Þjóðviljinn - 17.09.1977, Side 11
Laugardagur 17. september 1977 ÞJóÐVILJINN — StÐA 11
BRIDGE
V etrarstarf
að hefjast
Fjármögnun og
dreifing móta
Að nýafstöðnu Evrópumóti
er ekki úr vegi að hugleiða
þátttöku okkar þar siðast-
liðin ár. Arangurinn hefur
ekki verið til að hrópa
húrra fyrir. Af hverju?
Vitnum f Hjalta Elias-
son: ,,Það er ekki hægt að bú-
ast við árangri, þegar menn
kómast einu sinni á ári út til
keppni, eða varla það, og mæia
öðrum spilurum þar.” Þetta er
málið i hnotskurn. Island er
einangrað land, litil þjóð, fjarri
kjarna þeirra landa, sem fremst
standa i iþróttinni. Fjár-
hagslega séð erum við bridge-
menn ákaflega illa settir. En
hvað má gera til að bæta þetta
ástand? Útvega fjármagn? Til
þess þarf að gera ýmislegt
meira en gott þykir. Félög
innan BSI hafa skiljanlega tak-
markaðan áhuga á útvegun
fjármagns til handa stjórn BSI
og þess vegna leggst þetta mál
þyngst á herðar Reykjavikur-
félaganna (firmakeppnin.)
Astæðan fyrir tregðu utan-
bæjarfélaganna á útvegun
fjármagns er réttilega sú, að
þaö sem þau fá i staðinn er litið
sem ekkert annað en að fá að
vera með. Þjónusta BSl við
landsbyggðina er léleg, sam-
skiptin lltil, keppnir fáar. Er
svo komið, að sum svæðin fá
meira út úr svæðamótum
sinum, heldur en nokkurn tlma
landsmótum...
Dreifing móta er einnig léleg,
og það er fyrst með tilkomu
bikarkeppni BSl að lands-
byggðarmenn öðlast tæki-
færi til að keppa við utan-
sveitarmenn á sinum heima-
velli. Yfirgangur Reykja-
vikur er of mikill og hlut-
verk nátttröllsins er orðið
leiðigjarnt. Þessu þarf að
breyta! Undankeppnir sem
úrslit má halda nánast alls
staðar, þar sem byggt ból er.
Akureyringar hafa beðið um
undankeppni Islandsmóts i
sveitakeppni. Hvað er til fyrir-
stöðu, að þeir fái hana?
Kostnaður? Látum ekkisvona.
Hvað hafa utanbæjarmenn farið
með mikinn kostnað i ferðir
.sinar hingað suður; er ekki
sanngjarnt að dreifa þessu?
Hugleiðum málið...
Bikarkeppni BSÍ —
Undanúrslit
Nú er búið að draga i 4 sveita
úrslitum bikarsins. Rikharður
Steinbergsson—Armann J. Lár-
usson og Jón Hauksson—Jó-
hannes Sigurösson. I sveit Rík-
harðs eru: Rikharður—Bragi
Erlendsson, Steinberg Rik-
harðsson—Tryggvi Bjarnason,
Jón Asbjörnsson—Simon Sim-
onarson. I sveit Armanns eru:
Armann—Jón Páll Sigurjóns-
son, Sævin Bjarnason—Vil-
hjálmur Sigurðsson, Haukur
Hannesson. I sveit Jóhannesar
eru: Jóhannes—Guðmundur
Ingólfsson, Einar Jóns-
son—Magnús Torfason, Gisli
Torfason—Karl Hermannsson.
Um skipan sveitar Jóns,er það
að segja, að samkvæmt bestu
heimildum þáltarins, er hún
skipuð eftirtöldum : Jón H. Ge-
org Tryggvason, Hilmar Rós-
mundsson—Sveinbjörn Jónsson,
Pálmi Lórenz. Um sjötta mann-
inn er ekki vitað.
Engu skal spáð hér um úrslit,
þvi lukkan hefur löngum verið
stór hluti af bikarmótum fortlð-
arinnar. Þó eru sveitir Armanns
og Rikharðs sýnu sterkari á
papplrnum, hvort sem mark er
á þvi takandi.
Undanúrslitunum skal vera
lokið fyrir septemberlok.
Frá Ásunum
Ásarnir hafa samið keppnis-
dagskrá sira fram að febrúar-
byrjun, og fer hún hér á eftir:
19. sept. til 3. október
Hausttvimenningur (3 kvöld)
lO.okt. íil 24. október.Opið mót
(boðsmót), tvimenningur (3
kvöld).
31. okt. til 14 nóvembcr. Hrað-
sveitakeppni, tileinkað Þor-
steini Jónssyni.
21. nóv. til 12. desember og eftir
áramót. Aðalsveitakeppnin,
nýtt snið. —8 umferðir Monrad.
19. desember. Jólasveina-
keppni, með tilheyrandi veislu.
Sumarbridge
B.Á.K. lokið
Sverrir Armannsson úr Kópa-
vogi, sonur hins kunna meistara
Armanns J.Lárussonar,sigraði
óvenju glæsilega i heildar-
keppni sumarsins i samanlögð-
um árangri. Sverri er óþarft að
kynna,þvi þóttungursé, er hann
trúlega einn af albestu spilurum
okkar og verðugur fulltrúi
þeirrar kynslóðar, sem komið
hefur fram, nú hin allra siðustu
ár. Þátturinn óskar Sverri til
hamingju, með sigurinn.
Næsta keppni Ásanna
er hin árlega haustkeppni
félagsins, sem er 3 kvölda tvi-
menningur. Sigurvegarar uröu
i fyrra þeir Guðmundur
Péturss. og Sigtryggur Sigurðs-
son. öllum er heimil þátttaka.
Keppnisstjóri er Sigurjón
Tryggvason. Spilað er i Félags-
heim. Kópavogs, á mánudögum
og hefst keppni kl. 20.00 stund-
vislega. Einnig eru félagar
minntir á aðalfund Asanna, sem
er laugardaginn 24. sept.
1 sambandi við sumarbridge
BAK, má geta þess,að alls tóku
395 pör þátt í keppninni i ár, en
til samanburðar, má geta þess,
að í fyrra spiluðu rúml. 280 pör.
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Vetrarstarfsemin hófst hjá
okkur 8. sept, með tvimenning,
sem 16pör tóku þátt i. Fimmtu-
dagin 15. sept., vará ný spilaður
eins kvölds tvimenningur. Spil-
að verður reglulega á fimmtu-
dögum I vetur, i Þinghól,
Hamraborg 11.
Frá Bridgefélagi
hjóna
Stefnt er að þvi, að hefja
keppni þ. 27. sept., meö 1 kvölds
tvimenningi. Húsnæðisskortur
hrjáir félagið,en spilað verður á
þriðjudögum, hálfsmánaðar-
lega. Nýkjörin stjórn félagsins,
er þannig skipuð: Július
Snorrason formaður, Gisli
Isleifsson gjaldkeri og Gunnar
Bjartmarz ritari.
Keppnisyfirlit komið
frá B.R.
Og við minnum á, að keppni
hefsthjá BR, nú á miðvikudag-
inn, i Domus Medica. Stjórn
BR, skipa nú: Páll Bergsson,
Þorfinnur Karlsson, Stefán
Guðjohnsen, Baldur Kristjáns-
son og Ólafur Haukur ölafsson.
September-desember 1977.
Domus Medica kl. 20.00 fyrsta
þriðjudag hvers mánaðar, en
annars alltaf á miðvikudögum.
Keppnisstjóri: Páll Hjaltason
21. sept., miðvikudagur Tvi-
menningskeppni
28. sept., miðvikudagur Tvi-
menningskeppni
4. okt., 12. okt., 19. okt., 26.
okt., Butler-tvimenningskeppni
i riðlum. Spiluö eru sömu spil i
öllum riðlum.
1. nóv., þriðjudagur. Frjálst
kvöld, ásamt úrslitum Butler.
9. nóv., 16. nóv., 23. nóv.,
Umsjón:
Baldur Kristjánsson
ólafur Lárusson
þriggja kvölda hraðsveita-
keppni.
30. nóv., 6. des., 14. des. Tvi-
menningur.
Nánar er visað I fréttatil-
kynningu, sem félagið hefur
sent öllum félagsmönnum.
Munið aö tilkynna þátttöku I öll
lengri mót með minnst viku
fyrirvara til keppnisstjóra eða
einhvers stjórnarmanna.
Af landsbyggðinni
Þátturinn hafði samband við
Guðjón Pálsson Borgarnesi, og
tjáði hann okkur, að þessa dag-
ana væri stjórnin að undirbúa
vetrardagskrá sina, en trúlega
hæfist regluleg keppni ekki fyrr
en i októberbyrjun.
Um leið vill þátturinn skora á
hin ýmsu félög, að hafa sam-„
band við okkur, og skýra frá
helstu atriðum i starfseminni.
Utanáskriftin er: Bridgeþáttur
Þjv. Siðumúla 6.
Spil frá EM
Eins og getið var um I upphafi
þáttarins tóku Islendingar þátt I
Evrópumótinu i bridge sem fór
fram i Helsingör i Danmörku i
sumar. Hér kemur spil frá leik
okkarmanna við Júgóslava,og i
aðalhlutverkunum eru nýlið-
arnir I islenska landsliðinu,
Hörður Arnþórsson og Þórarinn
Sigþórssson.
Allir á hættu — Vestur gefur:
Norður
♦ AK107
* AK107
Vestur AlOxx
» v<
y : !G109xx
4 xxx
Suður
#. )xx
V xx
❖ Jxx
* IGxx
Þar sem þeir Hörður og Þór-
arinn sátu N-S, gengu sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
2H d p 2S
p 3H d p
p 4S d p....
Framhald á 14. siðu
Austur
& G986
V Dxx
♦ Dxx
*K9xx
Myndlistarskólinn á Akureyri:
Senn rætist úr
húsnæðismálunum
A blaðamannafundi öxfirðinganna á Hótel Sögu i gær. Frá v.:Friðrik
Jónsson, oddviti Presthólahrepps, Kristján Armannsson, fram-
kvæmdastjóri Sæbliks, og Björn Guðmundsson, oddviti Keldunes-
hrepps.
Deilur um rœkjuveiðarnar á Öxarfirði:
Heimabátar geta
veitt alla rækjuna
— segja noröanmenn
Senn mun rætast úr húsnæðis-
málum Myndlistarskólans á
Akureyri, að þvi er Helgi Vilberg
tjáði okkur i fyrradag. Skólinn
hefur nú starfað I þrjú ár og ávallt
verið á hálfgerðum hrakhólum
með húsnæði.
Nú hefur hins vegar svo ham-
ingjusamlega tiltekist, að skólinn
er i þann veginn að flytja i nýtt
húsnæði. Slikt átak er þó engan
veginn auðveldlega hrist fram
úr erminni, sist fyrir þá, sem ekk-
ert eiga nema áhugann.
Nýlega var opnuð á vegum
Myndlistarskólans á Akureyri
málverkasýning og er hún i Gall-
eri Hábæ og nokkuð einstæð.
Þrjátiu og þrir myndlistarmenn
hafa gefið i sýninguna sitt verkið
hver. Eru þau að sjálfsögðu öll til
sölu og verður ágóðanum varið til
bóka- og tækjakaupa fyrir Mynd-
listarskóiann. Listamennirnir,
sem gefið hafa verkin, eru:
Aðalsteinn Vestmann, Akur-
eyri, Alfreð Flóki, Björg Þor-
steinsdóttir, Bolli Gústafsson,
Bragi Ásgeirsson, Einar Þorláks-
son, Eirikur Smith, GIsli Guð-
mann, Akureyri, Guðmundur Ar-
mann, Helgi Vilberg, Akureyri,
Hringur Jóhannesson, Hörður
Ágústsson, Jens Kristleifsson, Jó-
hannes Geir, Jón Reykdal, Jónas
Guðmundsson, Kjartan Guðjóns-
son, Kristinn J. Jóhannsson,
Ólafsfirði, Óli G. Jóhannsson,
Akureyri, Pétur Friðrik, Ragna
Róbertsdóttir, Ragnheiður Jóns-
dóttir, Sigurður Sigurðsson,
Sveinn Björnsson, Valgerður
Bergsdóttir, Valtýr Pétursson,
Veturliði Gunnarsson, Þorbjörg
Þórðardóttir, Þorvaldur Skúla-
son, Þórður Hall, örlygur Krist-
finnsson, örlygur Sigurðsson og
örn Ingi.
Sýningin var opnuð i gær, kl.
20.30. Verður hún opin virka daga
frá kl. 18-22 og helgidaga frá kl.
15-22.
Allir þeir listamenn, sem til var
leitað um að gefa verk á sýning-
una, tóku þvi með miklum ágæt-
um, rétt eins og ekkert væri sjálf-
sagðara. Og raunar hafa fleiri en
hér að framan eru taldir, heitið
myndum.
Myndlistarskólinn á Akureyri
byrjar 3. okt. Innritun nemenda
hefst n.k. miðvikudag. Auk
venjulegrar kennslu hyggst
skólinn standa fyrir styttri nám-
skeiðum. Þrir fastir kennarar
starfa við skólann.
—mhg.
Dcilur standa nú yfir um rækju-
veiðarnar á öxarfirði, en þær
eiga að hefjast 1. okt. n.k. Veiði-
kvótinn er 650 tonn og hefur sjáv-
arútvegsráðherra ákveðið að
skipta honum til helminga milli
Kópaskers og Ilúsavlkur. Haf-
rannsóknastofnunin hefur lagt til,
að 8 bátum verði leyft að stunda
veiðarnar og verða þá væntan-
lega 4 frá hvorum stað.
Kópaskersbúar og aðrir þeir,
sem hlut eiga að máli á þeim slóð-
um, eru mjög óánægðir með
þessa ákvörðun ráðherrans.og af
þvi tilefni kvöddu þeir Kristján
Armannsson, framkvæmdastj.
Sæbliks h.f. á Kópaskeri, Björn
Guðmundsson, oddviti Keldunes-
hrepps, og Friðrik Jónsson, odd-
viti Presthólahrepps fréttamenn
á fund sinn á Hótel Sögu i gær, þar
sem þeir skýrðu sin sjónarmið.
Norðanmenn lögðu á það meg-
inþunga, að heimabátum væri
auðvelt að afla allrar þeirrar
rækju, 650 tonna, sem veiða mætti
á öxarfirði, sem og að vinna
hana. Atvinnulif á Kópaskeri væri
einhæft. Vegna slæmra hafnar-
skilyrða yrðu þeir einvörðungu að
treysta á afla smærri báta. Það
væri lifsskilyrði fyrir framtið og
þróun byggðar norður þar að
skapa sem besta atvinnumögu-
leika á Kópaskeri fyrir það fólk,
sem þar og i grannbyggðunum
yxi upp, en hefði ekki aðstöðu til
þess að stunda landbúnað.
Rækjuveiðarnar eru veigamikill
þáttur i þeirri viðleitni og það er
hið fyllsta óréttlæti að meina okk-
ur að sitja einum að þeim þegar
svo er komið, að þær eru orðnar
okkur viðráðanlegar.
Svo mæltist þeim félögum.
Annars fengu þeir fréttamönnum
i hendur alllanga „greinargerð
vegna rækjuveiða á öxarfirði”,
en vegna rúmleysis er ekki unnt
að rekja efni hennar hér nú.
— mhg
Fjórir sóttu um
prófessorsstödu
Fjórir sóttu um prófessorsem-
bætti i jarðeðlisfræði við verk-
fræði- og raunvisindadeild Há-
skóla Islands, en umsóknarfrest-
ur rann út 1. sept. Umsækjend-
urnir eru: Dr. Guðmundur
Pálmason, dr. Leó Kristjánsson,
Ragnar Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðingur, og Sveinbjörn Björns-
son, eðlisfræðingur.