Þjóðviljinn - 24.08.1977, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. ágúst 1977
Halda tónleika
á föstudaginn
Föstudaginn 26. ágúst efna þær
Anna Rögnvaldsdóttir fiöluleikari
og Agnes Löve píanóleikari til
tónleika i Norræna húsinu. Þetta
eru fyrstu tónleikar Onnu Rögn-
valdsdóttur, sem nýkomin er
heim frá námi i London.
Anna er fædd á Siglufirði árið
1949, dóttir hjónanna Rögnvalds
Rögnvaldssonar og Guðrúnar
Albertsdóttur.
Hún hóf nám i fiðlúleik 9 ára
gömul, i TÖnskóla Siglufj.,stund-
aði siðan nám við Tónlistarskól-
ann i Reykjavík hjá Ingvari Jón-
assyni og Birni Olafssyni og lauk
þaðan fiðlukennaraprófi vorið
1971.
Eftir það kenndi hún við ýmsa
skóla, lék I Sinfóniuhljómsveit Is-
lands og fór á hennar vegum á ár-
legt mót sinfóniuhljómsveita, i
Orkney Springs i Bandarikjunum
sumarið 1972.
Haustið 1973 fór Anna til fram-
haldsnáms i London, þar stundaði
hún fyrst nám við Guildhall
School of Music and Drama, hjá
Yfrah Neaman,og að tilhlutan
hans sótti hún sumarmámsekið i
Nizza i Frakklandi. Fékk hún til
þess styrk frá franska sendiráð-
inu á tslandi.
S.l. 3 ár hefur hún stundað nám
við Trinity College of Music hjá
próf. Béla Katona, sem er mjög
virtur kennari i London.
Agnesi Löve þarf ekki að
kynna, hún er orðin þekktur
Agnes Löve
pianóleikari hérlendis, hefur
komið fram á fjölda tónleika og
sem einleikari með Sinfóniu-
hljómsveit Islands.
Anna Rögnvaldsdóttir
A efnisskránni verða verk eftir
Corelli, Jóhann Sebastian Bach,
Mozart, og César Franck.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
41þýðubandalagið á Vestfjörðum.
Aðalfundur kjördæmisráðs Aiþýðubandalagsins á Vestfjörðum
verður haldinn að Laugarhóli i Bjarnarfirði, Strandasýslu,
dagana 10. og 11 sept. n.k.
Fundurinn hefst klukkan 2 laugardaginn 10. sept.
Auk aðalfundarstarfa verður rætt um stjórnmálin, héraðsmál og
félagsstarf Alþýðubandalagsins. Dagskrá nánar auglýst siðar.
— Stjórn kjördæmisráðs.
Kjördæmisþing á Noröurlandi eystra
Alþýðubandalagið i Norðurlandskjördæmi eystra heldur kjördæmis-
þing i Alþýðuhúsinu á Akureyri laugardag og sunnudag, þann 27. og 28.
ágústn.k., oghefst þingið klukkan 13:30 á laugardag.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Otgáfa Norðurlands. 3.
Framboð til alþingiskosninga. 4. önnur mál.
Umræðufundur um verkefni landsfundur.
Næsti umræöufundur Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður hald-
inn fimmtudaginn 25. ágúst kl. 8.30 að Grettisgötu 3. Rætt verður um
verkefni landsfundarins.
Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nærsveitum
heldur almennan félagsfund að Klettavik 13 (hjá Eyjólfi) mánu-
daginn 29. ágúst n.k. kl. 20.30. Fundarefni: Vetrarstarfið.
Umræðufundur um verkefni landsfundar.
Næsti umræðufundur á vegum Alþýðubandalagsins i Reykjavik
verður haldinn fimmtudaginn 25. ágúst kl. 8.30 að Grettisgötu 3.
Rætt verður um verkefni landsfundarins.
B/V Þormóður goði
RE 209
er til sölu með eða án veiðarfæra.
Upplýsingar á skrifstofu vorri.
Bæjarútgerð Reykjavikur, simi 24345.
«.í55EfflB ^orrænlr styrkir til þýðingar
og útgáfu Norðurlandabókmennts
Siðari úthlutun 1977 á styrkjum til útgáfu norrænna bók-
mennta i þýöingu á aðrar Noröurlandatungur fer fram á
fundi úthlutunarnefndar 10.-11. nóvember n.k. Frestur til
að skila umsóknum er til 20. SEPTEMBER N.K. Tilskilin
umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást i mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, en umsóknir
ber að senda til NABOLANDSLITTERATURGRUPPEN ,
Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde, Snare-
gade 10. DK-1205 Köbenhavn K.
Menntamálaráðuneytið,
22. ágúst 1977.
Konan min
Júlíana Björnsdóttir
Háaieitisbraut 26
andaöist i Borgarspltalanum 19. ágúst. Útförin verð-
ur gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 26 . ágúst kl. 10.30
Baldur Guömundsson
Slök tilþrif
Framhald af bls. 11
ið rétt fyrir leikhlé og enn
gerði ólafur sig sekan um
herfileg mistök.
1 seinni hálfleik var svo að
segja allur máttur og áhugi
úr leikmönnum. Blikar náðu
sér þó nokkuð á strik og þeim
tókst að laga stöðuna i 3:2
með mörkum frá Þóri
Hreiðarssyni og Ólafi
Friðrikssyni. Dómari var
Kjartan Óiafsson og má
segja að frammistaða hans
hafi verið í nokkru samræmi
við annað sem fram fór á
vellinum.
gsp/hól
Fullkomna
Framhald af bls. 1
borgarinnar hefur tekið saman.
Ályktun stjórnar Félags járn-
iðnaðarmanna er á þessa leið:
„Stjórn Félags járniðnaðar-
manna beinir þvi til Borgarráðs
Reykjavíkur að Reykjavikurborg
gangist fyrir stofnun öflugs hluta-
félags eða sameignarfélags til að
byggja upp og reka fullkomna
skipalyftu og þurrkvi ásamt
skipaviðgerða-og skipasmiöastöð
i Reykjavik.
Skipalyfta og þurrkvi ásamt
skipaviðgerðastöð miðist við að
þar verði hægt að framkvæma
allar viðgerðir á stærri fiskiskip-
um og öllum kaupskipum Isl.
skipastólsins. Jafnframt verði
skipulagt I næsta nágrenni stöðv-
arinnar athafna- og bygginga-
svæði fyrir iðnfyrirtæki sem
starfa að viðhalds- og viðgerðar-
þjónustu við skip.
Leitast veröi viö að fá m.a.
eftirtalda aðila auk Reykjavlkur-
borgar, sem þátttakendur I fé-
lagsstofnun til að hrinda verkefni
þessu 1 framkvæmd, vélsmiðjur
og járniðnaðarfyrirtæki I Reykja-
vík, útgerðarog skipafélög I
Reykjavfk og tryggingarfélög
sem taka að sér tjóntryggingar
báta og skipa, svo og aðra aðila
sem vilja stuðla að endurreisn
skipaviðgerða og skipasmiðaiðn-
aðar I Reykjavík.
Það er álit stjórnar Félags
járniðnaðarmanna að undanfarin
ár og áratugi hafi skipaviðgerðir
og skipasmiðaaðstaða I Reykja-
vik staðnað og á engan hátt fylgt
eðlilegri tækniþróun og að siðari
ár hafi jafnvel verið um beina
afturför á ræða.
Jafnfram er það álit stjórnar
Félags járniðnaðarmanna að
bygging skipalyftu og þurrkvlar
ásamt skipaviðgerða og skipa-
smíðastöð þurfi aö vera fyrsta
verkefniö I nýrri atvinnu upp-
byggingu I Reykjavík.”
Meistaraheppni
Framhald af bls. 11
allt kom fyrir ekki þó að eittsinn
fengju menn ekki betur séð en að
boltinn hrökklaðist innfyrir
marklinu eftir skemmtilegt sam-
spil Karls og Tómasar.
1 liði 1A var Jón Gunnlaugsson
einna bestur og Hörður og Pétur
stóðu sig báðir mjög vel.
Hjá ,’B bar Tómas af, leikmað-
ur sem tvimælalaust á heima i
landsliðinu. Dómari var Valur
Benediktsson. Voru margir dóm-
ar hans bæði tilviljanakenndir og
rangir svo ekki sé meira sagt.
RG/hól
Vonast
Framhald af bls. i
fyrr, þar sem megin-hluti lána,
sem þessi fyrirtæki skulda, eru
gengistryggð, auk þess sem geng-
isfelling myndi auka verðbólguna
og bitna illa á launafólki i land-
inu.
Hjaltisagði að lokum, að ympr-
að hefði verið á ýmsum atriðum
til úrlausnar vanda frystihús-
anna, en allt væri þetta nú i at-
hugun hjá Þjóðhagsstofnun, og ó-
vist væri hvenær þvi verki yrði
lokið.
— AI
Vatnsbirgðir
Framhald af bls. 2.
veitan dragi til sin vatn frá þétt-
býlissvæðunum.
Rannsóknirnar sem gerðar
hafa verið fyrir hitaveituna og
Gerðahrepp hafa vissulega mjög
mikiö gildi fyrir öll Suöurnesin,
en til þess að heildarmynd fáist
þyrftu öll sveitarfélögin þar aö
sameinast um rannsóknir á þessu
svæði.
Hvernig er með mengun á
þessu svæði?
Við gerðum á sinum tima
rannsóknir fyrir Álverið I
Straumsvik á svæðinu þar i kring.
Þá var i athugun að Reykjavikur-
borg flytti öskuhauga slna suður á
Leirdali undir Lönguhlið, en meö
þessari rannsókn varö ljóst aö
einmitt það svæöi er mjög við-
kvæmt og að þar væri útilokað að
hafa ruslahauga.
Við höfum alltaf talið malar-
námið viö Rauðamel hættusvæði,
vegna þeirra vinnuvéla sem þar
eru i notkun og ógætilegrar með-
ferðar á oliu. Blöndunarstööin
fyrir oliumölina bætir ekki úr
skák, og þvi skrifuðum við hita-
veitunni I júli s.l. en Rauðimelur
er tæplega i kilómeters fjarlægð
frá vinnslusvæði hennar. Hita-
veitan brást strax við og skrifaði
heilbrigöisfulltrúa umdæmisins
og vinnur hann nú að gagnaöflun i
málinu. Meira vitum viö ekki á
þessu stigi.
Um Keflavikurflugvöll gildir
það sama og um fleiri athafna-
svæði þarna, að gera þarf
heildarrannsókn á svæöinu, eink-
um meö tilliti til mannvirkja-
gerðar. Ég tel nokkra hættu á
oliumengun frá vellinum, og eins
frá ruslahaugum þeirra.
Herinn sér sjálfur um alla
ferskvatnsöflun fyrir sig, og eru
þeir bæöi með vatnsból utan og
innan girðingar. Þeir umgangast
þessi vatnsból með mikilli vand-
virkni, en ég tel að þeir séu nú
þegar búnir að fullnýta þaö vatn
sem þar fæst.
Annars verður vatnsvinnslu-
svæöi Keflavikurflugvallar ekki
aðskilið frá vatnsvinnslu-
svæðum Keflavikur og Njarð-
vlkur. Þarna þarf sameigirdegt
heildarskipulag, sem hitaveitan,
vatnsveiturnar og herinn þurfa að
eiga aðild að. ^
Reiðhjóli
stolið frá
blaðbera
10 ára drengur, Þorfinnur
Ómarsson, varð fyrir þvi að hjól-
inu hans var stolið I gærmorgun
við Bergstaðastræti 78.
Þorfinnur ber út Þjóðviljann i
bakhús við Bergstaðastrætið, og
hafði lagt hjóliö á gangstéttina
fyrir framan húsið meðan hann
skrapp inn i garðinn. Skipti það
engum togum að hjólinu var stol-
ið á meðan.
Hjólið er eins árs gamalt, blátt
og hvittaf Raleigh gerö. Þeir sem
orðið hafa hjólsins varir hringi i
Ómar Ragnarsson, sima 31211,
eða i Þjóðviljann, sima 81333.
Feit og
falleg síld
Hringur frá Keflavik kom inn
með300tunnuraf feitriog fallegri
sild tilKeflavikur igær,og verður
sildin frysti til útflutnings.
Sjöstjarnan i Njarðvikum opn-
aði af þessu tilefni aftur i gær og
hyggst frysta sildina úr Hringi,
þótt ekki treysti fyrirtækið sér til
þess að verka þorsk.
Mikið
flugvélatjón
sómala
DJIBÚTI 23/8 Reuter — Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum i
Djibúti að sómalski flugherinn
hafi beðið mikið tjón i bardögum
við eþiópska stjórnarherinn sfð-
ustu daga. Eþiópar segjast hafa
skotið niður fyrir sómölum 18
striðsþotur af sovésku gerðinni
Mig yfir eþiópsku landi.
Sómalska stjórnin neitar þvi enn-
þá, að her hennar taki nokkurn
þátt I bardögunum i Ogaden, en
segir að skæruliðar sómalska
þjóðernisminnihlutans þar standi
einir i striðinu gegn Eþiópiu-
stjórn.
Bakhjarl...
io " 'O ÖO Lj '—) l
Hafið þið athugað að
skrifborðsstólarnir frá
PENNANUM
eru ómissandi fyrir
námsmanninn á heimil-
inu
Ekki veitir af að styðja
vel við bakið á skóiafólk-
inu
escnzo-
Hallarmúla 2