Þjóðviljinn - 17.09.1977, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 17.09.1977, Qupperneq 5
Laugardagur 17. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA S LÉTT ROKK MEÐ DJASSÁHRIFUM 1 Morgunsáriö — Ólafur Þóröar- son Fálkinn hf. Stjörnugjöf: Þó að ólafur Þórðarson hafi verið meðlimur i hljómsveitinni Ríó lengst af á sinum tónlistar ferli, þá er þessi fyrsta en von- andi ekki hans siðasta sólóplata blessunarlega laus við Rióáhrif, heldur vill svo skemmtilega til að platan ber sterkan svip af hljómsveitinni Þokkabótá flest- um sviðum: lögin, útsetning- arnar, hljóðfæraleikurinn, raddirnar, textarnir og „sánd- ið”, allt ber þetta sterkan svip af Þokkabót. Þegar betur er að gáð er þetta þó ekki neitt skritiö þvi aö fyrir utan að vera góð fyrirmynd þá á Þokkabót stóran þátt i plötu- gerðinni. Magnús Kinarsson fyrrver- andi Þokkabótar félagi hefur samið eitt lagið, óvænt auöiegö, og tvo lögin, Sjaddi Mollo og Piccaló, hefur hann samið i fé- lagi við ólaf, þá aðstoðar hann einnig með söng, bassa- og git- arleik, Ingólfur Steinsson að- stoðar með söng, bassaleik og áslátt, Eggert Þorleifsson með blásturshljóðfæri og llalldór Gunnarssonhefur gert alla text- ana að undanskyldum tveimur þjóðvisum, Karlinn undir klöpp- inniog Kamalando. Þessir þrir siðastnefndu voru allir meðlim- ir i Þokkabót þegar siðast sást til þeirra. Að undanskyldum áðurnefnd- um lagasmiðum Magnúsar.eru öll lögin eftir ólafsjálfan nema eitt fyrnt lag, Kamalando. og eru þau flest nokkuð góð og ekki meira, en nokkrir stuttir blást- urshljóðfæramilliþættir, sem einnig eru eftir ólaf, eru mjög skemmtilegir og athyglisverðir og hefði þeirra þáttur gjarnan mátt vera miklu stærri. ólafur sér einnig um söng, gitar- og hljómborðsleik, áslátt o.fl.. Magnús Ingimarsson útsetti blásturshljóðfærin sem eru mjög áberandi i útsetningunum. Fyrir utan áðurnefndan Eggert sjá um blásturshljóðfærin þeir Jón Sigurösson, Snæbjörn Jóns- son, Hafsteinn Guömundsson, Gunnar Ormslev, Vilhjálmur Guöjónsson, Kristján Þ. Stephensen, Jósef Magnússon, Siguröur Snorrasonog Siguröur Markússon. Þá aðstoða einnig Guömundur „Jesús” Bene- diktsson og Magnús Thor með söng, Karl Sighvatsson leikur á hljómborð, Ragnar Sigurjóns- soná trommur, Reynir Sigurðs- son á vibrafón og marimbu. Þórður Arnason leikur á gitar, Helgi Guðmundsson leikur á munnhörpu og Pálmi Gunnars- soná bassagitar. Hljóðfæraleik- ur og söngur er allur hinn vand- aðasti, þó að hvergi sé um nein stór átök að ræða. Textarnir hans Halldóis eru mjög góðir og miklu betri en gerist og gengur og notast hann bæði við stuðla, höfuðstafi og rim með góðum árangri og ekki skortir hann yrkisefni, enda af nógu að taka þó að Þorsteinn Eggertsson og hans likar taki ekkert eftir þvi. 1 titillaginu tekur hann fyrir lifs- gæðakapphlaupið og endar það kvæði á: „Aframhaldandi stöðustreð, steyttir vixlar — og sál i veð. Þreyttur, krepptur með galið geð ég kveð þann heim, til veggjar ég sný. En maginn tekur þá ráðin á ný. Hafragrautinn háma i mig og slátur hressist allur við og tek á rás, reyni að sýnast einskis eftirbátur, svo enginn fari að stela minum bás.” Þá yrkir hann um það hvernig okkar rotna auðvaldsþjóðfélag hefur farið með Gunnu góöu og segir m.a.: „Slitin ertu á slorugu plani og slævð er hugsun þin, af gróðahyggjufeigðarflani, sem falsar alla sin.” 1 Dager stórsniðugur texti og háðið hittir beint i mark: „1 dag vil ég stórmenni sleikja, stóra sigara reykja, eins og þið vitið hver. .. A morgun skal ég velta og valsa væna ávisun falsa eins og þið vitið hver.... Ef mikill gerist gróði. ég gef i liknarsjóði. Stundum eitthvað ruglast min rúta þá ég ráðherrum múta eins og þið vitið hver ... Fallitt ég á flösku mig hressi ferst ég siðan úr stressi, eins og þið vitið hver....?” Það er annars skritið, að ef ég spila þetta lag án þess að vera með hugann alveg við textann en raula samt með hef ég marg- sinnis staðið mig að þvi að segja: „Eins og Kiddi litli Finn...” i staðinn fyrir: „Eins og þið vitið hver...” alveg óvilj- andi, og ennþá skritnara er, að ég hef frétt að þetta kemur fyrir fleiri en mig, hvernig sem á þvi stendur. t Morgunsáriö er rokkplata með sterkum djassáhrifum, léttum og auðmeltum, og það skemmtileg er hún, að ég tel það hafa verið skref aftur á bak hjá ólafi að ganga til liðs við Rió eftiraðhafa verið laus við „syk- urleðjulögin” þeirra hinna um alltof stutt-an tima. Og vona ég að næst þegar heyrist frá ólafi verði það á hans annarri sóló- plötu. Umslagið er gamaldags og ómerkilegt, en textar fylgja með á sérprentuðu blaði. — jens Vandað og fallegt rokk Rick Wakeman, Jon Anderson og Steve Howe, skemmtilegustu hljómlistarmenn I þeirri tegund tónlistar sem þeir leika. tirklippa úr Melody Maker 20. ágúst s.I. Going For The One — Ycs Atlantic / FALKINN hf. Stjörnugjöf: Þegar breska hljómsveitin Yes var stofnuð árið 1968 af þeim don Anderson söngvara, Peter Banks gitarleikara, Chris Squirebassaleikara, Tony Kaye hljómborðsleikara og Bill Bruford trommuleikara, vakti , hún strax mikla athygli og virð- ingu sem hún hefur haldiö alla tið siðan fyrir vandaðan, sérkennilegan og stilhreinan flutning, t.d. hefur hún verið kosin besta hljómsveit heimsins i virtum tónlistarblöðum ár eftir ár, þó að ljóst væri strax eftir fimmtu hljómplötuna, Close to thc edge, sem hljómsveitin sendi frá sér 1972, að hún væri algerlega stöðnuð, sem gerði þó ekki svo mikið til þar sem hún var komin það langt i tónlistar- þróuninni að mörg ár mega liða og mikil tónlistarbylting eiga sér stað til að hinar frábæru plötur hliómsveitarinnar fari að teljast gamaldags. Þrjú ár eru liðin siðan siðasta Yes píatan Reíayer fcom út, en á þessum þrem árum hafa allir núverandi meðlimir hljóm- sveitarinnar,þeir Jon Anderson söngvari, Chris Squire bassaleikari, Stcve Howe gitarleikari, Alan White trommuleikari og Rick Wake- nian hljómborðsleikari, sent frá sér sólóplötur, hverja annarri betri og er þvi engin furða að uggur hafi verið i mönnum um að Going for the oneyrði þynnri fyrir vikið, þar sem búast mátti við aðþað besta hafi verið notað á sólóplöturnar. Þegar ég setti Going for the one i fyrsta skipti á fóninn brá mér heldur betur i brún þegar ég heyrði fyrsta og jafnframt titillagið, Going for the one.sem byrjar á þvi að talið er i lagið og svo byrjar það á venjulegum rokk og ról „frasa” sem gæti alveg eins verið byrjun á Fisk- urinn hennar Stinu eða ein- hverjum álika leiðinlegum slag- ara. En sem betur fer rætist úr laginu þegar á liður, en um greinilegt frávik er að ræða i þessu lagi frá fyrri Yes-plötum, þrátt fyrir frábæran hljóðfæra- leik sem munar litlu að kaffæri þýða rödd Anderson og min vegna hefðu þeir félagar alveg mátt láta þetta lag vanta á plöt- una. En ef maður hlustar á erlendar hljóðvarpsstöðvar má greinilega heyra að ekki eru all- ir á sama máli, þvi að lagið virðist vera mjög vinsælt i mörgum löndum. Það sem eftir er af plötunni er aftur á móti allt mjög skemmti- egt og athyglisvert og ber þar hæst lagið Awaken sem er tæp- lega 16 minútna langt. t þessu frábæra lagi, sem er eftir Anderson og Howe, sannar Yes það enn einu sinni að hún ber höfuð og herðar yfir aðrar rokk- hljómsveitir.Wakemani«ýnir að hann er listamaður sem á heima i Yes frekar en nokkur ann- ar, hljómborðsleikur hans rennur svo skemmtilega eðli- legur og ómissandi undir þýðri og fallegri rödd Andersons er i fljótu bragði virðist frekar eiga heima i sálmalögum heldur en þungum rokklögum. Enda segja sumir að hann syngi alveg eins og engill, en þar sem ég hef þvi miður aldrei heyrt engla syngja þá er hann fyrir mig ómissandi fyrir þann fallega og mjúka blæ sem hann setur á tónlistina, auk sinna skemmtilegu laga og ágætra ljóða. Howeer nákvæm- asti gitarleikari sem um getur og er hann ásamt Wakemanog Anderson skem mtilegasti hljómlistarmaður á sinu sviði sem ég hlýði á. Þá er Squire mjög nákvæmur i sinum skemmtilega bassastil sem hann hefur þróað með sér i gegn um árin og White er góður „beat” trommuleikari. Þó að ekki sé um neina fram- för að ræða hjá Yesá Going for the oneþá er platan eins og allar aðrar Yes-plötur i hópi allra bestu hljómplatna sem út hafa komið frá upphafi. Og þó að ég spili hana daginn út og inn f æ ég ekki leið á henni ennþá, heldur er hún alltaf skemmtilegri en i næsta skipti á undan. Umslagið er einnig mjög skemmtilegt og vandað eins og öll önnur Yes-plötuumslög, en það er eins og venjulega hannað af listamanninum Roger I)ean. —jens.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.