Þjóðviljinn - 17.09.1977, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 17.09.1977, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. september 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. Otgefandi: Ctgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann. Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóðsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Siðumúla 6. Simi 81333. Prentun: Blaðaprent hf. Mannréttindi ekki forréttindi Kjörtimabilið 1967-1971 flutti Alþýðu- bandalagið margar tillögur á alþingi um hækkun elli- og örorkulifeyris. Þá var ástandið þannig i kjaramálum aldraðra og öryrkja að blaðaviðtöl birtust við fólk sem leið næringarskort vegna fátæktar. Astandið var blettur á islenska samfélag- inu. Orðið „velferðarþjóðfélag” var þá stundum notað um ísland; það hafði sömu áhrif og bitrasta háð. Tillögur þær sem Alþýðubandalagið flutti á kjörtimabilinu 1967 —1971 um mál- efni aldraðra og öryrkja voru allar felld- ar. Með kosningasigri Alþýðubandalags- ins skipti um stjórnarfar i landinu og Magnús Kjartansson heilbrigðis- og tryggingaráðherra vinstristjórnarinnar gaf út bráðabirgðalög um tekjutryggingu aldraðra og öryrkja. Með þeim bráða- birgðalögum hækkaði hámarkslifeyrir um liðlega 40%. Mun það vera i fyrsta og eina sinn sem sett hafa verið bráðabirgðalög hér á landi til þess að bæta kjör alþýðu. Á vinstristjórnarárunum lagði Alþýðu- bandalagið höfuðáherslu á að tryggja kjör aldraðra og öryrkja með viðunandi hætti og þó stórt skref væri stigið vildi flokkur- inn gera enn betur. Vinstristjórnin sat ekki lengi; Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæð- isflokkurinn gerðu bandalag við hlaupa- menn Samtaka frjálslyndra um að fella þá rikisstjórn. Þá tók við hægristjórn Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknarflokksins; forstjóraflokkarnir tveir hygluðu sinum samviskusamlega eftir helmingaskipta- reglunni, en aldraðir og öryrkjar máttu una stórskertum hlut sinum. Verkalýðshreyfingin tók málefni aldr- aðra og öryrkja upp i kjarasamningunum sl. vor og knúði þá meðal annars fram svokallaða heimilisuppbót handa einstæð- um öldruðum og öryrkjum. Rikisstjórnin undirritaði samning um þessi mál og hún átti siðan að sjá um að framkvæma þenn- an samning. Nú hefur reynt nokkuð á framkvæmdina um hrið og ákvæði samn- ingsins eru túlkuð svo þröngt að aðeins sárafáir njóta þessarar heimilisuppbótar. Þannig er framkvæmd núverandi for- stjóraflokka á öllum málaflokkum sem lúta að kjaramálum alþýðu, en þó skera málefni aldraðra og öryrkja sig úr.þvi þar er um að ræða þjóðfélagshóp sem á sér engan heildarmálsvara, engin hagsmuna- samtök, ekkert sérstakt kjarabaráttufé- lag. Þar með er niðst á þeim sem eiga erfiðast með að bera hönd fyrir höfuð sér. í Þjóðviljanum i gær er birt viðtal við öldruð systkini, 78 og 72ja ára, sem halda heimili saman. Þau eru bæði lasburða og borga hærri upphæðir i meðöl en mat: „Maður getur lifað, af þvi að maður lifir spart, kaupir litið af óþarfa og gengur allt- af í sömu fötunum.” Þessi setning eftir systkinunum tveimur minnir óþyrmilega á viðreisnarár Alþýðuflokksins og Sjálf- stæðisflokksins, á þá tima sem kjör þessa fólks hafa verið hvað hraklegust i landinu. Það er eitthvert stærsta mannréttinda- mál okkar tima að tryggja þessu fólki við- unandi lifeyri. Opinberir starfsmenn hafa verðtryggðan lifeyri; það eru mannrétt- indi, ekki forréttindi. Fyrir mannréttindi eiga opinberir starfsmenn ekki að gjalda með lægra kaupi eins og stjórnarblöðin halda fram, en þau hafa dag eftir dag ráð- ist að þvi fólki sem nú er á eftirlaunum op- inberra starfsmanna. Þess er ekki að vænta að sú rikisstjórn sem leggur sig fram við að neita fátæku öldruðu fólki um 10.000 krónur meðan hún kaupir ónýtt hús fyrir hundruð miljóna, geri umbætur i kjaramálum aldraðra. Hins vegar er alveg ljóst að Alþýðubanda- lagið mun setja lifeyrismál aldraðra og öryrkja á oddinn af enn meiri þunga en nokkru sinni fyrr hvort sem flokkurinn verður framvegis utan stjórnar eða innan. Flokkurinn mun beita sér fyrir þvi að allir njóti þeirra mannréttinda að hafa viðunandi eftirlaun, það sem nú er kallað „verðtryggður lifeyrir”. Árásir forstjóra- flokkanna á eftirlaun, opinbera starfs- menn og sviðingshátturinn við úthlutun svokallaðrar heimilisuppbótar bendir til þess að baráttan fyrir sjálfsögðum mann- réttindum verði harðsnúin enn um sinn. En hana ber að heyja engu að siður. — s. Eiríkur Tómasson: Fleiri fang- elsi og strangari refsingar engin lausn. Fangelsi og refsingar engin lausn Nú þegar dómsmálaráðherra hefur tilkynnt að fjölga eigi fangelsum ritar aöstoðarmaður hans Eirikur Tómasson ágæta grein á SUF-siðu Timans og leyfir sér að draga i efa að það séu rétt viðbrögð við vaxandi afbrotaöldu að hrópa á strang- ari refsingar og fleiri fangelsi. Hann segir i lok greinar sinnar: ,,Sé öllu á botninn hvolft, þá er það engin lausn á þeim vanda sem við nú stöndum frammi fyrir að hrópa á strangari refs- ingar eða fleiri fangelsi. Strang- ari refsingar leiða til einskis nema ógæfu fyrir þjóðfélag okk- ar og bygging fleiri fangelsa er úrræði sem getur að vfsu veriö nauðsynleg til að taka við þeim sem þegar hafa gerzt brotlegir við lög en leysir þó engan vanda til frambúðar, eins og fyrr greinir. Rétta leiðin til að stemma stigu við afbrotum er að sjálf- sögðu sú að grafast fyrir um rætur meinsins og reyna að upp- ræta það. Orsakir afbrota eru að sjálfsögðu fjölmargar, en þær algengustu er eflaust: Upplausn allt of margra heimila, ofneyzla áfengis og fikniefna og loks sú verðbólga sem geisað hefur hér á landi á undanförnum árum. Á þessum sviöum öllum biða okk- ar allra risavaxin verkefni til þess að takast á við. Þar til ráð- izt verður að fyrrgreindum meinsemdum af fullum krafti er ekki að vænta verulegs árang- urs I baráttunni gegn fjölgun af- brota.” Umtalsverður árangur Eins og sagt hefur verið frá i fréttum eru til stofnanir i þessu þjóðfélagi, sem eru mun árang- ursrikari en fangelsin i barátt- unni við afbrotaölduna. Er þá fyrst og fremst átt viö Ungl- ingaheimili rikisins i Kópavogi. Samkvæmt upplýsingum for- stöðumanns eiga aðeins sex unglingar af þeim áttatiu, sem dvalist hafa þar á fimm árum, enn við teljandi erfiðleika að striða. Þetta er umtalsverður árangur. Stofnunum af þessu tagi er fyrst og fremst ætlað það hlut- verk að endurhæfa einstaklinga til þess að gera þeim kleift að taka þátt i lifsbaráttunni án þess að verða þar utangátta, einangraðir, sjálfum sér hættu- legir eða öðrum i vanmáttugri uppreisn gegn umhverfinu. A sumum stofnunum hafa „vandamál” af þessu tagi verið leyst með lyfjagjöfum, enda ódýrara fyrir þjóðfélagið að Kristján Sigurðsson, forstöðumaður, ásamt öðrum umsjónar- mönnum upptökuheimiiisins, blaðamönnum og unglingum á blaöa- mannafundinum i fyrradag. hafa slatta af fólki syndandi og sauðmeinlaustaf lyfjum, heldur en að þurfa að hafa af þvi meiri fyrirhöfn með raunverulegum lækningartilburðum. Á unglingaheimilinu hefur verið unnið merkilegt starf. Þótt aldurinn á táningunum sem þar koma inn eftir að öll sund hafa lokast sé ekki hár er með ólikindum hvað þeir hafa reynt og lent i. Það hefur stundum andaö köldu til Upptökuheimilisins, og skakkaföll i starfinu verið ti- unduð i fjölmiðlum. Borið hefur á skoðunum sem þeim að þar sé allt of frjálslegt, umsjónarmenn skeri sig á engan hátt úr, krökk- unum leyfist of mikið o.s.frv. Það liggur i þessum tóni að það sem krakkarnir þurfi sé agi, aðhald og gæsla. En það er mik- ill misskilningur að þessar að- ferðir dugi til þess að gera úr krökkunum guðsenglabörn og bindindismenn. A upptökuheim- ilinu hefur hinsvegar tekist aö skapa heimilisanda um leið og margháttuð ábyrgð er lögð á krakkana. Við þetta myndast trúnaðartraust milli þeirra og umsjónarmanna sem ryður brautina fyrir opnar samræður. Allt starfið miðast að þvi að auka sjálfstraust, dómgreind og hæfni krakkanna til þess að fást við vandamál sin. Ekki er að efa að Unglinga- heimilið i Kópavogi hefur lækn- aö sjálfseyðingarhvöt margra ungmenna. Hitt er annað mál hversu göfugt það starf er að aðlaga einstaklinga þvi þjóðfé- lagi, sem við búum við og er á margan hátt snarbrjálað og spillt, og fá þá til að sætta sig við það. Væri arðbœr fjárfesting Að lokum er vert að vekja at- hygli á þeim vanda sem Ungl- ingaheimilið á við að striða eins og raunar margar aðrar með- ferðarstofnanir. I þjóðviljanum i gær segir svo: „Unga fólkíð þarf aö fara aft- ur út i lifið eftir dvölina á heim- ilinu. Og hvert fer þaö? Sumir halda heim til föðurhúsanna, ör- fáir fara i sveit, en alltof margir verða hreinlega að standa á eig- in fótum. Ekki reynist sú úrlausn alltaf vel, þvi 15 ára unglingur er sjaldan það sterkur, að hann geti unnið úr öllum sinum vandamálum einn og óstudd- ur. Margur unglingurinn leitar þá til starfsmanna heimilisins eftir hjálp og er reynt að að- stoða eftir bestu getu, en ekki hefur enn verið veitt fé til skipu- lagðrar aðstoðar við unglingana eftir dvöl á heimilinu.” Væri ekki nær að verja fé I þessa starfsemi heldur en fleiri fangelsi? — ekh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.