Þjóðviljinn - 17.09.1977, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. september 1977
Eyvindur Erlendsson leikstjóri
Skjaldhamra í Finnlandi:
Gekk elns vel
og hugsast gat
Eyvindur Erlendsson
leikstjóri er nú nýkominn
heim frá því að færa upp
Skjaldhamra eftir Jónas
Árnason i Vasaleikhúsinu i
Östbotten i Finnlandi.
Þjóðviljinn náði tali af
honum og spurði um við-
tökur og sagði hann að
bæði uppfærslan og viðtök-
ur hefðu gengið eins vel og
hægt væri að h'jgsa sér um
eitt leiksviðsverk.
Við höfum 2 æfingar á dag i
heilan mánuð og frumsýningin
var svo 3. sept. Við fengum
prýðisgóðar undirtektir, nema i
einu blaði, og það vissum við
fyrirfram um. Þar var á ferðinni
skandinaviski intellektúalism-
inn sem ekki má sjá neitt alþýð-
legt.
1 Vasaleikhúsinu er ieikiö á
sænsku, en i borginni búa 50—60
þúsund manns, en meiri hluti
þeirra eru finnskumælandi og
sumir þeirra skilja ekki sænsku.
Nú stendur til að gera Vasaleik-
húsið héraðsleikhús fyrir östbott-
en, en þar búa um 200 þúsund
manns.
Lyvindur Lrlendsson.
Eyvindur sagði aö leikararnir i
Vasaleikhúsinu væru mjög góðir
og sérstaklega væri áberandi
hversu þessu leikhúsi er vel
stjórnað. öll vinnutilhögun er
með þvi móti að ná fram
hámarksafköstum.
1 Þjóðviljanum á sunnudag
verður nánar sagt frá blaðaskrif-
um um Skjaldhamra og Jónas
Arnason i finnskum blöðum.
—GFr
Alþýöubandalagið i Kópavogi
Félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn i Þinghól mánudaginn 19.
september kl. 20.30. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Uppstill-
ingarnefnd AB i Reykjaneskjördæmi kynnir hugmyndir um vinnu-
brögð við uppstillingu, m.a. drög að reglugerð um forval. Umræður
verða á eftir. 3. önnur mál. Félagar eru hvattir til að mæta. —
AB-Kópavogi.
Allt vid þad sama
í Schleyer-málinu
BONN 16/9 Reuter — Helmut
Schmidt, kanslari Vestur-Þýska-
lands, hefur frestaö opinberri
ferö til Póilands, sem átti aö
byrja á mánudaginn, vegna ráns-
ins á iöjuhöldinum Hanns-Martin
Schleyer. Sagði talsmaöur stjórn-
arinnar aö Schmidts væri mikil
þörf i Bonn meðan veriö væri aö
semja viö mannræningjana um
aö Schleyer yrði látinn laus. Viö-
ræöum Schmidts við James Call-
aghan, forsætisráöherra Bret-
lands, sem fram áttu aö fara i siö-
ustu viku, var einnig frcstaö
vegna mannránsins.
Nú eru tólf dagar siðan Hanns-
Martin Schleyer var rænt i Köln,
og hafa mannræningjarnir fimm
sinnum sett stjórninni úrslita-
kosti og hótað að bana fanganum
ef ekki verði gengið að kröfum
þeirra fyrir ákveðinn tima. En
vestur-þýska stjórnin telur þó aö
Schleyer sé enn á lifi. Svissneski
lögfræðingurinn Denis Payot, for-
maður mannréttindasamtakanna
i Genf, hefur verið milligöngu-
maður milli stjórnarinnar og
mannræningjanna, en stjórnin
hefur neitað að láta nokkuð uppi
um samningaþófið. Það hefur
kvisast út að sérstakir sendimenn
hafi verið sendir til Alsir til að
spyrja Houari Boumedien, for-
seta landsins, hvort hann myndi
veita mannræningjunum hæli, en
vestur-þýska stjórnin hefur neit-
að að segja nokkuð um þennan
orðróm. Yfirvöldin hafa heldur
ekki viljað staðfesta eða bera til
baka orðróm um að þau hafi feng-
ið i hendur myndsegulband með
nýjum (jröfum frá ræningjunum
og nýjum sönnunum fyrir þvi að
Schleyer sé enn á lifi.
BRIDGE
Framhald af bls. 11
4 spaða sögn Harðar er góð,
en nokkuð er hún djörf þar sem
2ja spaða sögn Þórarins er
þvinguð! og lofar varla meiru
en þremur smáspilum i spaða.
Vestur spilaði út hjarta gosa og
blindur átti slaginn á ás. Þórar-
inn tók nú ás og kóng i tigli, og
þegar drottningin kom spilaði
han tigul sjöunni frá blindum.
Austur kastaði hjarta (sem er
rangt) og gosinn áttislaginn. Nú
var hjartað trompað i boröi og
tigul tíu spilað. Júgóslavinn
trompaði, Þórarinn yfirtromp-
aöi með drottningunni, tók ás og
kóngA trompi og spilaði Austri
inn á spaða gosa. Austur var nú
endaspilaður, átti ekkert nema
lauf, og varð að spila frá kóngn-
um (athugið hvað gerist ef hann
hendir ekki hjarta fyrr i spil-
inu). Þórarinn vann þvi 5 spaða
og það gerði 990 til íslands.
A hinu borðinu spiluðu
Júgóslavarnir 3 grönd sem unn-
ust eftir að sagnhafi „fiskaði”
tiguldrottninguna aðra i Austur.
Það gerir 600 og tslendingarnir
fengu þannig 390 út úr spilinu.
En þessi smásveifla dugði
skammt. Leikurinn tapaðist
með 4 vinningsstigum gegn 16.
Kóreumaður
á Everest
Katmandu 16/9 Reuter — 28 ára
gamall suður-kóreskur fjall-
göngumaður kleif i gær hæsta
fjall jarðar, Everest-fjall á lanla-
mærum Nepals og Tibets. Ko
Sang—Don er fyrsti kóreumaður-
inn sem kemst upp á tind Ever-
est-fjalls og stóð hann þar i
klukkutima ásamt burðarmanni
sinum af sherpa-þjóðflokki. r
WÓDLEIKHÚSIÐ
Sala á aðgangskortum
stendur yfir.
Fastir frumsýningagestir,
vinsamlegast vitjið korta yðar
sem fyrst.
Miðasala 13,15 til 20. Simi 1-
1200.
i.HiKKf-;iA(; 2(2 22
RKYKJAVlKlJR
GARY KVARTMILLJÓN
Önnur sýning i kvöld.
Uppselt. Grá kort gilda.
Þriðja sýning sunnudag kl.
20,30. Rauð kort gilda.
Fjóröa sýning fimmtudag kl.
20,30. Blá kort gilda.
SKJALDHAMRAR
144. sýning föstudag kl. 20,30.
Miöasala i Iðnó kl. 14-20.30,
simi 1-66-20.
Askriftarkort eru afgreidd i
skrifstofu L.R. I dag kl. 10-15,
simi 1-31-91 og 1-32-18.
Kolmunnavinnsla
Framhald af bls. 1
er að auglýsa rækilega eftir
verkafólki til aö vinna aflann, en
það virðist vera mjög erfitt að fá
það, sagði Trausti. Hérna vinna
5—6 manns úr Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins, 3 strákar úr
Fiskvinnsluskólanum og ýmsir
kunningjar minir og vinir úr
Reykjavik, td. sérðu þarna á
lyftarianum viðskiptafræöing úr
Seðlabankanum sem ég grátbað
að koma hingað til hjálpar.
Ýmsar nýjungar eru i vélabún-
aði ma. vél sem Trausti hefur
fundið upp. Það er einföld og ódýr
vél sem tekur slógið innan úr fisk-
inum án þess að taka hausinn af. I
Nigeriu vilja þeir hausana með i
skreiðinnlog hundar i Sviþjóð éta
áreiðanlega hausana ekki siður
en annað. Þessi vél veldur mun
betri nýtingu á fiskinum, sagði
Trausti að lokum. Qpr
Til Sjávarfrétta, Artnúla 18, pósthólf 1193, Rvfk
Óska eftir áskrift.
Nafn:
Heimiusfang:
aimi:
sjóvarfréttir
Meðal efnis:
• Á döfinni: Kolmunni til manneldis. Rætt
við dr. Björn Dagbjartsson.
• Markaðsmál: tslenska útflutningsmið-
stöðin. Flytur út 40% rækjuframleiðslunn-
ar.
• Lifrarvinnsla: Sjávarfréttir halda áfram
að fjalia um bætta nýtingu lifrarinnar.
• Útgerðin: Reynsla Fiskiðjusamlagsins á
Húsavik af rekstri skuttogara.
• Nýjungar: Loftlinan. Ný tegund fiskilinu,
sem hefur gefið góða raun.
Á miðunum: Með Berki NK 122 á kol-
munnaveiðum.
• Fiskverð — aflabrögð: Verð á ýmsum
mörkuðum og afli fyrstu sex mánuðina.
• Farskip: Skipakaup Eimskipafélagsins.
Og fleira og fleira.
Sjávarfréttir — sérrit sjávarútvegsins.