Þjóðviljinn - 05.11.1977, Page 16
DJÚÐVIUINN
Laugardagur 5. nóvember 1977
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, Utbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
C 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans i sima-
skrá.
Slæmt ástand hjá frystihúsum á Suðvesturlandi og Suðurlandi:_
Of mörg, vanbúin og illa nýtt
— er dómur Þjóöhagsstofnunar
Áöur en ráöstafanir voru
gerðar til aö rétta af halla fisk-
vinnsiustööva til áramóta
stefndi í 8-10% halia hjá
frystihúsum á Suöur- og Suö-
vesturiandi. Siöustu 2-3 árin
hefur sifellt sigiö á ógæfuhliöina
fyrir frystihúsarekstri á þess-
um landshlutum. Þjóöha gs-
stofnun telur að hallatölur af
þessu tagi feli i sér yfirvofandi
greiösiuþurrö, þar sem afuröa-
sölutekjur dugi rétt til aö greiöa
beinan launakostnaö, hráefni og
umbúöir, en engan annan
rekstrarkostnaö.
Astæðurnar fyrir þessari
óhagstæðu afkomuþróun segir
Þjóðhagsstofnun vera þessar:
1) Nýting hráefnis er lökust á
Reykjanesi og á umræddu svæöi
má skýra helming afkomumun-
arins miðaö við aðra landshluta
með lélegri hráefnisnýtingu og
þar af leiðandi meiri hráefnis-
kostnaðar I hlutfalli viö tekjur.
2) Nýting afkastagetu fisk-
vinnslustöðvanna er mun lélegri
á Reykjanesi og Vesturlandi en
annarsstaöar á landinu. Suður-
landið er I þessu tilliti nálægt
landsmeðaltali. Megin orsök
þessa mismunar er sú aö
afkastagetan hefur tekiö mið af
aflatoppun á vetrarvertiö viö
Suövesturland. En landburður
af fiski á vetrarvertið þai; er lið-
in tið vegna breytinga á
fiskigengd og sókn. Fisk-
vinnslustöövarnar eru miöaöar
viö sveiflutoppana og þvi ekki
fullnýttar. Stöövarnar eru of
margar, en sú viöleytni að
fækka þeim hefur engan árang-
ur boriö. Vegna rekstrarörðug-
leika hafa þær ekki bætt
framleiösluskipulag sitt og
vinnslurás eða bætt viö sig bún-
aði. 3) A Suövesturlandi og
Suðurlandi tiðkast yfirborganir
á takmörkuðu hráefni vegna
fjölda fyrirtækja og flutnings-
möguleika á svæöinu.
Samkeppni um vinnuafl við
aðrar greinar er einnig haröari
enannarsstaðar. 4) Breytingar i
tegundaskiptingu aflans, sér-
staklega samdráttur ufsaafl-
ans, kemur illa við fyrirtæki á
Reykjanesi og Suðurlandi. Þær
valda samdrætti freðfiskfram-
leiðslunnar á ^Suðurlandi um
5-6% meðan framleiðslan á
landinu öllu eykst um 13%. 5)
Reksturskostnaöur, viðhald og
fjármagnskostnaður virðist
hafa aukist hlutfallslega hjá
frystihúsunum i Vestmannaeyj-
um i kjölfar gossins, þrátt fyrir
að bætur hafi komið fyrir beinan
skaða og hluta tekjumissins.
Framlegð úr rekstri er svipuð i
Eyjum og á Vestfjörðum, en
heildarafkoman miklu lakari I
Vestmannaeyjum. Aflabrögö
þar á siðustu vertiðum hefur
einnig verið lakari.
,Niðurstaða þjóðhagsstofnun-
ar er þvi sú að rekstur fisk-
vinnslufyrirtækja á Suðvestur-
landi og Suðurlandi sé i miklum
ólestri. Ljóst er að hann þarf
endurskipulagningar við, en
beinar tillögur um á hvaða enda
skuli byrjað hafa ekki komið
fram. —ekh.
Benedikt Daviðsson og Eysteinn Jónsson á fundinum um Sambúð
verkaiýðshreyfingar og samvinnuhreyfingar hjá Alþýðubandaiaginu i
Reykjavik i fyrrakvöld.
Eflum samvinnustarf
á höfuðborgarsvæði
Fundir þeir um sam-
vinnumál/ sem Alþýðu-
bandalagið hefur efnt til
að undanförnu/ hafa verið
vel sóttir og umræður
miklar að loknum fram-
söguerindum.
1 fyrrakvöld ræddu þeir Ey-
steinn Jónsson, formaður stjórn-
ar Samb. isl. samvinnufélaga og
Benedikt Daviðsson, formaður
Sambands byggingamanna um
„sambúð samvinnuhreyfingar og
verkalýðshreyfingar”. Voru er-
indi beggja hin fróðlegustu en
rúm er ekki til að rekja þau hér.
Frummælendur, svo og aðrir
ræðumenn, voru á einu máli um
nauðsyn þess, að auka og efla
sem mest samstarf þessara
tveggja voldugu og áhrifamiklu
félagsmálahreyfinga og mundi
báðum til framdráttar.
Eysteinn Jónsson taldi að róa
þyrfti að þvi öllum árum að auka
samvinnustarfið á höfuðborgar-
svæðinu og efla Kron á alla grein.
Væri það eitt brýnasta verkefni
samvinnumanna. Það hefðu laun-
þegar i Reykjavik á valdi sinu að
gera og án dyggilegs stuðnings og
atfylgis þeirra yrði ekki unnt að
gera Kron að þvi áhrifaafli á sviði
verslunar og viðskipta, sem ann-
ars væri i lófa lagið.
Benedikt Daviðsson sagði, að
samvinnumál og efling sam-
vinnuverslunar væri mjög á dag-
skrá I verkalýðshreyfingunni og
þar væri greinilega vaxandi
skilningur á þvi að efla sam-
vinnustarfið á höfuðborgarsvæð-
inu. Við sama tón kvaö i orðum
annara fundarmanna.
Ennþá er einn fundur eftir og
verður hann n.k. þriðjudags
kvöld. Þá ræða þeir Sigurðui
Magnússon og Engilbert Guð
mundsson um samvinnustefnuní
og sósialska baráttu.
—mh
Algjörlega
fráleitt
aö innlendur iðnaður fái ekki mjólkurduft
á heimsmarkaðsverði segir Björn Bjarna-
son, form. Landsambands iðnverkafólks
Fram hefur komið I fréttum aö
undanförnu að innlendum kex- og
sælgætisiðnaöi er gert að kaupa
innlent mjóikurduft á 320-330 kr.
kg. á meöan heimsmarkaðsverð-
iö er aðeins 80 kr. Þjóðviljinn
hafði i gær samband við Björn
Bjarnason formann Landssam-
bands iðnverkafólks og taldi hann
þetta algjörlega fráleitt meðan
iðnaður hér verður að keppa viö
innflutt kex og sælgæti án vernd-
ar.
Nú eru liðin ein 8 ár síðan iðn-
rekendur geröu samkomulag við
rikisvaldiö um aö iðnaöur fengi
jafnan hráefni á heimsmarkaðs-
verði og var þaö undanfari aðild-
ar aö EFTA. Halldór E. Sigurös-
son landbúnaöarráðherra mun
margsinnis hafa lýst þvi yfir að
staöið verði við gefin loforð og
hefur það veriö mjög drengilega
mælt af honum, eins og Davið
Scheving Thorsteinsson, formað-
ur Fél. Isl. iðnrekenda sagði i
blaðaviðtali i gær. Hins vegar
hefur hann svikið orð sin jafn-
harðan og stendur svo enn.-GFr
Björn Bjarnason.
Frá borgarstjórn:
Verslunartími lengdur?
Samþykkt var I borgarstjórn
Reykjavikur að skipa nefnd,
sem I verði 3 fulltrúar
borgarinnar ásamt fulltrúum
verslunarmanna og neytenda til
þess að endurskoða núgildandi
reglugerð um opnunartima
verslana.
Björgvin Guömundsson
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins
lagöi fram á fundinum tillögu
um að verslunartimi yrði gefinn
frjáls, en borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks lögðu fram breyt-
ingartillögu um nefndarskipun-
ina sem var samþykkt.
1 tillögunni er tekið fram að
athugað verði hvaða afleiðingar
breytingar á verslunartima
hefðu fyrir smákaupmenn og að
þess y rði gætt að þeir gætu hald-
ið áfram verslun sinni.
Nokkrar umræður urðu um
málið og lýstu allir sem til máls
tóku sig fylgjandi þvi að opnun-
artimi verslana yrði lengdur.
—AI
Mikið að stríða
hjá krötunum
Prófkjörsslagurinn
hjá Alþýðuflokknum er
nú að taka á sig ýmsar
myndir.
Þvi varstungiö að blaðinu Igær
að nú hefði Vilmundur nokkur
Gylfason boðið öllu starfsfólki
Sláturfélags Suðurlands, —
(væntanlega þó aðeins Reykvik-
ingum,) —7 i kaffi að Hótel Sögu
kl. 2 i dag.
Trúlegt má telja, að ekki verði
látið sitja við þennan eina starfs-
hóp og verður þá búiö að drekka
mikið kaffi um það leyti, sem
prófkjörsdagurinn rennur upp og
Kjarvalsstaöir:
Listamenn i
safnráðinu
Samkvæmt lögum um Lista-
safn Islands, skulu islenskir
myndlistamenn kjósa úr sfnum
hópi þrjá menn I safnráö til
fjögurra ára I senn, tvo list-
málara og einn myndhöggvara.
Við kosningu að þessu sinni
voru kjörnir sem aðalmenn list-
málararnirHrólfur Sigurðsson og
Hörður Agústsson og Magnús
Tómasson, myndhöggvari. Vara-
menn voru kjörnir Einar
Hákonarson og Ragnheiöur Jóns-
dóttir, listmálarar, og Sigurjón
Ölafsson, myndhöggvari.
menn geta fariö að þakka fyrir
veitingarnar. Hjá SS i Reykjavik
vinna á 2. hundrað manns.
Þaö dugar ekki aö horfa I her-
kostnaðinn þegar mikið á að
striða. —mhg
Kvik-
mynda-
húsið
samþykkt
Leyfi hefur nú endanlega
veriö veitt til þess að reka
kvikmyndahús I nýbygging-
unni að Hverfisgötu 54.
Þaö er Jón Ragnarsson,
eigandi Hafnarbiós sem á
nýja kvikmyndahúsiö og
hyggst hann reka þaö sam-
hliða Hafnarbiói.
1 húsinu veröa 3 litlir salir
auk eins stórs og gefur þaö
möguleika á fjölbreyttuin og
mörgum kvikmyndasýning-
um I einu.
Vist er aö kvikmyndaunn-
endur i borginni hugsa sér
gott til glóöarinnar aö fara I
,,nýja” bióiö þegar þaö verö-
ur tekið i gagniö um áramót-
in. —AI.