Þjóðviljinn - 15.11.1977, Side 3
Þriðjudagur 15. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
VESTUR-ÞÝSKALAND:
Enn dauðsfall
fangelsaðs
skæruliða
MUNCHEN 14/14 — Ingrid
Schubert, 33 ára borgarskæruliði
og iengi féiagi i Baader-Meinhof-
hópnum, fannst á laugardags-
nóttina hengd i fangaklefa i
Stadelheim-fangeisinu i
Miinchen. Halda yfirvöid þvi
fram að hún hafi framið sjálfs-
morð, og er hún eftir þvi fjórði
borgarskæruiiðinn, sem á
skömmum tima lætur lifið á þann
hátt i vesturþýskum fangelsum.
Ingrid Schubert hafði verið
dæmd til 13 ára fangelsisvistar
fyrir að hjálpa til að ná Andreas
Baad.er úr höndum yfirvalda i
Vestur-Berlin 1970, svo og fyrir
bankarán og fleira. Lögfræðingur
hennar, sem ræddi við hana eftir
dauða félaga hennar þriggja i
Stammheim-fangelsinu, segir að
þá hafi hún sagt honum að hún
hefði alls ekki í hyggju að fremja
sjálfsmorð.
Tveir prestar, sem heimsóttu
Gudrun Ensslin, einn fanganna
þriggja sem yfirvöld segja hafa
fyrirfarið sér i Stammheim, dag-
inn áður en Ensslin fannst hengd,
segja hana hafa sagt .aö
„hræðilegir atburðir myndu ger-
ast, ef hinir fangelsuðu borgar-
skæruliðar yrðu ekkilátnir lausir.
„Ef við sleppum ekki héðan út,
munu hræðUegir atburðir gerast,
atburðir sem við viljum ekki að
gerist en höfum enga möguleika á
að hindra, hafa prestarnir eftir
Ensslin.
NKOMO:
Málamiðlun
hefur mistekist
LUSAKA 14/11 Reuter — Joshua
Nkomo, annar aðalleiðtoga
Föðurlandsfyikingarinnar, sem
heyr skærustrlð gegn minnihluta-
stjórn hvitra manna i Ródesiu,
sagði i dag að siðustu tilraunir
Bandarikjanna og Bretlands til
málamiðlunar i Ródesiudeilunni
hefðu mistekist og gaf til kynna,
að Föðurlandsfylkingin tæki ekki
annað i mál en að hún tæki við
völdum af stjórn lans Smith
milliiiðalaust. Nkomo sagði að
skærustriðið myndi halda áfram
uns Smith-stjórnin hefði verið
sigruð. „Landinu verður að vera
stjórnað af þvi fólki, sem barist
hefur fyrir þvi, sem landsmenn
vilja, og þetta baráttufólk er
Föðurlandsfylkingin,” sagði
Nkomo.
Ummæli Nkomos boða ekkert
gott fyrir málamiðlunaráætlun
Breta og Bandarikjamanna, en i
þeirri áætlun er gert ráð fyrir þvi
að Smith segi af sér, en við taki
breskur landstjóri, sem stjórni
landinu i sex mánuði. A þeim
tima eiga samkvæmt áætluninni
að fara fram kosningar með jöfn-
um atkvæðisrétti allra lands-
manna og að þeim kosningum
loknum er gert ráð fyrir aö taki
við stjórn, sem njóti almennrar
viðurkenningar rikja heims.
Yfirlýsing Nkomos er einnig
talin þýða versnandi samkomu-
lag Föðurlandsfylkingarinnar og
ýmissa blökkumannaleiðtoga,
sem nú dveljast i Ródesiu sjálfri,
en þeirra helstir eru Muzorewa
.biskup og séra Ndabaningi
Sithole. Fulltrúi Muzorewa
biskups héfur þegar brugðist illa
við ummælum Nkomos, en
Nkomokallar Muzorewa, Sithole
og fylgismenn þeirra fótaþurrkur
óvina Föðurlandsfylkingarinnar.
Fulltrúibiskups iLusaka, George
Nyandoro, sagðist ekki telja að
málamiðlunaráætlun Breta og
Bandarikjamanna heföi enn
brugðist með öllu. Nikomo sagði
að Bretum hefði mistekist að
vikja Smith frá völdum, og sýndi
það að ekkert væri á málamiðlun-
um þeirra byggjandi.
Yinslit Sómala
og Sovétmanna
Slíta sambandi
NAIROBI 13/11 — Stjórn Sómalí-
lands tilkynnti I dag, að hún hefði
lýst vináttusamning sinn við So-
vétrikin, sem gerður var 1974 úr
gildi fallinn. Jafnframt segjast
Sómalir hafa slitið stjórnmála-
sambandi við Kúbu. Var þetta til-
kynnt i útvarpinu I Mogadishu,
höfuðborg Sómalilands.
Abdulkasim Salad Hassan,
upplýsingamálaráðherra Sóm-
ala, las upp yfirlýsinguna sjálfur
og sagði að ákvarðanimar um
þetta hefðu verið teknar á fundi
miðnefndar Byltingarflokks
sósialista, sem er rikjandi flokkur
landsins. Stóð fundurinn að sögn
ráðherrans 19 klukkustundir, svo
að ætla má að nefndarmenn hafi
talið ákvarðanimar örlagarikar.
Kúbanskir sendiráðsmenn fengu
48 klukkustunda frest til þess að
yfirgefa landið. Stjórnmálasam-
bandi við Sovétrikin verður hins-
vegar ekki slitið, en upplýsinga-
málaráðherrann sagði að fækkað
yrði I sendiráöum rikjanna hvors
hjá öðru.
Ætla má að Sómalir hafi tekið
þessa ákvörðun vegna gremju yf-
ir vaxandi stuðningi Sovétmanna
við Eþiópiu, sem Sómalir eiga i
striði við, en jafnframt hafa So-
vétmenn dregið úr stuðningnum
við Sómaliland, sem lengi var
ömggasta bandalagsriki þeirra i
Afriku. Sómalir saka Kúbani auk-
heldur um að senda Eþiópum
hernaðarsérfræðinga og jafnvel
herlið.
Hjartaþegi fremur sjálfsmorð
HÖFÐABORG 14/11 Reuter
— Kona að nafni Elizabeth
Nel, 34 ára, sem nýtt hjarta
var sett I með skurðaðgerð
fyrir þremur vikum, framdi
sjálfsmorð 1 gærkvöldi með
þvi að varpa sér út um
giugga á Groote Schuur-
sjúkrahúsinu. Frú Nel var
fyrsta suðurafriska konan,
sem nýtt hjarta var sett i eft-
ir að skurðlæknirinn Christ-
aan Barnard hóf hjartaflutn-
inga milli fólks. Hún var
átjándi sjúklingurinn, sem
undirgekkst sllka aðgerð.
Ekki fylgir það með frétt-
inni, hver ástæðan til sjálfs-
morðsins var.
CariIIo til USA
Kynnir Evrópu-
kommúnismann
í háskólum
MADRID 14/11 Santiago Carrillo,
aðalritari Kommúnistaflokks
Spánar, lagði i dag af stað flug-
leiðis til Bandarikjanna þeirra
erinda að kynna viðhorf Evrópu-
kommúnista og spænskra
kommúnista sérstaklega. Mun
hann kveljast i Bandarikjunum i
tiu daga og fiytja fyrirlestra I
Yale, Harvard og fleiri háskólum
um spæ'nsk stjórnmál og
Evrópu-kommúnisma.
Snemma á árinu sendi Carillo
Carrillo — kynnir Banda-
rikjamönnum Evrópu-
kommúnismann.
frá sér bókina Evrópu-
kommúnisminn og rikið, og vakti
sú bók gremju Sovétmanna. Sök-
uðu sovésk blöð hann þá um að
reyna að valda klofningi i heims-
hreyfingu kommunista. Carrillo
hélt þvi fram, sem kunnugt er, að
sér hefði veriö meinaö að flytja
ræðu iMoskvu við hátiðahöldin af
tilefni 60 ára afmælis október-
byltingarinnar, en sovéskir tals-
menn haf a sagt að þetta haf i staf-
að af þvi, að Carrillo hafi tilkynnt
komu sina of seint til að hægt væri
að ætla honum ræðutima.
Helstu flokkar Evrópukomm-
unismans eru sem kunnugt er
kommúnistaflokkar Spánar,
Frakklands og Italiu. Þeir eru
hlynntir fjölflokkalýðræði og
leggja áherslu á að flokkar þeirra
séu óháðir Sovétrikjunum.
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
B
■
I
■
I
■
I
■
I
■
K
Aldrei haldið
ef við hefðum ekki yerið sérstak-
lega vel klæddir, sagði Sigurður
Eggertsson sem lá á kili í 5 tíma
í hörkuveðri ásamt félögum sínum
1 fyrrinótt var gerö mikil leit
að þremur mönnum I
gúmmibáti I Isaf jarðardjúpi.
Þegar þeir fundust höfðu þeir
hangið I 5 tima á kili bátsins i
7—8 vindstigum og fjögurra
stifa frosti. Þeir voru að sjálf-
sögðu orðnir vel kaldir en samt
sæmilega á sig komnir enda
sérstaklega vel klæddir.
Þjóöviljinn ræddi við einn
þeirra, Sigurð Eggertsson
byggingameistara I Bolungar-
vik, i gær og fer frásögn hans
hér á eftir.
Forsaga málsins er sú að við
Guðjón Harðarson fórum á
laugardag inn á Langadals-
strönd með bát og ætluðum að
komast til baka á sunnudag á
gúmmibátnum. Þá villtumst við
hinsvegari éljagangiog lentum
i Æðey og ætluðum þá að gista
þar um nóttina. Um kvöldið var
komið ágætisveður og ákváðum
við þá að halda áfram og Jónas
Helgason bóndi i Æðey slóst i för
með okkur.
Ekki voru liðnar nema 20
minútur þegar mótorinn drap á
sér og komum við honum ekki 1
gang aftur. Vorum við svo að
hrekjast i hálfan fjórða tima
þangað til bátnum hvolfdi. Þá
var kominn haugasjór, hafði
blásið upp á hálftima i 7—8
vindstig.
Við fórum að sjálfsögðu i sjó-
inn en náðum allir taki á bátn-
um og komumst upp á kjölinn.
Hins vegar týndum við öllu
lauslegu út og ef okkur hefði
tekist að koma bátnum á kjöl
aftur hefðum við ekki haft neitt
þetta út
til að ausa nema þá kannski
stigvélin. Við ákváöum þess
vegna að halda okkur á kilinum
enda er botninn stamur og menn
renna ekki til á honum. Þarna
grúfðum við okkur niður og
reyndum að verjast ágjöfinni
sem stöðuft gekk yfir bátinn.
Við vorum sifellt að blotna.
Einnig höfðum við náð taki á 10
metra langri linu sem notuð er
til að binda bátinn.
Við vorum orðnir ansi kaldir
enda fór veður kólnandi og
hefðum aldrei haldið þetta Ut ef
við hefðum ekki verið sérstak-
lega vel klæddir. Ég var td. i
svokölluum snjósleðagalla og i
tveimur peysum innan undir
auk föðurlands og þvi um liku.
Félagar minir voru lika mjög
vel klæddir td. i tveimur úlpum.
Ekki vorum við farnir aö
örvænta af þvi að við gerðum
ráð fyrir að ná landi fyrr eða
siðar. Það hleypti lika i okkur
kjarki að sjá til leitarskipanna
en þau munu hafa verið oröin
20—25, þar á meðal allir
Vestfjarðatogaramir sem voru
að koma inn vegna veðurs. Við
sáum lika menn ganga fjörur
með ljós. Ég vil nota tækifærið
til að skila þakklæti til þeirra
sem að þessari leit stóðu.
Að lokum sagði Sigurður aö
eftirköstin væru helst þau aö
þeir þremenningar væru enn að
verki upp eftir öllum fótum.
Það var vélbáturinn Hugrún
sem fannþáfélaga að lokumum
kl. 8 i gærmorgun og voru þeir
þá skammt undan Seyðisfirði.
—GFr
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I