er borinn og barnfæddur i
Ffladelfiu.
Það er ör atburðarás i sögu
Packers, Carr, sem er aðal-
persónan, neitar að sætta sig við
orðinn hlut. Hann er nýr maðurog
með nýtt andlit, eftir andlits-
breytingu, sem var gerð á honum
og leitin hefst þar til henni lýkur i
litauðugri borg einhversstaðar i
Suður-Ameriku, leit sem lýkur
meðhefnd. Höfundi tekstað ná til
þrifum i lýsingum á fjölskrúðug-
um söfnuði flakkara, gleði-
kvenna, flóttamanna og ævin-
týrafólks, sem er komið saman i
þessari frumskógaborg og
filósófiskum vangaveltum aðal-
persónanna. Höfundurinn nær
einnig nokkurri spennu, sem ekki
slaknar fyrr en á réttum tima.
8215 nýjar
íbúdir á
10 árum
Ifréttinni i gær um nýbyggingar I
Rvk. á 10 ára timabili féli niöur
einn tölustafur og varð af þvi
meinleg villa. A þessum 10 árum
voru teknar i notkun 8215 nýjar
ibúðir.en ekki 821 eins og stendur i
blaðinu i gær.
Leidrétting
1 sunnudagsgrein Hjörleifs
Guttormssonar „Auðlindir, rann-
sóknir og islensk atvinnustefna”,
féllu niður fáein orð efst i 5ta
dálki, þannig að merking raskað-
ist. 1 heild er málsgreinin rétt
svona:
,,A þvi eigum viö nú að hafa ráö
andstætt þvi sem var um gengnar
kynslóðir i landinu og i þessum
efnum verður að brjóta blað hiö
fyrsta með skynsamlegri stefnu-
mörkun, ákveðinni forystu um
rannsóknir og með fjárveiting-
um, sem ekki eru fyrst og fremst
sniönar aö skammsýnum nýt-
ingarsjónarmiöum”.
Rafveita
Hafnarfjarðar
auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar.
1. Starf deildartæknifræðings (sterk-
straums)
2. Starf rafvirkja
3. Starf tækniteiknara, hálfs dags starf
frá 1. okt. n.k.
Umsóknum skal skila á sérstökum um-
sóknareyðublöðum til Rafveitustjóra, sem
veitir nánari upplýsingar um störfin.
Rafveita Hafnarfjarðar.