Þjóðviljinn - 24.08.1977, Síða 13

Þjóðviljinn - 24.08.1977, Síða 13
útvarp Miðvikudagur 24. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Kjarvalsstaðir—þar stendur nú yfir sýning á listaverkum í eigu Keykjavikurborgar. Víösjá KJAR- VALS- STAÐIR Kjarvalsstaöir og mál- efni þeirrar stofnunar verða á dagskrá i Víðsjá kl. 19.35, en þátturinn er að þessu sinni í höndum ólafs Jónssonar. Ólafur sagði að fjallað yrði i kvöld um málverkaeign Reykjavikurborgar, en nú stendur einmitt yfir sýning á Kjarvalsstöðum á málverkum úr ýmsum kontórum embætta og stofnana borgarinnar. Enn- fremur verður fjallað um rekst- ur Kjarvalsstaða, þvi kosning nýs listráðs stendur fyrir dyrum og i þvi sambandi rætt hvort hugaö sé á einhverjar breyting- ar á stjórnarformi. Þeir aðilar, sem teknir veröa tali i þættinum, eru þeir Ólafur B. Thors, Aðalsteinn Ingólfsson, listráðunautur hússins, og Hjör- leifur Sigurðsson, formaður Félags islenskra myndlistar- manna. Er vindur blœs... „Er vindur blæs ..." heitir kanadisk fræðslu- mynd um vindinn, mynd- un hans og sérkenni. Lýst er áhrifum hans á mann- virki og sýnt hvernig unnt er að breyta honum í raf- magn. Þessi mynd mætti halda að geymdi litinn fróðleik fyrir is- lenska áhorfendur, þvi hér er vissulega nóg um vind, og á ári hverju sjá menn hér svo margar tegundir af vindi, að þykja mætti furöu gegna ef kanada- menn gætu sýnt okkur einhvern vind á kvikmynd, sem við ekki höfum séð fyrr. Hérlendis voru menn heldur alls ekki fákunn- andi i að hagnýta sér vind til rafmagnsframleiðslu þvi viða gnæfðu hér fyrr á árum rellu- spaðar upp af sveitabæjum, ætlaðir til að láta vind hlaða rafgeyma, þótt vist reki mann minni til að hafa heyrt að straumur sá gerðist oft enda- sleppur og týran á tiðum litil. Meira að segja heyrðist talað um vindskort, enda eftir öðru á Islandi að þá gerast náttúruöfl- in öll öndverð þegar hafa á af þeim gagn, eins og menn geta best borið um i Mývatnssveit. Enda sést nú vart relluspaði á sveitabæ meir; vindur þykir ,ekki stööugur aflgjafi, — og 'skútuöld er öll. En tækninni fleygir fram og vindur blæs enn.og nú á dögum orkuskorts má ekki horfa fram- hjá neinni orku, sem vegur gæti orðið að nýta og efalaust veröa ýmsar nýjungar kynntar i myndinni i kvöld, sem þrátt fyr- ir allt sem að ofan er sagt, gætu orðið okkur hér að notum meö allan okkar fjölbreytilega vind, safnið.sem einskis verður i saknað, nema hvirfilvinda og fellibylja; ... kannske við þekkj- um færri vinda en okkur dettur i hug, — þrátt fyrir allt,og guði sé lof! Islenskir vindar niunu ef til vill ekki hafa sig jafn vel að hófi komandi vetur og hinn siöasta. Þó er aldrei að vita.... 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00; Sigrún Sigurðardóttir les þýðingu sina á sögunni „Kondu aftur, Jenný litla” eftir Margaretu Strömstedt — sögulok (8) Tilkynningar kl. 9.30.Léttlög milli atriða. Kirkjutónlist kl. 10.25; Hel- mut Walcha leikur á orgel Prelúdiu og fúgu i G-dúr og Fantasiu og fúgu i c-moll eftir Johann Sebastian Bach / Ljóðakórinn syngur sálmalög: Guðmundur Gislsson leikur á orgel og stjl. Morguntónleikar kl. 11.00: Musica Viva-trióiö i Pittsburgh leikur Trió i g- mollop. 63 fyrir flautu, selló og pianó eftir Weber / Koeckert-kvartettinn leikur Strengjakvartett i B-dúr op. 130 eftir Beethoven. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miudegissagan: „Föndrararnir” eftir Leif Panduro Orn Ólafsson les þýðingu sina (13). 15.00 Miðdegistónleikar Moura Lympany og hljóm- sveitin Filharmonia leika Pianókonsert nr. 1 eftir Alan Rawsthorne: Herbert Menges stjórnar. Maurice Durufle leikur á orgel með hljómsveit Tónlistarháskól- ans i Paris Sinfóniu nr. 3 i c- moll op. 78 i tveim þáttum eftir Saint-Saens: Georges Prétre stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn Halldór Gunn- arsson kynnir. 17.30 Litli barnatiminn Guö- rún Guðlaugsdóttir sér um timann. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viðsjá Umsjónarmenn: Ólafur Jónsson og Silja Að- alsteinsdóttir. 20.00 Einsöngur; Sigurður Skagfield syngur Islensk lög: Fritz Weisshappel leik- ur á pianó. 20.20 Sumarvaka a. tUr land- námi Auður djúpúðgu Gisli Kristjánsson ræðir við hjón- in Egil Benediktsson bónda og hreppstjóra og Pálinu Jónsdóttur, Sauðhúsum i Laxárdal. b. Þáttur af Þor- björgu kolku i Kolkunesi Knútur R. Magnússon les úr ritum Bólu-Hjálmars: fyrri hluti. c. Kórsöngur: Karla- kór Reykjavikur syngurlög eftir Bjarna Þorsteinsson: Páll P. Pálsson stjórnar. 21.30 Útvarpssagan: „Ditta mannsbarn” eftir Martin Andersen-Nexö Þýðandinn, Einar Bragi, les (24). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Kvöldsag- an: „Sagan af San Michele” eftir Axel Munthe Þórarinn Guðnason les (34). 22.40 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.25 Fréttir. Dagskrálok. 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Er vindur blæs. Kana- disk fræðslumynd um vindinn, myndun hans og sérkenni. Lýst er áhrifum vinds á mannvirki og sýnt, hvernig unnt er að breyta honum i rafmagn. Þýðandi og þulur Páll Bergþórsson. 20.55 Onedin-skipateiagið (L) Breskur myndaflokkur. Lokaþáttur. Hjátrú og hind- urvitni. Efni næstsiðasta þd t t a r : M a t t Harvey siglir heim frá Argentinu með skemmdan farm. Elisabet kennir þaö vanrækslu hans og neitar honum um frekari vinnu. James fréttir af fyrirtæki, sem er illa statt fjárhags- lega, og tekst honum að eignastþað, m.a. fyrir hjálp Elisabetar. Til endurgjalds ætlar hann að fá trygg- ingarfélagið til að borga skemmda varninginn. Við nánari athugun kemur i ljós að Harvey hefur farið eftir settum reglum, og Elisabet fær trygginguna greidda. En tilraunir hennar til að sættast við Harvey bera engan árangur. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 21.45 Natalie Cole (L) Natalie Cole, 26 ára gömul dóttir söngvarans Nat King Cole, syngur „soul” og rythm & blues lög. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 22.30 Dagskrárlok Kópavogskaupstaður 0 Frá grunnskólum Kópavogs Innritun nýrra nemenda i grunnskóla Kópavogs, þeirra sem eru nýfluttir, eða hafa ekki verið innritaðir áður, fer fram i skólunum eða simum þeirra fimmtudag- inn 25. ágúst kl. 10-12 og 14-16. Lokainnritun i framhaldsskóladeildir fer fram á sama tima, og tilkynna þarf breyt- ingar á fyrri umsóknum. Brottflutning grunnskólanemenda skal tik kynna viðkomandi skóla. Skólafulltrúinn. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir júlimánuð 1977, hafi hann ekki verið greiddur i sið- asta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft- ir eindaga, uns þau eru orðin 10%, en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 18. ágúst 1977 • Blikkiðjan Ásgarði 7/ Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 Styðjum Alþýðuleikhúsið — happdrætti Þeir sem hafa fengið heimsenda miða eru vinsamlega beðnir um að gera skil nú þeg- ar. Dregið verður 1. sept. n.k. Með fyrirfram þakklæti. Starfshópurinn Rækjuveiðar Rækjuveiðar i Arnarfirði, ísafjarðar- djúpi, Húnaflóa og Axarfirði hefjast i október n.k. Umsóknir um veiðileyfi verða að berast ráðuneytinu fyrir 15. september n k. Umsóknir, sem berast siðar, verða ekki teknar til greina. í umsóknum skal tilgreina nafn skipstjóra, nafn báts og ein- kennisstafi og ennfremur skipaskrárnúm- er. Siávarútvegsráðuneytið 22. ágúst 1977.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.